Morgunblaðið - 29.10.2014, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2014
Við erum 110 ára
að því tilefni bjóðum við
20%-35%
afmælisafslátt
29. október - 8. nóvember
LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383
● Alvotech, syst-
urfyrirtæki sam-
heitalyfjafyrirtæks-
ins Alvogen, mun
ráða í 50 fyrstu
störfin við nýtt Há-
tæknisetur í Vatns-
mýrinni á næstu
mánuðum. Fyrst
verður auglýst eftir
35 háskólamennt-
uðum Íslendingum
með raunvísindabakgrunn. Búist er við
að um 200 ný störf verði til í tengslum
við starfsemi Hátæknisetursins á næstu
árum, en framkvæmdir við það hófust í
nóvember 2013. Innan þess verður unnið
að þróun og framleiðslu líftæknilyfja og
er áætlað að húsið verði tekið í notkun í
ársbyrjun 2016.
Alvotech ræður 50
fyrstu starfsmennina
Líftækni Hátækni-
setrið í byggingu.
● Umtalsverð viðskipti voru með hluta-
bréf í Marel í Kauphöllinni í gær og nam
markaðsvirði viðskipta 2,3 milljörðum
króna, eða um 2,5% af virði félagsins.
Lækkuðu bréf Marels um 2,72% í við-
skiptum gærdagsins, en gengi bréfanna
hafði hækkað verulega eftir birtingu
árshlutauppgjörs í lok síðustu viku. Ekki
fengust staðfestar upplýsingar í gær
um hverjir ættu aðild að viðskiptunum..
Mikil viðskipti með
hlutabréf í Marel
● Hugbúnaðar-
fyrirtækið
GreenQloud hefur
lokið við hlutafjár-
aukningu sem
stýrt var af Novator,
sem þar með hefur
bæst í eigendahóp
fyrirtækisins.
Í tilkynningu frá
félaginu segir að
viðbótarfjármagni
sé ætlað að gera GreenQloud kleift að
þyngja sókn sína á markaði og færa út
kvíarnar frekar. Fyrirtækið vinni nú að
opnun skrifstofu í Seattle í Bandaríkj-
unum, en þegar hafi GreenQloud náð
ákveðinni fótfestu í Evrópu.
GreenQloud var stofnað árið 2010 en
helstu eigendur eru stofnendurnir Eiríkur
Sveinn Hrafnsson og Tryggvi Lárusson,
Keel Investments LLC og NSA.
Novator kaupir í
GreenQloud
Hlutafé Eiríkur
Hrafnsson
Bláa lóninu hefur verið veitt einka-
leyfi í Bandaríkjunum á snyrtivörum
og lyfjum sem innihalda sérstaka
blágræna þörunga. Rannsóknirnar,
sem einkaleyfið byggist á, leiddu í
ljós að lífvirk efni þörunganna, sem
eingöngu hafa fundist í jarðsjó Bláa
lónsins, vinna gegn öldrun húð-
arinnar, samkvæmt upplýsingum frá
Bláa lóninu.
Þörungarnir eru sagðir hjálpa við
að draga úr niðurbroti kollagens,
örva nýmyndun þess og viðhalda
þannig þéttleika húðarinnar og
draga úr öldrunareinkennum. Sam-
svarandi umsókn er til meðferðar
hjá evrópsku einkaleyfastofunni.
„Í einkaleyfinu felst viðurkenning
á þróunarstarfi Bláa lónsins og ný-
næmi Blue Lagoon húðvaranna.
Einkaleyfið veitir markaðslegan
styrk á snyrtivörumarkaði, en mark-
aðurinn einkennist af mikilli sam-
keppni,“ segir Ása Brynjólfsdóttir,
rannsókna- og þróunarstjóri Bláa
lónsins. Rannsóknirnar eru meðal
annars unnar í samvinnu við húð-
lækninn og prófessorinn Jean Krut-
mann en hann hefur unnið með
mörgum af þekktustu snyrtivöru-
merkjum heims, svo sem Estée Lau-
der, LOREAL og Beiersdorf. brynj-
a@mbl.is
Fær bandarískt einkaleyfi
Bláa lónið með einkaleyfi á vörum með blágræna þörunga
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Einkaleyfi Ása segir einkaleyfið
viðurkenningu á þróunarstarfi.
Stuttar fréttir ...
● Íslenskir neytendur hafa ekki verið
svartsýnni en nú á stöðu og horfur í
efnahags- og atvinnumálum þjóð-
arinnar síðan í nóvember í fyrra, sam-
kvæmt væntingavísitölu Gallup. Í
morgunkorni Íslandsbanka er fjallað um
málið og greint frá því að vísitalan hafi
lækkað um tæp 13 stig milli september
og október og standi nú í 75,9 stigum.
Þegar vísitalan er undir 100 stigum eru
fleiri neytendur svartsýnir en bjartsýnir.
Allar undirvísitölur lækka í október
frá fyrri mánuði. Mest lækkar mat neyt-
enda á atvinnuástandi (19 stig) og
mælist nú 89 stig, en minnst lækkar
mat neytenda á núverandi ástandi (8
stig) en það mælist rúm 51 stig.
Neytendur svartsýnni
!"#"
!
"#$
$%
"$
%
"!"%
%#
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
!
% "
! %
!$!
"
$#
%
$
##
!"!$
!$$
"##
$%%
"!#
#"
! #%
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á