Fréttir - Eyjafréttir - 18.06.1998, Qupperneq 1
nl ivvimi
25. árgangur • Vestmannaeyjum 18. júní 1998 • 24. tölublað • Verð ki'. 140,- • Sími: 481 3310 • Fax: 481 1293
Otgerð og skip-
stjóri sýknuð af
öllum kröfum
Skipstjóri og útgerð Sigurðar VE
15, sem ísfélagið gerir út, hafa verið
svknuð af öllum kröfum í millirétti
í Noregi. Sigurður var færður til
hafnar í Noregi af sfldarmiðunum
fyrir réttu ári. Þá voru skipstjóri og
útgerð ákærð og dæmd til að greiða
rúmlega fjórar milljónir í sekt.
Hörður Óskarsson fjármálstjóri
Isfélagsins segir að það sé mikill léttir
yftr mönnum að dómurinn skyldi
falla þeim í vil. „Þetta lítur mjög vel
út. Við emm sýknaðir af ölium kröf-
um og dómurinn sýnir kannski að
norsk stjómvöld hafí farið offari í
málinu á sínum tíma. Við eigum jafn-
framt að fá endurgreiddan hluta af
útlögðum kostnaði."
Hörður segir að forsendur dómsins
liggi ekki fyrir enn þá, en þær verði
birtar á morgun föstudag, þannig að
þá ætti málið að liggja ijóst fyrir.
„Það mun hins vegar vera ljóst að
Norðmenn geta ekki áfrýjað dómn-
um, þar sem við emm sýknaðir af
öllum kröfum. Þetta er endanlegur
úrskurður."
Hörður segir að útgerðin geti
hugsanlega farið í skaðabótamál við
norsk stjómvöld, en engin ákvörðun
hefur verið tekin urn það enn þá.
Grjóthrun
„Auðvitað fylgir svona málum alltaf
ákveðið ónæði og tjón, en ákvörðun
um skaðabótamál hefur ekki verið
tekin. Persónulega finnst mér hins
vegar að ekki verði farið í skaða-
bótamál og ég er hæstánægður með
lyktir mála.“
Sigurður VE 15 var á Akureyri en
heldur til loðnuveiða á morgun
föstudag.
úr Klifinu
Alltaf af og til hrynur grjót úr Stóra Klifi niður á Eiðið. Flestir
steinarnir enda ofan við varnargarðinn en alltaf hafna einhverjir
á veginum. Á aðfaranótt mánudagsins hrundu a.m.k. átta steinar
úr Klifinu og fóru þrír þeirra út á veg. Hefðu þeir auðveldlega
getaö valdið tjóni á bílum og mönnum. Hér stendur Björgvin
Arnaldsson við stærsta steininn f þessari hrinu en hann hafnaði
ráttu megin við varnargarðinn. Er hann vart undir tonn af þyngd.
Sigurður að hætta á póstinum
í blaðinu í dag er auglýst staða stöðvarstjóra íslandspósts í Vestmannaeyjum.
Samkvæmt áreiðanlegum heimildum blaðsins mun Sigurður Jónsson, núverandi
stöðvarstjóri, vera að taka við samsvarandi starfi í Mosfellsbæ. Sigurður
staðfesti þetta í samtali við blaðið. Aðspurður um ástæðu þess að hann hygðist
flytja sig um set, sagði hann að sig og tjölskylduna hefði einfaldlega langað til
að breyta til.
Hlutfélagið Keikur ehf. stofnað vegna komu Keikós:
Markmiðið að tryggja
Góður árangur Eyjastúlkna á Pæjumóti
Níunda Pæjumóts IBV verður lengi minnst fyrir veðurblíðunnar sem stúlkurnar nutu alla
mótsdagana. Mótið hófst strax á fimmtudagsmorguninn þó mótssetningin væri ekki fyrr en um
kvöldið. Þegar upp var staðið höfðu 1003 mörk verið skoruð af 295 leikmönnum í 328 leikjum.
Vestmannaeyingar geta vel unað árangri sinna stúlkna í mótinu. Þær léku til úrslita í fjórum
Ilokkum af átta og stóðu uppi sem Pæjumótsmeistarar í 4. flokki A og 6. flokki B. Þessi frábæri
árangur staðfestir að ÍBV er að festa sig í sessi sem verðandi stórveldi í kvennaknattspyrnunni.
hagsmuni Eyjamanna
Á mánudaginn verður stofnað
hlutafélagið Keikur ehf. um Keikó í
Vestmannaeyjum, og verður í
meirihlutaeigu Þróunarfélags Vest-
mannaeyja. Guðjón Hjörleifsson
segir að markmið félagsins verði
meðal annars að tryggja hagsmuni
Vestmannaeyinga varðandi mál-
efni Keikós.
„Við viljum gera þetta að öflugu
fyrirtæki sem mun koma að ferða-
þjónustu. Þetta er bónus við þá ferða-
þjónustu sem fyrir er í Eyjum og er
hrein viðbót. Þetta er spuming um
hvað við náum að þjónusta af ferða-
mönnum sem koma hingað vegna
Keikós."
Það er ljóst að koma Keikós til
Vestmannaeyja mun gjörbreyta öllu
umhverfi í ferðamennsku í Vest-
mannaeyjum og menn áætla að
ferðamönnum fjölgi umtalsvert vegna
hans. Það em margir ætla sér hluta af
þeirri köku eins og búast mátti við.
Vestmannaeyingar hafa gert vel í
ferðaþjónustunni undanfarin ár, en nú
þarf að endurskoða þá þætti alla með
hliðsjón af Keikó sem hefur nú fundið
sér heimili og vamarþing í Kletts-
vfldnni. Menn binda ákveðnar vænt-
ingar við þann þátt sem snýr að
fræðslu- og upplýsingagildi hvalsins á
breiðum gmndvelli.
Ekki var hægt að fá staðfest hvort að
Free Willy Keiko samtökin yrðu
aðilar að Keik ehf. en það mál væri í
skoðun.
Sjá bls. 2 og 8.
Bílaverkstæðið BRAGGINN s/f.
RÉTTINGAR OG SPRAUTUN:
Flötum 20 - Sími 481 1535
VIÐGERÐIR OG SMURSTÖÐ:
Græðisbraut 1 - sími 4813:
I
H
Sumaráœtlun Herjólfs
Frá Eyjum: Frá Þorl.höfn:
Alla daga Kl. 08:15 Kl. 12:00
aukaferöir fimmtu- föstu- ogsunnudaga Kl. 15.30 Kl, 19.00
Yter^uipur Sími 481 2800 Fax 481 2991
Bókabúðin
Heiðarvegi 9 - Sími 481 1434