Morgunblaðið - 29.10.2014, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2014
VERTU
VAKANDI!
blattafram.is
Karlar fremja 97% kynferðislegs
ofbeldis á stúlkum og 71%
brota á drengjum.
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Vertu vinur okkar á Facebook
Sparilegir jakkar
og toppar í úrvali
St.36-52
570 8600 / 472 1111
www.smyrilline.is
Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík
Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is
Fjarðargötu 8 · 710 Seyðisfjörður
Sími: 472-1111 · austfar@smyril-line.is
Bókaðu snemma
til að tryggja
þér pláss
DANMÖ
RK
2 fullor
ðnir
með fól
ksbíl
Netverð
, frá kr.
74.500á mann
FÆREYJAR2 fullorðnirmeð fólksbíl
Netverð, frá kr.34.500á mann
Árið 2014 var uppbókað í flestar ferðir með
Norrænu vegna mikillar eftirspurnar. Til að
tryggja sér pláss þá er mikilvægt að bóka
snemma og tryggja sér besta fáanlega verð.
Verð og siglingarátælun er komin á heimasíðu
okkar, www.smyrilline.is eða hringja í síma
5708600 og 4721111.
Kápur og jakkar
Kringlunni 4c Sími 568 4900
Í nýrri skýrslu UNICEF um áhrif
hrunsins 2008 kemur meðal annars
fram að barnafátækt hafi aukist
mest á Íslandi meðal efnameiri ríkja
miðað við lágtekjumörk 2008 og hag-
ur barnafjölskyldna færst aftur til
ársins 2003. Borin voru saman gögn
frá 41 ríki innan OECD og Evrópu-
sambandsins.
Barnafátækt á Íslandi jókst um
rúm tuttugu prósentustig frá árinu
2008 (11,2%) til ársins 2012 (31,6%)
ef miðað er við
lágtekjumörk frá
árinu 2008 en
með því að nota
þau lágtekjumörk
leitast skýrslu-
höfundar við að
varpa sérstaklega
ljósi á áhrif efna-
hagsþrenging-
anna 2008. Í
skýrslunni kemur
fram að Ísland
lendir í neðsta sæti þeirra landa sem
borin eru saman. Það land sem
stóðst samanburðinn best er Síle.
Ríkið er á meðal átján landa sem
náðu að minnka fátækt á meðal
barna eftir sama mælikvarða.
Bergsteinn Jónsson, fram-
kvæmdastjóri UNICEF á Íslandi,
leggur áherslu á að í skýrslunni sé
miðað við sama lágtekjumark árið
2012 og það var árið 2008 og þannig
fáist svo aukningin í barnafátækt hér
á landi. Samanburðurinn sýni þannig
eingöngu hvaða áhrif hrunið hefur
haft á stöðuna hér á landi en lág-
tekjumarkið 2008 hafi verið mjög
hátt og uppblásið.
„Skorturinn er engu að síður til
staðar,“ bætir hann við og að skýrsl-
an sýni einnig fram á að skortur á
efnislegum gæðum hjá barnafjöl-
skyldum hafi aukist á tímabilinu
2008-2012. Fram kemur í skýrslunni
að barn líður efnislegan skort ef
heimilið sem það býr á hefur ekki ráð
á fjórum eða fleiri atriðum á níu at-
riða lista sem segir til um lífsgæði.
Sem dæmi má nefna afborgun á
leigu eða húsnæðislánum, ferðalög
og frí og próteinríkar máltíðir.
Velferð barna á oddinn
Bergsteinn bendir á að starfrækt
sé Velferðarvakt velferðarráðuneyt-
isins þar sem stjórnvöld og fulltrúar
félagasamtaka leiti eftir lausnum
gegn sárafátækt og fátækt barna-
fjölskyldna. Á döfinni sé að skila til
ráðherra tillögum um hvernig auka
megi árangur við að útrýma fátækt á
Íslandi. Skýrslan taki þannig af
skarið og sýni fram á brýna þörf þess
að stjórnvöld setji réttindi og velferð
barna á oddinn og geri þau miðlæg í
stefnumótun og áætlanagerð.
Aðspurður sér Bergsteinn einkum
fyrir sér úrræði í gegnum bótakerf-
ið, skattkerfið og húsnæðiskerfið
ásamt þróun sértækra leiða fyrir við-
kvæma hópa. Eigi slík úrræði að
vera tæk bæði þegar vel árar og sér-
staklega þegar í harðbakkann slær.
Barnafátækt
hefur aukist
mest á Íslandi
Áhrif efnahagsþrenginganna á ís-
lensk börn miðað við lágtekjumark 2008
Morgunblaðið/Eggert
Börn Mynd tekin á skiptidótamark-
aði UNICEF fyrr á árinu.
Að mati lögmannsstofunnar LEX
er ekki nokkur vafi á að Mjólkur-
samsalan ehf. telst vera afurðastöð í
skilningi 2. gr. búvörulaga, enda
tekur Mjólkursamsalan ehf. við
mjólk úr höndum framleiðenda til
vinnslu, flokkunar, pökkunar,
geymslu, heildsölu og dreifingar.
Þetta kemur fram í tilkynningu sem
Mjólkursamsalan sendi frá sér í
gær.
Í Morgunblaðinu í fyrradag kom
fram að Kú, sem hefur kært MS og
Kaupfélag Skagfirðinga fyrir ólög-
mætt samráð, telur að MS hafi
ranglega verið skilgreind sem af-
urðastöð í skilningi búvörulaga.
Þessu hafnar Mjólkursamsalan
alfarið og vísar í lögfræðilega úttekt
lögmannsstofunnar máli sínu til
stuðnings.
Afurðastöð í skiln-
ingi búvörulaga
Þar segir ennfremur: „Mjólkur-
samsalan ehf. er rekstrarfélag
mjólkuriðnaðarins á Íslandi og er í
eigu um 650 kúabænda um land
allt. Hlutverk félagsins er að taka á
móti mjólk frá eigendum sínum og
umbreyta í hollar og góðar mjólkur-
afurðir í takt við þarfir íslenskra
neytenda. Félagið heldur úti öflugu
dreifingarkerfi sem tryggir nánast
öllum landsmönnum reglulegan að-
gang að ferskum mjólkurvörum.“
Þá liggur ljóst fyrir að hvor
tveggja þau stjórnvöld sem fara
með framkvæmd búvörulaga og
Samkeppniseftirlitið telja Mjólk-
ursamsöluna ehf. vera afurðastöð í
skilningi þeirra.
Segir MS vera afurðastöð
Mjólkursamsalan hafnar fullyrðingu mjólkurbúsins Kú
Hagþróun á meðal barnafjöl-
skyldna á Íslandi hefur færst
aftur til ársins 2003 og dreifist
ójafnt á milli þjóðfélagshópa.
Það mun hafa augljósar lang-
tímaafleiðingar fyrir börn, að
mati Bergsteins Jónssonar.
Áhrif efnahagshrunsins á vel-
ferð og möguleika ungmenna á
aldrinum 15-24 ára voru einnig
mæld í skýrslunni. Þeim sem nú
eru án atvinnu og ekki í námi
eða starfsþjálfun fjölgaði gríð-
arlega í mörgum löndum. 7,5
milljón ungmenna innan Evr-
ópusambandsins tilheyrðu
þessum hópi árið 2013.
Stórt stökk
aftur á bak
SKÝRSLA UNICEF
Bergsteinn
Jónsson