Fréttir - Eyjafréttir - 18.06.1998, Page 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 18. júní 1998
Rólegtumhelgina
oglljúní
í dagbók lögreglu síðustu viku vom
242 færslur. Er það öllu nreira en
verið hefur en stafar þó ekki að öllu
leyti af aukinni ólöghlýðni bæjar-
búa þar sem hér er um lengra tíma-
bil 'að;ræða en venjulega er miðað
við. I yfirliti blaðsins er alla jafna
miðað við vikuna frá þriðjudegi til
þriðjudags en að þessu sinni er
miðað við tímabilið frá þriðjudegi í
síðustu viku fram til dagsins í dag
eða tveimur dögum meira en
venjulega. Helgin var t.a.m. mjög
róleg, aðeins 20 færslur í dagbókina
á föstudags- og laugardagskvöld og
10 færslur voru í dagbókina aðfara-
nótt 17. júnt sem ekki þykir til-
takanlega mikið.
Hjólumogmagnara
stolið
í vikunni var tilkynnt um þjófnað á
gráu hjóli af DBS gerð en það stóð
fyrir utan Vesturveg lOb. Þá var
einnig stolið bamaþríhjóli frá
Faxastíg 15. Og loks var tilkynnt
um þjófnað á magnara úr geymslu
að Ashamri 63. Hefur magnar-
anum verið stolið seinnipart vetrar
eða nú í vor. Lögreglan óskar eftir
upplýsingum um þessi mál.
Stálu golfsetti
í síðustu viku, þegar golfleikari
einn ætlaði að fara að stunda iþrótt
sína, greip hann í tómt þegar hann
hugðist taka golfsettið úr skáp
sínum í geymslu golfskálans. Golf-
settið var horfið. Hann kærði
þjófnaðinn til lögreglu sem hafði
uppi á þjófunum. Var hér um að
ræða þrjá unga drengi sem sjálfir
stunda golf. Auk þess sem þeir
voru yfirheyrðir af íögreglu mega
þeir eiga von á að brot þeirra verði
tekin fyrir hjá stjórn og aganefnd
GV en brot af þessu tagi eru litin
mjög alvarlegum augum þar á bæ.
Brautrúðuí
samkvæmi
Þó svo að sjómannadagshelginni
hafi formlega lokið á sunnudag
voru einhverjir sem héldu þengur út
eins og gengur og gerist. A þriðju-
dag eftir sjómannadag fékk lög-
regla tilkynningu um að brotin
hefði verið rúða í húsi við As-
hamar. Sá sem rúðuna braut var
þar staddur í samkvæmi og hafði
orðið eitthvert ósætti í sam-
kvæminu. Það mál mun þó hafa
verið leyst á friðsamlegan hátt.
Stúturnúmerátta
Aðfaranótt þjóðhátíðardagsins var
ökumaður tekinn, grunaður um
ölvun við akstur og er hann sá 8. á
árinu. Þá var ungur maður á léttu
bifhjóli stöðvaður og kom í ljós að
bæði var hann réttindalaus og hjólið
óskráð. Annars voru umferðarlaga-
brot með færra móti í vikunni eða
aðeins átta.
Athugasemd
Vegna orðspors í síðustu viku þar
sem því var haldið fram að for-
ráðamenn bæjarins hefðu ekki
viljað hitta sendinefnd frá Maine
vili Bjarki Brynjarsson hjá Þróun-
arfélaginu koma því á framfæri að
aldrei hefði verið rætt við forráða-
menn bæjarins.
Keikó veröur ekki Ulraunadýr
Jeff Foster sem hefur þjálfað Keikó
lengst allra lagði mikla áherslu á
það rannsóknarstarf sem fylgdi í
kjölfarið. Hann var spurður að því
hvort Keikó ætti að verða einhvers
konar tilraunadýr og hvort það
væri ekki í andstöðu við markmið
margra dýraverndunarsamtaka?
„Það verða ekki gerðar neinar til-
raunir á Keikó, eða neitt sem orðið
gæti honum til tjóns. Það mun verða
fylgst með líkamlegri heilsu hans og
viðbrögðum hans við breyttum að-
stæðum. Þetta er einungis hugsað sem
tímabundin vistun og markmiðið að
gera Keikó kleift að synda aftur frjáls
um hafið með öðrum háhyrningum.
