Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.09.2014, Side 30
Sue Hodder nýtur mikillar virðingar heima-
fyrir og hefur meðal annars verið valin vín-
gerðarmaður ársins í Ástralíu, síðast 2010.
Spurð um nálgun sína og hugmyndafræði í
starfi segir hún brýnt að virða söguna og
hefðina.
„Vín með sögu njóta alltaf meiri og meiri
hylli. Wynns-vín hafa getið sér gott orð
gegnum tíðina og mitt hlutverk er að við-
halda því. Ég er forráðamaður þessa merkis
og þarf að hegða mér í samræmi við það.
Vínin okkar eru fræg fyrir að eldast hægt og
vel og mér ber að tryggja að svo verði áfram.
Það geri ég með því að blanda saman eldri
aðferðum sem hafa sannað sig gegnum árin
og nýjum og spennandi aðferðum. Það eru
forréttindi að rækta vín í hinum fræga „rauða
jarðvegi“ í Coonawarra.“
Hodder kveðst ekki beinlínis finna fyrir
þrýstingi sem aðalvíngerðarmaðurinn á svo
virtri vínekru. „Ég finn fyrir ábyrgð. Hafandi
sagt það eru árin misjöfn og þegar illa árar er
pressan meiri en ella. Það segir sig sjálft.“
80% af víninu sem Wynns framleiðir fara á
Ástralíumarkað en Hodder segir æ fleiri lönd
sækja í merkið. Stærstu markaðirnir, utan
heimalandsins, eru Kanada, Hong Kong og
Bretland. „Vonandi bætist Ísland fljótlega í
þann hóp!“
Matur
og drykkir
Leita uppi áhugaverð vín
Eiríkur S.
Svavarsson og
Sue Hodder.
*Eiríkur S. Svavarsson stofnaði vínklúbb fyrir réttum 20 árum ásamt félögumsínum. „Kannski frekar sérstakt áhugamál þegar maður er rúmlega tvítuguren í krafti fjöldans gátum við á námsárunum nurlað saman fyrir betri vínumtil smökkunnar. Hópurinn samanstendur af tíu einstaklingum sem eiga sérfjölbreyttan bakgrunn og starfa á ólíkum sviðum,“ segir Eiríkur. Klúbburinnhittist mánaðarlega yfir vetrarmánuðina og hefur í gegnum tíðina smakkaðýmsar tegundir rauðvíns og hvítvíns frá öllum heimshornum. „Við reynum
oft í ferðum okkar erlendis að leita uppi eina og eina flösku af áhugaverðu
víni til að koma með á klúbbfundi,“ segir Eiríkur.
S
nemma á þessu ári var Eiríkur S. Svavarsson, hæstarétt-
arlögmaður og vínáhugamaður, ásamt eiginkonu sinni á ferð
um Ástralíu og mátti til með að sækja heim eina af sínum
uppáhaldsvínekrum, Wynns í Coonawarra-héraði í suðurhluta
landsins. Var honum tekið með kostum og kynjum og fékk meðal
annars leiðsögn um vínekruna og -kjallarana hjá aðalvíngerðarmanni
Wynns, Sue Hodder. Vel fór á með þeim og þótti Hodder merkilegt
að Eiríkur væri kominn alla þessa leið. „Þennan mann verð ég að
hitta,“ mun hún hafa sagt. Þegar þau kvöddust hvatti Eiríkur Hod-
der til að sækja sig heim væri hún á ferð í Evrópu. Hún tók hann á
orðinu og í vinnuferð sinni í Bretlandi hafði hún þriggja daga við-
komu á Íslandi. Dvaldist á heimili Eiríks og var heiðursgestur í vín-
smökkunarklúbbi sem hann hefur átt aðild að í tvo áratugi.
„Vín sameinar fólk. Það er gömul saga og ný. Þetta hefur verið
stórskemmtileg heimsókn og ég er upp með mér að hér á Íslandi
séu til menn sem kunna svona vel að meta vínin sem við framleiðum
á Wynns og safna þeim jafnvel. Ég verð bara að gæta þess að láta
ekki slá að mér því ég á að dæma í vínkeppni í Adelaide í Ástralíu
um næstu helgi,“ segir Hodder sem þykir íslenska haustið býsna
napurt.
Eiríkur staðfestir þetta allt. Hann hafi lengi haldið upp á Wynns
og shirazinn þeirra sé einn sá albesti sem hann hafi smakkað. „Því
miður er ekki hægt að fá Wynns í vínbúðum hér á landi.“
Megináhersla Wynns er á rauðvín, cabernet sauvignon, shiraz og
merlot en hvítvín er líka framleitt þar, bæði riesling og chardonnay.
