Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.09.2014, Blaðsíða 39
Tæknirisinn Adobe keypti á mánudag fyrirtækið Aviary
sem hefur boðið upp á forrit til að breyta og laga myndir
sem teknar eru með snjallsímum. Með kaupunum er
Adobe orðinn einn besti vinur ljósmyndarans, hvort sem
hann er að smella af á síma eða með alvöruljósmyndavél.
Adobe gefur út Photoshop, Lightroom og fleiri forrit
sem ljósmyndarar nota mismikið til að laga og breyta
myndum.
Aviary hefur verið halað niður rúmlega 100 milljón
sinnum úr bæði Google play store og Apple Store og ver-
ið notað til að breyta rúmlega 10 milljörðum mynda.
Samkvæmt bloggi forstjóra Aviary, Tobias Peggs, í
vikunni ætti forritið ekki að breytast mikið en fyrirtækin
myndu vinna saman að næstu uppfærslu Aviary. „Mér
varð það ljóst fyrir rúmum 18 mánuðum að við ættum að
sameinast Adobe og hjálpa hver öðrum. Saman getum
við gert góða hluti, hvort sem það er í símanum eða í
heimilistölvunni,“ skrifaði Peggs á blog.aviary.com og
bætti við: „Að lokum vil ég þakka öllum þeim sem hafa
notað Aviary. Stuðningur ykkar hefur komið okkar hing-
að. Nú munum við skila enn betri afurð – sem hluti af
Adobe.“
Ekki hefur verið greint frá því hvað Adobe greiðir fyr-
ir Aviary.
TÆKNIRISINN ADOBE KEYPTI AVIARY
Adobe á símamarkaðinn
28.9. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
* Skip sem er í höfn er öruggt en skip eru ekkigerð til að vera bara í höfn. Siglið út ogkannið nýja hluti.
Grace Hopper, aðmíráll í bandaríska hernum
GAMLA GRÆJAN
Tæknirisinn Google á fjölmargar vefsíður sem heita næst-
um sama nafni og þeirra helsta gróðalind, leitarvélin
google.com.
Risinn frá Bandaríkjunum á gogle.com, sem er með einu
o-i; þeir eiga með þremur, gooogle.com; goglr.com, sem
væntanlega er gert fyrir þá sem hafa fengið sér aðeins of
mikið neðan í því; og 466453.com, sem er google.com
skrifað á gömlu góðu takkasímana, 4 er þá g, 6 er o, 5 er
stafurinn l og 3 táknar stafinn e.
Ástæðan er tæknibloggurum ekki alveg kunn en trúlega
er þetta til að koma í veg fyrir að svikarar stofni falsleit-
arvél á gogle.com, google a gogle.com, gooogle.com,
goglr.com og 466453.com.
Þess má geta að frá því að þú, lesandi góður, hófst lest-
ur þessarar greinar hafa rúmlega 1,4 milljónir manna leit-
að á google en samkvæmt internetlivestats.com leitar
Google að rúmlega 40 þúsund leitarorðum hverja einustu
sekúndu.
TÖFF TÆKNISTAÐREYND
Gogle, Google og Gooogle
AP
Bang&Olufsen Beocenter 9500
Beocenter 9500 var eins og flest frá Bang&Olufsen
einfalt í útliti en um leið fágað og fallegt. Beocenter
9500 var upprunalega gert af hinum þekkta hönnuði
Jacob Jensen en David Lewis tók hönnun hans og gerði
hana enn betri.
Tækið samanstóð af útvarpi, geislaspilara og kass-
ettutæki. Það kom á markað 1989 og þá var hnignun
vínylplötunnar hafin. Það var því ákveðið að sleppa því
að hafa vínylspilarann með að þessu sinni. Það var þó
hægt að kaupa Beogram 9500-spilarann sem
aukahlut.
Engir takkar voru á
tækinu og
var það tækninýjung sem ekki hafði sést áður. Voru
þarna snertitakkar kynntir til leiks, sem ljómuðu þegar
kveikt var á tækinu. Fegurðin var mikil enda er tækið
enn í dag talið ein fallegasta heimilisgræja sem komið
hefur á markað. Beocenter 9500 fékk iF Design-
verðlaunin strax árið eftir eða 1990. Tækið var fram-
leitt til ársins 1994 þegar Beocenter 9300 kom út.
iPhone 5s
Verð frá99.990.-
iPad Air
Verð frá89.990.-
LÆKKAÐ VERÐ