Málfríður - 15.03.2011, Side 20
Brosandi, dálítið sólbrúnni, heilmiklu fróðari, sigldari,
með gersemar Aztekanna enn í hugskotinu, svolítið
chillí á tungunni. Á heimferð úr frábærri ferð spænsku-
kennara til Mexíkóborgar, Puebla og Oaxaca í Mexíko.
Tæpar tvær vikur af listum, sögu, pólitík, tungumáli og
þessum unaðslega mexíkóska mat. Sólarstundir sem
munu lifa með okkur, sögur sem við munum segja
aftur og aftur.
Carmen Ortuño, gjaldkeri spænskukennarafélags-
ins, hafði með mikilli útsjónarsemi, elju og vinnusemi
skipulagt ferðina sem við, ellefu spænskukennarar,
fórum í síðastliðið sumar. Ferðin hófst í hinni forn-
frægu Mexíkóborg. Hilda Torres, spænskukennari í
Verzló, var sérstakur fararstjóri um heimaslóðir sínar í
Mexíkóborg og leiddi hún hópinn um stræti og torg og
um matseðla veitingahúsanna þar sem við strönduð-
um á mexíkóskum réttum með löng sérkennileg nöfn.
Það sem uppúr stendur eftir þeyting um stórborgina er
Fornminjasafnið, þar sem indíánamenningu Mexíkó að
fornu og nýju eru gerð skil, auk þess heillandi götulífið
og nálægðin við merka sögu og mikla list. Ógleymanleg
er líka heimsóknin í Casa Azul, heimili Fridu Kahlo,
svo og ferðalag um sögu Mexíkó í gegnum veggmynd-
ir Diego Rivera í forsetahöllinni. Við Templo Mayor,
hof hinna fornu Azteka , höfðu indíánar nútímans gert
sér tjaldbúðir og mótmæltu hástöfum slæmum aðbún-
aði fólks úr lægstu þjóðfélagsstéttunum og ástandinu í
Chiapashéraði. Mótmæli og óróaástand í samfélaginu
voru áberandi á torgum borganna sem við heimsóttum,
og í náminu sem okkar beið í Puebla var kafað dýpra
ofan í orsakir ástandsins.
Næst var haldið til borgarinnar Puebla. Á leiðinni
er fegurð mexíkóskra fjalla engri lík. Reykspúandi eld-
fjallið Popocatepetl blasti við okkur frá heimavistinni
við háskólann Universidad Iberoamericana Puebla
og minnti á sína ástargoðsögn um stríðsmanninn og
yngismeyna sem elskuðust en umbreyttust í fjöll. Og
nú tóku við hinir löngu skóladagar. Að þeim loknum
vorum við ómetanlega fróðari um Mexíkó, söguna og
listir að fornu og nýju, með smjörþef af flóknu stjórn-
málaástandi og dýpri skilning á sögunni í þátíð og í
nútíð. Varðandi tungumálin og sérstöðu spænskunnar
í Mexíkó vorum við send í könnunarleiðangur með
það verkefni að grennslast fyrir um skoðun almenn-
ings á tungumálum og þá sérstaklega á þeim ótal indí-
ánamálum sem töluð eru í landinu. Það var merkilegt
að heyra afstöðu fólks til indíánamálanna sem flestir
töldu ekki tungumál heldur mállýsku og hvaða augum
fólk leit þennan lítt metna þjóðararf. Við urðum margs
vísari um álit almennings og stöðu indíánamálanna
en þetta viðtalsform undir yfirskini skólaverkefnis var
líka frábær aðferð til að byrja samtöl og forvitnast um
viðhorf og skoðanir. Við urðum þó nokkuð vör við
nemendur og kennara í ferðinni, því auk þess að sjá
þau og heyra í halarófum um hin ýmsu söfn sem við
heimsóttum þá lentum við mörg í því að vera tekin í
viðtal af börnum sem langaði að bæta enskuna sína.
Þau sátu með spurningalista sína ásamt foreldrum
sínum um ljósleita túristana á torgum.
Í Oaxaca héraði heimsóttum við hof og rústir hinna
fornu menningarsamfélaga sem byggðu þetta svæði
áður en Evrópubúar námu þar land. Við fórum í lær-
dómsríka kynnisferð í mescalverksmiðju og ferðir á
markaði höfðu ómetanlegt námsgildi fyrir okkur kenn-
arana: kjólar, fallegt handverk og alls konar krydd;
og maturinn: mole-sósur, salsa verde, chillí og allt
með lime, kóríander og guacamole. Já fagra, ástkæra
Mexíkó fylgir okkur heim til Íslands með mexíkóskt
slangur á vörum, dálítið sólbrúnni, heilmiklu fróðari,
sigldari og brosandi.
Ferðir sem þessi eru okkur spænskukennurum nauð-
synlegar til að viðhalda tengslum við hinn spænsku-
mælandi heim og geta miðlað af upplifunum okkar og
kynnast af eigin raun fleiri af hinum fjölmörgu stöðum
í heiminum þar sem spænska er töluð. Og þetta á að
sjálfsögðu við um alla kennara sem kenna um menn-
ingu og mál. Í skóla og kennslu nýtist ferðin okkur á
margvíslegan hátt. Í fyrsta lagi komu spænskukennar-
arnir á sæluskýi hamingju heim úr ferðinni og ham-
ingjusaman kennara er gott að hafa. Textar og þemu í
20 MÁLFRÍÐUR
Íslenski hópurinn í mescalverksmiðju.
México lindo y querido
– fagra, ástkæra Mexíkó