Morgunblaðið - 29.10.2014, Blaðsíða 44
MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 302. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Hver gæti þýtt þennan texta?
2. Varar fólk við myndbandinu í …
3. Andlát: Ingjaldur Hannibalsson
4. Þú sérð það á nöglunum hversu …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Á föstudaginn, 31. október, verða
frumsýndar tvær íslenskar kvikmynd-
ir, annars vegar Grafir og bein eftir
leikstjórann Anton Sigurðsson og
hins vegar fjórða kvikmyndin um æv-
intýri Sveppa, Algjör Sveppi og Gói
bjargar málunum, sem Bragi Þór Hin-
riksson leikstýrir.
Morgunblaðið/Ómar
Tvær íslenskar kvik-
myndir frumsýndar
Sjö tomma vín-
ylplata er vænt-
anleg með hljóm-
sveitinni
Grísalappalísu en
á henni breiðir
hún yfir lög Stuð-
manna. Á plötunni
verða upptökur
sem gerðar voru á
ferðalagi hljómsveitarinnar um Ís-
land í sumar. Tónlistarkonan DJ flug-
vél og geimskip var með í för og lék
og söng í upptökunum.
Grísalappalísa breiðir
yfir Stuðmenn
Rokksveitirnar kimono og Pink
Street Boys halda tónleika í kvöld á
Kex hosteli. Tónleikarnir eru sérstök
upphitun Kex hostels og
hljómsveitanna fyrir Ice-
land Airwaves-
tónlistarhátíðina sem
hefst eftir viku, 5.
nóvember. Pink
Street Boys stíga á
svið kl. 21 og kim-
ono kl. 22 og að-
gangur að tónleik-
unum er ókeypis.
Kimono og Pink
Street Boys á Kex
Á fimmtudag Austanátt, 5-15 m/s, hvassast syðst með slyddu en
yfirleitt þurrt annars staðar. Áfram talsvert frost fyrir norðan en
hiti 0 til 4 stig fyrir sunnan síðdegis. Á föstudag Hvöss austan- og
norðaustanátt með rigningu eða slyddu en snjókomu fyrir norðan.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan 5-13 m/s syðst á landinu. Hiti um og
yfir frostmark á Suðurlandi, annars 1 til 7 stiga frost.
VEÐUR
„Ég held að það sé ekki
nokkur spurning að ég er
kominn til starfa hjá félagi
sem ég vildi og óskaði mér
að vinna fyrir,“ sagði Bjarni
Guðjónsson eftir að hann
var ráðinn þjálfari KR í gær.
Bjarni skrifaði undir þriggja
ára samning við vesturbæj-
arliðið. Guðmundur Bene-
diktsson verður honum til
halds og trausts en saman
léku þeir um skeið með KR-
liðinu. »1
Bjarni ráðinn til
óskaliðsins
Elísabet vildi ekki
taka við karlaliði
„Við erum betra liðið og auðvitað yrði
það hrikalega lélegt að vinna ekki Ísr-
ael á heimavelli. En það getur gerst,
eins og menn hafa brennt sig á í öll-
um íþróttum,“ segir Snorri Steinn
Guðjónsson, landsliðsmaður í hand-
knattleik, um viðureignina við Ísr-
aelsmenn í undankeppni EM í Laug-
ardalshöll í kvöld. Flautað verður til
leiks kl. 19.30. »3
Eigum að vinna Ísra-
elsmenn á heimavelli
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Ari Þór Vilhjálmsson fiðluleikari hef-
ur verið 2. konsertmeistari Fílharm-
óníusveitarinnar í Helsinki í Finn-
landi síðan í haust og spilaði sem 1.
konsertmeistari sveitarinnar á
tvennum tónleikum fyrr í mán-
uðinum. Hann leiðir aftur hljómsveit-
ina á tónleikum í eina viku í desem-
ber.
„Þetta er frábært, skemmtilegt og
mikil viðurkenning,“ segir hann.
Ari hefur verið fiðluleikari í Sin-
fóníuhljómsveit Íslands síðan 2006.
Árið 2011 sótti hann um stöðu 1.
konsertmeistara hljómsveitarinnar
og var annar tveggja sem komust
lengst í prufuspili í maí það ár.
„Hljómsveitin tók þá óvenjulegu
ákvörðun að halda fleiri prufuspil um
stöðuna, bæði á Íslandi og erlendis,
en slíkt hafði aldrei verið gert áður
meðan umsækjendur voru enn til
reynslu,“ segir Ari um aðdragandann
að starfinu í Helsinki.
