Morgunblaðið - 29.10.2014, Page 26

Morgunblaðið - 29.10.2014, Page 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2014 Viðarhöfða 2 – 110 Reykjavík – Sími 577 6500 – www.takk.is – takk@takk.is Fást í verslunum um land allt Heildsöludreifing Allt til hreingerninga Brennivín er besti matur, bragðið góða svíkur eigi. Eins og hundur fell ég flatur fyrir því á hverjum degi. Þegar Skagfirðing- urinn góðglaði, Har- aldur Hjálmarsson, „Halli á Kambi“ gerði þessa vísu, þá vissu flestir, að það var skáldaleyfi, rímsins vegna, að kalla brennivínið mat. Það kom því flatt á marga að ung- ur þingmaður, sneisafullur af erfða- vísum úr skagfirskum sóma- og greindarættum heldur því lóðbeint fram, að brennivín sé matvara, og eigi að seljast í matvöruverslunum. Til að svo geti orðið vill hann breyta lögum um meðferð áfengis. Ekki um áfengismeðferð, þó þekkt sé að hug- myndir hans auka mjög þörf fyrir hana. Rök hans eru að fólki eigi að vera frjálst að kaupa áfengi eins og aðra matvöru. Einhver efasemd er þó um frelsið. Það á bara að gilda til kl. átta að kvöldi. Af hvaða ástæðu á að skammta frelsið þannig, að það sé löglegt að kaupa vöru kl. hálfátta en lögbrot kl. hálfníu? Vill þingmað- urinn segja frá því? „System í galskaben“ Ef fara á með áfengi eins og vöru í mat- vörubúð þá hlýtur þingmaðurinn að beita sér fyrir afnámi á þeim lögum og reglum sem banna neyslu vör- unnar. T.d. var Versl- unarskólinn að reka nokkra nemendur fyrir þá sök að neyta mat- vörunnar í húsakynn- um skólans. Mér finnst að þingmað- urinn eigi að gera sér ferð í Verslunarskólann og reyna að tala stjórnendur hans til skilnings á því að nemendum eigi að vera frjálst að neyta þess matar í skólanum, sem á að fást í matvörubúðum. Hann getur í leiðinni sagt þeim að það sé rökrétt afleiðing af lagabreytingu hans, að kennurum verði ekki vikið úr starfi þó að þeir neyti vörunnar í skólanum, og angi þar af þeirri matarlykt. Kannski skilur þá skólastjórnin að það gengur ekki að hafa lög og reglu um það, að reka fólk fyrir það eitt, að neyta vöru úr hillum matvöruversl- ana. Þau lög verður að afnema. Það hljóta flutningsmenn frumvarps um sölu víns í matvörubúðum að vilja. Eða er það ekki? „Man skal jo have system í galskaben.“ Tóm tjara Auðvitað er þetta allt tóm tjara. Áfengi virkar á heilann og aðra lík- amsstarfsemi og dregur úr færni einstaklings til að hafa stjórn á gerð- um sínum. Þess vegna gilda haml- andi lög sem banna þeim, sem eru undir áhrifum þess, ýmsar athafnir. T.d. að aka bíl, vera fullir í vinnunni og margt fleira. Flutningsmenn frumvarpsins vilja nú fella niður hamlandi ákvæði um afhendingu áfengis til neyslu. Þrátt fyrir að þeir sem neyta þess missa þá rétt sinn til marga leyfilegra at- hafna, sem verða þá að lögbroti. Ég bið þau, sem flytja frumvarpið, að staldra við og styðjast við greind sína og spyrja: Er ekki farsælast að áfram gildi hamlandi lög um sölu áfengis samhliða hamlandi lögum um neyslu áfengis? Þau lög voru ekki sett að ástæðu- lausu. Það þekkir öll þjóðin. „Brennivín er besti matur“ Eftir Birgi Dýrfjörð »Er ekki farsælast að áfram gildi haml- andi lög um sölu áfengis samhliða hamlandi lög- um um neyslu áfengis? Birgir Dýrfjörð Höfundur er rafvirkjameistari. Myndin er eftir Bene- dikt Gröndal af Görð- um og Garðakirkju. Hún er trúlega gerð skömmu eftir vígslu kirkjunnar árið 1880. Myndin kemur víða við í ritum, en hvergi er vísað til þess hvar frummyndin er geymd. Ef einhver þekkir til mynd- arinnar vinsamlega hafið þá samband við Valgerði Sigurð- ardóttur í síma 896-3122. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Veit einhver hvar þessi mynd er niðurkomin? Garðar á Álftanesi. Þessi saga byrjar fyrir 25 árum. Strák- urinn settist við hlið- ina á mér og horfði stíft á mig. Ég var frekar þungt hugsi, langaði ekki að tala við neinn og fannst auk þess óþægilegt að láta horfa stíft á mig. Seinna sagði hann mér að hann hefði orðið svona skrítinn í hausnum á því að reykja hass. Eftir því sem þunginn bráði af mér átti ég eftir að kynnast því að flóra fólks á þessum stað var virkilega áhuga- verð. Það sem ég vissi hins vegar ekki var að ég átti eftir að hitta sumt af þessu fólki aftur og aftur á lífsleiðinni og læra mikið af lífs- reynslu þess og hvað geðsjúkdómar eru oft lífseigir og mjög oft eyðandi sjúkdómar. Ég var stödd á A2 geð- deild Borgarspítalans, þá lögð inn í fyrsta sinn 18 ára gömul en ekki það síðasta, árið 1989. Sú geðdeild var stofnuð árið 1968 og þótti mikið framfaraskref, enda Kleppsspítali stútfullur þrátt fyrir að þar hefði verið