Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.1998, Side 1
25. árgangur • Vestmannaeyjum 4. júní 1998 • 22. tölublað • Verð kr. 140,- • Sími: 481 3310 • Fax: 481 1293
Súlnasker var fyrrum kallað Skerið góða enda var það um aldir mest gullkista Eyjamanna
er þangað sóttu fugl og egg. Þótt sú tíð sé liðin að afla þurfi matfanga með þeim hætti,
er þó enn sótt í Skerið. Uppgangan er sú erfiðasta í Vestmannaeyjum eins og sjá má á
myndinni. Á bls. 11 er í máli og myndum sagt frá ferð í Skerið. Ljósm. Ó. Björgvinsson
Páll Pálsson framkvæmdastjóri FMV:
Þjónusta við
trillusjómenn
síst lakari hér
Blaðinu hafa boríst til eyrna
kvartanir vegna þjónustu Fisk-
markaðs Vestmannaeyja við báta-
og trillusjómenn og þá sérstaklega
eftir ki. 17:00 á daginn.
Páll Pálsson framkvæmdastjóri
Fiskmarkaðs Vestmannaeyja segir
að þjónusta Fiskmarkaðarins við
báta- og trillusjómenn sé síst lakari í
Vestmannaeyjum en annars staðar á
landinu. „Það er allt hreinsað upp
eftir kl 21:00 á kvöldin á trillu-
bryggjunni. Þeir sem landa seint
geta ísað fiskinn í kör sem FMV
skaffar og sett lok yfir. Þannig
geymist hann vel til klukkan átta
morguninn eftir, en þá er hreinsað
upp eftir nóttina.. Þetta er gert í
samráði við Fiskistofu og hefur ekki
þótt tiltökumál. Einnig spilar inn í
þetta mál vinnutilskipun Evrópu-
sambandsins sem kveður á um 11
tíma samfellda hvíld. Asamt því að
Verkalýðsfélagið bannar yfirvinnu
yfir sumarmánuðina."
Páll segir að menn séu trúlega að
blanda saman tveimur málum.
„Annars vegar biðröð við löndun-
arkranann og hins vegar þeim
mannskap sem að kemur að löndun-
inni. Þetta er þægilegt að gagnrýna,
þangað til menn þurfa að borga fyrir
þjónustuna. Menn hafa verið að
bera saman þjónustuna hér og í Þor-
lákshöfn. en þar hefur markaðurinn
skaffað mann á kranann og innheimt
þjónustugjöld í samræmi við það.-'
Páll segir að það sé ekki mikið mál
að útvega mann á kranánn hjá þeim
og rukka fyrir þá þjónustu. „Þjón-
ustugjöld af smábátunum hafa verið
lægri hjá okkur en víðast hvar annars
staðar á landinu. Við tökum 1,30 kr.
á kíló og 4% af aflaverðmæti. Inni í
þeim gjöldum eru kör, ís og
flutningur inn á markaðinn.“
Páll segir og að væntanlegur sé nýr
krani sem komi til með að bæta
þjónustuna og stytti bið eftir löndun.
„Það eru alltaf toppar ef margir
koma inn í einu og kannski einn
maður við löndunina. Á mörgum
stöðum um landið hafa menn
hjálpast að við lönduninna, en það
virðist ekki vera hér, heldur bíða
menn eftir að sá sem er við þetta
klári sitt. Menn frá okkur hafa líka
reynt eftir því sem aðstæður hafa
leyft að aðstoða menn við löndun
eins og hægt er. En það sem er aðal
bitbeinið í þessu máli snýst um það
hvort menn eru reiðubúnir að setja
mann á kvöld- eða nætuvakt og
greiða þá fyrir þjónustuna. Af hálfu
Fiskmarkaðs Vestmannaeyja er
ekkert í veginum fyrir því,“ segir
Páll að Iokum.
Þorskur eykst um 2521 tonn
Sjávarútvegsráðherra hefur ákveð-
ið að fara að tillögum Hafró um
úthlutun atlaheimilda á næsta
fiskveiðári.
Ef litið er á Vestmannaeyjar með
hliðsjón af þessum tillögum lítur
dæmið svona út. Þorskkvóti Vest-
mannaeyinga á þessu fiskveiði ári er
12.106 tonn sem er 7,88% af heild-
araflamagninu. Aukningin í þorski til
Vestmannaeyja verður 2.521 tonn.
Aflaheimildir Eyjaskipa í loðnu voru
140.528 tonn og munu aukast um
23.436 tonn. Síldarkvótinn verður
minnkaður en hlutur Vestmanna-
eyinga í sfld var 19.777 tonn og
lækkar um 1700 tonn. Heimildir í
ýsu voru 6.410 tonn og lækka um
82,6 tonn. Heimildir í skarkola vom
861 tonn og lækka um 19,8 tonn.
Heimildir í humri vom 64 tonn og
lækka um 4,8 tonn samkvæmt til-
lögum Hafrannsóknastofnunar.
Allar tölur miðast við úthlutun þessa
fiskveiðiárs.
YGGI
IR
LDýUNA
ggingamálin á
g þægilegan hs
Bílaverkstæðið BRAGGINN s/f.
RÉUINGAR OG SPRAUTUN:
Flötum 20 - Sími 481 1535
VIÐGERÐIR OG SMURSTOÐ:
Græðisbraut 1 -sími4813;
Frá Eyjum: Frá Þorl.höfn:
Alladaga Kl. 08:15 Kl. 12:00
aukaferöir fimmtu-föstu- ogsunnudaga Kl. 15.30 Kl. 19,00
Ucrfólfur
Sími 481 2800 Fax 481 2991
Bókabúðin
Heióarvegi 9 - Síini 481 1434