Fréttir - Eyjafréttir - 15.10.1998, Blaðsíða 4
£
Fréttir
Fimmtudagur 15. október 1998
Xá ífufa t'i/£ <)(j jd&ajtifajL
Sælkeri síðustu
viku, Muggur, skor-
aði á Marinó Medos,
vert á veitinga-
staðnum Lanternu að
takavið.
„Eg þakka vini
mínum Mugg fyrir
hrósið en ég hugsa að flestir verði fyrir
vonbrigðum þar sem ég ætla að koma
með uppskrift með hráefni sem að öllu
jöfnu er hent hérlendis en notað í
Slóveníu. Þetta eru tvær mjög auðveldar
uppskriftir, forréttur og aðalréttur.
Kálfaheili með eggi:
200 g kálfaheili (má nota lambaheila)
2 stk. egg
smjörklípa
salt, hvítur pipar
Smjörið brætt á pönnu. Vel hreinsaður
heilinn settur út í smjörið þegar það er vel
heitt, steiktur í nokkrar mínútur og hrært í
á meðan. Eggin sett út í og krydduð.
0 r ð s
- Það fannst mörgum Eyjamanninum
svolítið skondið að sjá og heyra fulltrúa
Samvinnuferða kvarta yfir því í
sjónvarpinu að hann græddi ekkert á
Keikó, því eins og altalað er hér í Eyjum
hafa Samvinnuferðir liklega haft hæstu
álagninguna af þeim sem nálægt Keikó
hafa komið. Tölurnar sem nefndar eru
á götuhornum eru þvilíkar að það er
ekki prenthæft. Ferðaþjónustuaðilar
hvísla um þetta og hella úr eyrunum en
fæstir þora að ræða málið upphátt.
- Menn bölva í hljóði yfir að
þjóðvegurinn skuli enn þurfa að
skjótast til Skandinavíu í klössun. Við
fáum reyndar gamlan slóða lánaðan að
vestan en ekki fyrr en eftir nokkra daga
og á meðan er vegurinn okkar lokaður
allri umferð. Þetta er auðvitað sjálfsagt
mál og auðvitað mundi vegagerðin
bara loka Elliðaárbrekkunni í nokkra
daga ef þyrfti að gera við hana og biðja
Gætið þess að ofsteikja ekki eggin.
Kálfaskanki með rósinkáli:
2 kálfaskankar
salt, pipar
rósmarín
ólívuolía
rósinkál
niðurskomar kartöflur
Smyrjið skankann með olíu og
kryddið. Best er að geyma hann þannig í
kæli í 24 tíma.
Setjið í ofnpott með smávegis af olíu
og vatni. Steikið í 1 1/2 klst. við 180°.
Eftir um hálftíma steikingu eru kart-
öflumar settar með í pottinn og þá búið að
krydda þær. Rósinkálið er sett í pottinn
þegar hálftími er eftir af steikingartíma.
Munið að hræra í káli og kartöflum.
Eg ætla að skora á vin minn Relja á
Kirkjuhól. Hann kemur kannski með
einhvem óvenjulegan rétt eða rétti frá
sínu landi."
p o r
menn bara að vera ekki með neina
móðursýki, þetta sé eðlilegt viðhald og
ekkert þýði að láta svona. Eða er það
ekki?
- Það kemur fólki svolítið spánskt fyrir
sjónir að lesa það itrekað í blöðum og
heyra á Ijósvakamiðlunum að sífellt
fækki íbúum í Vestmanneyjum.
íbúðum og húsum fækkar nefnilega á
söluskrám fasteignasala, ekki mun
verað óvenjulega mikið framboð á
leiguhúsnæði, og jafnvel minna en oft
áður, en samt eiga að vera farin um
300 manns síðastliðin 4 ár. Þvílikur
fjöldi hlýtur að hafa búið einhvers
staðar í u.þ..b. 75 íbúðum sem þá
væntanlega eru á sölu eða bíða þess
að einhverjum hugnist að leigja þær
en enginn kemur auga á þær hvorki á
fasteignasölum, né í húsnæðis-
auglýsingum fjölmiðla í Eyjum.
Marinó Medos er sælkeri
þessarar viku
HUSEY
HÚSEY
BYGGINGAVÖRUVERSLUN
VESTMANNAEYINGA
m AÐ rMAI ÁLStY
Herjólfur fer ísína síðustu áætlunarferð að sinni á
miðvikudaginn kemuren þann sama dag leggurskipið upp til
Danmerkur vegna viðhalds og viðgerða og kemur ekki inn í
áætlun að nýju fyrr en eftirþrjár vikur a.m.k. Bryti um borð í
Herjólfi erKári Vigfússon og mun hann að sjálfsögðu sigla
með skipinu út. Kári er Eyjamaður vikunnar að þessu sinni.
