Fréttir - Eyjafréttir

Eksemplar

Fréttir - Eyjafréttir - 16.07.1998, Side 16

Fréttir - Eyjafréttir - 16.07.1998, Side 16
Frétta-og auglýsingasími: 481-3310 * Fax 481-1293 Vel heppnaður Sparisjóðsdagur Sendibílaakstur innanbæjar. Vilhjálmur Bergsteinsson smmeAmtm *481-2943, * 897-1178 Lifsins bjargræfli á Heimaey í tilefni af 30 ára afmæli vatnsleiðslunnar milli lands og Eyja mun verða opið hús hjá Bæjarveitum Vestmannaeyja á sunnudaginn 19. júlí nk. kl. 13:00 -16:00. Þar gefst Vestmannaeyingum gott tækifæri til þess að kynna sér starfsemi Vatnsveitunnar í máli og myndum og ekki síst sögu lagn- ingar leiðslunnar frá lindinni tæru í landi Syðstu-Markar undir Eyja- fjöllum yfir fúamýrar og svarta eyðisanda Landeyja, úfínn og mismildann álinn milli lands og Eyja, þar til landi er náð í mannlífsvininni sem Heimaey er. Er hér skorað á Vestmannaeyinga og gesti að kynna sér þetta bjargræðismál Vestmannaeyja og þiggja léttar veitingar í leiðinni. Sérfræðingar á vegum flughers Bandaríkanna hafa verið í Vestmannaeyjum undanfarna daga við rannsóknir á flug- brautinni. Þeir eru aðallega að kanna ör- yggisþætti sem þurfa að vera í lagi við lendingu flugvélarinnar sem ferja mun Keikó yfir Atlansála. Meðal þeirra þátta er burðargeta flugvallarins. Sérfræðingar þessir hafa verið við kjamaborun á flugvellinum og kannað malbiks- lagið, en engar niðurstöður hafa litið dagsins ljós enn þá. Það er Jim Kurvis sem hefur umsjón með þessum rannsóknum. Þessir menn munu síðan gera tillögur sem lagðar verða fyrir Pentagon sem tekur endanlega ákvörðun um það hvort flug- völlurinn standist kröfur. Furðudýr sjávarins Hugvöllurinn kannaður Frón matarkex................ Frón súkkulaði Marie kex Lilian Fourré kex 300 gr. . Choco Cookies kex............. Sælusnúðar Kexsmiðjan... Kanelsnúðar Kexsmiðjan. Verð nú áður 149,- 117,- "TSV 99,- 149,- ~194^. , 198,- '266* , 189,- "254yA. Síðastliðinn laugardag var útivistardagur Sparisjóðs Vestmannaeyja haldinn í blíðskaparveðri og fjöl- menni í göngugötunni Bárustíg. Margt stóð gestum til boða þennan dag. Má þar nefna krakkahlaup í fjórurn aldurshópum, gönguferð undir leiðsögn Arnars Sigur- mundssonar, þar sem rifjuð var upp saga nokkurra húsa. Einnig var hægt að taka þátt í knattspyrnuþrautum sem peyjar út ÍBV stjórnuðu. Að lokum var öllu santan rennt niður í mikilli grillveislu í boði Sparisjóðs Vestmannaeyja og hiðu börnin í ofvæni eins og hér sést. VÍK FLUTNINGAR- VESTMANNAEYJUM HulajUM laaltLl |u>g| Jm Ifffáfl MM MgNfariwwnvvnoiuiiufMiört Vöruafgreiðsla SkHdlngavogl 4 Sínl 481 3440 Vöruafgreiðsla ■ Reykjavik JUkriflufnlagar Höðlnsgötu X Sánl 581 8030 í heimsókn í blíðunnl Á þriðjudaginn þegar menn voru við vinnu við höfnina fyrir neðan FES-ið sáu þeir torkennilegar lífverur í sjónum í miklu magni. Amgrímur Magnússon, starfsmaður Bæjarveitna, náði nokkrum eintökum og kom með upp á Fiska- og nátt- úrugripasafn til frekari greiningar. Hafsteinn Guðfmnsson sjávarlíffræð- ingur segir þetta seildýr sem eru mjög frumstæð dýr. „Þetta er svokölluð salpategund, en mér hefur ekki tekist að greina hana nánar sökum anna. Þessi dýr eru tígullaga og mynda keðjur sem geta orðið 50 - 80 sm að lengd. Þau æxlast með kynlausri æxlun og geta haldið sér án þess að reka mikið.“ Hafsteinn segir að hann hafi fundið þessi dýr austur í Brimurð í síðustu viku en annars hafi hann aldrei séð þessi dýr við Eyjar áður. Um veru þeirra hér sagðist hann ekki geta sagt neitt, en hugsanlega væm þau áberandi nú vegna góðrar tíðar. Kristján Egilsson forstöðumaður Fiska- og náttúrugripasafnsins segir að hann hafi sett nokkra samhangandi einstaklinga í fötu hjá sér og ekki annað að sjá en að þeir uni vistinni bærilega. Kristján Egilsson kannar kvikindíð. sem erseildýrsemerumjög frumstæðdýr.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.