Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 24.10.1996, Qupperneq 13

Fréttir - Eyjafréttir - 24.10.1996, Qupperneq 13
Fimmtudagur 24. október 1996 Fréttir Lærum að sam- gleðjast með Sðrum - Baknag er tengt einelti sem allir geta orðið fyrir barðinu „Ég held að tími sé kominn til fyrir Vestmannaeyinga að velta þessum hlutum alvarlega fyrir sér og gera það upp við sig, í eitt skipti fyrir öll, hvort þeir séu ánægðir að búa hér á Heimaey," segir einn viðmælandi blaðsins í þessari grein. Viðtöl við tvo Eyjamenn í síðasta tölublaði Frétta, sem eiga ekkert sameigin- legt nema að vera áberandi menn í þessu bæjarfélagi, vöktu mikla athygli. Þrátt fyrir að viðtölin væru í raun og veru út af alls óskyldum hlutum, fundu báðir viðmælendumir þörf til að koma inn á sama hlutinn, þ.e. baknag um fólk sem er áberandi í okkar litla samfélagi. Hér tala menn sem hafa orðið lyrir barðinu á Gróu á Leiti og vilja öðrum ekki slíkt hið sama. Hér er í raun og veru fúll ástæða til að staldra við og hugleiða þessi mál. Hvemig mynd- ast baknag, við hvaða skilyrði og hvemig er hægt að bregðast við því? Fréttir leituðu til sér- fræðinga á þessu sviði auk þess að vitna í og ræða við fólk sem þekkir þessi mál af eigin raun. Sérfræðingar tengja baknag hugtak- inu einelti. Baknag brýst út sem einelti þar sem óskilgreindir hlutir skapa skil- yrði í samfélaginu fyrir baknag og einelti. Hver sem er getur lent í þeirri ömurlegu lífsreynslu að verða fyrir baknagi Algengt er að þeir sem skara fram úr á einhverjum sviðum og/eða eru í áberandi stöðum í samfélagi. verði fyrir baknagi sem brýst út í öfund hjá fólki. Ef einhverjum öðrum famast vel en seglin dragast saman hjá manni sjálfum skapast skilyrði fyrir einelti. Sérfræðingar segja að þetta þekkist víða. Þetta snýst um að fá hlut- tekningu í velgengni eða að horfast ekki í augu við eigin vandamál og snúa sér að næsta manni til að fá útrás fyrir eigin óánægju með baknagi. „Ymislegt annað skapar skilyrði fyrir baknagi og einelti. Ef fólk fær á tilfinninguna að það sé að tapa stjóm á lífi sínu og/eða umhverfi, skapast óánægja og óöryggi, sem þekkist víða í einangruðum samfélögum. Fólk ftnnur því allt til foráttu að hér sé hægt að búa og allt sé svo gott í Reykjavík. Fólk hefur tilhneigingu til að einfalda lífið eins og hægt er. Ef fólk einfaldar ekki lífið skapast óöryggi og hræðsla. Einn hlutur af því er að búa til baknag,“ segir vel menntaður maður sem hefur velt þessum hlutum fyrir sér. í samfélagi þar sem baknag, einelti og jafnvel öfund er áberandi, þarf fólk að læra að gleðjast með öðmm. Um leið og einhver annar skarar fram úr virðist fólk eiga erfltt með að una viðkomandi þess að vera fremri * öðrum. Sérstaklega verður þetta erfitt þegar skilyrði eru almennt slæm í samfélaginu og óöryggi hjá fólki, þ.e. það er ekki öruggt með vinnu. miklar breytingar em í skólakerfi, málefum aldraðra. fatlaðra, heilbrigðiskerfi, breytingar á vinnuréttindum fólks o.s.frv. Fólk þarf að eignast óvin við slíkar kringumstæður og þá er oft ein- faldasta leiðin að baknaga þá sem em áberandi eða jafnvel Jón eða Stínu nágranna. Sú staðreynd blasir við að fólk þarfnast sterkra leiðtoga sem stýra og stjóma því áfram. Þeir eru ekki fyrir hendi í dag. Úr bænum - eða spýta í lófana Þegar skyggnst er á bakvið hina hliðina, þ.e. hjá þeim sem verða fyrir baknagi eða einelti, eru að mati sér- fræðinga þrjár leiðir til að komast út úr slíku mannorðsmissisástandi I fyrsta lagi verður fómarlambið að reyna að spyma við fótum, standa upp og berjast fyrir sínu. En slíkt kostar mikil átök. Vandamálið getur verið óyfirstíganlegt. Þá er ekkert annað að gera en að pakka saman og flytja eitt- hvað annað. í öðm lagi er að reyna allar mögu- legar leiðir til að verja sig og sína. Það er hægt með því að koma sér upp talsmönnum eða vinum, ræða við þá og reyna að fá bakstuðning til að verja fómarlambið með kjafti og klóm. Slíkt kostar töluverð átök en til þess vin- nandi til að reyna að leiðrétta baknagið. I þriðja lagi er hægt að snúa sér til fjölmiðla til að koma sínum sjón- armiðum á framfæri. Þannig nær fórnarlambið til fjöldans. Slíkt er algengt á meðal fólks sem er „almenn- ingseign“. Einelti algengt vandamál í atvinnulífi Einelti hefur hingað til verið talið skólavandamál og einskorðað við grunnskólana. En í seinni tíð hafa augu sérfræðinga opnast fyrir einelti á vinnustöðum sem er orðið stórt sam- félagslegt vandamál í dag. Sérfræð- ingar í heilbrigðisgeiranum benda á að ótrúlega