Fréttir - Eyjafréttir - 16.07.1998, Síða 6
6
Fréttir
Fimmtudagur lö.júlí 1998
Þjóðhátíðardagskráin aldrei fjölbreyttari en í ár:
Fjölskyldan í fyrirrúmí
Margar hendur barf til að koma híóðhátfð á koppinn og nú auglýsir pjóðhátíðarnefnd eftir sjálf boðaliðum.
Undirbúningur Þjóðhátíðar í
Vestmannaeyjum er nú kominn á
fulit skrið, enda ekki seinna vænna
|jví tíminn líður hratt þessa
dagana. Að sögn Stefáns Agn-
arssonar og Sigurðar Gísla Þórar-
inssonar (Silla) gengur undirbún-
ingurinn vel og dagskrá háíðar-
innar að smella saman. „Það eru
örfáir lausir endar varðandi dag-
skránna, en þeir verða hnýttir
kyrfilega fyrir helgina.
Það er eindreginn vilji Þjóðhá-
tíðamefndar nú að gera hátíðina eins
fjölskylduvæna og mögulegt er og í
því skyni mun verða komið til móts
við fjölskyldu- og barnafólk.
„Brúðubíllinn mun verða á svæðinu
og leikhúsið 10 fingur ásamt hljórn-
sveitinni Hálft í hvoru munu sjá um
skemmtiatriði fyrir börnin og má
búast við ýmsum óvæntum uppá-
komum hjá þeim. Litlu læri-
sveinarnir munu mæta á svæðið og
boðið verður upp á fimleikasýningu
og fijálsar íþróttir. A Fjósaflöt verður
boðið upp á leiktæki sem ókeypis
verður í, en unglingar úr hand-
knattleiksdeild ÍBV munu sjá um
gæslu við tækin. Einnig verður
haldin barnasöngkeppni og mun
hljómsveitin Hálft í hvoru sjá um
hana. Það eru séra Jóna Hrönn og
Bjarni Karlsson sem munu hafa
umsjón og stjóma bamadagskránni.“
Silli vildi leggja áheslu á að
ákveðið hefði verið að aðskilja
bamadagskránna og unglingadag-
skránna síðdegis. „Barnadagskráin
var komin í óefni og við viljum reyna
að snúa þessu til betri vegar. Bömin
munu verða við Tjarnarsviðið (Litla
sviðið) frá 14:30 til 17:30, en
unglingamir við Stóra sviðið milli kl.
17:00 og 20:00 þar sem
hljómsveitirnar D-7, Knox, írafár,
Johny on the north pole, Klón,
Buttrcupp, Extra, OSL og Bara buii
Reynir munu skemmta. Annað sem
er liður í því að fá fjölskyldufólkið
meira á Þjóðhátíð er að bjóða því upp
á tjaldstæði við Þórsheimilið og
bjóða helmingi lægra verð fyrir
unglinga á aldrinum 14 - 15 ára sem
ætti að verða viðráðanlegra fyrir
fjölskyldufólk, en ekkert kostar inn
fyrir börn og unglinga innan 14 ára.
Einnig er í farvatninu að hafa
grillveislu fyrir krakkana á sunnu-
deginum.“
Þeir félagar segja að kvöld-
dagskráin hafi aldrei verið eins
fjölbreytt og vönduð og nú muni
verða. Það verði alltaf boðið upp á
eitthvað nýtt á hverju kvöldi. „A
Stóra palli munu Stuðmenn leika öll
kvöld, en á móti þeim munu
hljómsveitirnar 8-Villt. A móti sól og
Land og synir leika eitt kvöld hver.
Einnig munu skemmtikraftarnir Páll
Óskar og Cassinó, Bubbi Mortens,
Bergþór Pálsson, Söngsystur, Helgi
og Hermann Ingi, Óli Bach og Einar
Klink koma fram. Á Litla palli mun
Geirmundur Valtýsson sjá um fjörið
öll kvöld.“
Hefðbundnir liðir munu einnig
verða á sínunt stað. Þar má helsta
nefna Brennuna á Fjósakletti, flug-
eldasýningu á laugardeginum sem
ekki mun eiga sinn líka í sögu
Þjóðhátíðar þar sem fullt af nýjurn
flugeldum verður skotið á loft.
