Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 24.10.1996, Blaðsíða 22

Fréttir - Eyjafréttir - 24.10.1996, Blaðsíða 22
LANDAKIRKJA Fimmtudagur 24. okt. 9.00-21.30 Fermingarbamamót - Hamarsskóli 17.00 TTT-fundur, 10-12 ára, fer fram í KFUM&K húsinu að Fífilgötu Föstudagur 25. okt. 9.00-21.30 Fermingarbamamót - Bamaskóli 14.00 Utför Loga Snædal Jónssonar Laugardagur 26. okt. 14.00 Útför Sigríðar Ágústsdóttur Sunnudagur 27. okt. 11.00 Sunnudagaskóli 14.00 Almenn Guðsþjónusta. - Boðið er upp á akstur frá Hraunbúðum. - Bamasamvera meðan á prédikun stendur. - Messukaffi og „kirkjudjús" á eftir 20.30 KFUM&K Landakirkju - Unglingafundur Mánudagur 28. okt. 20.00 Saumafundur hjá Kvenfélagi Landakirkju. 20.30 UHFfundur Þriðjudagur 22. okt. 16.00 Fermingartímar, Bamaskóli. 17.00 Kirkjuprakkarar, fundir fyrir 7-9 ára. Miðvikudagur 23. okt. 10.00 Mömmumorgunn. 12.10 Kyirðarstund í hádegi. 16.00 Fenningartímar, Hamarsskóli. 20.00 KFUM&Khúsiðopið unglingum. Hvítasunnukirkjan Fimmtudagur 20.30 Biblíulestur. Föstudagur 18.00Krakkaklúbburinn. Öllbörn velkomin, 3-8 ára. Gestir frá Biblíu- skólanum í Fljótshlíð. 20.30 Samkoma fyrir ungt fólk. Laugardagur 20.30 Brotning brauðsins Sunnudagur 15.00 Vakningarsamkoma! Samskot til Biblíuskólans í Fijótshlíð. Fjölbreyttur söngur og lifandi orð. Állir hjartanlega velkomnir. Aðventkirkjan Laugardagur 10.00 Biblíulestur Allir velkomnir. Baháí samfélagið Opið hús að Kirkjuvegi 72B, fyrsta föstudag hvers mánaðar kl. 20:30. i. Allir velkomnir. Heitt á könnunni Biblían talar Sími 481-1585 Fréttir Fimmtudagur24. október 1996 Golf • Vertíðinni lokið eftir mjög vel heppnaða Haustsprengju Ragnar Þór sigraði í Haust- sprengjunni með glæsibrag Á laugardag lauk golfvertíðinni íörndega hjá GV, með Vetrarmótinu. Veður var eins og á vordegi, enda mættu 38 kylfingar til leiks og léku margir hverjir afburða vel, enginn þó eins og Friðrik Sæbjörnsson, knattspyrnumaður, en hann Iék sem gestur og halaði inn heila 45 punkta sem er hreint frábær árangur hjá nýliða í íþrótt- inni. f glæsilegu hófi, sem haldið var í golfskálanum um kvöldið, vom afhent verðlaun fyrir öll fimm mótin í haust- sprengjunni, Sparisjóðsmótið, Stöðvamótið, Ballantinesmótið, Haustmótið og Vetrarmótið. Þá var einnig tekinn besti árangur úr þremur mótum og hlutu tveir efstu utanlands- ferðir með Flugleiðum. 10. og 15. sæti hlutu einnig verðlaun, flugfar innanlands með Flugleiðum. Alls voru 70 keppendur sem tóku þátt í haustsprengjunni og urðu efstir þessir: 1. Ragnar Þ Baldvinsson 110 punkta 2. Júlíus Hallgrímsson 105 punkta 3. Atli Elíasson 104 punkta 4. Magnús Kristleifsson 104 punkta 5. Heimir Hallgrímsson 103 punkta 6. Sigurður Þ Sveinsson 101 punkta 7. Jónas Þ Þorsteinsson lOOpunkta 8. Magnús Þórarinsson 98 punkta 9. Friðrik E Ásmundsson 97 punkta 10. Guðjón Grétarsson 95 punkta 11. Erlingur Einarsson 94 punkta 12. Gunnar K Gunnarsson 93 punkta 13. Stefán Sævar Guðjónss 93 punkta Áú/ Elsa Valgeirsdóttir, sem bar hitann og þuggarín af skipu- lagningu Haustsprengjunnar, var heiðruð sérstaWega fyrir mikið og gott starf. Þeir stóðu sig vel í Haustsprengjunni, Atli Elíasson sem varð í 3. sæti og Gunnar K. Gunnarsson sem varð tólfti. 