Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.09.2014, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.09.2014, Blaðsíða 44
*Nýjustu mælingar Hagstofunnar sýna að vísitalaneysluverðs lækkaði um 0,12% í september, en um0,43% ef húsnæði er undanskilið. Neysluverðsvísitalanstendur nú í 422,6 stigum. Lækkuðu flugfargjöld til út-landa um 28,9% milli mánaða og hafði það 0,52% áhrifá vísitöluna. Á móti hækkaði húsnæðiskostnaður ogsömuleiðis verðið á fötum og skóm. Nemur hækkun neysluverðsvísitölunar 1,8% síðustu tólf mánuði, en 0,4% ef húsnæði er undanskilið. Fjármál heimilanna Hanna Dóra Sturludóttir óperu- söngkona flutti aftur til Íslands fyrir ári, eftir að hafa verið búsett í tutt- ugu ár í Þýskalandi. Hún býr með drengjunum sínum tveimur í lítilli íbúð í Smáíbúðahverfinu og dreymir um stærri íbúð í hverfinu. Um þessar mundir æfir hún hlut- verk Eboli prinsessu í óperunni Don Carlo, sem Íslenska óperan frum- sýnir 18. október næstkomandi. Hvað eruð þið mörg á heimilinu? Við erum oftast þrjú í heimili, ég og synir mínir Símon og Gústaf, sem eru átta og sex ára. Núna erum við fjögur þar sem maðurinn minn, Lot- har, er á landinu. Hvað áttu alltaf til í ísskápn- um? Það er alltaf til lýsi. Yfirleitt líka mjólk og smjör og það sem þarf til að útbúa skólanestið fyrir næsta dag. Hvað fer fjölskyldan með í mat og hreinlætis- vörur á viku? Örugglega of mikið! Ég hef aldrei verið neitt sérlega flink við að kaupa inn og kaupi oft það sem mig vantar ekki og gleymi því sem mig nauð- synlega vantar! Hvar kaupirðu oftast inn? Eiginlega bara í Bónus í Skeifunni. Nema þegar það er lokað. Þá fer ég í Hagkaup í Skeifunni. Hvað freistar mest í mat- vörubúðinni? Ó já … súkkulaði freistar mín alltaf og ég er misgóð í að standast freist- ingarnar. Fer eftir sálarástandi hverju sinni. Hvernig sparar þú í heimilishaldinu? Það er kannski ekki mikill sparnaður í því, en ég kaupi aldrei plastpoka í Bónus. Kem alltaf með inn- kaupatösku sem mamma saumaði úr gömlum efnisbút eða set í pappa- kassa. Reyni svo að vera skynsöm í innkaupum og ekki eyða öllu í súkkulaði! Hvað vantar helst á heimilið? Pláss! Eyðir þú í sparnað? Ég veit það nú ekki … en ég kaupi frekar kort í sund heldur en að borga í hvert skipti og við erum með árskort í Húsdýragarðinum. Skothelt sparnaðarráð? Ég bjó lengi í Þýskalandi og þar er mjög í tísku að spara, fylgjast með tilboðum og slíku. Yfirleitt reyni ég að kaupa góð föt á útsölum, bæði fyrir mig og strákana. Og svo er ég líka mjög góð í að elda fína máltíð þegar það er eiginlega ekkert til og tek óklárað skólanesti frá strákun- um til að borða í pásunni á æfing- um. HANNA DÓRA STURLUDÓTTIR Kaupir aldrei plastpoka úti í búð „Yfirleitt reyniég að kaupagóð föt á út- sölum, bæði fyrir mig og strákana,“ segir Hanna. Aurapúkinn hefur lengi átt við handklæðavanda að stríða. Honum finnst handklæðin á heimilinu ekki endast lengi. Fallegu hvítu handklæðin verða fljótt gul- leit og blettótt, byrja jafnvel að trosna á endunum ef þau verða ekki hreinlega götótt. Púkinn átti nýlega samtal við handklæðasérfræðing og komst að því í hverju vandinn er fólginn. Aurapúkinn reyndist ekki hafa hugsað rétt um handklæðin sín. Þannig hafði Púkinn lært sem barn að þvo handklæði á hæsta hita, en það er víst algjör óþarfi og 50-60°C alveg nóg m.v. eðlilega notkun. Þá á að gæta þess að fylla vélina