Morgunblaðið - 29.10.2014, Page 32

Morgunblaðið - 29.10.2014, Page 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2014 Elsku Gauja mín, nú ertu farin á vit nýrra ævintýra og söknuður okkar er óbærilegur. Það er hins vegar huggun í sorginni að vita til þess að baráttunni er lokið og henni laukst þú á þann veg sem þú vildir, á friðsælan og fallegan máta með stelpurnar þínar þér við hlið. Ég er gríðarlega þakklátur fyr- ir þann tíma sem við áttum saman, ég er mjög heppinn að hafa kynnst þér og fyrir allan þann tíma sem við áttum saman. Ég mun sakna þess mikið að sitja með þér og fara yfir daginn og veginn, já litlir hlut- ir verða skyndilega mjög tómleg- ir, hlutir sem maður tekur sem sjálfsögðum. Það er ekkert sjálf- sagt í þessu lífi og við eigum að þakka fyrir hvern dag, það er eitt af því sem þú hefur kennt mér, með æðruleysi þínu og jafnaðar- geði. Aldrei hef ég kynnst eins mikilli baráttumanneskju og þér, hvernig þú tókst á við veikindi þín er mér nánast óskiljanlegt, aldrei kvart- aðir þú, aldrei vildir þú láta okkur finna fyrir veikindum þínum. Bar- átta þín er mér hvatning. Leiðir okkar lágu saman fyrir átján ár- um og dugnaður þinn í vinnu og daglegu amstri er eitthvað sem er Guðríður Ásgrímsdóttir ✝ Guðríður Ás-grímsdóttir fæddist 21. desem- ber 1954. Hún lést 18. október 2014. Útför Guðríðar fór fram 28. október 2014. öðum til eftirbreytni. Öll þessi einkenni þín sem þú kenndir okkur munum við halda á lofti og kenna stelpunum okkar sem sakna þín svo sárt. Þú ert besta vinkona þeirra og þær trúa því ennþá að þú komir aftur, ég trúi því að þú hafir aldrei farið frá þeim, þú munt vaka yfir þeim og taka á móti okkur öllum þegar okkar tími er komin. Ég mun sakna þess að ganga úr húsi fyrir leiki og fá kveðjuna frá þér, því fyrir hvern einasta leik fékk ég sömu kveðjuna. „Gangi ykkur vel elskan, ég segi bara tu tu.“ Án þess að vita nákvæmlega hvað það þýðir þá þykir mér óend- anlega vænt um þessi orð og mun geyma þau í hjarta mínu að eilífu. Minningu þinni munum við halda á lofti að eilífu því minningin er yndisleg. Tu tu Gauja mín. Þinn tengdasonur, Freyr Alexandersson. Ég kveð góða vinkonu mína, hana Gauju, með þakklæti fyrir allar góðu stundirnar og sorg í hjarta yfir að þær verða ekki fleiri í þessu jarðlífi. Gauja var búin að berjast við krabbamein í mörg ár af miklu æðruleysi og ótrúlegum styrk, stundum náði hún að því er virtist að sigra, en meinið kom aft- ur og tók þá við löng og ströng lyfjameðferð, að lokum varð hún að játa sig sigraða. Þó svo að vitað hafi verið að hverju dró er maður aldrei tilbúinn þegar kallið kemur og þá hellist óendanleg sorg og söknuður yfir. Sorg yfir því að Gauja fær ekki að fylgjast með barnabörnum að vaxa úr grasi og elsku stelpunum sínum, þeim Ásu Láru og Erlu Súsönnu, sem hún var svo óendanlega stolt af. Ég kynntist Gauju á Höfn í Hornafirði, hún var konan hans Júlla frænda, og var frá Vopna- firði. Hún vann eins og svo margir í Kaupfélaginu og hann var sjó- maður, þau bjuggu til að byrja með hjá foreldrum Júlla, þeim Vil- borgu Valgeirsdóttur og Óla Sveinbirni Júlíussyni, ásamt systkinum Júlla, hann átti stóran systkinahóp: Þóru, Sollu, Ástu, Binnu, Mæju, Hauk, Sigrúnu og Óla Gísla þannig að eins og gefur að skilja mikið að gera á stóru heimili og Gauja varð strax ein af fjölskyldunni. Gauja og Júlli giftu sig í Vopnafjarðarkirkju um sum- ar sennilega árið 1975 og þá dugði ekki lengur að búa hjá mömmu og pabba og leigðu þau sér íbúð. Voru einnig byrjuð að byggja sér ein- býlishús á Höfn, en lífið hafði aðr- ar fyrirætlanir því Júlli lést í hörmulegu slysi um borð í togara frá Höfn í október árið 1975. Við Gauja vorum alltaf góðar vinkonur og á ég margar dýrmæt- ar minningar sem ég er þakklát