Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.09.2014, Page 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.09.2014, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.9. 2014 Fjölskyldan *Örlög okkar búa innra með okkur, þaðþarf bara að vera nógu hugrakkur til aðkoma auga á það. Merida prinsessa úr Brave Vanda Sigurgeirsdóttir, lektorá menntavísindasviði Há-skóla Íslands, leggur áherslu á að vinátta skipti miklu máli til að koma í veg fyrir einelti, margir eigi vissulega erfitt með að eignast vini en hægt sé að auka færni þeirra til þess. Eins og gefur að skilja er erfitt að læra þegar barni líður illa. Vanda hefur haldið fjölda fyr- irlestra um ein- elti fyrir foreldra grunnskóla og segir eina mik- ilvægustu for- sendu þess að börn nái góðum árangri í skól- anum sé að þeim líði vel. Því verði að skapa þær að- stæður; hún segir samvinnu skóla og heimila líklega bestu leiðina til að bæta líðan og námsárangur. „Ef kennarar, starfsmenn skóla, félagsmiðstöðva og íþróttamann- virkja, þjálfarar og foreldrar sam- hæfa viðbrögð sín gegn einelti aukast líkurnar á æskilegum nið- urstöðum töluvert,“ segir Vanda. Til að ná því takmarki þurfi allir fullorðnir að auka þekkingu sína á vandamálinu og hvernig best sé að taka á því. Umræðan er áberandi, en vita allir hvað felst í þessu litla en þó hræðilega orði, einelti? Vanda útskýrir það: Einelti er neikvætt, langvarandi og endurtekin áreitni sem beinist gegn einum eða fleiri ein- staklingum og hefur margþætt nei- kvæð áhrif á þá sem fyrir því verða. Einelti felur í sér valda- ójafnvægi og misbeitingu á valdi. Birtingarmyndir eineltis eru margar. Vanda nefnir þær algeng- ustu: líkamlegt ofbeldi, eins og barsmíðar, spörk og hrindingar; munnlegt ofbeldi, þegar þolendur verða fyrir stríðni, uppnefni og niðurlægjandi athugasemdum; and- legt ofbeldi, þegar þolandinn er skilinn útundan, einangraður og þarf að þola svipbrigði, augnagot- ur, þögn eða algert afskiptaleysi. Ögrandi eða hlédræg Einelti fer oftast fram á skólatíma, innan veggja skólans eða utan hans, en þó við aðstæður þar sem erfitt er fyrir fullorðna að fylgjast með, segir Vanda. Skólalóðin er al- gengasti staðurinn. Þau börn sem verða fyrir einelti eru yfirleitt á neðstu þrepum vin- sældalistans, eins og Vanda orðar það: Annars vegar ögrandi börn, sem eru reyndar lítill hluti; börn sem eiga við námsörðugleika að stríða og hafa ekki mikla fé- lagslega færni, en hins vegar hlé- dræg börn, sem svara oft áreitni með því að fara að gráta og draga sig til baka. Þau börn eru einmana og eiga fáa eða enga vini, eru með lélegt sjálfstraust og þora ekki að segja frá. Þess vegna bendir Vanda á hve vinátta er mikilvæg. Rannsóknir sýni að mjög mik- ilvægt sé fyrir andlega vellíðan barna að þau eigi vini, og hægt sé að kenna þeim vináttufærni og þjálfa í henni. Vinátta sé verndandi gegn einelti. Vanda bendi á að það sé hvorki létt verk né löðurmannlegt að hjálpa börnum að finna og eignast vinni heldur töluverð vinna fyrir foreldra. „En þetta er vinna sem þið fáið margfalt til baka, kannski ekki í tímum talið en sannarlega í hamingjusamara barni. Þau börn sem bæta sig mest eru þau börn þar sem foreldrar ræða vanda- málin við þau og vita hvernig á að hjálpa.“ Athyglisverð er sú ábending Vöndu að afleiðingar eineltis séu einnig mjög slæmar fyrir ger- endur. Rannsóknir sýni að þeir sem leggi í einelti séu líklegri en aðrir til að lenda í áfengis- og vímuefnavanda og að verða sak- felldir fyrir glæpi. Auk þess séu þeir líklegri til að beita maka og börn ofbeldi. BARÁTTAN GEGN EINELTI Vinátta er mikilvæg vernd Morgunblaðið/Árni Sæberg EINELTI GETUR VERIÐ DAUÐANS ALVARA. MIKIÐ HEFUR VERIÐ FJALLAÐ UM ÞENNAN LÚMSKA VÁGEST Í SAMFÉLAGINU LENGI EN ÚTILOKAÐ VIRÐIST AÐ BOLA HONUM BURT. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Vanda Sigurgeirsdóttir 1Talaðu við og hlustaðu á barniðþitt á hverjum degi Rannsóknir sýnaað um helmingur barna sem verða fyrir einelti segir foreldrum sínum aldrei frá því. Börn skammast sín oft of mikið og vilja því ekki segja frá. Einnig finnst þeim stundum að enginn geti hjálpað þeim, ekki einu sinni for- eldrar. Þá trúa sum því að eineltið verði verra ef þau segja frá 2 Komdu í skólann og í frímínúturRannsóknir sýna að 67% eineltistilfellagerast þar sem fullorðnir eru ekki til staðar. Ef þú getur komið einu sinni í viku eða einu sinni í mánuði – eða jafnvel einu sinni á önn, þá getur það skipt máli. 3 Sýndu gott fordæmi með góð-mennsku Börnin þín læra heilmikiðum sambönd og samskipti með því að fylgjast með þér. Í hvert skipti sem þú talar við aðra manneskju – eða um aðra – á meiðandi eða svívirðandi hátt ertu að kenna barninu þínu að einelti sé í lagi. 4 Lærðu að þekkja einkennin Ef þig grunar að verið sé að leggjabarnið þitt í einelti ræddu þá við kenn- ara barnsins eða finndu leið til að fylgjast með samskiptum barnsins við félagana til að fá það á hreint hvort grunsemdir þínar eru á rökum reistar. 5 Skapaðu heilbrigðar venjur/hegðun Byrjaðu strax í leikskóla aðþjálfa barnið í hvað á ekki að gera, t.d. lemja, hrinda, ýta, stríða, vera vondur við aðra. Einnig – og jafnvel enn mikilvægara – er að kenna börnunum hvað á að gera: Að vera góð, samkennd með öðrum og að skiptast á og vera sanngjörn eru hæfileikar sem skipta miklu máli í öllum samskiptum við önnur börn. 6 Aðstoðaðu skóla barnsins Hvortsem barnið þitt hefur verið lagt í ein-elti eða ekki ættir þú að vita hvað skól- inn gerir til að stöðva einelti. Rannsóknir sýna að aðferðir sem leggja áherslu á að byggja upp jákvæðan anda í skólanum skila bestum árangri. 7 Búðu til heimilisreglur um eineltiBörnin þín þurfa að heyra það skýrt fráþér að það er ekki eðlilegt eða í lagi að þau leggi í einelti eða verði lögð í einelti. Ekki er heldur viðunandi að þau standi og horfi á þegar önnur börn eru lögð í einelti. Ef barnið þitt leggur í einelti getur þú hjálp- að því að finna aðrar leiðir til að nota per- sónulegt vald sitt, stöðu og leiðtogahæfi- leika í skólanum. Síðan geturðu unnið með barninu, kennurum og skólastjóra að því að koma á góðmennsku-áætlun í skólanum. 8 Kenndu barninu þínu að veragóður áhorfandi Börn geta oftstoppað einelti með því að kalla: Hættu, þú ert að leggja í einelti! Flestir ger- endur hætta á innan við 10 sekúndum ef einhver segir þeim að stoppa. 9Einelti á ekki að vera hluti afbarnæskunni Sumir fullorðnir hikavið að gera eitthvað þegar þeir sjá eða heyra um einelti. Það er mikilvægt fyrir alla að skilja að engin tegund af einelti (þar á meðal illgjarnar sögusagnir, útilokun úr hópi og rafrænt einelti) er eðlilegur hluti æsk- unnar. Það má ekki vera hluti af menning- unni að eineltishegðun sé í raun eðlileg. 10 Vertu meðvitaður um fé-lagslega stöðu barnannaHvaða börn eru venjulega saman? Hvaða börn eru leiðtogar og hafa félagsleg áhrif? Hvaða börn eru félagslega veik? Hvaða börnum er ýtt til hliðar? Hægt er að hafa þetta í huga til dæmis þegar skipt er í hópa BARÁTTA GEGN EINELTI Góð ráð til foreldra Getty Images/iStockphoto  Rannsóknir sýna að strák- ar beita frekar líkamlegu of- beldi en stelpur andlegu.  Aðferðir stelpnanna eru ekki eins sýnilegar. Þær skilja m.a. út undan, koma af stað kjaftasögum og tala illa um.  Andlegt ofbeldi er ekki sársaukaminna en lík- amlegt.  Ef börn og unglingar eru spurð finnst þeim andlegt ofbeldi verra. Hvort tveggja er óþolandi ástand. MISMUNANDI EFTIR KYNJUM Andlegt og líkamlegt

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.