Fréttir - Eyjafréttir - 15.10.1998, Síða 9
Fimmtudagur 15. október 1998
Fréttir
9
Námskeið um örnefni í
Vestmannaeyjum og sögu Eyjanna
Eins og sl vetur mun Skólaskrif-
stofa Vestmannaeyja gangast fyrir
námskeiði þar sem fjallað verður um
sögu Vestmannaeyja og tengsl hennar
við ömefni Eyjanna. Ólafur Týr
Guðjónsson, framhaldsskólakennari
mun sem fyrr annast kennsluna á
námskeiðinu og umsjón með því. í
hverri kennslustund er ætlunin að taka
fyrir ákveðið viðfangsefni, sem tengist
mannlífinu í Eyjum fyrr á tímum og
fjalla um það í sem víðustu samhengi.
Arnór
bakari
og
Vöruval
bjóða til
Skóla-
bakarís
Sunnudaginn 18. október hefst
kynningarátak í bakaríum um
land allt sem fengið hefur
nafnið Skólabakarí. Atakið er
á vegum Landssambands
1 bakarameistara og Samtaka
iðnaðarins. í Vestmannaeyjum
verða það Vöruval og Arnór
bakari sem taka þátt í
verkefninu.
Samhliða kynningu á hollu
skólanesti hafa bakarameist-
j arar sameinast um útgáfu á 50
króna brauðpeningi sem gildir
sem afsláttur á þeirri vöru sem
j bakaríin kynna að þessu
tilefni. Brauðpeningar þessir
munu fylgja næstu
sunudagsútgáfu
Morgunblaðsins og munu
verða fáanlegir í Vöruvali í
Vestmannaeyjum þegar átakið
hefst. Andvirði útgefínna
brauðpeninga er um 60
milljónir og koma til með að
fást í viðkomandi
Skólabakaríum.
Brauðpeningar eiga sér langa
sögu á Islandi eða allt frá
síðustu aldamótum til ársins
1930. A þeim tíma tóku
| bakarar við mjölsekkjum og
aflientu brauðpeninga á móti.
Einn brauðpeningur gilti þá til
kaupa á einu brauði og verður
svipuð regla viðhöfð í tengslum
við þetta átak.
Ymsir fróðleiksmolar um
brauð og bakarastéttina eru á
bakhlið peningsins og verður
viðskiptavinum boðið að taka
! þátt í léttuin verðlaunaleik.
Dregið verður úr innkonmum
brauðpeningum í beinni
útsendingu á Bvlgjunni og
hljóta fímmtíu heppnir
nemendur veglega vinninga
frá Skátabúðinni,
Mjólkusamsölunni, Sól-
Víkingi og bakarameisturum.
(Fréttatilkynning)
Nokkur verkefnavinna er fyrirhuguð,
en fyrst og fremst er ætlast til opinna
umræðna og skoðanaskipta
Að þessu sinni verður bryddað upp
á þeirri nýlundu að bjóða upp á
framhaldsnámskeið, þar sem reynt
verður að kafa dýpra í afmarkaða
þætti sögunnar eða tiltekinna flokka
ömefna, allt eftir áhuga þátttakenda.
Nauðsynlegt er að þátttakendur á
framhaldsnámskeiðinu hafi lokið
gmnnnámskeiði frá því í fyrravetur
eða hafi til að bera haldgóða almenna
þekkingu á sögu eyjanna.
Námskeiðin hefjast í lok október og
verður kennt í Bamaskólanum, eitt
kvöld í viku á hvom námskeiðinu, 2
klst. í senn, í 6 vikur og er gert ráð
fyrir því að þeim ljúki í byrjun
desember. Að öðm leyti er vísað til
auglýsingar á blaðsíðu 7 í blaðinu í
dag.
Herjólfur í slipp til Danmerkur
Fagranesið kemur
á mánudag
Nú er Herjólfur farinn í slipp til
Danmerkur og var síðasta áætlunar-
ferð hans, milli Vestmannaeyja og
Þorlákshafnar, á þriðjudaginn var.
Áætlað er að skipið komi aftur til
Vestmannaeyja föstudaginn 6. nóv-
ember og fari í áætlun laugardaginn 7.
nóvember n.k.
Á meðan Herjólfur er frá mun m/s
Fagranes sigla milli lands og Eyja
þannig þó, að fyrsta áætlunarferð
skipsins verður frá Vestmannaeyjum
mánudaginn 19. október kl. 8.15 og
frá Þorlákshöfn kl. 13.00 og síðasta
áætlunarferðin verður miðvikudaginn
4. nóvember.
Athugið að áætlun
Fagranessins er þessi:
Alla daga vikunnar frá
Vestmannaeyjum kl. 8.15
og frá Þorlákshöfn kl. 13.00.
Það em vinsamleg tilmæli okkar
hjá Herjólfi að viðskiptavinir hafi
samband við skrifstofuna og leiti
frekari upplýsinga, sérstaklega með
tilliti til þess að mjög er takmarkað
pláss fyrir bíla og að í Fagranesinu eru
engar kojur.