fyrir, þín verður sárt saknað, kæra vinkona. Þú varst svo dugleg og alltaf svo fín og flott. Ég sakna þín í birtingu að hafa þig ekki við hlið mér og ég sakna þín á daginn þegar sólin brosir við mér. Og ég sakna þín á kvöldin þegar dimman dettur á. En ég sakna þín mest á nóttinni er svipirnir fara á stjá. Svo lít ég upp og sé við erum saman þarna tvær stjörnur á blárri festingunni sem færast nær og nær. Ég man þig þegar augu mín eru opin, hverja stund. En þegar ég nú legg þau aftur, fer ég á þinn fund. (Megas.) Þessi texti kemur upp í hugann er ég kveð góða vinkonu og hennar er sárt saknað en minningin lifir. Gauja var mjög stolt af fjöl- skyldunni sinni dætrum sínum, tengdasonum og barnabörnum sem voru orðin fjögur talsins. Um leið og ég votta þeim og allri fjöl- skyldunni mínar innilegustu sam- úðarkveðjur vona ég að þeim verði gefinn styrkur á þessum erfiðu tímum. Signý Ingibjörg Hjartardóttir. Elsku Gauja mín. Þrautagöngu þinni er lokið og þú ert farin í ferðalagið þitt eins og þú sagðir við mig stuttu áður en þú kvaddir þessa jarðvist. Mig langar að minnast þín í fáum orðum. Æðruleysi er það sem kemur fyrst upp í huga minn er ég minnist þín. Það var alveg sama hvaða verk- efnum þú stóðst frammi fyrir stórum eða smáum og miserfiðum, alltaf tókstu bara hlutunum eins og þeir voru með jafnaðargeði og æðruleysi. Það hefur örugglega ekki alltaf verið auðvelt fyrir þig að vera einstæð móðir en þú varst svo dugleg að gera mikið úr litlu. Man vel eftir því þegar mamma var að taka til í skápunum og var að losa sig við gömul föt og þú tókst sitthvað sem þú ákvaðst að nýta. Ég gleymi aldrei undrunar- svipnum á mömmu þegar þú svo komst í þessum sömu flíkum og þá búin að breyta og bæta og mamma dauðöfundaði þig af þessum flottu flíkum. Þú varst nefnilega með ein- staklega gott auga fyrir tísku og varst alltaf pæja. Þú varst svo klár í höndunum og kenndir mér margt í æsku, eins og t.d. að prjóna og sauma og alltaf hægt að leita til þín um hjálp, það var aldrei neitt mál og síðast hjálpaðir þú mér með peysu fyrir ca. 2 árum og að sauma hundabæli fyrir hana Carmen mína. Það vara alltaf hægt að leita til þín. Elsku Gauja mín þú mátt vera stolt af því sem þú skilur við þig hér á þessari jörð og þá er ég að tala um yndislegu dætur þínar Ásu og Erlu sem eru perlur af mann- eskjum og hjálpsemi og dugnaður þeirra endurspegla þig ásamt þeim mörgu skapandi hæfileikum sem þær hafa. Ég veit að þú varst svo stolt af þeim. Það kom ákveðið blik í augun á þér í hvert sinn sem þú talaðir um þær og varst að segja frá hvað þær voru að taka sér fyrir hendur, varst alltaf svo montin af stelpunum þínum og ekki síður af yndislegu tengdasonum þínum, þeim Sigga og Frey, og barnabörn- unum þínum fjórum, þetta var fjár- sjóðurinn þinn. Ég trúi því að nú sértu komin á stað þar sem þú ert laus við þjáningar og farin að njóta þín á ný og fylgist með fjársjóðnum þínum þaðan. Ég veit að þú og mamma hafið fundið hvor aðra á ný því á milli ykkar var alltaf mikill kærleikur. Elsku Gauja, þakka þér fyrir samfylgdina og ég er þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast svo ein- stakri manneskju sem þér. Takk fyrir allt og allt. Elsku Ása mín, Erla og ykkar fjölskyldur, ég votta ykkur mína dýpstu samúð, missir ykkar er mikill en minning um einstaka mömmu, tengdamömmu og ömmu lifir. Kveðja, Sigríður Margrét (Sirrý). Haustið 1968 hófu tvær litlar stelpur nám í Verslunar- skóla Íslands. Inga Rósa 13 ára og ég 14 og þóttumst báðar orðnar stórar, höfðum lokið skyldunámi og vorum komnar Inga Rósa Þórðardóttir ✝ Inga RósaÞórðardóttir fæddist 2. desem- ber 1954. Hún lést 16. október 2014. Útför Ingu Rósu fór fram 23. októ- ber 2014. hálfa leið út í heim- inn. Við urðum fljót- lega vinkonur