Morgunblaðið - 29.10.2014, Page 20

Morgunblaðið - 29.10.2014, Page 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2014 Heyrðu umskiptin Fáðu heyrnartæki til reynslu Það er næstum því sama hvernig heyrnarskerðingu þú ert með og hvernig lífi þú lifir, því ReSound heyrnartækin, eru vel til þess fallin að hjálpa þér við að skilja talmál, hafa framúrskarandi hljómgæði og snjalla þráðlausa tengingu. Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is Fyrstu snjall- heyrnartækin Hollar vörur úr náttúrunni í hæsta gæðaflokki H-Berg efh | S. 565-6500 | hberg@hberg.is | hberg.is BAKSVIÐ Hörður Ægisson hordur@mbl.is Hagnaður MP banka á þriðja árs- fjórðungi eftir skatta nam 255 millj- ónum króna og nærri tvöfaldaðist frá sama tímabili árið 2013. Sé tekið tillit til einskiptisliða á fjórðungnum – sölu á dótturfélaginu MP Pension Funds Baltic – þá nam hagnaðurinn 135 milljónum króna. Var hagnaður af rekstri bankans alla mánuði þriðja ársfjórðungs. Þetta kemur fram í kynningu á fjárhagsstöðu bankans eftir fyrstu níu mánuði ársins sem Morgunblað- ið hefur undir höndum. Talsverð umskipti hafa því orðið á rekstri bankans á allra síðustu mánuðum en á fyrri árshelmingi var tap á rekstr- inum að fjárhæð 159 milljónir króna. Hreinar rekstrartekjur MP banka námu 937 milljónum króna á þriðja fjórðungi og hafa aukist um liðlega 10% frá sama tíma á síðasta ári. Á síðustu misserum hefur bank- inn ráðist í umtalsverðar hagræð- ingaraðgerðir með sölu eigna og fækkun starfsmanna um 45% á einu ári. Hafa þær aðgerðir skilað því að rekstrarkostnaður hefur lækkað um 27% á milli ára og var 658 milljónir króna á þriðja fjórðungi. Í kynningu á fjárhagsstöðu bank- ans segir að þóknanatekjur hafi auk- ist þrátt fyrir hagræðingaraðgerðir en þær námu 420 milljónum á fjórð- ungnum. Markaðshlutdeild bankans í skuldabréfum í Kauphöllinni er 19,6% og hefur haldist nánast óbreytt frá fyrra ári. Hins vegar hefur bankinn misst nokkuð af markaðshlutdeild í hlutabréfum sem var 12,4% í lok september á þessu ári. Vanskilahlutfall undir 1%. Hefur eiginfjárhluthlutfall MP banka styrkst nokkuð það sem af er ári og er yfir 17% miðað við eig- infjárgrunn á þriðja ársfjórðungi. Er eigið fé bankans ríflega 5,1 millj- arðar króna. Vanskilahlutfall er komið undir 1% og lækkaði um meira en helming frá fyrri fjórðungi. Í kynningunni kemur fram að hrein- ar lausafjáreignir bankans séu 18 milljarðar króna. Eru lausafjáreign- ir um 45% af heildareignum bank- ans en 70% sem hlutfall innlána. Auk sölu á MP Pension Baltic Funds, sem er sérhæft lífeyrisfyr- irtæki, hefur bankinn á þessu ári gengið frá sölu á 27% eignarhlut sín- um í fjármálafyrirtækinu Gamma og Lykli, eignaleigusviði bankans, til Lýsingar. Á síðustu mánuðum hefur bankinn og hluthafar hans kannað ýmsa möguleika til sameiningar við önnur fjármálafyrirtæki. Þannig greindi Morgunblaðið frá því í sum- ar að bankinn hefði meðal annars átt í viðræðum við Virðingu og Straum um mögulega sameiningu félaganna. Ekkert varð hins vegar úr þeim og formlegum viðræðum MP banka og Virðingar var slitið í byrjun þessa mánaðar. MP hagnast um 255 milljónir Ljósmynd/Arnaldur Umskipti Eftir hagræðingu hefur rekstrarkostnaður minnkað um 27%.  Hagnaður MP banka á þriðja fjórðungi tvöfaldaðist á milli ára  Var 135 milljónir ef tekið er tillit til sölu á dótturfélagi  Rekstrarkostnaður lækkaði um 27% á milli ára og er nú um 200 milljónir á mánuði Íslandsbanki kýs að tjá sig ekki um viðskipti fyrrverandi starfsmanna fyrirtækjaráðgjafar bankans vegna kaupa þeirra á stórum eign- arhlut í félagi tengdu Skeljungi ár- ið 2011. Frá því var greint í Morgun- blaðinu í gær að þau Halla Sigrún Hjartardóttir, stjórnarformaður FME, Einar Örn Ólafsson, fyrrver- andi forstjóri Skeljungs, og Kári Þór Guðjónsson, ráðgjafi og fjár- festir, hefðu hagnast hvert um lið- lega 830 milljónir króna við sölu á Skeljungi og færeyska olíufélaginu P/F Magn í lok árs 2013. Þau störfuðu öll samtímis í fyr- irtækjaráðgjöf Íslandsbanka en hættu þar störfum árið 2009 og undir lok árs 2011. Bankinn hafði umsjón með sölu á Skeljungi til hjónanna Svanhildar Nönnu Vig- fúsdóttur og Guðmundar Arnar Þórðarsonar. Hedda eignarhalds- félag, sem var að fullu í eigu hjónanna, keypti sömuleiðis P/F Magn af þrotabúi Fons vorið 2009. Var kaupverðið aðeins á þriðja hundrað milljóna. Tveimur árum síðar seldu Svanhildur og Guð- mundur 66% hlut í því félagi til þremenninganna. Var Halla þá starfandi sem framkvæmdastjóri fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka. P/F Magn, ásamt Skeljungi, var síðan selt fyrir samtals átta millj- arða í árslok 2013. Halla Sigrún hefur áður neitað því í fjölmiðlum að hafa átt hlut í Skeljungi eða tengdum félögum. Félag í hennar eigu fór með 22% eignarhlut í Heddu, að því er fram kemur í ársreikningi. Það félag átti 66% hlut í P/F Magn og 25% hlut í Skeljungi í árslok 2013. Halla var skipuð stjórnarformaður Fjármála- eftirlitsins af fjármálaráðherra í desember á síðasta ári. Ekki hefur náðst í Höllu þegar leitað hefur verið eftir viðbrögðum hennar um eignarhlutinn í Heddu og hagnað við sölu á P/F Magn og Skeljungi. Í samtali við Morgun- blaðið í gær sagði upplýsingafulltrúi FME að stofnunin gæti ekkert tjáð sig um málið og vísaði á Höllu. Morgunblaðið/Ómar FME Halla Sigrún Hjartardóttir. Íslandsbanki tjáir sig ekki um viðskiptin

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.