Brekkusöngur verður á sínum stað og
tendrað í 124 blysum á miðnætti á
sunnudag, þar sent hvert blys stendur
fyrir hvert ár sem hátíðin hefur verið
haldin.
Flottasta og öflugasta hljóðkerfi í
sögu Þjóðhátíðar mun skila tónlist-
inni um Dalinn, en kerfið er 21.000
Wött. Mikil og stórfengleg ljósa-
veisla mun verða í gangi sem
stjómað er með róbótum. Hægt er að
varpa myndum og ljósgeislum í
Brekkuna og til fjalla, auk þess sem
hægt er að skapa ýmsa stemmningu
með reykkerfi.
Alla dagana mun verða neyðar- og
læknisþjónusta fyrir Þjóðhá-tíðargesti
undir stjórn (jögurra sérþjálfaðra
aðila. „Jóna Hrönn mun hafa yfir
umsjón með neyðarmóttöku vegna
nauðgana, en hún hefur unnið mikið
og öflugt starf til þess að upplýsa fólk
um mikilvægi slíkrar neyðarhjálpar
auk forvamarstarfa. Hún á heiðurinn
af því að koma þessari þjónustu á
laggimar og vill Þjóðhátíðamefnd
þakka henni sérstaklega fyrir það
mikla og óeigingjama starf. Læknir
mun og verða á vakt í Dalnum alla
daga hátíðarinnar."
Það mun verða öflug löggæsla á
svæðinu. „Björgunarfélagið og lög-
regla munu taka höndum saman við
gæsluna og mun hún verða jafn öflug
og undanfarin ár. Átján lögreglu-
menn munu koma ofan af landi til
aðstoðar þeim sem fyrir em, auk þess
sem tveir óeinkennisklæddir lög-
reglumenn frá fíkniefnadeild munu
verða á svæðinu."
Þeir Þjóðhátíðamefndarfélagar
segja að mikið hafi verið spurt um
pakkaferðir á hátíðina. „Fyrirspurnir
fóru strax að berast í júní og hefur
slíkt aldrei gerst fyrr að fyrrispurnir
um pakkaferðir hefjist svo snemma.“
Inni í pakkaferðunum er miði á
Þjóðhátíð og ferðir fram og til baka.
Verðin sem hér fara á eftir miðast við
Reykjavík-Vestmannaeyjar-
Reykjavík, nema hjá Flugfélagi
Vestmannaeyja sem flýgur á Selfoss
og Bakka. Hjá Ferðaskrifstofu BSl
er verðið 9.900 kr., hjá íslandsflugi er
verðið 12.900 kr„ hjá Flugfélagi
íslands 12.630 kr. og Bakkaflug með
Flugfélagi VestmannaeyjaWal And-
ersen kostar 10.000 kr. og frá Selfossi
13.000 kr.“
Eins og áður segir er ókeypis á
Þjóðhátíð fyrir börn og unglinga
innan 14 ára. Unglingar 14 -15 ára
greiða 3.500 kr. Þeir sem eru 16 ára
og eldri greiða 6.500 kr. í forsölu, en
annars kostar miðinn 7000 kr.
Forsala miða á þjóðhátíðina hefst 20.
júlí og lýkur 27. júlí. Forsala að-
göngumiða verður eingöngu í
Sparisjóði Vestmannaeyja.
Sigiún Inga stöðvarsUóri
Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir bæjarfulltrúi (D) mun
taka við starfi stöðvarstjóra Islandspósts í Vest-
mannaeyjum. Gert er ráð fyrir að hún liefji störf um
næstu mánaðamót. Sigrún segir að hún hafi verið hvött
til að sækja um starfið og lekk það, en Sigurður J.
Jónsson fráfarandi stöðvarstjóri mun verða
stöðvarstjóri Islandspósts í Mosfellsbæ.
Sigrún segir að þótt hún sé nú bæjarfulltrúi þá muni það
ekki raska störfum hennar hjá Islandspósti. „Ég gat þess í
umsókn minn að ég væri bæjarfulltrúi og sæti í ýmsum
nefndum á vegum bæjarins, svo þetta er í fullu samráði við
mína yfirmenn. Það hefur áður verið stöðvarstjóri sem
jafnframt hefur verið í bæjarpólitíkinni hér í Eyjum. Þetta
er allt spuming um að skipuleggja tíma sinn,“ segir Sigrún
að lokum.