Erfitt mál
Um 18 mánuðum síðar var annar
maður ráðinn í starf konsertmeistara
SÍ. Tveir umsækjendur, þar á meðal
Ari, kvörtuðu í samráði við Félag ís-
lenskra hljómlistarmanna til um-
boðsmanns Alþingis, sem kvað upp
úr með það í sumar að málsmeðferð
við ráðningu í starfið hefði ekki verið
í samræmi við reglur hljómsveit-
arinnar sem henni bar að fylgja sam-
kvæmt lögum. Ari segir að þetta mál
hafi reynst sér erfitt og hann hafi í
kjölfarið ákveðið að sækja um stöður
við aðrar hljómsveitir. Í júní sem leið
hafi hann prufuspilað í Helsinki og
verið í úrslitum um stöðu 1. konsert-
meistara. Um viku síðar hafi honum
verið boðið að leysa af sem 2. kons-
ertmeistari í fjóra mánuði í haust og
skömmu eftir að hann byrjaði hafi
hann verið beðinn að vera fram í
miðjan mars. Þá geri hann ráð fyrir
að mæta aftur til starfa hjá Sinfón-
íuhljómsveit Íslands. „Ég er í leyfi og
á að mæta aftur strax eftir páska.“
Þegar Ari fékk að vera konsert-
meistari Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands til reynslu í tvær vikur haustið
2011 sagði hann í spjalli við Morg-
unblaðið að draumastarfið væri að
vera konsertmeistari í sinfóníu-
hljómsveit. Nú hefur hann reynt það,
bæði á Íslandi og í Finnlandi. „Að
vera 2. konsertmeistari hérna í Finn-
landi er mjög nálægt draumnum,“
segir Ari. „Það á vel við mig að vera
konsertmeistari og hentar vel því
sem ég hef fram að færa.“
Fílharmóníusveitin í Helsinki held-
ur yfirleitt tvenna tónleika í hverri
viku og þegar konsertmeistari fær frí
er það í verkahring Ara að leysa hann
af. Ari segir að þetta sé ákveðið fram
í tímann og því viti hann að hverju
hann gengur. „Þetta er skemmtilegt
og áhugavert starf,“ áréttar hann.
Fiðluleikari í draumastarfi
Ari konsert-
meistari í Helsinki
í Finnlandi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Konsertmeistarinn Ari Þór Vilhjálmsson fiðluleikari er ánægður með starfið í Helsinki.
Ari Þór Vilhjálmsson lærði fiðluleik
hjá Guðnýju Guðmundsdóttur í
Tónlistarskólanum í Reykjavík og
fór síðan til Bandaríkjanna þar
sem hann var í námi í Chicago og
Boston í sex ár, lauk mastersnámi
2008. Hann hefur kennt töluvert
við Tónlistarskólann í Reykjavík,
verið í Sinfóníuhljómsveit Íslands
frá 2006 fyrir utan námsleyfi og
núverandi leyfi, og spilað með Fíl-
harmóníuhljómsveitinni í Helsinki
síðan í september sl.
Ari, Þórunn Ósk Marinósdóttir
víóluleikari og Sigurgeir Agnars-
son sellóleikari verða með kamm-
ertónleika í Norræna húsinu í
Reykjavík 18. nóvember. Síðan
heldur hann einleikstónleika í
menningarhúsinu Bergi á Dalvík í
mars og spilar svo fiðlukonsert
Mendelssohns með Sinfóníu-
hljómsveit áhugamanna í maí.
Hann hefur líka áhuga á því að
reyna áfram fyrir sér erlendis. „Ég
skoða auglýsingar til að sjá hvað
er í boði og framhaldið verður bara
að koma í ljós,“ segir hann.
Konsertmeistari á ferð og flugi
ARI ÞÓR VILHJÁLMSSON FIÐLULEIKARI
„Ég var búin að ákveða að vera hérna
áfram enda búin að vinna hörðum
höndum hérna síðustu ár,“ sagði El-
ísabet Gunnarsdóttir, þjálfari sænska
knattspyrnuliðsins Kristianstad, við
Morgunblaðið. Elísa-
bet er búin að stýra
liðinu síðustu sex
ár og verður áfram
næstu árin. Meðal
þess sem El-
ísabetu stóð til
boða var að
taka við
þjálfun
karlaliðs.
Hún af-
þakkaði.
»4