Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.09.2014, Page 17
„Ég fór að velta fyrir mér ólíkum
væntingum okkar til kynjanna þeg-
ar ég, átta ára gömul, var kölluð
„frek“ fyrir að vilja stýra leikritum
sem við settum á svið fyrir foreldra
okkar – en sama átti ekki við um
strákana.“
Svona lýsir leikkonan Emma
Watson því þegar hún fór fyrst að
velta fyrir sér hvaða hugmyndir
fólk gerir sér um kynin og hvers
vegna konum og körlum eru ætl-
aðar ólíkar kenndir og tilfinningar.
Watson fangaði athygli heims-
pressunnar í vikunni með magnaðri
ræðu sem hún hélt sem velgjörð-
arsendiherra UN Women í húsnæði
Sameinuðu þjóðanna í New York
við upphaf herferðar sem kölluð er
HeForShe og miðar að því að
virkja karlmenn í baráttu fyrir jafn-
rétti kynjanna.
Watson var einlæg í ræðunni og
talaði út frá sjálfri sér, eins og
klausan að ofan um barnaleikina
gefur til kynna.
Ferill þessarar bresku leikkonu
spannar 15 ár þrátt fyrir að hún sé
aðeins 24 ára gömul. Watson var
ráðin til að leika Hermione Granger
í fyrstu Harry Potter-myndinni að-
eins níu ára gömul. Hún tók því út
stóran hluta æsku sinnar í kvik-
myndatökuveri enda lék hún í öllum
átta myndunum um galdrastrákinn,
þeirri síðustu þegar hún var orðin
rúmlega tvítug. Skal því engan
undra að hún lítur á meðleikara
sína í myndunum, þá Daniel Radc-
liffe og Rupert Grint, sem bræður
sína.
Í ræðunni ræddi hún líka um
hvernig henni fannst hún vera gerð
að kynveru í fjölmiðlum aðeins 14
ára gömul.
Ræða Watson hefur vakið athygli
víða um heim en tilefni hennar var
upphaf átaksins HeForShe. Átakinu
er ætlað að virkja karlmenn í jafn-
réttisbaráttu og er hægt að fylgjast
með hvernig miðar, þ.e. hversu
margir karlar í hverju landi heims
hafa lýst yfir stuðningi við átakið, á
vefnum www.heforshe.org.
Með ræðu sinni hefur Watson
tekist að vekja umræður um fem-
ínisma og það hvernig við tölum um
og við stráka og stelpur. Kannski
verður lýsing hennar á leikstjórn-
artilburðum hennar sem barns til
þess að vekja uppalendur til um-
hugsunar um hvernig talað er við
börn. Tölum við enn um að stelpur
séu frekar en hrósum strákum fyrir
ákveðni? eyrun@mbl.is
RÆÐA EMMU WATSON VEKUR HEIMSATHYGLI
Hún var sögð frek en
strákarnir ekki
Hin 24 ára Emma
Watson vekur at-
hygli hvar sem hún
fer. Hún hóf að leika
í kvikmyndunum um
Harry Potter aðeins
níu ára og eignir
hennar eru nú
metnar á 7,2 millj-
arða króna. Hún
hefur gefið sér tíma
meðfram leiklistinni
til að klára há-
skólanám í enskum
bókmenntum og
læra til jógakennara
auk þess að vera
velgjörðarsendi-
herra UN Women.
AFP
LEIKKONAN EMMA WAT-
SON HLAUT HEIMSFRÆGÐ
Á BARNSALDRI OG NÝTIR
NÚ SLAGKRAFT FRÆGÐ-
ARINNAR Í ÞÁGU KVENNA
Trúlofunarhringar
- okkar hönnun og smíði
jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegi 61 Kringlan Smáralind
28.9. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17
Átta vikna námskeið fyrir foreldra og börn á aldrinum
9-11 ára í vakandi athygli (e. mindfulness) hefst 7. októ-
ber í Jógasetrinu í Borgartúni. Kenndar eru hagnýtar og
skemmtilegar æfingar til að þjálfa einbeitingu og úthald.
