Morgunblaðið - 29.10.2014, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 29.10.2014, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2014 SVIÐSLJÓS Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Íslenskt klausturlíf á miðöldum var blómlegt, starfrækt voru 14 klaustur víða um land frá 11. öld og fram yfir siðaskipti og gegndu þau veigamiklu samfélagshlutverki. Undanfarið eitt og hálft ár hefur þverfaglegur hópur vísinda- og fræðimanna leit- að þessara 14 klaustra, vitað er um nákvæma staðsetningu sumra þeirra og þegar hafa fimm klausturstaðir verið rannsakað- ir. Áætlað er að halda áfram að safna gögnum næstu tvö sumur og er víða leitað fanga í rannsókninni. Í hópn- um eru, auk fornleifafræðinga, safnafræðingur, vistfræðingur, skor- dýrafræðingur og sagnfræðingur. „Áður en við fórum af stað var ein- ungis vitað með vissu hvar tvö af klaustrunum voru staðsett,“ segir Steinunn J. Kristjánsdóttir, prófess- or í fornleifafræði, ein þeirra sem vinna að rannsókninni. „Skriðu- klaustur, sem þegar hefur verið grafið upp, og Kirkjubæjarklaustur. Núna erum við með staðsetningu um helmings klaustranna fjórtán á hreinu.“ Þorp í kringum klaustrin Eins og sést á meðfylgjandi korti dreifðust klaustrin víða um land. Fyrsta klaustrið sem vitað er um með vissu hér á landi var á Bæ í Borgarfirði, stofnað 1030. Hópurinn var við rannsóknir á Bæ síðasta sum- ar og fundust þá ýmsar minjar frá klausturtímanum, m.a. steinn með krossi. En ýmislegt annað en fornir gripir getur gefið vísbendingar um stað- setningu klaustra. Við rannsóknirn- ar eru tekin jarðvegssýni, fræ plantna eru skoðuð og sömuleiðis skordýr. Þá eru örnefni könnuð og leitað fanga í rituðum heimildum, m.a. samningum sem klaustrin gerðu við starfsfólk og gefa þeir upp- lýsingar um aðbúnað fólksins. „Mik- ið af þeim plöntum sem nú eru til á Íslandi var flutt inn á vegum klaustr- anna,“ segir Steinunn. Hún segir nokkrar ranghugmynd- ir vera uppi um hlutverk og stöðu klaustranna í miðaldasamfélaginu. „Það hefur löngum verið litið á klaustrin sem miðstöðvar bókagerð- ar. Vissulega voru þar búnar til og skrifaðar verðmætar bækur, m.a. til tekjuöflunar. En þetta voru aðallega þjónustustofnanir Rómarkirkju við almenning. Þarna voru spítalar, fá- tækum sinnt og þar starfaði fjöldi fólks við að sinna jörðum og búpen- ingi. Öll þessi umsvif kostuðu mannafla. Í kringum klaustrin byggðust hálfgerð þorp.“ Steinunn mun gera grein fyrir helstu áherslum í leitinni og fyrstu niðurstöðum hennar í fyrirlestri á vegum Miðaldastofu Háskóla Ís- lands á morgun, fimmtudag. Fræðimenn leita fjórtán klaustra  Klaustrin voru mikilvægar samfélagsstofnanir  Ekki bara bókagerð og sagnaritun  Skoða skordýr og gróður Um allt land Steinunn segir sömu lögmál hafa gilt um staðsetningu klaustra hér á landi og í öðrum löndum; mikilvægt hafi þótt að þau væru í alfaraleið. Flatey (1172-1184) Helgafell (1184-1543) Viðey (1226-1539) Saurbær (1200-1224) Þingeyrar (1200-1224) Reynistaður (1295-1551) Keldur (1193-?) SKÁLHOLT 1056 HÓLAR 1106 Hítardalur (1166-1207) Skriða (1493-1554) Þykkvabær (1168-1548) Kirkjubær (1186-1542) Möðruvellir (1295-1547) Munkaþverá (1155-1551) Bær (1030-1049) Klausturlíf » Af þessum 14 klaustrum voru tvö nunnuklaustur. » Talið er að 10-15 munkar eða nunnur hafi verið í flestum þeirra, flest voru Íslendingar. » Að sögn Steinunnar er gjarnan miðað við að í hverju klaustri hafi verið a.m.k. tvisv- ar sinnum fleiri starfsmenn. » Starfstími klaustranna var mislangur, frá nokkrum árum upp í nokkur hundruð ár. Steinunn Kristjánsdóttir Stafrænt gróðurkort, sem starfsfólk Náttúrufræðistofnunar Íslands vann í samvinnu við Skorradalshrepp og með stuðningi umhverfisráðuneytis- ins kom út á dög- unum. Það miðast við að fyrir liggi upplýsingar sem nota má við hættumat vegna skógarelda. Kort- ið er í kvarðanum 1:25.000 og er heimild um nú- verandi gróður- far og nýtist