og ekki leið á löngu þar til hún bauð mér í helgarheimsókn suður í Garð. Þær áttu eftir að verða fleiri en ég hef tölu á og alltaf var jafn gaman. Inga Rósa var einkabarn og augasteinn foreldra sinna og þau tóku höfðinglega á móti vinum hennar. Skemmst er frá því að segja að við vorum óað- skiljanlegar næstu árin, nánar og kærar trúnaðarvinkonur. Dýr- mætar minningar sækja að: Sam- hjálpin í náminu, uppákomur í Verzló, böllin í Stapanum, Ungó og víðar, stundirnar á Tröð, útihá- tíðir í Húsafelli, Svartsengi, Salt- vík, sambýlið á Melhaganum, ferðirnar til Ísafjarðar á vorin, bíl- túrar um Reykjanesið, dulmálið sem enginn skildi nema við, öll sendibréfin og gjafirnar sem við gáfum hvor annarri, hlátursköstin og tárin. Við vorum saman í skól- anum í fjögur ár. Það virðist ekki langur tími en þetta voru mikil mótunarár og ómetanlegt fyrir mig að eiga þessa góðu, skyn- sömu, kláru og skemmtilegu vin- konu sem hélt mér á jörðinni og réttum megin við allar línur en var samt alltaf til í alls konar flipp og sprell og skemmtilegheit. Svo fórum við hvor í sína áttina, hún austur á firði en ég vestur. Báðar fórum við í kennslu þótt það hefði aldrei staðið til, tókum kennsluréttindi í fjarnámi og gerðumst íslenskukennarar, eig- inkonur, mæður og ömmur. Við héldum sambandi, skrifuðumst á, hittumst af og til, hringdum og skiptumst á jólagjöfum alla tíð. Og facebook-samtölin eru mörg og löng, full af hjörtum og brosköll- um. Mér fannst við ganga sam- hliða hvor á sínu landshorni með þennan sterka streng á milli okk- ar og þótt á stundum lægi hann slakur var hann aldrei gleymdur. Nú þegar það er orðið of seint, óska ég þess auðvitað að ég hefði notað tækifærin betur. Við héld- um báðar að við hefðum nógan tíma, seinna. Einu sinni þegar ég var döpur sendi hún mér skrautritað blað með þessum línum: „Sorgin er gríma gleðinnar. Og lindin sem er uppspretta gleðinn- ar, var oft full af tárum. Og hvern- ig ætti það öðruvísi að vera? Þeim mun dýpra sem sorgin grefur sig í hjarta manns, þeim mun meiri gleði getur það rúmað. Er ekki bikarinn sem geymir vín þitt, brenndur í eldi smiðjunnar? Og var ekki hljóðpípan sem mild- ar skap þitt, holuð innan með hnífnum? Skoðaðu hug þinn vel þegar þú ert glaður og þú munt sjá að aðeins það sem valdið hefur hryggð þinni, gerir þig glaðan. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn og þú munt sjá að þú grætur vegna þess sem var gleði þín. Ég segi þér, sorgin og gleðin ferðast saman að húsi þínu og þegar önnur situr við borð þitt, sefur hin í rúmi þínu.“ (Kahil Gibran.) Þetta hefur hangið í ramma uppi á vegg hjá mér í 30 ár en langt var orðið síðan ég hafði gefið því gaum. Nú les ég það í nýju samhengi og þakka henni sem mér þótti svo lifandis undur vænt um. Jafnvel núna huggar hún mig. Fjölskyldu Ingu Rósu sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðj- ur. Herdís Magnea Huebner. Elsku frænka mín, Inga Rósa Þórðardóttir, er látin. Minningar koma og fara, ég byrja á bernsk- unni. Skemmtilegt þegar hún kom, með foreldrum sínum, heim að Hvammi. Hún spilaði á orgelið og fannst okkur krökkunum það áhugavert. Bóklestur var vinsæll hjá unga fólkinu sem betur fer. Eftirtektarvert var, þegar minnst er á bækur, að Inga Rósa þurfti ekki endilega mikið næði við lest- ur. Sumar og sól, þannig er gott að hugsa til baka. Ánægjulegt fyrir okkur krakkana að hafa Ingu Rósu í heimsókn, en tíminn er fljótur að fara við leik og störf. Inga Rósa bjó með foreldrum sínum í Gerðum í Garði. Við syst- urnar þrjár fengum að dvelja, nokkra daga, hjá þeim. Foreldrar okkar fóru í ferðalag og við á góð- um stað á meðan. Ingibjörg keyrði með okkur, t.d. að Svarts- engi og til Keflavíkur, heilt ævin- týri fyrir sveitastúlkurnar að norðan. Þórður