Fréttir - Eyjafréttir - 24.10.1996, Síða 18
Fréttir
Fimmtudagur 24. október 1996
Skemmtileg og vel heppnuð Vinavika í Hamarsskóla Vestmannaeyja:
Vinátta er guHsígildi
unglingar væru hræðilegt fólk, svo
dæmi sé tekið.
„Við fórum að velta því fyrir okkur
hvað væri hægt að gera til að breyta
félagsandanum í skólanum. I vor var
nefnd sett á laggimar. Við veltum
þessunr málum fyrir okkur í sumar og
hittunrst svo í haust. Þetta var lagt fyrir
nemenduma sjálfa, hvað væri hægt að
gera til að bæta samskiptin. Ymsar
tillögur komu fram, bæði frá nemend-
um og kennurum. Þeinr var safnað
saman og við völdunr það úr sem fékk
flest atkvæðin og okkur leist vel á.
Við skipulögðunr vinavikuna þannig
að hún konr ekki niður á skólastarfmu
sem slíku,” segir Ema.
Vinabekkir
Vinavikan gekk þannig fyrir sig að
vinabekkir vom tengdir saman. Síðan
var umsjónarkennaranna að sjá til þess
að bekkirnir gerðu eitthvað sanran.
Dænri um vinasamskipti bekkjanna
var að yngri bekkir sungu fyrir þá
eldri. Þá lásu eldri bekkir fyrir þau
yngri, getln vom vinabönd o.fl. Vina-
vikan hófst á sanreiginlegu verkefni
sem prýðir vegg skólans og lauk svo
sl. föstudag. Þá fóru nenrendur út á
skólalóð í ýmsa leiki með vina-
bekkjunr sínum. Allir nemendur tóku
svo höndunr saman ásamt kennurunr,
starfsfólki, nokkrum foreldrum o.fl.
og nrynduðu vinakeðju utan unr
skólann. Var nrjög gaman að verða
vitni að vinakeðjunni senr innram-
maði vinavikuna á skenrnrtilegan hátt.
Að lokunr röðuðu nenrendur sér
saman norðan við skólann á grasblett
og mynduðu stafina VINIR.
„Þetta heppnaðist sérlega vel. Við
létunr þau boð út ganga að þessa viku
ætluðum við að horfa á það jákvæða
hjá nenrendunr. Við fengum starfs-
fólkið allt í lið nreð okkur og það
skráði niður ef nemendur og/eða
bekkir létu eitthvað gott af sér leiða.
Sá bekkur senr fékk flestar
Vinalegasti bekkurinn í Hamarsskóla, 7. bekkur S. Þ. (Sigurlásar Þorleifssonarj.Efri röð f.v. Hörður Snær
Pétursson, Gísli Stefánsson, Sigurjón Viðarsson, Snorri Páll Snorrason, Smári Páll McCarthy, Hlynur Stefánsson
og Stefán Hjaltalín Kristinsson. Önnur röð f.v. Arndís Ósk Atladóttir, Jónína Kristín Þorvaldsdóttir, Erna Ósk
Grímsdóttir, Dóra Dúna Sighvatsdóttir, Eyþór Gísli Þorsteinsson og Guðrún Stefánsdóttir kennari. Þriðja röð f.v.
Elfa Björk Hjálmarsdóttir, Elva Dögg Jónsdóttir, Laufey Rós Valdimarsdóttir, Helga Jóhanna Harðardóttir, Þórður
Jónsteinsson, Sævar Magnússon. Neðsta röð f.v. Grettir Heimisson. Helga Dóra Magnadóttir, Sólveig Jónsdóttir,
Gísli Böðvar Guðmundsson og Stefán Björn Hauksson.
Betri félagsleg samskipti á milli
nemenda, jákvæð tengsl og styrkari
vináttubönd þar sem t.d. yngri
nemendum líður betur og hafa
meiri öryggiskennd. Þetta voru
markmið Vinaviku í Hamarsskóla
Vestmannaeyja sem tókst með
afbrigðum vel. Nemendur, kenn-
arar og starfsfólk Hamarsskóla
lögðust á eitt í síðustu viku að þessu
sameiginlega verkefni þar sem
áhersla var lögð á vináttu og tengsl
á milli nemenda á ólíkum aldurs-
stigum. Arangurinn á eftir að koma
í Ijós en kennarar þykjast þegar
hafa merki þess að Vinavikuátakið
séfarið að skila sér.
