Morgunblaðið - 29.10.2014, Síða 28
28 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2014
Opið: 8
:00-18
:00
mánud
. til fim
mtud.
8:00-1
7:00
föstud
aga
Er bílrúðan
brotin eða
skemmd?
Við erum sérfræðingar í
bílrúðuskiptum og viðgerðum
á minni rúðutjónum.
Erum í samvinnu við öll
tryggingafélög landsins.
Stórhöfða 37 | 110 Reykjavík | Sími 586 1900 | framrudur@simnet.is | bilrudur.is
Áratuga reynsla og framúrskarandi þjónusta
Hinn 8. október
2013 voru kynntar í
Fréttablaðinu fárán-
legar hugmyndir frá
Vegagerðinni um að
setja í einka-
framkvæmd Svín-
vetningabraut sem
myndi liggja fyrir
sunnan Blönduós og á
Austfjörðum vel upp-
byggðan veg um Öxi
milli Berufjarðar og
Skriðdals. Óskynsamlegt er að
vegamálastjóri fari sínu fram og
veki upp falskar vonir heima-
manna í fámennum landshlutum
um að hægt sé að fjármagna sam-
göngumannvirki með vegtollum á
hlykkjóttum, snjóþungum og ill-
viðrasömum svæðum í 500-600 m
hæð án þess að fram komi hve
meðalumferð ökutækja á sólar-
hring þarf að vera mikil. Fram hjá
Blönduósi og á stystu leiðinni milli
Djúpavogs og Egilsstaða nær
þessi meðalumferð aldrei þeim
heildarfjölda ökutækja sem fer
daglega í gegnum Hvalfjarð-
argöngin.
Í fámennum landshlutum með
11-12 þúsund íbúa stendur 1000
króna veggjald á hvern bíl aldrei
undir fjármögnun samgöngu-
mannvirkja, launum starfsmanna,
viðhaldskostnaði, afborgunum og
vöxtum. Fullyrðingar vegamála-
stjóra í Fréttablaðinu á síðasta ári
um að uppbyggður vegur á suður-
fjörðum Austurlands um Öxi og
Svínvetningabraut í Húnaþingi
eystra uppfylli öll skilyrði sem
innanríkisráðherra hafi sett fyrir
því að allar forsendur um arðsem-
ismat veganna standist einkennast
af siðblindu og eru ótrúverðugar
og í hróplegri mótsögn við góða
blaðamennsku.
Utan úr hinum stóra heimi er
það vel þekkt að framkvæmdir við
hraðbrautir- og jarðgangagerð
hafi verið fjármagnaðar með inn-
heimtu vegtolla á hvert ökutæki.
Innanríkisráðherra ætti frekar að
kynna sér hvað meðalumferð öku-
tækja í fámennum sveitarfélögum
utan Reykjavíkur þurfi að aukast
mikið til þess að veggjöld á hvern
bíl teljist raunhæf í stað þess að
fela sig á bak við verðandi for-
stjóra Vegagerðarinnar sem kýs
að vekja falskar vonir sveitar-
stjórnanna og heimamanna á
landsbyggðinni. Nógu erfitt verður
næstu aldirnar fyrir Vegagerðina
að festast í svikamyllu Vaðlaheið-
arganga að undirlagi fyrrverandi
ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurð-
ardóttur án þess að vegamálastjóri
réttlæti fleiri tilraunir til að sýna
fram á misheppnaða fjármögnun
samgöngumannvirkja í öllum
landshlutum utan höfuðborg-
arsvæðisins. Af þessari misheppn-
uðu fjármögnun Svín-
vetningabrautar og
heilsársvegar um Öxi í
formi vegtolla á hvern
bíl yrði fljótlega löng
saga þegar það sann-
ast að meðalumferð á
sólarhring um þessa
vegi í Norðvestur- og
Norðausturkjör-
dæmum verður aðeins
lítið brot af þeim
heildarfjölda ökutækja
sem Hvalfjarðargöngin
þola ekki. Í kjölfarið
geta vonsviknir skattgreiðendur
séð á forsíðum dagblaðanna fyr-
irsögnina Svikamylla vega-
málastjóra afhjúpuð, þegar það
fréttist að meðalumferð ökutækja
á sólarhring um þessa vegi í báð-
um kjördæmunum verður alltof lít-
il til þess að hægt sé að réttlæta
vegtoll á hvern bíl.
