Morgunblaðið - 29.10.2014, Page 24

Morgunblaðið - 29.10.2014, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2014 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Stjórnarskiptistanda fyrirdyrum í Tún- is eftir kosning- arnar á sunnudag og sem meira er standa vonir til þess að þau muni fara friðsamlega fram. Íslamistaflokkurinn En- nahda, sem er við völd, verður ekki lengur stærstur eftir kosn- ingarnar. Stærsti flokkurinn er veraldlegur og nefnist Nidaa Tounes. Hann náði þó ekki meirihluta. Hið svokallaða arabíska vor átti upptök sín í Túnis 2011 og breiddist hratt út. En vorið reyndist skammvinnt. Í Líbíu, Sýrlandi og víðar brúaði það bil- ið á leiðinni úr öskunni í eldinn. Leiðtogi Ennahda, Rached Ghannouchi, sagði að Túnis væri „eina tréð eftirstandandi í eyddum skógi“. Ekki er útséð um eina tréð. Fátækt og atvinnuleysi, sem voru meginástæðurnar fyrir uppreisninni 2011, eru enn við- varandi. Ólga er í samfélaginu og hryðjuverk fara vaxandi. Verðlag hefur snarhækkað. Ástandið er þannig að í ný- legri könnun sögðust 59% að- spurðra frekar kjósa einræði en lýðræði. Það segir sitt ef al- menningur er farinn að sakna hinnar spilltu einræðisstjórnar Zine el-Abidine Bens Alis, sem hrökklaðist frá fyrir tæpum fjórum árum. Kosningarnar núna voru að vissu leyti afturhvarf til fortíðar. Embættis- menn úr stjórn Bens Alis voru margir í framboði í hinum ýmsu flokk- um, þar á meðal Nida Tounes. Þeim var meinað að bjóða fram í fyrstu kosningunum eftir að Ben Ali fór frá. Með stuðn- ingi íslamistaflokksins Enn- ahda var hins vegar samþykkt að þeir mættu bjóða fram nú. Íslamistarnir töldu að það væri betra en að liggja undir ámæli fyrir að ala á sundrungu með því að halda þeim frá pólitík. Ekki er öllum rótt yfir að hin- ir gömlu liðsmenn Bens Alis séu að snúa aftur til valda, en bent hefur verið á að svipuð þróun hafi átt sér stað í mörgum lönd- um Austur- og Mið-Evrópu eftir að járntjaldið féll og því ætti ekki að koma á óvart að pendúll- inn sveiflist til baka. Í nóvember verða forseta- kosningar í Túnis og nái enginn meirihluta verður önnur umferð í desember. Túnis hefur sem betur fer ekki sogast inn í þá hringiðu ofbeldis og glundroða, sem annars staðar fylgdi í kjöl- far uppreisnanna 2011. Það má kannski segja að Túnis sé eina tréð, sem eftir stendur í skóg- inum, en oft hefur framtíð landsins virst hanga á bláþræði. Viðsjár hafa verið í Túnis líkt og öðrum löndum arabíska vorsins, en stjórn- arskipti gætu orðið friðsamleg} Vonartýra í Túnis? Það væri synd aðsegja að vopn- in hafi verið kvödd í austurhluta Úkra- ínu, þó að þar hafi vopnahlé verið í gildi í tæplega tvo mánuði. Er líklega helsti munurinn á vopnahléinu og því ástandi sem var fyrir það, að nú eru aðskiln- aðarsinnar og stjórnarher Úkraínu ekki að reyna að vinna landsvæði á kostnað hinna, heldur láta sér nægja að skjóta hvorir á aðra reglulega, með þeim afleiðingum að hundruð manna hafa fallið. Það þyrfti því ekki mikinn neista til þess að henda samkomulaginu út um gluggann. Og sá neisti gæti vel verið skammt undan. Í „alþýðu- lýðveldunum“ Luhansk og Don- etsk er nú ráðgert að halda kosningar um helgina, í trássi við vopnahléssamkomulagið, þar sem gert var ráð fyrir að kosningar færu fram í samræmi við gildandi lög í Úkraínu, gegn aukinni sjálfstjórn héraðanna. Ekki þarf að efast um að tíma- setningin er hugsuð sem svar við þingkosningum sem haldnar voru um helgina, þar sem flokk- ar sem vilja nánari tengsl við vesturveldin unnu góða sigra. Þau úrslit voru ekki fallin til þess að róa taugar ráða- manna í Rússlandi, sem vilja öðru fremur forðast það að Úkraína verði of ná- tengd öðrum. Um leið vonast Rússar til þess að með kosning- unum verði fleygur rekinn í raðir þeirra flokka sem nú vilja mynda ríkisstjórn saman, vegna ólíkrar afstöðu