Námskeið í vakandi athygli*Gott atlæti er gjöfumbetra. Íslenskur málsháttur
Aron Bergmann Magnússon, teiknari,
leikmyndahönnuður og hugmynda-
smiður, allt í senn, starfar á Pipar
auglýsingastofu. Hann á tvær dætur,
Chloe og Ísmey Myrru, og eru þau
feðgin dugleg að eyða góðum stund-
um saman.
Þátturinn sem allir geta horft á? Ég
myndi segja að þátturinn sem við öll
horfum á og höfum gaman af saman
sé Útsvar. Við reynum oft að giska á
rétt svar og stemningin magnast í
takt við það.
Maturinn sem er í uppáhaldi hjá öll-
um? Öllum þykir tagliatelle-rétturinn
sem ég geri langbestur. Hann er með
rjómaostasósu og stökkum beikon-
bitum. Rétturinn er í miklu uppá-
haldi!
Skemmtilegast að gera saman? Það
skemmtilegasta sem við gerum sam-
an myndi ég segja að væri að föndra
saman heima og teikna saman. Það
endar þó iðulega með því að pabbi
þarf að klára föndrið fyrir skvísurnar.
Borðið þið morgunmat saman? Það er
misjafnt hvernig morgnarnir eru hjá okkur.
Stundum erum við öll á spani, við það að
verða of sein. Af og til tökum við léttan
morgunmat saman áður en allur herinn
heldur af stað í skóla eða
vinnu.
Hvað gerið þið saman heima
ykkur til dægrastyttingar? Það
skemmtilegasta sem við gerum
er án efa að fara upp í sumar-
bústað eða út í eyju til vinar
míns sem er mikil náttúruperla
og fullt skemmtilegt að gera.
Stelpunum líður alltaf vel í sveit-
inni. Svo klikkar ekki að fara í
keilu á virkum dögum til að
brjóta upp hið daglega amstur
vikunnar og hversdagsleikann.
EFTIRLÆTI FJÖLSKYLDUNNAR
Una sér öll vel í sveitasælunni
Aron
Bergmann
„Þess var ekki vænst að ég eign-
aðist börn,“ segir Þorbera Fjöln-
isdóttir í fyrirlestri sem birtur er í
myndbandsformi á vef Þekkingar-
miðstöðvar Sjálfsbjargar. Fyrirlest-
urinn er hluti af svokallaðri jafn-
ingafræðslu sem miðstöðin er að
fara af stað með og er sá fyrsti
sem birtur er í röð fyrirlestra með
ýmsum umfjöllunarefnum tengdum
fötlun og daglegu lífi.
Í þessum fyrsta fyrirlestri fjallar
Þorbera um fötlun og foreldra-
hlutverkið en hún greindist með
erfðasjúkdóm á barnsaldri og segir
ýmsar siðferðislegar spurningar
hafa vaknað þegar hún tók ákvörð-
un um að eignast börn. Í fyrstu
hafi henni verið ráðlagt að halda
sig frá barneignum. Hún lýsir
ákvörðunarferli sínu vandlega í fyr-
irlestrinum, en öll þrjú börn Þor-
beru, 16 ára, 19 ára og 22 ára, eru
ófötluð. Fyrirlestur Þorberu í heild
er aðgengilegur á vefsíðunni
www.thekkingarmidstod.is, undir
flipanum Fræðsla og undirflipanum
Fyrirlestrar.
Þekkingarmiðstöð Sjálfsbjargar
vill með frumkvöðlastarfi sínu
vinna að því að efla þekkingu á
málefnum hreyfihamlaðs fólks og
stuðla að hugarfarsbreytingu í
samfélaginu.
ÁHUGAVERÐUR FYRIRLESTUR
Þorbera Fjölnisdóttir er með fyrsta
fyrirlesturinn í jafningafræðsluröð
sem Þekkingarmiðstöð Sjálfsbjargar
stendur fyrir.
Fjallar um fötlun
og foreldrahlutverkið