Málfríður - 15.03.2011, Qupperneq 17

Málfríður - 15.03.2011, Qupperneq 17
ekki hafa gert slíkt en 70% höfðu gert það í einhverjum mæli. Flest verkefnanna voru á skólaneti viðkom andi en eingöngu 3,8% höfðu hannað gögn sem opin voru á Netinu fyrir aðra en nemendur og starfsmenn skólans. Dæmi sem nefnd voru eru ýmis gagnvirk verkefni, svo sem málfræði- og hlustunarverkefni, vefleiðangrar og krossapróf. Hvað vantar? Þátttakendur voru beðnir að tilgreina það sem þeir teldu sig mest þurfa á að halda til að uppfylla kröfur um að nota UTM í kennslu sinni. Þær tvær óskir sem oftast voru nefndar (37,5% í báðum tilfellum) lutu að betra aðgengi að tölvum og tölvustofum og þjálfun eða námskeiðum í að nota UTM í kennslu. 8,3% nefndu að þeir myndu vilja samvinnu við aðra tungumálakenn- ara skólans eða læra af öðrum kennurum og sama hlut- falli fannst mest vanta kennsluefni sem miðað væri að notkun UTM í kennslu, þá rafrænt efni og annað. Sjá mynd 4. Áhrifaþættir skv. 4E-líkaninu Í spurningunum sem tilheyra 4E greiningarlíkani (Collis o.fl., 2001) eru kannaðir hvaða þættir hafa áhrif á notkun kennara á UTM í kennslu. Í fyrsta lagi er það trú kennarans á kennslufræðilegt gildi UTM í kennslu. Hér voru tíu fullyrðingar þar sem þátttakendur voru beðnir að svara hversu miklum eða litlum árangri þeir teldu að notkun UTM skilaði nemendum varðandi tíu þætti sem skipta máli í tungumálakennslu. Þátttakendur rann sókn arinnar virðast hafa töluverða trú á að not- kun UTM skili nemendum árangri í faginu. Mesta trú hafa þeir á lestrar-, hlustunar- og menningarlegri færni (80%) en minnsta trú á að hægt sé að auka talfærni nemenda með tölvum og annarri tækni. Í öðru lagi gerir líkanið ráð fyrir að áhugi kennaranna sjálfra á tækni skipti máli varðandi viðhorf þeirra. Dönskukennararnir svöruðu öllum þáttum þar á mjög jákvæðan hátt. Þeir hafa gaman af tölvum og tækni, líður vel að nota slíkt í kennslu og hafa flestir ekkert nema gott um UTM að segja. Í þriðja lagi er kannað Mynd 4 þeirra telur sig hafa mjög góða (mesta þekking) eða frekar góða þekkingu og helmingur hefur sæmilega þekkingu samkvæmt eigin mati. Enginn telur sig hafa frekar eða mjög litla þekkingu. Þátttakendur voru beðnir að meta notkun sína á UTM samkvæmt ramma Dawes (2003) sem lýst var hér að framan. Í ljós kom að það stig sem fjölmennasti hópur þátttakenda raðaði sér á var 3. stig en 40% telur sig vera á stigi áhugasamra notenda. Það eru noten- dur sem hafa sína eigin tölvu og telja sig vera nokkuð færa notendur en vantar eitthvað upp á notkunina til að geta flutt sig yfir á fjórða stigið sem einkennir notanda sem telst vera frekar fær í notkun UTM. Þeir þátttakendur töldu sig hafa viðeigandi búnað á stað- num en vantaði svolitla þjálfun eða tíma til að æfa sig á búnaðinn eða aðgengi að búnaðinum samkvæmt 3. stigi notendaflokks Dawes (2003). 44,4% þátttakenda telja sig vera færa eða einlæga notendur og eingöngu 15% þátttakanda telja sig vera á fyrstu tveimur stigunum. Sjá mynd 3. Notkun UTM í kennslu 26 þátttakendur svöruðu opnu spurningunni um á hvaða hátt þeir notuðu UTM í kennslu sinni ef þeir á annað borð nýttu UTM. Misjafnt var hversu ítarleg svörin voru en allir þátttakendur sögðust láta nem- endur sína nota ýmsar netsíður til upplýsinga öflunar. 38,5% nefndu eitt eða fleiri forrit úr Microsoft Office pakkanum. Sami fjöldi (38,5%) kvaðst láta nemendur vinna ýmis gagnvirk verkefni, málfræðiverkefni, les- skilningsverkefni og sem námsmatstæki í prófum. 30,8% nefndi námsumsjónarkerfi (e. learning manage- ment system) skólanna þar sem þeir vinna. 19,2% nefndi að þeir sýndu nemendum ýmis myndbrot sem þeir væru með verkefni við eða tónlistarmyndbönd af Youtube. Fjórir sögðust sýna kvikmyndir og annað á dvd-diskum og spiluðu tónlist af cd-diskum. 3,8% þátttakenda nefndu að auki rafrænar orðabækur, vef- leiðangra, samskipti við erlenda skóla, vefsíðugerð, leiðarbækur og gsm-síma. 27 kennarar svöruðu spurningunni um hvort þeir hefðu búið til rafræn kennslu gögn. 30% þeirra kváðust Mynd 3 MÁLFRÍÐUR 17

x

Málfríður

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.