Morgunblaðið - 29.10.2014, Page 22

Morgunblaðið - 29.10.2014, Page 22
22 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2014 Árin segja sitt1979-2014 Hjónin Ragnar Guðmundsson, matreiðslu-meistari og kona hans Bára Sigurðardóttir, stofnendur og eigendur Lauga-ás. Laugarásvegi 1 104 Reykjavík • laugaas.is Lauga-ás hefur frá 1979 boðið viðskiptavinum sýnum uppá úrval af réttum þar sem hráefni, þekking og íslenskar hefðir hafa verið hafðar að leiðarljósi. )553 1620 Verið velkominn Petro Porosénkó, forseti Úkraínu, á erfitt verk fyrir höndum þrátt fyrir sigur flokks hans og bandamanna hans í kosningunum um helgina og ósigur þjóðernis- sinnaðra flokka sem lögðust gegn friðarsamkomulagi stjórnarinnar við aðskilnaðarsinna. „Það verður erfitt fyrir Porosénkó að takast á við það verkefni að færa landið í Evrópusambandið,“ sagði úkraínski stjórn- málaskýrandinn Júrí Romanenko. „Stríðið á eftir að geisa í langan tíma. Þráteflið gæti haldið áfram í nokk- ur ár.“ Talið er að nýja stjórnin gæti þurft að fallast á óvinsælar tilslakanir í viðræðum við aðskilnaðarsinnana. Horfur á nokkurra ára þrátefli POROSÉNKÓ FORSETI Á ERFITT VERK FYRIR HÖNDUM Petro Porosénkó Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Stjórnvöld í Rússlandi sögðust í gær ætla að viðurkenna kosningar sem aðskilnaðarsinnar í austurhér- uðum Úkraínu hyggjast halda á yfirráðasvæðum sínum á sunnu- daginn kemur. Sergej Lavrov, utanríkisráð- herra Rússlands, sagði stjórnina í Moskvu hlynnta því að kosningar færu fram í „alþýðulýðveldum“ sem aðskilnaðarsinnarnir ætla að koma á fót. „Auðvitað viðurkennum við úrslit kosninganna,“ sagði hann. Ráðamennirnir í Kreml hafa neitað því að þeir standi á bak við vopnaða uppreisn aðskilnaðarsinna í austurhéruðunum. Hátt settur embættismaður í rússneska utan- ríkisráðuneytinu sagði að með því að styðja kosningarnar í „alþýðu- lýðveldunum“ brytu Rússar gegn vopnahléssamkomulagi sem þeir beittu sér fyrir til að binda enda á átök sem hafa kostað um 3.700 manns lífið frá apríl síðastliðnum. Samkomulagið var undirritað 5. september og kveður meðal annars á um að austurhéruðin fái aukin sjálfstjórnarréttindi, en ekki sjálf- stæði. Brotum á samkomulaginu hefur fjölgað síðustu daga og nokkrir fréttaskýrendur hafa varað við því að búast megi við hörðum átökum í austurhéruðunum nú þegar þing- kosningunum í Austur-Úkraínu er lokið. Aðskilnaðarsinnar skutu tug- um flugskeyta frá borginni Do- netsk í áttina að nálægri herstöð, að sögn fréttaveitunnar AFP. „Fasistarnir“ fengu lítið fylgi Bandalag sem kennt er við Petro Porosénkó, forseta Úkraínu, og Þjóðarfylkingin, flokkur Arsenís Jatsenjúks forsætisráðherra, fóru með sigur af hólmi í þingkosning- unum sem fram fóru í Úkraínu á sunnudaginn var. Flokkarnir tveir fengu tæp 22% fylgi hvor, sam- kvæmt síðustu kjörtölum þegar um 85% atkvæðanna höfðu verið talin. Kosningarnar fóru ekki fram á Krímskaga, sem var innlimaður í Rússland í mars, og á yfir- ráðasvæðum aðskilnaðarsinnanna Um fimm milljónir manna kusu