Morgunblaðið - 29.10.2014, Qupperneq 11
Heiðdís er í fullu starfi hjá Esk-
imo Models, bæði sem skrifstofu-
manneskja og ljósmyndari. „Ég hef
verið taka myndir á eigin vegum,
ungbarnamyndir, fjölskyldumyndir
og fleira. Svo hef ég líka verið að
taka tískuljósmyndir fyrir blaðið
mitt, Dea Magazine, sem er ljós-
myndatímarit sem ég gef út á net-
inu. Áttunda tölublaðið kom nýlega
út en það hefur vantað vettvang fyr-
ir unga ljósmyndara til að koma sér
á framfæri. Tímaritið er öllum opið
og frítt. Það er mest skoðað af Ís-
lendingum en Bandaríkjamenn og
Bretar koma þar á eftir. Svo hefur
komið á óvart hversu vinsælt það er
hjá Kínverjum, en þeir eru í fjórða
sæti þeirra þjóða sem skoða blaðið
og það er líka ágætis lestur í Rúss-
landi. Blaðið fer út um allan heim.“
Heðidís segir hafa verið á listnáms-
braut í FB þegar hún ákvað að læra
ljósmyndun. „Ég var í filmuáfanga
sem varð til þess að mig langaði að
kynnast þessu betur og læra meira
og hef ekki séð eftir því. Ég fór
beint eftir stúdentspróf í tækniskól-
ann til að læra ljósmyndun og svo
lærði ég líka grafíska miðlun, sem
kemur sér vel í blaðaútgáfunni, því
ég set blaðið upp sjálf,“ segir Heið-
dís og bætir við að næsta tölublað
komi í desember.
Gleði Heiðdís og Styrmir Kári sáu um að ljósmynda þegar Markus og Peggy komu til Íslands að gifta sig.
Ljósmynd/M. Flóvent
Töfrar Þessar svífandi meyjar í íslenskri náttúru má sjá í Dea Magazine.
Rólustelpa Fagurgreidd brúðurin Peggy rólaði sér í Heiðmörk.
Ljósmynd/Styrmir Kári
Flott Heiðdís með myndavélina.
Þeir sem vilja panta myndatöku
hjá Heiðdísi og Styrmi geta sent
tölvupóst á:
styrmirheiddis@gmail.com
Vefsíða Heiðdísar og Styrmis
með brúðkaups- og paramyndum:
styrmir-heiddis.com
Ljósmyndatímarit Heiðdísar á
netinu: issuu.com/deamagazine
Facebook/Dea Magazine
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2014
Audi Q5
Stílhreinn og fjórhjóladrifinn
Kröfur eiganda Audi hafa sett há viðmið hvað varðar notagildi og útlit. Audi Q5 er glæsilegur bíll og með quattro
fjórhjóladrifinu er fátt sem stoppar hann. Meðal staðalbúnaðar bifreiðarinnar eru leðurklædd sæti, BI-Xenon ökuljós, LED
dagljós, þrískipt sjálfvirk loftkæling, rafdrifin opnun á afturhlera, Bluetooth símabúnaður, skyggðar rúður ásamt öðrum
sjálfsögðum þægindum. Audi Q5 er sérstaklega vel búinn og tilbúinn fyrir íslenskar aðstæður.
Verð frá kr. 9.040.000,- 2.0 TDI, 177 hö, sjálfskiptur – Aukabúnaður á mynd: „Offroad“- pakki
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · www.audi.is