Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 24.10.1996, Page 2

Fréttir - Eyjafréttir - 24.10.1996, Page 2
Fréttir Rólegheit hjá lögreglu Helgin var í heildina tekið róleg hjá lögreglu og má þakka það mikilli vinnu. Mest var um venjulegt eftirlit. „Þegar mikil vinna er í stöðvunum kemur það fram hjá okkur því fólk hefurekki tíma til að sletta úr klaufunum," sagði lög- regluvarðstjóri sem rætt var við á mánudaginn. Fimmtudags- og föstudagskvöld voru með eindæmum róleg og var það ekki fyrr en á laugardag að eitthvað bar til tíðinda en ekkert af því telst til stórtíðinda. Meðal annars var unglingum og bömum vísað heim eftir að leyfilegum útivistartíma þeirra lauk. Lausar rollur Eitthvað var um að kvartað væri til lögreglu vegna lausagöngu bútjár og var um kindur að ræða í öllum tilfellum. Haft var samband við eigendur sem tóku því Ijúflega að koma kindum sínum í girðingu. Neitaði að fara á sjó Þegar skipstjórinn á Barða NK frá Neskaupstað ætlaði að halda á sjó á laugardaginn neitaði einn hásetinn, ung stúlka, að fara með. Haft var samband við lögreglu sem hafði upp á stúlkunni. Þar sem ástand hennar reyndist í lagi hafði lögreglan ekki frekari afskipti af málinu og sigldi Barði á braut án hennar. Sekt fyrir of hraðan akstur Alltaf af og til tekst lögreglu að ná í skottið á ökumönnum sem láta eins og þeir hafi enga hugmynd um leyfilegan hámarkshraða á götum bæjarins. Á aðfaranótt laugar- dagsins var einn þeirra staðinn að verki. Var ökumaðurinn sektaður og má hann eiga von á að þurfa punga út 4000 til 5000 krónum. Rúðubrot í Sæfellsbúinu Oftast eru það verslanir eða fyrirtæki í miðbænum sem verða fyrir barðinu á skemmdarvörgum en nú brá svo við að rúða var brotin í Sæfellsbúinu suður á Eyju. Tilkynnt var um þetta á sunnudagsmorguninn og er álitið að rúðan hafi verið brotin urn nóttina eða kvöldið áður. Rúða brotin í bíl Á sunnudagsmorguninn var rúða brotin í mannlausunt bíl. Strax vaknaði grunur um hver þar var að verki og er málið í rannsókn. 16 óra stálu bíl Rétt fyrir kvöldmat á sunnudaginn var stuldur á bíl tilkynntur til lögreglu. Lögreglan fór að svipast um eftir bílnum sem kom fljótlega í leitimar. Kom í ljós að nokkrir peyjar, fæddir 1980, voru þama að verki. Þeir em ekki í góðum málum því bílpróf fá þeir ekki fyrr en á næsta ári en bíllinn var óskemmdur að sögn lögreglu. Fréttir Fimmtudagur 24. október 1996 Að grafa upp Suðurveginn -og síækkun Náttúrugripasafnsins meðal hugmynda til að laða hingað fleiri ferðamenn Frá fundi ferðamálahópsins á iaugardaginn. Magnús Jónas- son er í ræðustól og Páll Marvin er til hægri við hann á myndinni. Á fundi, sem Ferðamálahópur bæjarins og hagsmunaaðila í ferða- þjónustu hélt á laugardaginn, kom fram að hugmyndir eru uppi um að grafa upp Suðurveginn og gera hana að gosminjasafni, stækka Náttúrugripasafnið og byggja upp eina einingu af hraunhitaveitunni sem var einsdæmi í heiminum. Að ferðamálahópnum standa Herj- ólfur. Flugleiðir, Hótel Þórshamar, Hótel Bræðraborg, Ferðaþjónusta Vestmannaeyja, Upplýsingaþjónusta Vestmannaeyja og Vestmannaeyjabær sem á undanfömum árum hefur styrkt hópinn um 800 þúsund á ári. Magnús Jónasson, framkvæmdastjóri Herjólfs hf„ sagði markmið hópsins vera að kynna Vestmannaeyjar út á við sem eina heild en ekki einstaka fyrirtæki innan hópsins. Þetta hefur verið gert með bæklingum, auglýs- ingum innan lands og utan auk þess sem reynt hefur verið að koma Vestmannaeyjum á framfæri í blöðum. „Hópurinn þrýsti t.d. á bæjaryfirvöld að ráðinn yrði ferðamálafulltrúi og fékkst það í gegn þegar Elías Bjarni Gíslason var ráðinn atvinnu- og ferðamálafulltrúi bæjarins fyrir nokkrunt árum. Hann hefur nú látið af störfum en í hans stað er kominn Páll Marvin Jónsson, for- stöðumaður