því ekki. Helmingur þingmannanna er kjörinn í einmenningskjördæmum en hinn með hlutfallskosningu af flokkslistum. Af þeim flokkum sem fengu þingsæti í flokkslistakosn- ingunum er aðeins einn sem styður náin tengsl við Rússland, en það er Andstöðubandalagið, flokkur fyrr- verandi bandamanna Viktors Ja- núkóvítsj, fyrrverandi forseta. Kommúnistaflokkurinn, sem er hlynntur tengslum við Rússland, fékk ekki nógu mikið fylgi til að fá þingsæti í flokkslistakosningunum. Þetta er í fyrsta skipti frá því að Úkraína var innlimuð í Sovétríkin árið 1920 eftir byltingu bolsévíka sem kommúnistaflokkurinn á ekki fulltrúa á þingi landsins. Róttækir flokkar úkraínskra þjóðernissinna, sem fjölmiðlar í Rússlandi hafa lýst sem „fasistum“ eða „nýnasistum“, fengu minna fylgi en búist var við. Einn þessara flokka, Hægri geirinn, fékk aðeins 2% atkvæðanna og ekkert þingsæti í flokkslistakosningunum. Sagðir brjóta friðarsamkomulag  Rússar segjast ætla að viðurkenna kosningar aðskilnaðarsinna í Austur-Úkraínu um næstu helgi  Róttækir þjóðernissinnar, sem lögðust gegn friðarsamkomulaginu, fengu minna fylgi en búist var við AFP Frelsunar minnst Herforingi bendir á nema í úkraínskum herskóla við athöfn í Kænugarði í gær í tilefni af því að 70 ár eru liðin frá því að sovéski herinn frelsaði Úkraínu úr greipum hers þýskra nasista í síðari heimsstyrjöldinni. 9,8 4,7% Svoboda (Frelsi) Kommúnistaflokkurinn Bráðabirgðatölur (85% atkvæða talin) Ekki var kosið á Krímskaga og á svæðum aðskilnaðarsinna (5 milljónir af 36,5 m kjósenda) Úrslit kosninganna í Úkraínu Flokkar sem vilja sam- starf við Vesturlönd 21,6% 21,4% 3,9% 11% . % 7,3% 5,6% Föðurland (Júlía Tímósjenkó) Róttæki flokkurinn (Oleg Ljashko) Samopomich (Sjálfsbjörg) Petro Porosénkó-bandalagið Nær 70% atkvæða Andstöðubandalagið (fyrrv. bandamennViktors Janúkóvítsj) Þjóðarfylkingin (Arsení Jatsenjúk) Alvarleg mannréttindabrot hafa ver- ið framin á Krímskaga frá því að hann var innlimaður í Rússland í mars, að því er fram kemur í skýrslu sem Evrópuráðið birti í fyrradag. Skýrslan byggist á heimsókn full- trúa Evrópuráðsins til Krímskaga og Moskvu. Mannréttindafulltrúi ráðsins, Nils Muizniek, segist hafa miklar áhyggjur af mannréttinda- brotum og árásum á minnihluta- hópa, m.a. á tatara og fólk af úkra- ínsku bergi brotið. Í skýrslunni er skírskotað til mannshvarfa og manndrápa, meðal annars dauða Reshats Ametovs, sem barðist fyrir réttindum tatara. Lík hans fannst í mars og á því sáust merki um pyntingar. Íbúar Krímar eru um 2,3 milljónir og skiptast í þrjá meginhópa: Úkra- ínumenn í norðurhlutanum, Rússa í suðurhlutanum og á milli þeirra eru tatarar sem tala tyrkneskt mál og eru múslímar. Samkvæmt manntali frá árinu 2001 eru Rússar um 58% íbúa Krímskaga, 24% Úkraínumenn og 12% eru tatarar. AFP Árás Vopnaðir menn standa vörð við byggingu ráðs tatara í borginni Sim- feropol á Krímskaga eftir að lögreglumenn réðust inn í hana í september. Mannréttindabrot framin í Krím

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.