Morgunblaðið - 29.10.2014, Síða 29

Morgunblaðið - 29.10.2014, Síða 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2014 ✝ Lillý OktavíaGuðmunds- dóttir fæddist 13. september 1934 að Smiðjustíg 9 í Reykjavík. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Eir 21. október 2014. Foreldrar henn- ar voru Oktovía Jónsdóttir sauma- kona, f. 25.10. 1898, d. 1978, og faðir hennar Guð- mundur Jónsson verkamaður í Reykjavík, f. 22.6. 1906, d. 1985. Systkini hennar eru: Laufey Ingi- björg, f. 17.7. 1923, d. 1930, Árni Hólm Einarsson, f. 4.2. 1925, d. 1990, og Ingiberg Kvist Sigurgeirsson, f. 8.4. 1929. Hinn 9. maí 1954 giftist Lillý Gunnari Páli Ingólfsyni, f. 26. maí 1934. Börn þeirra eru: Laufey Ingibjörg, f. 7. októ- ber 1954, Sigurður Árni, f. 23. maí 1959, Arnar Freyr, f. 23. október 1966. Útför Lillýjar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 29. október 2014, kl. 13. Lillý byrjaði að vinna 15 ára gömul í versluninni Ási við Lauga- veg sem var fyrsta verslunin sem rekin var með kjörbúðarsniði þar sem fólkið valdi vörurnar sjálft og kom með að kassa þar sem það greiddi vörurnar. Lillý var vel lið- in af kúnnunum og viljug að leið- beina þeim, því við þetta breytta fyrirkomulag gekk fólki oft illa að finna vörurnar sem það hafði áður gengið að á vísum stað. Við Lillý kynntumst þegar við vorum 17 ára, það var um versl- unarmannahelgi á Hreðavatni 1951. Árið 1954 verður Lillý ófrísk að okkar fyrsta barni. Móðir hennar sótti mjög fast á að við giftum okkur áður en barnið fæddist svo það yrði ekki óskilget- ið eins og það var orðað. Það var því ákveðið að við giftum okkur 9. maí, en þá kom babb í bátinn því samkvæmt lögum varð ég að vera tvítugur til að fá að gifta mig, en ég átti ekki afmæli fyrr en 26. maí. Ég gleymi seint glottinu á fulltrú- anum í dómsmálaráðuneytinu þegar hann spurði, hvað liggur svona á, þú ert alveg að verða tví- tugur. Ég kom með þá skýringu sem var rétt að ég væri að vinna svo mikið úti á landi og móðirin sótti mjög fast að giftingin færi fram áður en ég færi úr bænum. Já, það er bara þannig, svaraði hann. Hann fyllti út skjalið og undirritaði það og rétti mér, hann stóð upp og tók þéttingsfast í hönd okkar og sagði: Gangi ykkur allt í haginn. Nú þegar liðin eru 63 ár frá kynnum okkar Lillýjar og farið er yfir sviðið komu oft upp erfiðleik- ar því á þessum tíma var oft erfitt með húsnæði og mikið um flutn- inga og rót á fjölskylduháttum. Við eignuðumst okkar fyrstu íbúð 1974 og bjuggum í henni í 18 ár og eignuðumst þar góða granna og vini. Lillý vann lengst af sinni starf- ævi við verslunarstörf, þó síðustu starfsárin við þrif og umönnun hjá eldri borgurum. Allir sem hún starfaði hjá og þeir sem nutu starfskrafta hennar elskuðu hana og dáðu fyrir fórnfýsi og jafnaðar- geð og hversu ráðagóð hún var. Hún var aldrei að sýnast, öll henn- ar framganga var heil og sönn. Oft veltur gangur lífsins á því hvaða vini menn velja sér. Ég vil því nota tækifærið og þakka saumaklúbbsvinkonum Lillýjar, þeim Systu, Auði og Ölmu, fyrir tryggðina, þær voru saman í saumaklúbb í yfir 60 ár. Sl. þrjú og hálft ár dvaldi Lillý á hjúkrunarheimilinu Eir. Ég vil þakka starfsfólkinu á annarri hæð norður fyrir frábæra umönnun og hlýju í veikindum hennar og öllu því starfsfólki sem þar kom að. Ég er ekki frá því að í undirmeðvitund Lillýjar hafi dvalið minning um hennar störf á svipuðu sviði því oft sá ég hana brosa við fólkinu þegar það var að aðstoða hana. Hafið kærar