Það er von okkar að þessi tilhögun
komi sem minnst að sök og að allir
taki tillit til þess að hér er um
tímabundna ráðstöfun að ræða og að
verið er að reyna að leysa málið eins
vel og kostur er.
LESENDABRÉF - Saumaklúbburinn 4ever
Kvöld ársins
Lady's night
Þar sem lítið hefur verið að gera í
skemmtanalífmu í Vestmannaeyjum
undanfarið hugsuðum við okkur gott
til glóðarinnar þegar við í Sauma-
klúbbnum 4ever sáum auglýsingu
um Lady's night á Lundanum. Við
ákváðum að fara og „sletta úr
klaufunum“. Húsið var opnað klukk-
an átta og við komum um hálf níu.
Tekið var vel á móti okkur og öll
umgjörð var mjög góð. Dagskráin
átti að byrja klukkan níu en fólk lét
bíða eftir sér og því var ekki hægt að
byrja fyrr en en hálf tíu. (Gamla
lagið á því).
Tískusýningin frá Smart gekk vel.
Síðan kom á sviðið eftirherma en
það voru allar spenntar að sjá fata-
felluna. Þetta var nú Lady's night. Þá
loksins tilkynnir eftirherman að
fatafellumar séu þrjár og séu í miklu
stuði og með hann beinst.... Koma
þá ekki fram á gólfið þrír ungir
strákar frá Vestmannaeyjum. Við, á
mínu borði, héldum að þetta væri
grín og fórum að hlæja og klappa.
En viti menn, þetta voru fata-
fellurnar, bróðir vinkonu minnar,
sonur bakarameistarans og ég gat
ekki betur séð en einn væri skóla-
bróðir minn. Það var eins og við
hefðum fengið einn á kjaftinn.
Aldrei höfum við verið niðurlægðar
á þennan óskemmtilega hátt fyrr. Á
meðan „sýningin" var í gangi stóð
karlpeningurinn (starfsfólkið) á bak
við barinn og hló og virtist skemmta
sér konunglega.
Það er ekkert við „fatafellumar“
að sakast, þeir stóðu sig vel en áttu
bara ekki heima á Lady's night. Við
fréttum það eftir sýninguna að
fatafellan sem átti að koma og
skemmta hefði ekki látið sjá sig. Það
hefði átt að tilkynna það fyrir sýn-
inguna því þá hefðum við vitað
hverju við áttum von á en það var
ekki gert.
Við í Saumaklúbbnum 4ever
höfðum það á tilfinningunni að það
væri verið að gera grín að kvenfólki.
Og við vomm ekki einar um það.
F.h. Saumaklúbbsins 4ever,
Jóna Jósepsdóttir.
Eyja
taxi
Nýtt símanúmer
698 2038
(Aams(ccið í
fconfektíieré
»•••••• • • • • • • • •
Halldór Kr. Sigurðsson konditor og bakari
œtlar að vera með kennslu í
danskri konfektgerð
fimmtudaginn 12. nóvember nk.
í Snótarhúsinu.
Þetta er konfekt sem aldrei fyrr
hefur sést á Islandi.
Allt hráefni er innifalið.
Námskeiðið tekur 2 klst.
og kostar 1500 kr. pr. mann.
Námskeiðin verðakl. 16.00,18.15, og 20.30.
Tilvalið fyrir félög og önnur samtök kvenna.
Efnœg þátttaka fœst lœkkar verðið.
Nánari upplýsingar og pantani
hjá Svövu ísíma 4813454
Tölvunámskeið
Innritun er hafín á haustnámskeið
Tölvuskóla Vestmannaeyja.
48 tíma grunnnámskeið
þar sem kennt verður eftirfarandi:
Windows 95
Word 97
Excel 97
Internetið
Kennt er í Athafnaverinu í Vöruhúsinu og hefst
námskeiðið laugardaginn 17. október.
Nánari upplýsingar fást hjá Tölvun í síma 4811122
Skyndihjálp
Rauðakrossdeild Vestmannaeyja gengst fyrir
skyndihjálpamámskeiði fyrir 15 ára og eldri. Námskeiðið er
16 kennslustundir og hefst þriðjudaginn 20. október í
Amardrangi við Hilmisgötu. Námskeiðið stendur yfir í 4
þriðjudaga frá kl. 20 - 23. Námskeiðsgjald er 4000 krónur fyrir
almenning og 2000 krónur fyrir skólafólk. Þátttakendur fá
skírteini um að þeir hafi lokið námskeiðinu sem gildir sem 1
eining í framhaldsskóla. Leiðbeinendur eru
hjúkrunarfræðingamir Lóa Skarphéðinsdóttir og Guðný
Bogadóttir. Nánari upplýsingar og skráning í síma 481 2044
(Lóa) og 481 3028 (Guðný)
Upprifjunamámskeið
Boðið er á upprifjunamámskeið fyrir þá sem hafa
skyndihjálparskírteini sem era eldri en tveggja ára. Á
upprifjunamámskeiði er farið í grandvallarreglur, endurlífgun
o.ll. Þeir sem hafa áhuga láti skrá sig í næstu viku í síma 481
2044 (Lóa) og 481 3028 (Guðný).
Rauðakrossdeildin í Vestmannaeyjum