Málfríður - 15.03.2011, Page 29

Málfríður - 15.03.2011, Page 29
inn á torgið. Efnið á norska vefnum er að hluta til ætlað nemendum og öðrum þeim sem vilja kynna sér norsku. Ráðgjafarnir setja inn á vefinn efni sem efst er á baugi í tungumálakennslu í Noregi eða Svíþjóð. Áhugavert er efnið um greinarbundna kennslu, Genrepedagogik, með áherslu á lestur og ritun á vef sænskunnar. Enskan á torginu er komin stutt á veg, en það stendur til bóta. Unnið er að skipulagningu þess hluta torgsins í samstarfi við FEKÍ, Félag enskukennara á Íslandi, og kenn- ara í ensku á Menntavísindasviði. Fulltrúi British Council hefur lýst yfir áhuga á samstarfi við Tungumálatorg og boðist til að veita bæði aðstoð og ráðgjöf. Pólski vefurinn hefur nokkra sérstöðu þar sem hann miðast fyrst og fremst við að auka aðgengi foreldra að ýmsu efni er varðar þátttöku þeirra í skólastarfi á Íslandi. Jafnframt er hann verkfæri fyrir kennara, skólastjórnendur, námsráðgjafa og nýbúaráðgjafa til að setja foreldra inn í algenga þætti skólastarfsins eins og notkun upplýsingakerfisins Mentors, innritun í tómstundastarf og stöðupróf fyrir framhaldsskóla. Á vefnum er jafnframt að finna efni fyrir nemendur og kennara. Þar er einnig kafli um ýmislegt er varðar skólagöngu og tómstundir barna á Íslandi. Nýbreytnin á vettvangi pólskunnar er fólgin í að gerðar eru skjá- upptökur af íslenskum vefsíðum og efni þeirra útskýrt í mæltu máli á pólsku og settar eru upp skjámyndir þar sem lykilhugtök eru þýdd og útskýrð. Íslenski text- inn er alltaf í bakgrunni hins talaða og ritaða pólska kennara erlendis og Leikum og lærum er tengdur náms- vefur þar sem lögð verður áhersla á margvísleg við- fangsefni fyrir börn af íslenskum uppruna sem búsett eru í fjölmörgum löndum um heim allan. Tungumálatorgið er opið öllum tungumálum og eru norrænu málin fyrirferðarmikil nú á upphafsdögum torgsins. Ástæður fyrir því eru m.a. þær að talsvert framboð er af styrkjum til að efla norræn tungumál á Íslandi, tungumálin eru skilgreind í námskrá sem skyldunámsgreinar, í norsku og sænsku eru starfandi kennsluráðgjafar og á vegum Samstarfssjóðs Íslands og Danmerkur starfa hér árlega tveir farkennarar, sendi- kennari við Menntavísindasvið og aðstoðarkennari á framhaldsskólastigi. Áherslur á vettvangi dönskunnar með undirvefjum Gode råd fra Dagný og Rejselærerens hjørne er kennslu- fræði, námsefni, námsmatsaðferðir og ítarefni þar sem vísað er í efni á dönskum vefjum. Áhersla hefur einnig verið lögð á að tengja starf Félags dönskukennara og farkennara torginu og birta jafnóðum efni af fræðslu- fundum á vegum þeirra og koma þannig til móts við fleiri en þá sem fundina sóttu. Sama gildir um vefi norskunnar og sænskunnar. Kennarar barna í norsku og sænsku hafa um árabil haft aðgang að ráðgjöfum. Ráðgjafarnir starfa náið með FNOS, Félagi norsku og sænskukennara, og hafa sett upp samstarfsvettvang á netinu. Nokkuð af því efni sem ráðgjafarnir eiga í fórum sínu er nú þegar komið MÁLFRÍÐUR 29 Eymundsson.is Þú færð orðabækurnar í Eymundsson

x

Málfríður

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.