því vel við skipulags- vinnu, umhverfisvöktun og rann- sóknir. Á kortinu eru undir alls 115 km² og nær 41 gróðurfélag yfir rúm- lega 4/5 af dalnum. Viðbragð við dauðans alvöru Gróðurkortið var unnið á grunni fyrirliggjandi gagna frá Rannsókn- arstofnun landbúnaðarins sem eitt sinn var. Gömul kort voru endur- skoðuð og teiknuð á stafrænan hátt með hliðsjón af nýjustu loftmyndum. Ræktaður skógur á nýja kortinu var færður inn samkvæmt gögnum Skógræktarinnar. „Kortagerðin er hlut af viðbragði við dauðans alvöru. Skorradalurinn er nú talinn með hættulegustu sum- arhúsasvæðunum á landinu hvað varðar gróðurelda. Það eru líkur á því að fólki í sumarhúsunum geti verið hætta búin af völdum mögu- legra elda í dalnum,“ segir K. Hulda Guðmundsdóttir skógarbóndi á Fitj- um í Skorradal. Hún hefur verið hvatamaður að þessari kortagerð og segir áhættugreiningu vegna elda á svæðinu vera mikilvæga. Stafrænt gróðurkort sé hluti af því. „Þetta verður vonandi fordæmi öðrum sveitarfélögum sem hyggjast efla viðnámsþrótt sinn gegn gróður- eldavá og annarri hættu ef svo ber undir,“ segir Hulda. sbs@mbl.is Stafrænt kort af dalnum er eldvörn  Forvarnir vegna hættu í Skorradal Morgunblaðið/RAX Skorradalur Hlíðar eru skógi vaxn- ar frá vatni upp á fjallsbrúnirnar. K. Hulda Guðmundsdóttir Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is „Krakkarnir voru jákvæðir. Fyrir- lesturinn hennar Siggu var mjög léttur og þau hlógu og þetta fór al- mennt vel í þau,“ segir Eva Björk Valdimarsdóttir, framkvæmdastjóri æskulýðssambands þjóðkirkjunnar, um fræðsluhluta landsmóts ÆSKÞ á Hvammstanga sl. helgi. Þar var m.a. fjallað um kynhegðun og kynheil- brigði. Að fræðslunni komu Sigga Dögg kynfræðingur, Þorbjörg Sveinsdóttir, sálfræðingur hjá Barnahúsi, og sr. Sigurvin Lárus Jónsson æskulýðsprestur, en um 625 ungmenni og umsjónarmenn sóttu mótið. Að sögn Evu fjallaði Sigga Dögg um líkamann og heilbrigða sjálfs- mynd, Þorbjörg um kynferðisofbeldi og klámmenningu og Sigurvin um sköpunarsöguna og kristna kynlífs- siðfræði, svo eitthvað sé nefnt. Í fyrsta sinn á landsmóti ÆSKÞ var ekki skyldumæting í fræðsluna og ungmennunum var frjálst að yfir- gefa salinn þar sem fræðslan fór fram, ef og þegar þau vildu. Margir nýttu sér það, að sögn Evu. „Efnið var kynnt fyrirfram auðvit- að; að það væri kynfræðsla, og það stóð í bæklingi mótsins sem þau fengu áður en þau komu. Svo voru leiðtogarnir undirbúnir á föstudags- kvöldinu og þeir töluðu svo við börn- in og undirbjuggu þau; það var sett í þeirra hendur,“ segir Eva. Ungmennunum, sem eru á aldr- inum 14-17 ára, var ekki gefinn kost- ur á því að spyrja spurninga fyrir framan hópinn en að sögn Evu var Þorbjörg til viðtals frameftir degi í svokölluðu hvíslhorni, þar sem hægt var að leita til hennar með fyrir- spurnir. Fagfólk sinnir kynfræðslunni „Það eru engin málefni í mann- legu samfélagi kirkjunni óviðkom- andi,“ segir Sigurvin um þá ákvörð- un stjórnar ÆSKÞ að fjalla um kynhegðun og kynheilbrigði á lands- mótinu. „Það er náttúrlega bara mjög mikilvægt að ræða á opinskáan hátt um kynlíf við unglinga. Það dynja á þeim skilaboð úr öllum átt- um sem halda á lofti kvenfyrirlitn- ingu og hlutgervingu kvenna og koma úr klámiðnaðinum. Og við er- um að stuðla að heilbrigði ungs fólks með því að ræða um kynheilbrigði innan kirkjunnar,“ segir hann. Sigurvin bendir á að umfjöllun um kynheilbrigði hafi verið fastur þátt- ur fermingarfræðslu í mörgum kirkjum en það hafi verið stefnan að leita til fagfólks með kynfræðsluna. „Það er okkar prestanna að ræða um kynlífssiðfræði frá kristnum sjón- arhóli en svo eftirlátum við fagfólk- inu að vera með hina eiginlegu fræðslu,“ segir Sigurvin. Gaman Landsmótið heppnaðist vel og kann Eva íbúum Hvammstanga mikl- ar þakkir fyrir móttökurnar. Margir þeirra gáfu vinnu sína við mótið. Kynfræðsla og kynlífssiðferði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.