Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 24.10.1996, Síða 24

Fréttir - Eyjafréttir - 24.10.1996, Síða 24
í FRÉTTIR Frétta- og auglýsingasíminn 481-3310 • Fax 481-1293 FUiTNINGAR • VESTMANNAEYJUM Daglegar ferðir hvert á land sem er. Vöruafgreiðsla Skildingovegi 4 Simi 481 3440 Vöruafgreiðsla ■ Reylqavik TVG Héðinsgata 1 - 3 Sími 581 3030 Rútuferðir - GM Skoðunarferðir • Vejsltrferðir. . Grillferðir • IþróítahojDférðir. FERÐASKRIFSTOFA REYKJAVÍKUR Umboðsmaður í Eyjum: GÍSLI MAGNÚSSON Brekastíg 11 sími 481-1909 Á þriðjudaginn skrifuðu stjórnir Vinnslustöðvarinnar hf. og Meit- ilsins hf. undir samrunasamning sem lagður verður fyrir hluthafa um miðjan desember. Fáist samþykki hluthafa sameinast félögin undir nafni Vinnslustöðvarinnar. Eigið fé nýja félagsins verður um 1800 miiljónir króna. Samningurinn verður lagður fram á aðalfundi Vinnslustöðvarinnar þann 14. desember nk. og fyrir hluthafa Meitilsins fyrir þann tíma. „Sameining fyrirtækjanna verður stórt skref fram á við fýrir bæði Vinnslustöðina og Meitilinn. Stjómir félaganna sýndu rnikinn kjark með þessari ákvörðun. ákvörðun sem kemur bæði félögunum og starfsfólki þeirra til góða,“ sagði Sighvatur Bjarnason framkvæmda- stjóri Vinnslustöðvarinnarí gær. Hann segir að með sameiningunni takist þeim að fylgja eftir framþróun í landvinnslu og byggja upp sterkt félag á styrk þeirra beggja. „Við höfum náð mjög góðum árangri í vinnslu og veiðum á uppsjávarfiski á meðan þeir hafa einbeitt sér að botnfiski. Eigintjárhlutfall hins nýja félags verður 30% og þau em ekki mörg fyrirtækin sem geta státað af svo góðri stöðu. Eigið fé félagsins verður um 1800 milljónir sem er líka mjög gott.“ Guðrún Eydís Eyjólfsdóttir, Guðjónssonar skipstjóra á Gullbergi VE, með eintak af silfri hafsins sem pabbi veiddi. Bylting í öllum rekstri íþróttahreyfingarinnar Samkomulag, sem viðræðunefndir bæjarins og Þórs og Týs skrifuðu undir á þriðjudag, byggir á samþykkt bæjarstjórnar um að bærinn kaupi eignir Þórs og Týs og að núverandi rammasamningur um byggingu íþróttamannvirkja falli úr gildi. Nær það til rekstrar og afnotaréttar íþróttamannvirkj- anna, reksturs allra íþróttavallanna samstarfsamnings milli bæjarins og Iþróttabandalags Vestmannaeyja og aðildarfélaga þess. Samkvæmt þessu verða Týr og Þór lögð niður. Samkvæmt skipuriti, sem nefnd íþróttafélaganna hefur samþykkt, verður Knattspyrnu- og handknatt- leiksfélag ÍBV sér félag með sjálfstæðan fjárhag. Félagið verður eins og önnur íþróttafélög í Eyjum aðili að íþróttabandalagi Vestmanna- eyja og æðsta vald er í höndum ársþings ÍBV. Þar næst kernur stjórn ÍBV en tengslin við bæjarstjóm koma í gegnuni Knattspymu- og hand- knattleiksfélag ÍBV þar sem íþrótta- og æskulýðsráð og tómstunda- og æskulýðsfulltrúi em tengiliðir. Hið nýja félag hefur sjálfstæða stjóm sem vinnur í beinum tengslum við væntanlegt stuðningsmannafélag. Undir stjómina heyrir fram- kvæmdastjóri sem vinnur með knatt- spymu- og handknattleiksdeild sem hafa hvort sinn framkvæmdastjóra og kvennadeild. Undir hann heyrir lfka rekstur ntannvirkja og nefndir eins og t.d. þjóðhátíðamefnd, Shell- og Pæjumótsnefnd. Bæði knattspymu- og handknattleiksnefnd verður skipt í karla- og kvennadeildir og nær skiptingin niður í yngri flokkana. Nái þessar breytingar fram að ganga er ljóst að bylting hefur orðið á rekstri íþróttahreyfingarinnar í Eyjum. Rekstareiningum hefur fækkað og nú renna tekjur, eins og t.d. af þjóðhátíð, óskiptar til reksturs íþrótta sem hlýtur að gjörbreyta öllu rekstrarumhverfi hreyfingarinnar sem ætti að skila sér í betri árangri þegar fram í sækir að mati nefndarmanna. Nefndarmenn Týs og Þórs benda á að í dag séu fjórir meistaraflokkar IBV í 1. deild. Rekstur þeirra hafi verið þungur en með nýju félagi ætti hann að léttast. „Meistaraflokkamir hafa hingað til rekið sig sjálfir og það breytist ekki. En nú rennur hluti af þeim peningum, sem Þór og Týr hafa aflað, til meistaraflokkanna en ekki í afborganir af lánum vegna hús- bygginga. Enginn þeirra verður skilinn út undan því við viljum skapa þeim betra rekstrarumhverfi sem ætti að skila sér í öflugra starfi," sögðu þeir einnig. Guðjón Hjörleifsson, sem sat í viðræðunefnd bæjarins ásamt Arnari Sigurntundssyni (D) og Guðmundi Þ.B. Ólafssyni (V), segist fagna þess- um tímamótum í íþróttamálum í bænum. „Nefndarmenn unnu af heildindum. Farið var yfir alla þætti og sem betur fer náðu menn saman. Mikið starf bíður nýrrar stjómar og það er hennar að íjúka verkinu en samkomulagið er góður sökkull til að byggja á. Við eigum eftir að sjá öflugra æskulýðs- og íþróttastarf sem skilar sér í betri árangri," sagði Guðjón. Hjóla- bretta- töffari Ekkert lát er á vinsældum hjólabretta. Vestmanneysk ungmenni sjást þeysast um götur og ýmsartorfærur í miðbænum. Þessi piltur var að leika sér í tröppunum við Sparisjóðinn í vikunni og sýndi góð tilþrif. Skrífað undir samrunaáætiun

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.