til þess hvernig eigi að takast á við að- skilnaðarsinnana. Það ætti því ekki að koma á óvart að Rússar hafi nú þegar lýst yfir stuðningi við niður- stöður kosninganna sem eiga að fara fram á sunnudaginn, þó að þær gangi gegn vopnahléinu. Hitt er síðan annað mál, hvern- ig Petró Porosjenkó, forseti Úkraínu, bregst við. Þó að staða hans hafi óneitanlega styrkst í kjölfar þingkosning- anna geta þær einar og sér ekki verið lausnin við þeim mikla vanda sem Úkraína glímir við. Efnahagurinn er á fallanda fæti og bregðist vopnahléið líka gæti sigurgleðin eftir þing- kosningarnar orðið æði skamm- vinn. Stiginn er línudans með vopnahléið í Úkraínu} Alþýðulýðveldi gömul og ný Þ að þótti fréttnæmt að köttur fannst á dögunum eftir að hafa horfið frá heimili eiganda síns fyrir þremur árum. Við að lesa þá hjartnæmu sögu rifjaðist upp fyrir mér þegar vinir mínir breskir urðu fyrir því að köttur sem þeir höfðu alið árum saman og töldu iðulega fjölskyldumeðlim hvarf einn daginn. Geta má nærri að eigendur kattarins hafi verið harmi slegnir, enda skipuðu þeir kisa á svipaðan stall og börnin á heimilinu. Fljótlega kom þó í ljós að kattarskömmin hafði ekki farið langt, hann hélt til í þarnæsta húsi í raðhúsalengjunni, því þar fékk hann betri viðurgjörning. Mér þótti skemmtilegt að fylgjast með þessari uppákomu og ekki síst fyrir það að ég kunni söguna af því hvernig kötturinn kom inn á heimilið á sínum tíma – hann birtist við svaladyrnar og mjálmaði ámátlega. Við háskólann í Lincoln í Lincolnskíri í Bretlandi starfar kattavinurinn Daniel Mills sem hefur rannsakað ketti af miklum áhuga undanfarinn áratug. Það kemur kannski kattarvinum á óvart, en ekki mér, að meðal þess sem fram hefur komið í rannsóknum hans er að köttum er sléttsama um „eigendur sína“, reyndar svo sama að þeir kæra sig kollótta um það hvort eigandinn sé að koma eða fara og gildir einu hvort viðkomandi hafi borið köttinn á höndum sér, fóðrað hann á rjóma og styrjuhrognum, strokið og kjassað. Vel var fjallað um Mills og rannsóknir hans í vefritinu Vox fyrir stuttu og þar mátti til að mynda finna svar við þeirri spurningu af hverju kettir nugga sér upp við fólk – það er ekki til að sýna hlýju, heldur til að maka lyktarefni á viðkom- andi til að merkja sér svæði. Önnur skemmti- leg staðreynd: Kettir mala ekki endilega af ást og væntumþykju, nei, þeir eru oftar en ekki að óska eftir mat og allmargir hafa náð að fínstilla svo malið að eigandinn bregst við eins og hann heyri barnsgrát. Þriðja skemmtilega stað- reyndin: Margir kettir kunna alls ekki við það að láta klappa sér þótt þeir láti það ganga yfir sig, eða svo segja mælingar á streituhorm- ónum í blóði katta. Látum þó vera að kettir elski ekkert nema sjálfa sig og látum líka vera að hætt sé við að þeir beri með sér sníkjudýrið bogfrymil, sem forsætisráðherra óttast mjög – verst af öllu þykir mér nefnilega sú staðreynd að kettir eru rándýr með ríkulegt drápseðli, svo ríkulegt að gera má því skóna að ís- lenskir kettir drepi að minnsta kosti ríflega hálfa milljón smádýra og fugla á hverju ári (miðað við ætlaðan fjölda katta). Gætum að því að þessi grúi, sem er líklega að stærst- um hluta spörfuglar, er ekki drepinn vegna hungurs eða til varnar heldur vegna þess að köttum finnst gott að drepa. Hafðu þetta í huga, kæri kattarvinur, næst þegar blóð- þyrsta rándýrið þitt kámar lyktarefnum á sköflunginn á þér og fjarstýrir þér síðan með fínstilltu mali. Og veltu því svo fyrir þér af hverju raddir vorsins hafa þagnað. arnim@mbl.is Árni Matthíasson Pistill Sjálfselskur morðvargur STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon SVIÐSLJÓS Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Sjötta árið í röð er Ísland íefsta sæti á lista Alþjóða-efnahagsráðsins, WorldEconomic Forum (WEF) yfir jafnrétti