14. Sigurgeir Jónsson 92 punkta 15. Sigmar Garðarsson 91 punkta Ragnar Þór Baldvinsson sigraði glæsilega í mótinu og hlaut utanlands- ferð að launum sem og Júlíus Hallgrímsson sem var í öðru sæti. Innanlandsferðir hlutu þeir Guðjón Grétarsson fyrir 10. sætið og Sigmar Garðarsson fyrir það 15. en mikil spenna var fyrir verðlaunaafhend- inguna um það hverjir hlytu þessi verðlaun þar sem kappleikjanefnd lét ekki uppskátt um röð keppenda fyrr en verðlaun voru afhent. Sérstakar viðurkenningar hlutu þau Ingi Tómas Bjömsson og Katrín Magnúsdóttir fyrir mikinn keppnisanda í misjöfnum veðrum. Þá voru afhent verðlaun fyrir hvert mót sérstaklega. Sparisjóður Vest- mannaeyja gaf verðlaun fyrir Sparisjóðsmótið og þar urðu þessir efstir: 1. Magnús Kristleifsson 42 punkta 2. Sigmar Pálmason 40 punkta 3. Júlíus Hallgrímsson 39punkta. Einnig hlutu verðlaun þeir sem voru næstir holu í upphafshöggi á par 3 brautum og þeir voru: Erlingur Einarsson á 2. braut, Einar Ö Ágústs- son á 7. braut, Leifur Ársælsson á 12. braut, Sigmar Garðarsson á 14. braut og Jóhann Pétursson á 17. braut. í Stöðvamótinu voru verðlaun gefin af hraðfrystistöðvunum f Eyjum og þar urðu þessir efstir: 1. Atli Elíasson 35 punkta 2. RagnarÞBaldvinsson 34punkta 3. Júlíus Hallgrfmsson 32 punkta Næstir holu voru: Ársæll Ámason á 2. braut, Magnús Sveinsson á 7. braut, Sigurgeir Jónsson á 12., og 14. braut og Kristján Olafsson á 17. braut. í Ballantines-mótinu gaf Heildverslun Karls Kristmanns verðlaunin og þar urðu þessir efstir: 1. Júlíus Hallgrímsson 32 punkta 2. Stefán Sævar Guðjónss 28 punkta 3. Jónas Þ Þorsteinsson 27punkta Næstir holu voru: Guðjón Grétarsson á 2. braut, Jónas Þ Þorsteinsson á 12. braut, Júlíus Hallgrímsson á 14. braut og Örlygur Grímsson á 17. braut. I Haustmótinu urðu þessir efstir: 1. Heimir Hallgrímsson 38 punkta 2. Sigurður Þ Sveinsson 33 punkta 3. Ragnar Þ Baldvinsson 33 punkta Næstir holu voru: Jónas Þ Þorsteinsson á 2. braut, Ragnar Þ Baldvinsson á 7. braut, Jónas Þ Þorsteinsson á 11. braut og Guðjón Grétarsson á 16. braut. I Vetrarmótinu, sem haldið var á laugardag. varð Friðrik Sæbjömsson efstur eins og áður er getið, með 45 punkta en þar sem hann keppti sem gestur, hlaut hann ekki verðlaun. Þeir sem kepptu um verðlaunasætin voru þessir: 1. Friðrik E Ásmundsson 42 punkta 2. Einar Ólafsson 39 punkta 3. Ragnar Þ Baldvinsson 39 punkta Næstir holu voru: Friðrik Ásmundsson á 2. braut, Sigmar Garðarsson á 7. braut, Hjörtur Hermannsson á 11. braut og Gunnar K Gunnarsson á 16. braut. Þó að hinni eiginlegu golfvertíð sé þar með lokið á þessu ári, er samt eitt mót eftir. Gamlársmótið, sem ævin- lega er haldið á gamlársdag og leiknar níu holur. Ragnar Þ. Baldvinsson, kampakátur, ásamt eiginkonunni, Önnu Jóhannsdóttur. Heppnin með Ola Guðna Hann var stálheppinn hann Óli Guðna þegar liann sigraði félagana Hörð Þórðar leigubíl- stjóra og Guðmund Jensson, dönskukenn- ara í Vinstri bræð- ingnum í 32 liða úrsli- tum hópleiksins. Hóp- arnir fengu báðir 6 rétta og vom með jafn marga útileiki og jafn- tefli rétt og því þurfti að grípa til hlutkestis. Það þarf ekkert að orðlengja það en Óli vann það örugglega. Meistaramir frá í fyrra HH-flokkurinn féll út um helgina gegn Doddunum. Það kemur kannski ekki á óvart því lítið hefur verið bólstrað á Rcynistað því Sigurjón Birgis og Geir á Reynistað liggja yfir seðlinum 8 tíma á dag og ætla sér stóra hluti. Grundarprinsar kvöddu keppnina enda við að etja óeirðaseggina frá Brighton. Gísla Foster og þann sem skírður er í höfuð honum. Steve Foster. Það er helst að frétta frá Brighton að búist er við miklu fjölmenni ,.