Austfirðingar í fýlu út afKeikó:
Fólk varað vlð
aðfaraáball
með Pöpunum
-sem í auglýsingu voru sagðir frá hinum
samviskulausu Vestmannaeyjum
Austfirðingar og sérflagi Eskfirð-
ingar eiga erfitt með að sætta sig við
að Keikó eigi að fara til Eyja. Hefur
þetta m.a. komið fram í héraðs-
fréttablöðum og viðtölum við
málsmetandi menn. Hefur málið
tekið á sig furöulegustu myndir, þar
sem m.a. Árni Johnsen hefur fengið
það óþvegið.
Hin ágæta hljómsveit Papar, sem
upprunnin er í Vestmannaeyjum, fékk
heldur betur að kenna á þessum
kenjum Austfirðinganna um síðustu
helgi þegar þeir urðu að aflýsa
dansleik á Eskifirði. Ástæðan var sú
að sannir Eskfírðingar voru í
auglýsingu varaðir við að mæta á
dansleik hjá þessum voðamönnum
sem ásamt öðrum Eyjamönnum höfðu
vélað fulltrúa Free Willie Keikó-
sjóðsins til að snúa baki við Eskifirði.
Georg Olafsson einn Papanna segir
að þetta hafi verið hin furðlegasta
uppákoma. „Við áttum að spila í
Valhöll á Eskifirði en á Egilsstöðum
voru Greifamir með ball í Valaskjálf,“
sagði Georg og neitaði því ekki að
þeir hefðu búist við ýmsu í ljósi
umræðunnar um Keikó.
„En við höfðum lúmskt gaman af
þangað til við sáum auglýsingu f
dagskrárblaði sem dreift er um allt
Austurland. Þá kom í ljós að við
vorum svo sannarlega í Keikó-
pakkanum og þetta hafði áhrif. Við
höfum alltaf verið með fín böll á
Eskifirði en nú brá svo við að aðeins
tíu til fimmtán manns komu á ballið.
Þannig að við vorum algjörlega
sniðgcngnir."
Þeir félagar sáu sæng sína útbreidda
og pökkuðu saman og aflýstu ballinu.
„Það kom í ljós að allt var þetta
aðkomufólk og það sama gilti um
tvær eða þrjár hræður sem komu eftir
að vorum búnir að pakka saman."
Georg segir að þeim hafi ekki
Kæru Eskfirðíngar
- flustlirðingar
Nú verða Paparnir
ENN EINA FERÐINA
á Eskifirði.
En eins og allir vita eru þeir
úr hinum samviskulausu
Vestmannaeyjum.
'ffuýWHt bÖlibétt
ALLIR Á GREIFANA!!!
S.U.S.S.E.
Auglýsingin birtlst í dagskrárblaði
sem dreift er um allt Austurland.
fundist taka því að svekkja sig á
þessu. „Það var miklu frekar að okkur
þætti þetta fyndið og höfum skemmt
okkur yfir þessu síðan. Söngvarinn
okkar brá sér á ballið með Greifunum
en við nutum góðs af Guinnes bjór
sem Víðir í Valhöll lét okkur hafa.
Víðir hefur reynst okkur vel þannig að
við gáfum eftir launin okkar en hann
situr uppi með kostnaðinn."
En Papamir láta þetta ekki á sig fá og
er diskur væntanlegur frá þeim sem
Spor pantaði. „Þetta er útilegu-
rútubílafyllirísplata sem Spor hefur
gefið það ófmmlega nafn, Undir
tjaldhimni. Margir þekktir söngvarar
koma fram með okkur, t.d. Hermann
Ingi og Eyjólfur Kristjánsson og þama
er líka þjóðhátíðarsyrpa,“ sagði Georg
að lokum.
Sýningu Jóhönnu lýkur um helgina
Myndlistarsýning Jóhönnu Bogadóttur sem staðið hefur yfir síðan 4. júní mun
ljúka næstkomandi sunnudag. Rétt er að ítreka við fólk að láta ekki þessa
sýningu framhjá sér fara. Sýningin er í húsi Listaskólans við Vesturveg og er
opinnfrákl. 15:00 til 18:00
Barceloha - Benidorm - Costa del Sol - Heimsferðir, umboð í Eyium - Straumur s. 481-1119
o