stofnuð göngudeild árið 1964. Í hagræðingarskyni, að sjálfsögðu, en ekki með þarfir eða sjónarmið sjúklinga að leiðarljósi, var A2 lögð niður árið 2000 eða það sem kallað er sameinuð 32A á Landspít- alanum. Ég þekki þá deild vel líka. Fullt af hvítum sloppum Og nú ætla ég að segja ykkur stutta sögu. Fyrir 25 árum sváfum við sex í herbergi á geðdeildinni á A2. Í dag þætti það mannréttinda- brot. En í minningu unglingsins þeyttust hvítir sloppar um ganga A2, ábúðarfullir læknar og hjúkr- unarfræðingar sem voru alltaf til reiðu í búrinu góða sem staðsett var á miðjum ganginum. Vildi mað- ur fá athygli, með góðu eða illu, var það því lítið mál, það var alltaf ein- hver til að bregðast við henni. Mig minnir að ég hafi bara verið nokk- uð ánægð með A2 og þá þjónustu sem ég fékk þar, þótt ekki væri hægt að lækna geðsjúkdóm minn sisona, enda þegar ég fór að lesa mér til komst ég að því að geð- sjúkdómar eru dálítið flóknir og langvinnir sjúkdómar sem oft og tíðum fæst ekki skyndilausn á. Viljum við aftur slíkt þjóðfélag? Og nú ætla ég að bætast í hóp þeirra sem hafa raunverulegar áhyggjur af heilbrigðiskerfinu okk- ar. Í öll þessi ár sem ég hef verið í samskiptum við íslenska heilbrigð- iskerfið hef ég verið tiltölulega sátt og oftast afar þakklát fyrir það þótt ég hafi líka verið gagnrýnin en núna óttast ég. Eitt af því sem ég hef verið stoltust af sem Íslend- ingur, er hvernig þessari fátæku þjóð, sem byggt hefur þetta land í 1140 ár með misjöfnum árangri, sem einmitt fyrir um 90 árum, átti varla bót fyrir boruna á sér, frekar en fyrri daginn, tókst loksins á nokkrum áratugum að byggja upp mennta- og heilbrigðiskerfi fyrir al- menning á heimsmælikvarða, að tryggja velferð fyrir alla án tillits til efnahags. Það er nefnilega ekk- ert langt síðan það var nánast ekk- ert velferðarkerfi hér. Árið 1955 lamaðist amma mín og nafna Guðmundsdóttir eftir að hafa fengið mænusótt. Í viðtali í sunnudagsblaði Morgunblaðsins sem ég tók við afa minn Svein Samúelsson fyr- ir nokkrum árum um þá tíma sagði hann þetta: „Samfélagið brást allt öðruvísi við veikindum þá en nú og var frekar afskiptalítið gagnvart þeim. Það var ekkert ný- næmi að fólk veiktist alvarlega, missti mátt og þrek, örkumlaðist og dæi. Berklar höfðu lengi verið landlægir sem og aðrir alvarlegir sjúkdómar. Það hafði hver sinn djöful að draga. Á þessum árum var í raun og veru ekki neitt til sem hét velferðarkerfi og því varð hver og einn að finna út úr því hvernig hann myndi bjarga sér í lífinu eftir slík áföll.“ Það er ekki lengra síðan! Viljum við aftur slíkt þjóðfélag? Búrið er að tæmast Það eru engir hvítir sloppar flaksandi um 32A. Ég hef á tilfinn- ingunni að það sé ekki eins margt fagfólk sem vinnur þar eins og á A2 án þess að ég hafi nokkuð ann- að fyrir mér í því en tilfinninguna. Það er þreytt fólk sem vill samt hjálpa en meðferðin er máttlaus sem og þjónustan að mínu mati. Sá sem verður sjúkur í dag verður að hafa góða rödd, og helst að getað öskrað hátt og mikið til þess að fá athyglina með góðu eða illu og skiptir þá held ég ekki máli hvaða sjúkdóm um er að ræða. Þjónusta er ekki sjálfsögð lengur. Ég upp- götvaði það þegar ég veiktist alvar- lega á þessu ári. Það eru fáir í búrinu, það kemur jafnvel enginn úr því, það svarar jafnvel enginn. Það er bara að tæmast. Heilbrigð- iskerfið okkar er í lífshættu og það er samt bara nokkurra áratuga gamalt. Er hægt að klúðra málum meira? Stjórnmálamenn. Ég ætla að bætast í hópinn. Þið eruð í þjón- ustu minni og alls almennings. Nú horfi ég stíft í augun á ykkur og helst óþægilega og ég vil tala við ykkur, því það er í ykkar valdi að standa vel að málum. Ég vil það og ég trúi að allur almenningur vilji vernda heilbrigðiskerfið og verja. Bjargið heilbrigðiskerfinu okkar. Setjið aukið fjármagn í það og byggið nýjan Landspítala. Núna! Við höfum engin ár eða áratugi upp á að hlaupa. Búið til peninga til þess að hægt sé að byrja á þessu verkefni eða finnið þá, annað eins hefur verið gert í gegnum tíð- ina á þessu landi. Það borgar sig, hvort sem er er litið er til skamms eða lengri tíma. Byrjið á þessum fjárlögum. Tíminn er að hlaupa frá okkur! Engin vettlingatök, skóflu- stunguna á næsta ári, takk. Ég ætla að bætast í hópinn Eftir Unni H. Jóhannsdóttur Unnur H. Jóhannsdóttir » Vildi maður fá at- hygli, með góðu eða illu, var það því lítið mál, það var alltaf einhver til að bregðast við henni. Höfundur er kennari, blaðamaður og með diplóma í fötlunarfræði. Nú geta allir fengið iPad-áskrift Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.