þakkir fyrir. Þegar komið var að kveðju- stund þá virti ég Lillý fyrir mér og yfir henni hvíldi friður og ró og mér fannst hún ekkert hafa elst, hún var eins og hún var þegar hún var fimmtug. Það er erfitt að finna orð til að kveðja svo traustan og góðan lífsförunaut, ég ætla að kveðja hana með vísu sem ég gerði til hennar þegar hún varð fimm- tug. Ljúft nú megi lýsa þín lífsgleði, ávallt prýða, leika höndum, Lillý mín, ljúflings mærin fríða. Þinn lífsförunautur, Gunnar Páll. Nú hefur þú yfirgefið þessa jarðvist, elsku mamma. Þær verða ekki mikið fallegri manneskjurn- ar, að innan sem utan, en þú varst. Þú varst ein sú heiðarlegasta manneskja sem þessi jörð hefur alið. Þú varst kletturinn og límið í fjölskyldunni, þú varst alltaf til staðar fyrir okkur. Þú varst við- kvæmt blóm en svo sterk í senn. Nú ertu farin á betri stað eftir erf- ið veikindi sem smátt og smátt tóku þig frá okkur, en við minn- umst þín eins og þú varst. Hún mamma var ótrúlega traust, sterk, skemmtileg og dug- leg. Þeir sem hana þekktu vissu að alltaf var stutt í húmorinn hjá henni og hélt hún áfram að koma á óvart með hnyttnum tilsvörum þar til yfir lauk. Minningar okkar um hana mömmu eru margar og góðar og hún var alltaf tilbúin að rétta öðrum hjálparhönd. Það var með ólíkindum hvað hún var flink í mörgu og ef hún tók eitthvað að sér þá kláraði hún það sannarlega. Að baka var nokkuð sem hún var mikill meistari í og eru marengs- kökurnar hennar mömmu eftir- læti allra afkomenda hennar. Hana mömmu munaði ekki um að prjóna lopapeysur á okkur, tengda- og barnabörnin. Ekki má gleyma sunnudagsmatnum sem alltaf var í hádeginu sama hvað bjátaði á. Fyrsta skóladaginn ár eftir ár vorum við oftast með húfu og í peysu sem mamma hafði prjónað á okkur. Við systkinin vorum engir englar á okkar ung- lingsárum eins og gengur og ger- ist og sýndi hún okkur oft alveg ótrúlega þolinmæði og var góður hlustandi. Móðir okkar kom okkur systkinum í þennan heim og hún fylgdist svo sannarlega með öllu sem við tókum okkur fyrir hend- ur. Hvert er fallegasta orðið í ís- lensku? Jú það er orðið móðir. Mamma var lifandi sönnun þess af hverju þetta orð er svona fallegt og hjartnæmt. Elsku mamma, takk fyrir alla þá ást og umhyggju sem þú veittir okkur og sem lifir áfram í hjörtum okkar. Laufey, Sigurður og Arnar. Í dag kveð ég elsku bestu Lillý ömmu mína. Tengsl okkar ömmu voru alla tíð afar náin enda var ég mikill heimalningur hjá ömmu og afa. Þær voru ófáar stundirnar sem við sátum í Möðrufellinu og spjölluðum um heima og geima. Hún gerði mig alveg ótrúlega ríka með frásögnum sínum. Það eru al- ger forréttindi að fá að alast upp og eiga ömmu sem hefur gefið manni jafn mikið og amma gaf mér. Þegar ég var unglingur bjó ég um tíma hjá ömmu og afa þar sem foreldrar mínir fluttu út á land. Maður var alltaf velkomin til ömmu og afa og hefur mér alltaf fundist heimili þeirra vera mitt annað heimili. Þegar ég flyt svo frá Svíþjóð þá er ég nánast með annan fótinn hjá ömmu og afa. Amma var afar dugleg að fylgjast með mér þar sem mamma og pabbi voru enn úti og veit ég að hún mun halda áfram að gæta mín. Amma var einstök mann- eskja sem ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast. Elsku- leg amma mín, það er með miklum söknuði sem ég kveð þig í dag. Þú varst mér mikil fyrirmynd og góð vinkona og veit ég að þú ert komin á góðan stað. Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ók.) Þín dótturdóttir, Guðrún Halla Karlsdóttir. Elsku fallega Lillý amma. Þetta er ennþá mjög óraunveru- legt. Ekki bara af því að ég er nú í rúmlega 2.000 km fjarlægð heldur vegna þess að mér finnst þú vera nær mér núna. Minningin um þig varð allt í einu skýrari og bjartari og ég rifja upp góðu tímana þegar þú varst frísk. Yfir hafið við fljúgum til að kveðja þig með sorg og trega í sinni. En ég fagna að þú varst amma mín, þú nú lifir í minningu minni. Saknaðarkveðjur, þín dótturdóttir, Tekla Hrund. Lillý O. Guðmundsdóttir ✝ Sesselja Mar-grét Karls- dóttir fæddist í Hafsteini á Stokkseyri 19. jan- úar 1929. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Hömrum í Mosfellsbæ 19. október 2014. Foreldrar henn- ar voru Karl Frí- mann Magnússon, f. 4.10. 1886, d. 30.1. 1944, og Kristín Tómasdóttir, f. 4.6. 1888, d. 12.2. 1967. Systkini Sesselju eru: 1) Karl Magnús, f. 1.9. 1911, d. 17.3. 1938, 2) syni, f. 28.11. 1927, d. 8.9. 2006. Þau skildu 1973. Börn þeirra eru: 1) Kolbrún Kristín, f. 21. desember 1950. Hún á tvær dætur, tvo syni og níu barnabörn. Sambýlismaður er Hrafn Þórðarson. 2) Erna Ól- ína, f. 21. desember 1950. Hún á tvo syni, eina dóttur og níu barnabörn. Sambýlismaður er Eggert V. Kristinsson. 3) Kristján Björn, f. 17. apríl 1956. Kvæntur Pálu Kristínu Ólafsdóttur. Þau eiga þrjá syni og eitt barnabarn. 4) Karl Frímann, f. 7. september 1965, d. 7. ágúst 2000. Hann á eina dóttur, einn son og eitt barna- barn. Seinni eiginmaður Sess- elju var Ríkharður Björnsson, f. 9.8. 1929, d. 27.9. 2001. Sesselja bjó allan sinn bú- skap í Reykjavík. Útför Sesselju fór fram 28. október 2014. Sigríður Bjarney, f. 1.3. 1913, d. 16.9. 1998, 3) Kar- ítas, f. 12.3. 1914, d. 18.5. 2001, 4) Svanlaug, f. 10.7. 1915, d. 14.6. 1920, 5) Marg- rímur Svanur, f. 2.8. 1922, d. 30.3. 2013, 6) Tómas, f. 20.11. 1923, d. 27.11. 2008, 7) Ólöf, f. 12.1. 1927, d. 5.10. 2003 og 8) Jóhanna 21.11. 1925, d. 5.10. 2014. Sesselja giftist 24. mars 1951 Ólafi Lúter Kristjáns- Elsku mamma mín, nú hefur þú kvatt þennan heim. Í huga mér er ég full af þakkæti fyrir allar sam- verustundir okkar. Sérstaklega er ég þakklát fyrir allar okkar ynd- islegu samverustundir í bústaðn- um, þar sem þú tókst þátt með mér í að planta og gróðursetja tré og blóm til þess að fegra umhverf- ið. Einkum naust þú þess að vera með öllum barnabörnunum við leik og störf. Elsku mamma, þú varst ávallt mikill gleðigjafi í lífi okkar allra, naust þess alltaf mikið að vera með í jólaboðum, matarboðum og afmælum þar sem þú lékst á als oddi. Þú varst meira en móðir mín, þú varst líka besta vinkona mín bæði í gleði og sorg. Þitt seinasta ár dvaldir þú á Hömrum í Mos- fellsbæ þar sem þú prjónaðir og heklaðir dýrindis teppi sem börn- in þín meta að verðleikum. Ég veit að nú ertu komin í sumarlandið þar sem við taka ný ævintýri með þinum nánustu. Elsku mamma ég kveð þig nú með kossi á kalda kinn. Þökk sé þér fyrir að vera þú, ég mun elska þig enn um sinn. Þú fagnar nú lífi á nýjum stað með þínum nánustu, njóttu vel, því þangað ég kem þegar húmar að til þess að þiggja þitt kærleiks þel. Þín elskandi, Erna Ólína Ólafsdóttir. Elsku amma mín, á þessum tímamótum er margs að minnast og margs að sakna. Í æskuminn- ingunum koma fyrst upp í hugann; sláturgerð, rifsberjatínsla, sultu- gerð og þegar við steiktum kleinur og flatkökur saman. Allt eru þetta ljúfar minningar sem eiga þátt í því hver ég er í dag. Þú hefur alltaf haft gaman af ferðalögum og þið Rikki áttuð yndislegar stundir saman á hinum ýmsu