á" vellinum um helg- ina. Úrslitin í 32ja liða úrslitunum urðu annars þessi: Bestu vinir Ottós - Tveir með öllu 5-5. Tveir með öllu voru með fleiri rétt jafntefli og lara áfram, Ásinn - Cantona 4-5. Litla Heiði - Húskross 4-5, Doddamir - HH-flokkurinn 6-5. Vinstri bræðingurinn - Munda 6-6, Munda sigrar á hlutkesti, Hausamir - Silli án valda 4-4. Hausamir vom með fleiri rélta útileiki og fara áfram. Rommaramir - RiSi 6-5. Ármenningar - Bláa Ladan 4-3, Fosters export - Gmndarprinsar 7-6. Golgiflélta - Bæjarins bestu 8-4, Anfield Road - Raggi Skyr 4-4 Anfield Road sigrar á tleiri réttum jafnteflum, Börkur - HlV-neikvæðir 4-5, Man.United - Pömpiltar 6-5, Just do it ! - Tveir á toppnum 3-5. Heiðar öryggisvörður - Villta vestrið 3-5. Perlusulta Ennisrakaðir bræður 4-4, bræðumir vinna á fieiri réttum jafnteflum. Dregið hefur verið í 16 iiða úrslit og er hann eftirfarandi: HlV-neikvæðir gegn Anfield Road, Ármenningar-Villta vestrið, Tveir með öllu - Cantona, Doddarnir - Munda, Fosters export - Húskross, Golgiflétta - Hausamir, Man.United - Tveir á toppnum, Romm- aramir - Ennisrakaðir bræður. Fyrir þá sem dottnir em út er það upplýst hér að hugmyndin er að hefja nýjan hópleik sömu helgi og úrslitaleikurinn verður í þessari keppni. Keppnis- fyrirkomulagið verður með sama sniði og var í þetta sinn. en keppnin er styttri og meira spennandi en áður. Um síðustu helgi komu nokkrir áhugasamir tipparar saman á Lundanum og horfðu á leik Newcastle United og Manchester United. Þegar líða tók á leikinn og menn höfðu fengið sér bjór- glas fóm einhveijir aðilar sem voru að missa áhugann fyrir leiknum að kaupa snafs. Þess skal nú ekki getið hér með hvom liðnu þessir menn héldu, cn búast má við að Goggi í Klöpp muni veita þær upplýsingar fúslega. Umræddur Georg fór nefnilega út til Englands með fmna og ætlaði að sýna henni hvernig liðið í rauðu búningunum spilaði best. Heyrst hefur að senda hafl þurft prest og sál- fræðing til að sinna áfallahjálp vegna ferðalagsins og segir sagan að erfitt hafi reynst að telja Georg á að snúa aftir heim f Skeljung. Á sunnudag sjáum við leik Liverpoot og Derby á Lundanum kl. 16:00 og em allir áhugasamir boltaunnendur boðnir velkomnir á staðinn. Tippari vikunnar: PállPálmason Ingi Tómas Bjömsson skattstjóri var tippari síðustu viku og skoraði hann á markmannsjaxlinn og snókerspilarann Pál Pálmason. sem eins og Ingi hefur enn ekki þorað f hópleikinn. og sjáum hvað hann leggur til málanna. „Þótt hann Ingi Tómas ætli að ná sér niðri á mér eftir að ég og Jóshúa Steinar tókum hann í karphúsið f snóker. þá skjátlast honum hrapalega. Það gæti verið að svo kynni að fara að ég yrði að lúta í lægra haldi fyrir honum, og þá væri það aðeins vegna þess að Gunna mín er að vinna á sama stað og hann. og hún myndi hjálpa honum að staulast fram úr þessu. Sá sem ég ætla að skora á í næstu viku heitir Óskar Valtýsson, sem einn af okkar starfsmönnum hér í gúanóinu sagði að væri sá albesti, en svona tippa ég þessa vikuna": Leicester - Newcastle 2 Arsenal - Leeds 1 Southampton - Man. Utd. X Chelsea - Tottenham 1 Middlesbro - Wimbledon I Coventry - Sheff. Wed X Sunderland - Aston Villa 2 West Ham - Blackbum X Birmingham - Norwich 1 Ipswich - Tranmere 1 Charlton - Oxford 1 Sheff. Utd - QPR 1 Huddersfield - Port Vale X

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.