margt fólk sé frá vinnu vegna eineltis, dögum svo jafnvel vikum skiptir. Kostnaðurinn fyrir atvinnulífið og samfélagið er ótrúlegur og svo virðist sem skilning vanti í atvinnulífið gagnvart einelti á vinnustöðum. Hægt er að koma í veg fyrir einelti með forvöm, t.d. með því að fá fagfólk inn á vinnustaðina til að vinna með fólki eða flytja fyrirlestra. „Ég held að tími sé kominn til fyrir Vestmannaeyinga að velta þessum hlutum alvarlega fyrir sér og gera það upp við sig, í eitt skipti fyrir öll, hvort þeir séu ánægðir að búa hér á Heimaey. Ef svo er ekki eiga þeir að flytja annað. Þeir sem vilja búa hér þurfa að fara í pollýönnuleik, reyna að sjá jákvæðu hliðamar á tilverunni. Annað hvort lögum við það sem fyrir er eða fömm annað. Ef svona baknag og svartsýni ætlar að festa rætur í vest- manneyskri þjóðarsál gröfunt við okkur smám saman lifandi. Það verður að opna augu fólks fyrir þessu svo við missum ekki hæfileikankt fólk í burtu frá Eyjum. Það er þetta fólk sem við þurfum á að halda til að byggja upp gott samfélag. Náunga- kærleikurinn, að samgleðjast og reyna að rækta sjálfan sig, gera eitthvað fyrir sjálfan sig í stað þess að öfundast út í aðra, er forsenda þess að hér byggist blómlegt samfélag,“ segir ónefndur aðili sem þekkir þessi ntál af eigin raun. Einnig er mikilvægt að mati sér- fræðinga að stjórnendur í samfélagi axli ábyrgð að þessu leyti., J-'ólkið vill Iáta leiða sig“ eins og einn þeirra komst að orði. Sú ábyrgð er hins vegar vandmeðfarin svo ekki sé meira sagt. - Þorsteinn Gunnarsson 13 Orð FÓLKSINS Sighvatur Bjarnason „Eftir að hafa búið í Eyjum í rúm 4 ár eftir 12 ára útlegð, segir Sighvatur að það sem hafi komið sér mest á óvart í Eyjum sé umtalið um náungann. Svo virðist vera af ef einhver skari fram úr hér í Eyjum sé nauðsynlegt að baknaga viðkomandi. Ef fyrirtækin rétta úr kútnum er strax farið að höggva í þau með makalausu umtali og leiðindum. „Ef Eyjamenn ætla að efla atvinnu- líf Eyjanna og mannlíf, verður fólk að snúa þökum saman og láta af þes- sari óskemmtilegu iðju. Við fáum seint hæfileikaríkt ungt fólk til þess að koma til baka úr námi ef það á von á sífelldu þaknagi. Atvinnulíf okkar hefur mikla þörf fyrir ferskt blóð, því sannast sagna hefur skammsýni okkar staðið okkur fyrir þrifum, við höldum að Eyjarnar séu nafli alheimsins. Það er ekki svo að við þurfum virkilega að þerjast fyrir okkar tækifærum. Með sama áframhaldi mun íbúum hér fækka niður fyrir 4.500 á næstu tveimur árum.“ (Fréttir 17. okt. ‘96) Atli Eðvaldsson „Ástæðurnar eru margþættar (fyrir því að hann hætti sem þjálfari IBV). Þar vegur ekki minnst leiðinda spjall um mína þersónu og ýmis gagnrýni sem ekki á rétt á sér... Mér fannst alveg grátlegt að heyra joað að þegar strákarnir komu inn á vinnustaðina í bænum í sumar voru þeir hund- skammaðir og ég rakkaður niður í svaðið í þeirra eyru... Þetta var orðinn alltof persónulegur rógur í minn garð. Þeir vita það sjálfir sem komu því að stað.“ (Fréttir 17. okt. ‘96) Karlmaður „Bæði kynin vilja detta ofan í svona baknag, konur ekki síður en karlar og þær geta verið illkvittnari ef eitthvað er. Ég lenti í tímabundnum erfiðleikum. Af stað fóru alls konar kjaftasögur um mig og mína og ég var sá síðasti sem heyrði þær. Líklega hef ég heyrt þærfæstar. Það var eins og fólk þyrði ekki að spyrja mig um hlutina heldur vatt sér kannski að unnustunni sem fannst spurningar um þetta verulega óþægilegar, eða bjó bara eitthvað bull til. Það sem ég lenti í hefur fyrst og fremst opnað augu mín fyrir því að bera virðingu fyrir öðru fólki og taka ekki þátt í baknagi. Oft verð ég hvumsa þegar ég heyri spjallað um fólk. Allt of oft hef ég þagað og gerst þannig „meðsekur" ef þannig mætti komast að orði í stað þess að reyna að opna augu fólks fyrir því að svona baknag er mannskemmandi og sam- félag okkar setur niður við svona framkomu. Ég held að fleiri mættu hugleiða þetta. Vestmannaeyingar verða að hugsa sinn gang í þessu sambandi því hér gerjast alls konar vitleysa. Ástæðan er að einhverju leyti sú, og það er grátlegt til þess að vita, að landsbyggðarfólk er með minnimáttarkennd gagnvart höfuðborgarsvæðinu. Þessi min- nimáttarkennd brýst að mínu mati út í baknagi en fer reyndar nokkuð eftir menntun og þjóðfélagsstöðu. En reyndar vill vel gefið og menntað fólk oft falla í þessa sömu lágkúrulegu gryfju," segir karlmaður á fer- tugsaldri sem ekki vill láta nafn síns getið. I BRENNIDEPLI

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.