Fréttir - Eyjafréttir - 18.06.1998, Qupperneq 16
16
Fréttir
Fimmtudagur lS.júní 1998
form&nn*-
vísur
1956
Hér á árum áður var algengt að ortar væru
svonefndar formannavísur á vetrarvertíð.
Voru það vísur um skipstjóra á
Eyjaflotanum en þeir voru ævinlega nefndir
formenn. Skipstjóranafngiftin festist ekki í
sessi fyrr en eftir 1950. Oskar Kárason var
hvað drýgstur við að yrkja formannavísur en
fleiri munu og hafa komið að slíku.
Ævinlega voru þessar vísur ortar undir
hefðbundnum ferskeyttum hætti og öllum
bragfræðireglum fylgt í hvívetna. Upp úr
1950 leggst þessi siður svo af að mestu.
En á sjómannadag 1956 tók Ási í Bæ sig til
og orti nokkrar formannavísur. Ekki þó undir
hefðbundnum hætti heldur undir laginu um
Davy Crockett en það var þá vinsælasta
dægurlagið á Islandi. Þessar vísur voru
frumfluttar á skemmtun á sjómannadaginn og
söng Erling Ágústsson þær við undirleik
Hljómsveitar Guðjóns Pálssonar. Þetta atriði sló
virkilega í gegn enda eru vfsurnar vel ortar og
skemmtilegar eins og vænta mátti þegar skáldið
í Bæ átti í hlut.
Guðni Grímsson, vélstjóri, gaukaði þessum
vísum að okkur á dögunum og þar sem sjó-
mannadagurinn er nýgenginn er vel við hæfi að
birta þær nú.
FormAvmAvíswr
1956
Áttatíu bátar úr Eyjavör,
áttahundruð kempur í hverri för,
stundum í roki og stómm sjó,
stundum í logni og sléttum sjó.
Sjómenn, sjómenn glaðir,
súpum nú heilla skál.
Á Eyjaflotanum ei finnast þeir
sem feitari eru en Sigurgeir,
hjá Eiríki fékk liann bæði Emmu og frú,
með ágætum stýrir báðum nú.
Siggi, Siggi Vídó,
Emmu stýrir út á mið.
Hann Bjamhéðinn hefur þann burðarskrokk
sem bilar sko ekki við fyrsta sjokk
og svo á hann til að tvinna fast
að talstöðin þrisvar í sundur brast.
Bjarni, Bjarni í Happó,
Rúnu stýrir heilli í höfn.
Æðir Sæfari út á sjó,
einn stendur Siggi við kommandó.
Nú skal tú gamli gá at tí
að gott er að hafa tungan frí.
Siggi, Siggi Þórðar,
segðu nú fáein orð.
Eyfi á Bessa er eins og fýrr
alltaf á sömu miðum kyrr.
Ef að hann segir ekki orð,
allt er í lagi þar um borð
Eyfi, Eyfi á Bessa,
alltaf er karlinn eins.
Pálsson kom heim með prýðis far
sem puntaði upp á Eyjamar.
Men ute i Sverge var aldri född
önnur slík hafsins þrumurödd.
Jói, jafnan kátur,
ég skal ekki þræða þig.
Siggi á Freyjunni siglir hratt
suður að Skeri með Gústa Matt.
Hér er nú gullið, Gústi minn
sem girnist svo ákaft hugur þinn.
Siggi, Siggi á Freyju,
sá er ekkert lamb í leik.
Þar sem rúm fjörutíu ár eru síðan þessr vísur
voru ortar og þeir líklega margir, sérstaklega af
yngri kynslóðinni sem ekki kannast við
yrkisefnið, er ekki úr vegi að fara um það
nokkrum orðum til skýringar.
í fyrstu vísunni er talað um 80 báta en það
mun hafa verið sá fjöldi sem gerður var út á
vertíð þetta ár og hefur þar orðið mikil breyting
á. Algengt var að um tíu manns væru í áhöfn á
netabátum.
í annarri vísunni er kveðið um Sigurgeir
Olafsson, Sigga vídó. Siggi var formaður á
Emmu og vel í holdum á þessu tímabili. Emmu
gerði út tengdafaðir hans, Eiríkur Ögmundsson.
Bjarnhéðinn Elíasson kemur við sögu í þriðju
vísu. Hann var einn af litríkari mönnum flotans
og talaði aldrei neina tæpitungu. Hann átti til að
tvinna saman blótsyrðum og einhverju sinni
þegar talstöðin bilaði hjá honum. sögðu menn að
hún hefði ekki þolað munnsöfnuðinn.
Bjarnhéðinn var kvæntur Ingibjörgu Johnsen,
sem átti og á reyndar enn blómaverslun en þá
var nafn verslunarinnar Happó.
1 fjórðu vísu kemur Sigurður Þórðarson við
sögu. betur þekktur sem Siggi í Eyjaberg en
hann reisti það hús og rak þar lengi fiskverkun.
En 1956 var hann formaður á eigin bát, Sæfara.
Færeyskan í textanum vísar til þess að yfirleitt
var uppistaðan í áhöfn Sigga Færeyingar. Siggi
þótti líka málglaður með afbrigðum og er einnig
ýjað að því í vísunni.
Eyjólfur Gíslason frá Bessastöðum var með
Hilmi þessa vertíð. Eyfi var mjög rólegur
maður og fátt sem kom honum úr jafnvægi eins
og kemur fram f vísunni. Hann uppgötvaði
mörg af fengsælustu fiskimiðum við Eyjar og
átti sér sína uppáhaldsstaði sem hann lagði oft á
með góðum árangri.
I sjöttu vísunni er kveðið um Jóhann Pálsson,
Jóa Páls. Jói lét smíða fyrir sig skip í Svíþjóð,
Hannes lóðs. Jói hafði nokkuð hása og
sérkennilega rödd eins og kemur fram í vísunni.
Þá þótti hann nokkuð aðgangsharður á
miðunum og kunni því illa ef lagt var yfir hann
eða trossur hans þræddar.
Og í síðustu vísunni er svo fjallað um Sigurð
Sigurjónsson, Sigga á Freyjunni. en hann átti
þann bát í félagi við Fiskiðjuna, þ.á.m. Ágúst
Matthíasson, Gústa Matt. í vísunni er minnst á
gull í Súlnaskeri og er þar átt við skertollinn en
venja þeirra sem fara í Skerið var, og er enn. að
láta smápening í vörðu uppi á Skerinu. Gústi
þótti nokkuð aðsjáll í fjármálum og er ýjað að
því í vísunni.
Af þeim sem hér er kveðið um eru aðeins
tveir á lífi. þeir Sigurgeir Olafsson og Jóhann
Pálsson.
Samantekt: Sigurg. Jónsson
Myndir: Sigurg. Jónasson
Ási í Bæ
Bjarnhéðinn
Eyfi á Bessa
Siggi Þórðar
Siggi Vídó