Rannsóknaseturs Háskól- ans, en þó með breyttu starfssviði. Bærinn hefur sett rneira fjármagn til ferðamála undanfarin ár og hefur bæjarstjóm aldrei staðið sig betur í að sinna ferðamálum en einmitt nú,“ sagði Magnús. Páll Marvin sagði það styrk Ferðamálahópsins að þar ynnu allir fyrir einn og einn fyrir alla. Meðal verkefna sem hópurinn hefur staðið að eru markaðsátakið Gjugg í bæ, sem Flugleiðir eru frumkvöðlar að. Gjugg í bæ er átak til að fá fólk af höfuðborgarsvæðinu til að heimsækja bæi á landsbyggðinni utan hefð- bundins ferðamannatíma og er stefnan tekin á Vestmannaeyjar um næstu helgi. „I lok sumars kynntum við pysjutímann í samstarfi við Út- varpsstöðina FM 95,7. Það gafst vel en eflaust má gera betur,“ sagði Páll Marvin. Næst kont hann inn á það sem mest hefur brunnið á þeim sem þjónusta ferðamenn, að fá þá til að stoppa lengur. „Til þess þarf afþreyingu og meðal þess sem er í undirbúningi er kláfur upp á Klif. Engin niðurstaða er fengin ennþá en verið er að leita eftir hlutafé til að stofna félag um kaup og rekstur á kláf. Þá er unnið að merkingu gönguleiða og gerð útsýnispalla. Gosminjasafn er iíka ofarlega á listanum. M.a. hafa komið upp hugmyndir um að grafa upp Suðurveginn og byggja yfir hana. Með því er verið að lengja líftíma gossins sem aðdráttarafls fyrir ferða- menn. Margir halda því fram að gosið sé hætt að selja. Ég held að svo sé ekki en með því að grafa upp Suðurgötuna verður gosið sýnilegra.“ Meðal annarra atriða, sem ferða- mannahópurinn leggur áherslu á, er stækkun Náttúrugripasafnsins og að þar verði komið upp útigarði og að hraunhitaveitan verði gerð sýnileg. „Við viljum að byggð verði ein eining til að sýna ferðamönnum. Hraun- hitaveitan var einsdæmi í öllum heiminum og er því forvitnileg fýrir þá sem hingað koma,“ sagði Páll Marvin. Af Skagamönnum og Radíus 3 Um fátt hefur meira verið rætt síðustu daga en þá sérkennilegu uppákomu sem átti sér stað um síðustu helgi í hófi knattspymumanna. Þá gengu fslands- og bikarmeistarar Skagamanna út af hófinu þegar þeim ofbauð sú tegund skemmtiatriða sem þeir landsfrægu Radíusbræður höfðu í frammi. Mátti maður ganga undir mannshönd til að hugga Skagamenn og hughreysta og fá þá til veislugleðinnar á ný. Þá fengu nefndir skemmtikraftar ofanígjöf fyrir sitt framlag og þar með tóku Skagamenn gleði sína á ný, flestir hveijir og það var náttúrlega mjög gott enda afspymuslæmt að láta heiðursgesti á samkomum vera í vondu skapi og þó enn verra ef þeir flýja samkvæmið. Nú var skrifari ekki viðstaddur á þessari skemmtun en hefur heyrt ávæning af því sem þama fór fyrir brjóstið á Skagaliðinu og beindist einkum að þjálfara þeirra og ákveðinni háttsemi hans. Vel má vera að þeim hafi þótt þetta óviðurkvæmilegt eða eins og sagði í DV að þetta hefði ekki verið tilhlýðilegt á þessum stað og þessari stund. Þá vaknar sú spuming hvort slíkt er einhvem tíma tilhlýðilegt og þá á hvaða stöðum og stundum. Nú eru þeir Radíusbræður ekki í sérstöku uppáhaldi hjá skrifara, hann hefur stöku sinnum horft á þá og hlustað og þykir þeirra framlag til skemmtanamenningarinnar oftlega heldur klént, svo að notuð séu fræg orð Iandsþekkts frænda skrifara. Það er svo aftur viðurkennt að margir hafa af því hina bestu skemmtun að hlusta á þá félaga sem grínast á svolítið öðrum nótum en hingað til hefur verið algengast á íslandi en þekkist víða annars staðar svo sem vestan hafs og er með vinsælli atriðum þar. Yfirleitt gengur grín þeirra félaga út á að ganga fram af fólki og það tókst þeim svo sannarlega þennan umrædda laugardag. Nú hefðu forráðamenn KSI átt að vita hvað þeir vom að gera þegar þeir Radíusbræður voru ráðnir til skemmtunar og sú hætta væri fyrir hendi að einhverjir fengju á sig föst skot, rétt eins og á sér stað í