kynjanna. Stofnunin lagði mat á stöðu jafnréttis í 142 löndum víða um heim og því til grundvallar voru fjórir þættir lagðir: aðgengi að heil- brigðis- og fé- lagsþjónustu, að- gengi að menntun, efna- hagsleg staða og þátttaka í stjórn- málum. Fullt jafnrétti sam- kvæmt þessum mælikvörðum WEF er 1,0 stig og Ísland fær 0,8594 stig eða tæp 86% sem þýðir að enn hallar nokkuð á konur. Þessi úttekt hefur verið gerð frá árinu 2006, Ísland hefur verið með frá upphafi og var fyrstu árin í fjórða sæti. Af þeim 111 löndum sem hafa verið með í úttektinni frá upphafi hafa framfarir orðið í 105 þeirra. Réttindi kvenna mælast ekki neins staðar meiri en karla og ekkert land hefur nokkurn tímann fengið eink- uninna 1,0. Norðurlöndin komast næst því, enda eru þau í fimm efstu sætum listans; Finnlandi er í öðru sæti og síðan koma Noregur, Svíþjóð og Danmörk. Í næstu sætum eru Níkaragúa, Rúanda, Írland, Filipps- eyjar og Belgía er í 10. sæti. Banda- ríkin eru í 20. sæti og Bretland í því 26., en þetta er í fyrsta skiptið sem Bretland er ekki eitt af 20 efstu lönd- unum. „Það er virkilega ánægjulegt að við skulum halda forystu á þessum lista og fyllsta ástæða til að fagna þessari niðurstöðu,“ segir Kristín Ástgeirsdóttir framkvæmdastýra Jafnréttisstofu. Sendir jákvæð skilaboð Jafnréttisstofa hefur verið WEF innan handar í gegnum tíðina við gagnaöflun og segist Kristín telja að úttektin gefi nokkuð góða mynd af stöðu mála því verið sé að mæla sömu þættina alls staðar. „Auðvitað getum við alltaf spurt okkur um hvort verið sé að mæla réttu hlutina eða nota réttu aðferðafræðina í úttektum sem þessari. Þarna vantar ýmislegt eins og t.d. verkaskiptingu á heimilum og kynbundið ofbeldi. Þarna er verið að mæla ýmsa þætti sem eru sem betur fer ekki vandamál hjá okkur lengur, eins og t.d. ungbarna- og mæðra- dauða.“ Spurð hverju þakka megi þenn- an góða árangur Norðurlanda- þjóðanna í að jafna réttindi kynjanna segir Kristín skýringarnar vera að finna í velferðarkerfinu. „Það er þessi opinberi stuðningur við fjölskyldurn- ar sem skiptir sköpum. Það gera ekki allir sér grein fyrir því hvað leik- skólakerfið okkar og fæðingarorlofið skiptir miklu máli í þessu sambandi. Svo er hátt menntunarstig íslenskra kvenna mjög stór þáttur.“ Er semsagt hægt að fullyrða samkvæmt þessum niðurstöðum að Ísland sé það land heims þar sem jafnrétti kynjanna er mest? „Það er a.m.k. hægt að segja að við séum það land þar sem munurinn er minnstur á milli kynjanna.“ Hvaða máli skiptir það að vera í fyrsta sæti í úttekt sem þessari? „Það sendir gríðarlega jákvæð skila- boð út í heiminn. Undanfarin ár höf- um við fengið fjölda heimsókna og fyrirspurna alls staðar að úr heim- inum. Fólk bæði úr atvinnulífinu og stjórnmálum sækist eftir að koma hingað og kynna sér málin,“ segir Kristín. Tæplega 86% jafn- rétti mælist á Íslandi Morgunblaðið/Golli Jafnrétti núna Frá Kvennafrídeginum. Það, að Ísland skuli mælast hæst í úttekt WEF sendir gríðarlega jákvæð skilaboð, segir Kristín Ástgeirsdóttir. Kristín Ástgeirsdóttir Sé litið á öll 142 löndin í út- tektinni í heild er staðan verst varðandi efnahagslegt jafnrétti kynjanna, sem fær 0,6 stig. Þegar úttektin var fyrst gerð árið 2006 var sam- bærileg tala 0,56 stig. Haldi þróunin áfram á sama hraða má búast við því að fullt efnahagslegt jafnrétti kynj- anna náist eftir 81 ár, árið 2095, að því er kemur fram í fréttatilkynningu frá WEF. Mesta aukningin á efna- hagslegri þátttöku kvenna hefur orðið í Sádi-Arabíu og mest hefur staða menntamála að þessu leyti batnað í Búrk- ína Fasó. Ekki hafa þó alls staðar orðið framfarir. T.d. hefur orð- ið afturför varðandi menntun í 30% ríkja og í 40% ríkja hvað varðar aðgengi að heilsugæslu. Gerist þetta árið 2095? HÆGAR FRAMFARIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.