Að sjálfsögðu mun þetta gera
vísndamönnum kleift að fylgjast með
honum og ekki síður námsfólki, bæði
á háskóla- og grunnskólastigi. Þetta
verða frekar atferlisrannsóknir þar
sem hægt verður að sjá hvernig hann
muni pluma sig við ísland. Inni í
þessu eru rannsóknir á hvemig
háhyrningar eiga samskipti, hversu
djúpt þeir geta kafað og svo fram-
vegis. 1 þessu skyni ráðum við yfir
tækni til þess að setja á hann
kvikmyndatökuvél og fylgjast þannig
með honum og samskiptum hans við
önnur villt dýr.“
Þegar og ef Keikó verður sleppt og
framkvæmdin reynist ekki jákvæð.
Hvert verður þá framhaldið?
„Það sem gerir þetta verkefni meðal
annars spennandi er að reyna að
sleppa honum. Markmiðið er að
sleppa honum, en það er aðeins tíminn
sem leitt getur í ljós hvernig útkoman
verður. Það hefur aldrei verið reynt
áður að sleppa hval sem dvalið hefur í
svo nánum tengslum við menn í fyrri
heimkynnum. Ef þetta fer illa getum
við fylgst með honum og kannað
heilsufar hans. Það er mjög hæft
starfsfólk jafnt læknar og vísindamenn
sem hafa mikla reynslu af háhyrn-
ingum og sjá munu um að heilsufar
Keikós verði alltaf eins og best verður
ákosið."
Verður stofnað sérstakt fyrirtæki
um Keikó hér á landi?
„Ég tela að svo verði án þess að ég
þekki það svo náið. Hins vegar hefur
Free Willy sjóðurinn skuldbundið sig
til þess að gæta hagsmuna hans svo
lengi sem hann lifir hvort sem hann
verður í kvínni eða syndir frjáls um
hafið. Við viljum gjarnan sjá sem
flesta Vestmannaeyinga geta átt hlut
að þessu verkefni. Þar á ég við til
dæmis við þjálfara og annað starfsfólk
sem koma mun að málinu.“
Heyrst hafa raddir um að ef að
Keikó drepist muni það bitna á Vest-
mannaeyingum og það gæti haft
skaðleg áhrif á Eyjar. Jeff segir þetta
hins vegar óþarfa áhyggjur. „Ég held
ekki. Fólk er sæmilega upplýst og veit
að eitt sinn skal hver deyja. Keikó er
miðaldra ef svo má segja og það er
frekar styrkur að flytja hann nú á
heimaslóðir Háhyrningar geta orðið
fjörutíu til sextíu ára gamlir en Keikó
er nú um tvítugt. Það eru kannski
meiri líkur á því að hann verði í kvínni
það sem hann á eftir ólifað, en hann
gæti allt eins verið farinn eftir sex
mánuði,“ segir Jeff Foster að lokum.
Á myndinni hér að ofan má sjá stelpurnar í fótboltanum taka niður fána á Stakkagerðistúni
eftir að ákveðið var að „fresta” 17. júní vegna veðurs. Ekki mun ákveðið hvenær hann verður
haldinn en vestmannaeysk börn bíða frétta í ofvæni. Ekki mun, svo okkur sé kunnugt um,
áður hafa verið frestað að halda uppá þjóðhátíðardaginn.
Delfí umhverfisins í Eyjum:
Shellniót-Akiö
varlega
Nú um helgina verður Shellmótið í
knattspymu. Búast tná við að gestir
kringum mótið verði í kringum
2000 og má því búast við miklum
fjölda gangandi vegfarenda á
götum bæjarins. Sérstaklega er
ökumönnum bent á að fara varlega
kringum mótssvæðið. Hámarks-
hraði frá gatnamótum Hamarsvegar
og Brekkugötu að gatnamótum
Hamarsvegar og Áshamars 30
verður 30 km. Þá er þess farið á
leit við ökumenn að þeir leggi ekki
bifreiðum sínuin þannig að það
verði umferð til trafala. Því er
einnig beint til ökumanna að þeir
reyni að velja aðrar ökuleiðir en
Hamarsveg meðan á mótinu
stendur. Lögregla verður með
eftirlit á svæðinu og mun grípa til
sekta ef þörfþykir.