vann ötullega á skrifstofunni. Allan tímann var nóg að gera, við fylgdumst með Ingu Rósu hugsa um lítil börn og keyra þau í kerru. Veðrið var oft- ast gott í gamla daga og sólin skein glaðlega á okkur frænkurn- ar á hlaupum úti og inni. Við sáum vitann og komum við á bryggj- unni, margt var fremur nýtt og forvitnilegt t.d. að krakkarnir voru á hjólum úti um allt. Ævintýrið var á enda runnið og skildi eftir góðar minningar. Inga Rósa og ég urðum skóla- systur, en það gerðist þegar ég fyrir tilviljun fór í VÍ. Ég man þeg- ar hún kom yfir í gamla húsið til mín og ég fór yfir í nýja húsið til hennar, þannig var skólinn á Grundarstíg. Við vorum stundum á sama tíma að bíða eftir strætó, hún var alveg með það á hreinu hvenær rétti bíllinn kæmi. Ég man eftir frænku minni; hún var fín í regnkápu og svörtum, glansandi stígvélum. Ég kom til hennar, þar sem hún leigði við Lambastekk í Breiðholtinu, hún var mjög ánægð þar. Hún bauð mér að koma með sér heim til foreldranna, suður í Garð, eina helgi. Við fórum á dans- leik, í Ungó, fjör fram eftir nóttu. Inga Rósa og Guðmundur gift- ust 7. júní 1975. Daginn eftir brúð- kaupið var haldin veisla, fyrir marga í fjölskyldunni, í Ljósheim- unum. Ég og Ragnar fórum, gam- an var að samgleðjast með þeim á þessum tímamótum. Þau fluttust búferlum til Egilsstaða, þar bjuggu þau í 25 ár. Við hjónin og börnin okkar þrjú komum einu sinni í heimsókn til fjölskyldunnar á Egilsstöðum. Inga Rósa var starfsmaður Rík- isútvarpsins og var greinilega áhugasöm í sínu starfi. Gaman var að heimsækja hana, þekkti ég elskusemina frá okkar yngri ár- um. Áttum við góða kvöldstund hjá Ingu Rósu, báðar eigum við þrjú börn sem horfðu undrandi hvert á annað og sáu ef til vill taug sem þau könnuðust við í sínu fari. Daginn eftir hittum við Ingu Rósu, við Grímsstaði, þar sem hún var í fréttaöflun. Ég votta Guðmundi, eftirlifandi eiginmanni Ingu Rósu, og fjöl- skyldu þeirra innilega samúð. Með ósk um að góðu minningarnar um Ingu Rósu hjálpi þeim í sorginni. Elskuleg frænka mín hvíli í friði, megi englar vaka yfir henni. Ingibjörg Rósa Hallgrímsdóttir. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Tómstundir Fellanleg bridgeborð nú fáanleg. Einstaklega fallegt borð sem er auðvelt að leggja saman. www.pingpong.is Suðurlandsbraut 10 (2. h.), 108 Reykjavík. Sími 568 3920. Óska eftir Staðgreiðum gull, demanta og úr Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex, Cartier, Patek Philippe o.fl. Hringdu núna og fáðu tilboð þér að kostnaðarlausu! www.kaupumgull.is Opið alla daga 11–18. Kringlan – 3. hæð (Hagkaupsmegin) Upplýsingar í síma 661 7000. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699-8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Bílaleiga HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU með eða án bílstjóra. --------16 manna-------- --------9 manna--------- Fast verð eða tilboð. CC.BÍLALEIGA S. 861 2319. Húsviðhald Hreinsa þakrennur fyrir veturinn og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 eða manninn@hotmail.com Húsaviðgerðir www.husco.is Sími 555 1947 Gsm 894 0217 mbl.is alltaf - allstaðar ✝ Innilegar þakkir til þeirra fjölmörgu er sýndu mér og fjölskyldu minni samúð og vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar, HERDÍSAR KRISTÍNAR BIRGISDÓTTUR. Guð blessi ykkur öll. Sigurður Hallmarsson. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HARALDUR LÝÐSSON kaupmaður, Blikahólum 4, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi miðvikudaginn 8. október. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum sýndan samhug. Haraldur D. Haraldsson, Hanne Fisker, Friðgeir S. Haraldsson, Rut Garðarsdóttir, Inga Þóra Haraldsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.