Fullt nafn? Kári Vigfússon.
Fæðingardagur og ár? 3. ágúst 1961.
Fæðingarstaður? Vestmannaeyjar.
Fjölskylduhagir? Lifi í synd með Þorkötlu Ólafsdóttur og við
eigum tvær dætur, Söru Ósk og Evu Maríu.
Menntun og starf? Matreiðslumaður og bryti á Herjólfi.
Laun? Sæmileg en gætu þó verið betri (heyrirðu það
Maggi).
Helsti galli? Get aldrei sagt nei.
Helsti kostur? Segialltafjá.
Uppáhaldsmatur? Sjávarréttasúpa Gríms
stjórnarformanns á Herjólfi.
Versti matur? Skatan er hræðileg.
Uppáhaldsdrykkur? íslenskt vatn er ágætt en konfak er
betra.
Uppáhaldstónlist? Lúðrasveitartónlist þar sem Frilli bro
spilar á trommur.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Ekki
prenthæft! En það er líka gaman að vera í góðra vina hópi.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir? Ef ég geri aldrei
það skemmtilegasta.
Hvað myndirðu gera ef þú ynnir milljón í happdrætti?
Borga skuldir.
Uppáhaldsstjórnmálamaður? Helgi Bragason,
varabæjarfulltrúi.
Uppáhaldsíþróttamaður? Súpermódel 61, Sigmar Þröstur
Óskarsson.
Ertu meðlimur í einhverjum féjagsskap? Ég er í
Akóges, handknattleiksráði mfl. ÍBV og Golfklúbbi
Vestmannaeyja.
Uppáhaldssjónvarpsefni? Fréttatengt efni og íþróttirog
svo er Geimstöðin á sunnudögum líka góð.
Uppáhaldsbók? Skræpótti fuglinn eftir Jerzy Kozinski.
Hvað metur þú mest í fari annarra? Heiðarleika.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Fals.
Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Ég á eftir að
fara í Álsey.
Er Herjólfur góður vinnustaður? Já, þegar ekki er verkfall.
Hvað ætlar þú að hafa fyrir stafni úti í Danmörku? Mála
bíladekkið á Herjólfi og kannski kíki ég í Tívolíið. Er það
kannski lokað? Þá fæ ég mér bara einn Grön í staðinn.
Tekurðu fjölskylduna með? Nei, ekki í þetta sinn en ég er
með langan innkaupalista.
Hvað dettur þér í hug þegar þú heyrir þessi orð?
Réttur dagsins? Góður matur og mikið af
honum.
Herjólfur? Fúsi stýrimaður að biðja
v um hamborgara.
Danmörk? Rabbi Rafns,
fyrrverandi þyrnir á Herjólfi.
Eitthvað að lokum? Ég vona
að það verði flug allan tímann
sem Herjólfur verður í slipp
\ svo að ekki grípi um sig
móðursýkiskast í
Eyjum.
Drengur Þann 10. ágúst eignuðust Dísa Kjartansdóttir og Ómar Steinsson
son. Hann vó 101/2 mörk og var 49 sm að lengd. Hann hefur verið
nefndur Breki. Ljósmóðir var Drífa Björnsdóttir.
Drengur Þann 7. september eignuðust Gunnhildur Jónasdóttir og _
Sigurjón Pálsson son. Hann vó 141/2 mörk og var 52 sm að lengd. A
myndinni með litla bróður eru fv. Sigurjón Gauti, Erna Dögg og Tanja
Björg. Ljósmóðir var Guðný Bjarnadóttir.
Stúlka Þann 22. september eignuðust Hulda Björk Stefánsdóttir og Björn
Hlíðar Hallbergsson dóttur. Hún vó 18 merkur og var 56 sm að lengd.
Hún hefur verið skírð Þuyitur Birna. Fjölskyldan er búsett í Keflavík.
cLaílLnnl
15. -17. okt. Peruscila Lions
17. - 31. okt. Eyjakvöld d Fjörunni
17. okt. Gönguferð jjölskyldunnar
19. október Aðalfundur sjálfst.kv.fél. Eyglóar
4. nóvember Herjólfur kemur afturfrá Danmörku