I vor var skipuð nefnd kennara á
vegum Hamarsskólans til að fara ofan
f saumana á því hvað mætti gera til
þess að breyta félagsandanum í skól-
anum. Ema Jóhannesdóttir, kennari,
átti sæti í nefndinni en hún átti
frumkvæðið að þessu. Ema er í mast-
ersnámi í sérkennslu og fór til
Vermont í Bandaríkjunum fyrir ári
þegar hún var að Ijúka fyrri hluta
námsins.
„I Vermont eru þeir þekktir fyrir
blöndun í skólunum, þ.e. að fatlaðir
nemendur em með ófötluðum eins og
reyndar hefur tíðkast hér á landi.
Andrúmsloftið í skólununt í Vermont
var mjög notalegt en á þessum
slóðum er gömul indíánamenning þar
sem heimamenn passa upp á sitt fólk.
Ég fann greinilega samhuginn hjá
fólkinu. Þetta er fámennt og strjálbýlt
ríki og ekki auðugt. Fólkið sagðist
ekki geta sent börnin sín í burtu
heldur vildi vinna með þau sjálf. Við
heimsóttum marga skóla og urðum
vitni að mjög skemmtilegum vin-
nubrögðum. Mér fannst áberandi
hversu fólkið stóð vel saman og
untbar hvert annað," segir Ema.
VINIR: Allir nemendur Hamarsskólans, tæplega 400 talsins, bjuggu til stafina V I N I R á skólalóðinni. Fremstu stafirnir eru greinilegir en þeir sem eru
lengst tii hægri sjást ekki eins greinilega frá þessu sjónarhorni. Þetta vináttulistaverk var rúsínan í pylsuendanum á skemmtilegri vinaviku í Hamarsskóla.
Þegar þessi mál bar á góma hjá ken-
nurum Hamarsskóla var almennur
vilji fyrir því að samskipti á milli
nemenda væru öðruvísi. Árekstrar
væru of tíðir og nemendur jafnvel ein-
mana. Ekki væru nógu góð tengsl á
milli aldurshópa. Að sögn Ernu höfðu
yngri nentendur á tilfinningijiini að
útnefningar var svo valinn vinalegasti
bekkurinn í skólanum. Mér fannst svo
skemmtilegt að sjá t.d. í öllum
frímínútum að stálpuðu krakkarnir
voru að hjálpa yngri nemendum.
svona utan dagskrár. Þetta sagði okkur
ýmislegt. Við vonumst til að þetta
átak hafi þau áhrif að að samskipti á
meðal nemenda á ólíkum aldurss-
tigum verði betri. Markmiðið var að
efla félagsleg og jákvæð samskipti á
milli nemenda. Við finnum vel hve
yngstu nemend-umir eru ham-
ingjusamir að eiga vini. Þeim líður
betur og verða öruggari. Við urðum
vör við í fyrra þegar þetta varð heild-
stæður skóli og allir fóru út á
skólalóðina á sama tíma, að meira
varð unt árekstra en við áttuðum
okkur á í fyrstu. Fram að þessu höfðu
eldri nemendur verið á morgnana en
yngri nemendur eftir hádegi. Vina-
vikan var innlegg í að láta öllum
nemendum líða betur f skólanum og
okkur fmnst við sjá merki um það.
Þess má einnig geta að við efndum til
samkeppni um merki skólans, söng
skólans og slagorð skólans og bárust
margar góðar og skemmtilegar
tillögur sem verið er að vinna úr,"
sagði Ema.
ÞoGu
HUSASMIÐI
SKIPAVIÐGERÐIR
Drangur ehf
Strandvegi 80 Gengið inn að norðan
Sími 481-3110 og 481-3120 • Fax
481-3109
Heimas. Krístján 481-1226 og
481-1822. Þórólfnr 481-2206