vel, því ef ekki er þvegið fullt hlass mæðir meira á handklæðunum. Best er líka að þvo handklæðin ekki með öðrum þvotti og vitaskuld ekki blanda saman litum í vélinni. Ef þessu er fylgt eiga handklæðin að haldast heil og falleg í langan tíma. púkinn Aura- Hugsað vel um handklæðin F ólk ætti að fara varlega áður en heillegum hlutum er hent. Það sem gæti virst vera hálfgert drasl kann að vera verðmætur safngripur, og ef tekst að finna rétta kaupandann má hafa stórar fjárhæðir upp úr krafsinu. Huffington Post fjallaði t.d. fyrr á árinu um hvernig endursöluverðið á vinsælum IKEA-húsgögnum getur rokið upp þegar framleiðslu á lín- unni er hætt. Þetta gerðist þegar skrúfað var fyrir framleiðslu Expe- dit-hillueininganna sem höfðu átt mjög upp á pallborðið hjá banda- rískum neytendum. Fortíðarþráin kostar sitt Gömul spil geta líka verið verðmæt. Ekki er langt síðan Monopoly-spil frá árinu 1946 seldist fyrir 400 dali, u.þ.b. 50.000 kr. á bandaríska upp- voðsvefnum eBay. Ramminn utan um gamalt málverk getur líka verið verðmætari en sjálft listaverkið og vestanhafs ganga stórir antíkramm- ar í góðu ástandi kaupum og sölum fyrir marga tugi þúsunda. Gamanfréttavefurinn Cracked sagði nýlega frá alls kyns leik- föngum sem geta verið mikils virði. Þannig seljast sjaldgæfir Lego- kubbar á hundruð dala og meira að segja gömlu leiðbeiningabækling- arnir einir og sér geta verið mikils virði. Dýrasti Lego-kubburinn til sölu þessa dagana er bleikt turnstykki úr Duplo-línunni og uppsett verð á við nýja tölvu, 1.374 dalir eða um 165.000 kr. Safnarar leita líka uppi gamlar morgnkornsumbúðir og leikföngin úr barnamáltíðum MacDonalds geta líka verið verðmæt. Japanskt Pi- kachu-leikfang úr MacDonalds- barnaöskju seldist á sínum tíma fyr- ir 12.000 kr. Lélegar myndir og gamlir símar Eldgamlar leikjatölvur geta sömu- leiðis verið þúsunda dala virði og hafa t.d. gamlar GameBoy-tölvur í góðu ástandi selst fyrir hartnær þúsund dali á eBay. Sama gildir um eldgamla farsíma. Motorola Dyna- TAC 8000X sími frá árinu 1983 seldist nýlega fyrir 550 dali, tæplega 70.000 kr. þó svo seljandinn hafi tekið skýrt fram að ekki var hægt að ábyrgjast að síminn virkaði eða gæti haldið hleðslu. Áttu nokkuð inni í geymslu VHS- kassettu með hryllingsmyndinni Ta- les From the Quadead Zone frá 1987? Myndin þykir vera alveg hreint afspyrnuléleg en þykir þeim mun merkilegri safngripur. Sá sem lumar á eintaki gæti alveg eins bók- að strax pláss í sólarlandaferð því spólan myndi væntanlega seljast fyrir um 2.000 dali, um 240.000 kr. Lexían til að draga af þessu öllu er kannski helst sú að gera fljótlega leit á Google áður en hlutum er hent í næstu vortiltekt, eða koma við hjá vinsamlegum fornmunasala og biðja hann að gefa álit sitt á hvort eitthvað af skraninu ofan af háalofti kunni að vera einhvers virði. VHS-KASSETTUR, GÖMUL SPIL OG RAFTÆKI Leynast fúlgur fjár í leikfangakassanum? ÓMERKILEGUSTU HLUTIR GETA REYNST HINIR MESTU FJÁRSJÓÐIR OG VISSARA AÐ HUGSA SIG TVISVAR UM ÁÐUR EN GAMLA LEIKJATÖLVAN EÐA JAFNVEL ÚRELTU IKEA-HÚSGÖGNIN ERU SETT Í SORPU. Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Sjaldgæfir Lego-kubbar geta sumir verið tugþúsunda virði og gamlir Lego- bæklingar líka. Mynd úr safni af barni með heilan haug af kubbum. Morgunblaðið/Ernir Ögn ódýrara að lifa í september
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.