Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.09.2014, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.9. 2014
Morgunblaðið/Golli
Leikkonan og fyrirsætan Halla Vilhjálmsdóttir
er nú í óðaönn að undirbúa brúðkaup sitt sem
verður eftir 12 vikur en þá gengur hún í það
heilaga með unnusta sínum til nokkurra ára,
Harry Koppel. Brúðkaupið verður í Bogotá,
höfuðborg Kólumbíu, þaðan sem Koppel er.
Halla þykir skipulögð með eindæmum og
dugleg að koma hugmyndum sínum í fram-
kvæmd en fyrir fjórum vikum var hún á tindi
hæsta fjalls Evrópu; Elbrus, og fjallamennska
hefur átt hug hennar allan síðan hún kynntist
Koppel.
Ljóst er að skipulagsgáfa Höllu er afar góð
og því forvitnilegt hvernig haldið verður utan
um skipulag brúðkaupsins en í vikunni tók
Halla til í fataskápnum sínum og birti myndir á
Instagram til að sýna afraksturinn. Ekki bara
var allt nákvæmlega sorterað heldur merkti
hún hverja hillu með miðum þar sem á stóð ým-
ist „íþróttastuttbuxur“, „íþróttabolir“, „bolir
með löngum ermum“, „bolir með stuttum erm-
um“ og svo mætti áfram telja og telja.
Brúðkaup eftir 12 vikur
Halla Vilhjálms-
dóttir er skipu-
lögð með ein-
dæmum.
Þar sem ég sat við sjónvarpið um daginn ogbeið eftir niðurstöðu úr þjóðaratkvæða-greiðslunni í Skotlandi vonaði ég að sjálf-
stæðissinnar hefðu haft betur. Ég á reyndar
engra hagsmuna að gæta í Skotlandi, eða á Bret-
landi yfirleitt. Ég fer sjaldan á þessar slóðir og
þekki í raun lítið til dagslegs lífs hins svokallaða
venjulega manns á eyjunni miklu. Álitaefni um
sjálfstæði þjóðar eru hins vegar ekki staðbundin
og því var fróðlegt að fylgjast með kosningabar-
áttu já- og nei-manna.
Kosningabaráttan var hefðbundin sem slík.
Slagorð og hræðsluáróður á báða bóga. Ég var
fegin að fylgjast með baráttunni úr fjarlægð og
geta þannig óhikað stutt sjálfstæðissinna. Það
hvarflar að mér að efi hefði sótt að mér hefði ég
verið í meira návígi við ómálefnalegan málflutn-
ing sjálfstæðissinna en eitt helsta vopn þeirra
var, að þeirra mati, að með sjálfstæði þyrfti
Skotland aldrei að þola ríkisstjórn íhaldsmanna.
Ætli hræðsluáróður sambandssinna eins og
Gordons Browns, sem „hótuðu“ því að höf-
uðstöðvar hins marggjaldþrota banka RBS
myndu hverfa frá Skotlandi, hefði þó ekki vegið
á móti.
Jú, ég hefði kosið með sjálfstæði Skotlands.
En þótt sjálfstæði þjóðar skipti miklu máli þá
skiptir sjálfstæði einstaklinganna meira máli.
Það er lítið varið í að búa í sjálfstæðu ríki ef
stjórnvöld þar haga sér eins og bestíur. Sjálf-
stæðir verða einstaklingar ekki nema þeir njóti
frelsis til þess að haga sínum málum sjálfir. Fátt
skerðir frelsi manna meira en skattur, sem er
ekki annað en eignaupptaka. Sjálfstæðissinn-
arnir í Skotlandi lögðu mikla áherslu á að fá
skattlagningarvaldið heim til Skotlands. Ég er
sammála því að best fari á því að skattlagning
fari fram sem næst þeim sem þurfa að búa við
hana. Stjórnmálamenn veigra sér alla jafna við
að þjösnast á þeim sem næst þeim standa. Því er
meiri von til þess að skattlagningu sé stillt í hóf
þegar henni er ráðið sem næst skattgreiðend-
unum.
Sjálfstæðissinnarnir í Skotlandi fjölluðu hins
vegar ekkert um þetta í kosningabaráttunni.
Þvert á móti gaf málflutningur þeirra til kynna
að þeir hefðu áhuga á meiri skattlagningu en
tíðkast hefur á eyjunni. Þeirra málflutningur gaf
þannig ekkert tilefni til þess að ætla þeir vildu
meira sjálfstæði fyrir Skota, heldur bara Skot-
land. En samt eiginlega ekki heldur því sjálf-
stæðissinnarnir vildu áfram vera í Evrópusam-
bandinu og lúta reglusetningu um hvaðeina frá
Brussel.