ferðalögum, bæði innanlands og erlendis. Eftir að Rikki féll frá, léstu ekki deigan síga, heldur ferðaðist um heiminn með því að heimsækja okkur barnabörnin til hinna ýmsu landa. Það eru sérstaklega ljúfar minn- ingar þegar þú komst og heimsótt- ir okkur til Vínarborgar og Stutt- gart. Einu sinni varst þú hjá okkur í tvo mánuði og hjálpaðir okkur með nýjasta fjölskyldumeðliminn þannig að við gætum stundað nám- ið okkar. Það var svo sannarlega yndislegur tími og mér fannst ég kynnast þér alveg upp á nýtt. Þú varst mikil félagsvera og hafðir gaman af því að koma með okkur í heimsóknir til vina okkar og kynn- ast nýju fólki. Þú varst alltaf til í að koma með þegar þér var boðið á mannamót, tónleika eða bara á rúntinn. Okkur hjónunum þykir sérstaklega vænt um að hafa feng- ið að syngja og spila fyrir þig og samferðafólk þitt á Eir í Mos- fellsbæ nú í haust. Ég er svo þakklát fyrir allar þær stundir sem við höfum átt saman og sérstaklega fyrir það að börnin mín hafi fengið að kynnast þér svo náið og eiga þar af leiðandi margar yndislegar minningar með þér. Far þú í friði, elsku amma, frið- ur Guðs þig blessi og hafðu þökk fyrir allt og allt. Þín, Margrét. Sesselja Margrét Karlsdóttir Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR BJÖRNSSON verkfræðingur, lést á Landspítalanum í Fossvogi miðvikudaginn 15. október. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ fimmtudaginn 30. október kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á orgelsjóð Vídalínskirkju. . Greta Håkansson, Hrafnhildur Sigurðardóttir, Atle Vivås, Bergljót Sigurðardóttir, Guðmundur Sigurjónsson, Sverrir Sveinn Sigurðarson og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, systir og dóttir, JÓHANNA VIÐARSDÓTTIR frá Keflavík, fædd 17. 12. 1946, lést í Helsingborg, Svíþjóð hinn 18. september. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju 31. október kl. 13.00. . Eyjólfur Helgi Þórarinsson, Davíð Þór Þórarinsson, Helena Þórarinsdóttir, Sylvía Þórarinsdóttir, Elísa Þórarinsdóttir og aðrir ástvinir. ✝ Okkar ástkæri, SIGURÐUR ARNAR MAGNÚSSON, sem lést á heimili sínu föstudaginn 17. október, verður jarðsunginn frá Glerárkirkju mánudaginn 3. nóvember kl. 13.30. Sigrún Björk Sigurðardóttir, Hrafn Jóhannesson, Dagbjört Rós, Karen Hulda og Víkingur Kári, Sigurrós Anna Gísladóttir, Guðfinna Sigurðardóttir, Magnús Stefánsson, Hólmsteinn Rúnar Magnússon, Kristín Elva Magnúsdóttir, Örn Guðmundsson, Stefán Atli og Unnar Óli. ✝ Ástkær yndislegur sonur okkar, bróðir og barnabarn, ARNÓR MÁR HANSSON frá Akureyri, lést laugardaginn 25. október. Sonja Bárudóttir, Jón Helgi, Elvar Snær, Bára Guðrún Sigurðardóttir, Hans Aðalsteinsson, Sif Sigurbjörnsdóttir, Stefán Valur, Jóhanna Rós, Elis Edward, Ísak Logi, Esra Leví, Aðalsteinn Hermannsson, Jóhanna Þórarinsdóttir. ✝ Elskuleg systir okkar, EBBA EBENHARÐSDÓTTIR, Hamragerði 4, Akureyri, lést laugardaginn 11. október . Útför hennar fer fram frá Höfðakapellu föstudaginn 31. október kl 13.30. Unnur og Ásta Ebenharðsdætur og fjölskyldur Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, dóttir, systir og amma, EDITH THORBERG TRAUSTADÓTTIR, Hátúni 12, Reykjavík, sem lést fimmtudaginn 23. október sl., verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 31. október kl. 15.00. . Sesselja Thorberg, Magnús Sævar Magnússon, Trausti Ómar Thorberg, Kristín Erla Þráinsdóttir, Trausti Thorberg Óskarsson, systkini og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.