Ég spyr. Hverjum verður refsað
þegar vegamálastjóri reiknar vit-
laust? Fullvíst þykir að afleiðing-
arnar lendi á ríkissjóði áður en
þær verða skrifaðar á reikning
skattgreiðendanna sem gætu misst
heimilin sín og stæðu uppi eign-
arlausir. Þegar allar tilraunir til að
fjármagna svikamyllu Vaðlaheið-
arganga með innheimtu vegtolla
mistakast mun vegamálastjóri eiga
mörgum spurningum ósvarað.
Engin svör fást þegar Hreinn Har-
aldsson er spurður að því hvernig
hægt sé að fjármagna einka-
framkvæmd með innheimtu
veggjalds á Öxi sem Vegagerðin
neyðist til að loka alla vetrarmán-
uðina vegna illviðris og snjó-
þyngsla í 530 m hæð. Upp í þessa
hæð á einkaframkvæmd ekkert er-
indi þegar framfarir á sviði jarð-
ganga halda áfram að aukast. Áður
hefur þurft að loka alla vetrarmán-
uðina stystu leiðinni milli Djúpa-
vogs og Egilsstaða vegna illviðris,
snjódýptar og hálku í brekkunum
upp úr Berufirði þar sem núver-
andi vegur liggur í 17% halla, þeg-
ar talsmenn Vegagerðarinnar og
fjárveitingavaldsins töldu óhjá-
kvæmilegt að berja í borðið með
þeim skilaboðum, hingað og ekki
lengra. Eftir öðrum leiðum er von-
laust að forðast kostnaðinn við
samfelldan snjómokstur.
Á Vestfjörðum, Norður- og
Austurlandi hefur oft þurft að loka
mörgum fjallvegum í 500-600 m
hæð þegar snöggar veðrabreyt-
ingar, sem enginn sér fyrir, hafa
skapað vandræði þvert á allar veð-
urspár og hrellt vegfarendur.
Svikamylla
vegamálastjóra
Eftir Guðmund
Karl Jónsson
Guðmundur Karl
Jónsson
ȃg spyr. Hverjum
verður refsað þegar
vegamálastjóri reiknar
vitlaust?
Höfundur er farandverkamaður.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og
birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vin-
samlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er
auðvelt í notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli
starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda.
Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru send-
ar á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í
hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið
birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er
valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf not-
andinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar
fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkom-
andi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá
inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið.
Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins
alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18.
FEB Reykjavík
Mánudaginn 27. október var spil-
aður tvímenningur hjá bridsdeild
Félags eldri borgara í Reykjavík.
26 pör mættu til leiks.
Efstu pör í N/S:
Tómas Sigurjss. – Björn Svavarsson 399
Ragnar Björnsson – Bjarni Þórarinss. 361
Ingibj. Stefánsd. – Margrét Margeirsd. 344
Guðm. Sigursteinss. – Auðunn Guðmss. 342
A/V
Björn Péturss. – Valdimar Ásmundss. 373
Friðrik Jónss. – Jóhannes Guðmannss. 362
Axel Lárusson – Hrólfur Guðmss. 357
Magnús Jónsson – Óli Gíslason 355
Spilað er í Síðumúla 37.
Íslandsmót eldri
spilara í tvímenningi
Íslandsmót eldri spilara verður
haldið laugardaginn 15. nóvember í
höfuðstöðvunum Síðumúla 37.
Skráning á bridge@bridge.is
eða í síma 587 9360
Íslandsmeistarar fyrra árs eru
Aðalsteinn Jörgensen og Sverrir Ár-
mannsson.
BRIDS
Umsjón Arnór G. Ragnarsson| brids@mbl.is
Aukablað alla
þriðjudaga