Þrátt fyrir öll þau undarlegheit sem mörkuðu
þessa þjóðaratkvæðagreiðslu í Skotlandi, bæði
að formi til og efni, hefði ég samt stutt sjálfstæði
Skotlands í þeirri von að sjálfstætt ríki auki lík-
urnar á því að einstaklingarnir verði sjálfstæðir.
Hversu langt nær sjálfstæðið?
* Fátt bendir til að þjóð-aratkvæðagreiðslan íSkotlandi hafi lotið að
sjálfstæði Skota.
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Sigríður Ásthildur
Andersen
sigga@sigridurandersen.is
Jón Gnarr segir
frá því á Face-
book í gær að
hann hafi tekið
þátt í athygl-
isverðum um-
ræðum í breskum útvarpsþætti á
fimmtudag um leiðbeiningabækl-
inga. „Bretunum fannst athygl-
isvert að heyra að yfirleitt eru
leiðbeiningar á Íslandi ekki þýdd-
ar á íslensku heldur fáum við
þær oftast á ensku eða hinum
Norðurlandamálunum.“ Guð-
ríður Haraldsdóttir blaðamað-
ur, eða Kaffi Gurrí eins og hún
er oft nefnd, var ein þeirra sem
tóku þátt í umræðunum sem
spunnust út frá þessum skrifum.
„Mér tókst einu sinni að tengja
vídeótæki (meira að segja með
RÚV á 1 og Stöð 2 á 2) eftir
hollenskum leiðbeiningum og
kann ekki orð í hollensku. Það
efldi sjálfstraustið til muna,“
skrifaði Guðríður.
Samkvæmisleikur sá að nefna
10 plötur sem hafa haft áhrif á
mann sjálfan og biðja svo aðra
um að nefna þær 10 plötur sem
mótuðu þá er í fullum gangi á
Facebook. Bergsteinn Sig-
urðsson útvarps-
maður tók saman
lista yfir þær 10
plötur sem hann
segir hafa mótað
sig og eru það
plöturnar: Pottþétt
1, Pottþétt 2, Pottþétt 3, Pott-
þétt 4, Pottþétt 5, Pottþétt 6,
Pottþétt 7, Pottþétt 8, Pottþétt
9 og Pottþétt 10. Út frá þessari
játningu spunnust umræður um
ýmsar íslenskar safnplötur sem
heita nöfnum eins og Reif í
kroppinn. Heiða
Kristín Helga-
dóttir, stjórn-
arformaður Bjartr-
ar framtíðar, játaði
í kjölfarið að vegna
fjölskyldutengsla
ætti hún heiðurinn af nafnbótinni
Algjört möst sem fylgdi í kjöl-
far safnplötunnar Ýkt stöff.
„Mitt stærsta framlag til íslenskr-
ar tónlistar,“ skrifar Heiða Krist-
ín.
AF NETINU
Vettvangur
Sýningar á fimmtu þáttaröðinni af breska
myndaflokknum Downton Abbey hefjast í
Ríkissjónvarpinu sunnudaginn 19. október
næstkomandi. Sérstök eftirvænting ríkir fyr-
ir seríuna að þessu sinni en meðal gesta verð-
ur óskarsverðlaunaleikarinn og hjartaknús-
arinn George Clooney. Þátturinn sem
Clooney leikur í verður sýndur á jóladag í
Bretlandi og er hluti af góðgjörðum sjón-
varpsstöðvarinnar ITV og er þátturinn skrif-
aður sérstaklega fyrir þetta tilefni.
Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri
RÚV, kveðst í samtali við Morgunblaðið von-
góður um að geta sýnt jólaþáttinn strax laug-
ardaginn 27. desember en það velti þó á því
að hann berist til landsins í tæka tíð.
Nokkur leynd hvílir yfir því hvert hlutverk
Clooneys verði í Downton Abbey en í morg-
unþættinum This Morning í Bretlandi á dög-
unum gaf Laura Carmichael, sem leikur Lady
Edith í þáttunum, vísbendingu. „Það er
magnþrungið augnablik með Maggie Smith
[sem leikur Violet Crawley] og George. Ég
veit ekki hvort ég vil segja meira. En George
vill fá koss og Maggie endar í gólfinu. Þetta
er dásamlegt,“ sagði Carmichael.
Þessar upplýsingar verða að duga aðdá-
endum Downton Abbey og George Clooney
að sinni en Smith er að líkindum ekki fyrsta
konan sem endar í gólfinu af völdum hjarta-
knúsarans – og örugglega ekki sú síðasta.
Koss í Downton Abbey?
Hjartaknúsarinn góðkunni George Clooney er
í þann mund að ganga í heilagt hjónaband.
AFP