Leiðrétting
í frásögn af skólaslitum Barna-
skólans í síðasta blaði urðu nafna-
brengl á tveimur stöðum. Tveir
nemendur fengu viðurkenningu frá
Foreldrafélagi skólans fyrir prúð-
mennsku og misritaðist seinna
nafnið. Hið rétta er að þeir sem
viðurkenningamar fengu voru
Sindri Viðarsson og Atli Jóhanns-
son. Þá var einnig rangt farið með
fyrsta nafnið í hópi þeirra níu sem
fengu viðurkenningu fyrir ástundun
og hegðun frá skólanum. Hið rétta
nafn viðurkenningarhafans er
Andri Ólafsson. Beðist er velvirð-
ingar á þessum mistökum.
Slettu málningu
Á fimmtudag í síðustu viku
kvartaði bifreiðareigandi nokkur
yfir því við lögreglu að málningu
hefði verið slelt á bifreið hans. í
ljós kom að slettumar höfðu komið
frá vél sem hér hefur verið við
götumerkingar. Að sögn þeirra
sem sjá um merkingamar var
auðvelt að ná málningunni af með
terpentínu.
Ætlað að skynja og miðla hvers-
lags upplýsingum úr náttúrunni
Hugmyndin um DELFI umhverfíð
í Eyjum sem Þorsteinn Ingi
Sigfússon hefur mótað og kynnt í
nafni Rannsóknarseturs Vest-
mannaeyja snýst um stofnun sem
hlustar, skynjar og miðlar hvers
kyns upplýsingum frá umhverfínu.
Miðstöð slíkrar skynjunarstöðvar
yrði í Vestmannaeyjum.
„Hugmyndin um DELFI kviknar
vegna þess að sagan er lifandi og alltaf
nærtæk og markmiðið er að gera Vest-
mannaeyjar að nokkurs konar hlustun-
arstöð eða skynjara umhverfisins og til
þess að styrkja þessa hugmynd settum
við Keikó inn í þá mynd.
Þorsteinn Ingi segir að Qögur atriði
séu lögð til grundvallar þessari hug-
mynd. „Þetta verkefni verður grund-
vallað á öllum mögulegum hugmynd-
um nútíma upplýsingtækni þar sem
ekkert er undanskilið. Þar inni f
myndinni er hafið, landið og loftið
sem við öndum að okkur. 1 hnotskum
náttúran og samfélagið eins og það
leggur sig. 1 annan stað byggir hug-
myndin á nánu rannsóknasamstarfi á
aljjjóðlegum gmndvelli. Þar er hug-
myndin að gera Keikó að lifandi tákni
fyrir hlustir og augu alls heimsins. I
því sambandi verður áherslan lögð á
samskipti manna og tengsl þeirra við
umhverfið. I þriðja lagi er hugmyndin
að byggja upp ferðamannaþjónustu
þar sem DELFI umhverfið gæti orðið
nokkurs konar hlustunarmiðstöð nátt-
úmnnar í mjög víðfeðmum skilningi
og síðast en ekki síst er sýnin sú að allt
þetta umhverfi geti orðið vettvangur
komandi kynslóða um allan heim til
þess að skynja og komast í náin tengsl
við þann heim sem við lifum í. Þá á
ég við jafnt miðstöð fyrir sérfræðinga
og ungt fólk sem hefur áhuga á þeim
möguleikum sem slík miðstöð hefur
upp á að bjóða."
FRETTIR
i
Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir Jónsson.
íþróttir: Rútur Snorrason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinnæ Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-1293.
Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum Friðarhöfn. Tvistinum, Amigo, Kránni, Vöruval, Herjólfi,
Flugvallarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. í Reykjavík: hjá Esso Stóragerði og í Flugteríunni á Reykjavíkurflugvelli. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRETTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.