Bakgrunnur Hodder er í landbúnaði, hún er komin af bændum í
Alice Springs sem er í landinu miðju, þó ekki víngerðarfólki. „Þeim
þykir samt gaman að drekka góð vín,“ segir hún brosandi. Víngerð
heillaði Hodder snemma og eftir að hafa aflað sér tilhlýðilegrar
gráðu árið 1992 réð hún sig fljótlega til Wynns í Coonawarra. „Skól-
inn var fínn grunnur en það er með víngerð eins og svo margt ann-
að; maður lærir alltaf mest þegar maður er kominn út á ekrurnar.
Ég hef verið hjá Wynns í 22 ár og lært eitthvað nýtt á hverju ein-
asta ári,“ segir Hodder sem verið hefur aðalvíngerðarmaður ekr-
unnar frá 1998.
Vín hefur verið ræktað á landareigninni frá árinu 1891 en Wynn-
fjölskyldan festi kaup á víngerðinni og ekrunum árið 1951. Stolt
Wynns hefur verið cabernet sauvignon, Black label, sem kom á
markað fyrir réttum sextíu árum. „Cabernet sauvignon-þrúgan okk-
ar er einstök að því leyti að við ræktum hana ennþá, eftir sextíu ár,
á sömu ekrunni. Mörg helstu cabernet-héruð heims, svo sem Napa
Valley og Bordeaux, hafa þurft að endurplanta á sínum ekrum
vegna rótarskemmda. Við erum mjög stolt af þessu.“
Lykillinn án efa loftslagið
Hún segir lykilinn að gæðum víns sem framleitt er í Coonawarra án
efa loftslagið. Þar sé svalara en víðast annars staðar í Ástralíu. Fyr-
ir vikið þroskast þrúgurnar hægar sem hefur áhrif á bæði bragð og
styrk án þess að koma niður á sýrustiginu. Heldur hefur hlýnað í
Coonawarra og þar, eins og í heiminum öllum, fylgjast menn grannt
með loftslagsbreytingum enda geta þær haft afgerandi áhrif á grein-
ina til lengri tíma litið. „Við búum okkur undir enn frekari hlýnun.“
Árið 2002 hrinti Wynns af stokkunum gæðaverkefni, þar sem
stuðst er við nýjustu tækni og vísindi á sviði vínræktar. Hodder seg-
ir þetta hafa gert sér kleift að búa til ennþá fágaðri og glæsilegri
vín en áður. „Þetta verkefni, sem kollegi minn og lærifaðir Allen
Jenkins stýrir, hefur verið afskaplega vel heppnað og styrkt stöðu
okkar til muna. Við erum betur í stakk búin núna til að framleiða
góð vín en við vorum áður en til verkefnisins var stofnað.“
Hodder býr á Wynn-landareigninni og víkur aldrei frá meðan á
uppskerunni stendur. Þess utan ferðast hún töluvert, innan lands
sem utan, til að kynna sína vöru, hitta aðra víngerðarmenn og dæma
á vínsýningum. Spurð hvort henni sé tekið sem njósnara í herbúðum
annarra framleiðenda hlær Hodder. „Nei, alls ekki. Auðvitað er sam-
keppni milli víngerðarmanna, það liggur í hlutarins eðli, en þeir geta
líka unnið saman. Skipst á skoðunum og upplýsingum. Það er mik-
ilvægt að heimsækja önnur vínræktarhéruð til að fylgjast með nýj-
ungum og mér er alltaf vel tekið. Svo lengi sem framleiðslan er létt
vín stöndum við saman. Óvinirnir eru þeir sem framleiða bjór og
brennda drykki,“ segir hún brosandi.
Morgunblaðið/Ómar
GÖMUL SAGA OG NÝ
Vín sameinar fólk!
SUE HODDER, EINN FREMSTI VÍNGERÐARMAÐUR ÁSTRALÍU, VAR STÖDD HÉRLENDIS Í VIKUNNI EN HÚN HEFUR
VERIÐ VÍNGERÐARMAÐUR WYNNS Í ÁSTRALÍU Í 22 ÁR. HODDER ER MARGVERÐLAUNAÐUR VÍNGERÐARMAÐUR
SEM SEGIR LYKILINN AÐ GÆÐUM VÍNS SEM FRAMLEITT ER Í COONAWARRA-HÉRAÐI ÁN EFA LOFTSLAGIÐ.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Sue Hodder með
rauðvín frá Wynns
Coonawarra Estate.
Vín með sögu
njóta meiri hylli
Sýnishorn af vínunum frá Wynns-vínekrunni.