fótboltanum. En líklega hafa þeir verið með öllu grandalausir fyrir þessu, sem og því hvað Skagamenn eru viðkvæmir fyrir því sem heyrir til þeirra æru og þjálfara þeirra. Skemmtikraftar íslenskir hafa um árabil beint spjótum sínum að ákveðnum hópum í mannlífinu, þar hafa stjómmálamenn trónað efst á blaði, kirkjunnar menn hafa fengið sinn skammt hin síðari ntisseri auk þess sem áberandi persónur í þjóðlífinu hafa verið teknar fyrir, bæði í áramótaskaupum og öðmm gleðiþáttum. Yfirleitt hafa viðkomandi haft vit á því að fyrtast ekki yfir slíku þótt menntamálaráðherra þáverandi hati raunar verið ókátur með umtjöllun um sig í áramótaskaupi fyrir einhverjum árum svo og fyrrverandi borgarstjóri í Reykjavík. Þær umkvartanir urðu hvorugum til framdráttar og Ifklega hefðu báðir betur heima setið en af stað farið með þær kvartanir. Og líkast til er hið sama uppi á teningnum með Skagaliðið núna, þetta upphlaup verður þeini trúlega ekki til nokkurs framdráttar heldur fremur á hinn veginn. Skrifari hefur ósjaldan fengið á sig ýmis skot á hinum og þessum skemmtunum og samkomum og jaðrað við á stundum að þau hafi nú verið neðan mittis. Hann hefur aftur á móti fram til þessa haft vit á því að stökkva ekki upp á nef sér vegna slíks, vitandi að slíkt getur verið eins og að hella olíu á eld og söntuleiðis að reiðin skaðar mest þann sem reiðist. Hann hefur enda sloppið nokkuð óskemmdur frá öllu slíku fram til þessa, þökk sé langlundargeði hans og uppstökksleysi. Nú er það ekkert séríslenskt fyrirbrigði að fræga fólkið fái umfjöllun hjá grínmönnum, slíkt gerist Ifka úti í hinum stóra heimi og það yfirleitt á heldur óvægnari hátt en hjá Spaugstofumönnum og Radíusbræðmm. Irski háðfuglinn Dave Allen beinir t.d. spjótum sínum rækilega að kaþólsku kirkjunni án þess að þeir mætu menn hafi orðið fyrtir að ráði, hvað þá heldur gengið út. Og breski gamanþátturinn Spitting Image, sem hér var á dagskrá í sjónvarpi fyrir ekki mörgum árum, gengur út á að gera gys (og það ekki alltaf góðlátlegt) að ýmsu fyrirfólki bresku. Sérstaklega hefur fjölskylda Elísabetar drottningar fengið sitt þar án þess að sú mæta fjölskylda hafi volað eða gengið út. Hefur þó upp á síðkastið ýmislegt mætt á þeirri fjölskyldu sem ástæða væri til að tárast yfir. Það er skoðun skrifara að Skagamenn hafi hlaupið á sig með brotthlaupi sínu á dögunum og enn hafi þar komið fram að reiði þeirra hati skaðað þá mest allra. Hefðu þeir setið sem fastast og leyft grínmönnunum að klára sitt atriði án þess að fá klapp fyrir heldur baul og pú (það bar nefnilega flestum saman um að þetta hefði verið hundleiðinlegt og klént) þá hefðu þeir staðið uppi með pálmann í höndunum, rétt eins og bæði í íslandsmóti og bikar. Þess í stað hafa þeir Radíusbræður fengið heilmikla umfjöllun í fjölmiðlum og komið prýðilega út úr henni. Og þó að KSÍ hafi tilkynnt að þeir félagar verði aldrei frantar ráðnir til skemmtanahalds á þeirra vegum, grunar skrifara að þeir félagar verði ekki atvinnulausir í framtíðinni, heldur komi vegur þeirra til með að aukast eftir allan þennan hamagang, þökk sé Skagamönnum. Sigurg. \ FRÉTTIR Utgefandi: Eyjaprent hf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Fréttastjóri: Þorsteinn Gunnarsson. Abyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson. Prentvinna: Eyjaprent hf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481- 1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu I Turninum, Kletti, Novu, Skýlinu, Tvistinum, Pinnanum, Kránni, Búrinu, Vöruval, Herjólfi, Flugvallarversluninni, Eyjabup, Eyjakjör og Söluskálanum. í Reykjavík: hjá Esso Stóragerði og I Flugteríunni á Reykjavíkurflugvelli. FRÉTTIR eru prentaðar I 2000 eintökum. FRETTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.