Fréttir - Eyjafréttir - 15.10.1998, Síða 10
10
Fréttir
Fimmtudagur 15. október 1998
Vestmannaeyjar í augum gestanna að vestan
N áttúruöflin kippa i
-Starfsmenn Keikósjóðsins, afbrotafræðingurinn Andy Mcrea og jarðfræðingurinn Greg
Andy Mcrea:
Hamingja er bara orð í orðabók
Andy Mcrea er Bandaríkjamaður
og einn Ijölmargra sem unnið hafa
að komu Keikó til Islands. Hann
hefur verið í Eyjum síðastliðnar 12
vikur og komið að flestum þáttum
sem varða Keikó og dvöl hans í
Klettsvíkinni. En lífið snýst þó um
fleira en Keikó út af fyrir sig og
þess vegna var ákveðið að taka
púlsinn á þeim bandarísku
starfsmönnum sem hafa dvalið í
Eyjum í sumar og niunu koma til
með að starfa áfram í Eyjum í
kringum háhyrninginn.
Andy segist hafa verið á Islandi
frá 19. júní til 25. júlí og missti þess
vegna af Þjóðhátíð, eins og hann
orðar það. Hann kom svo aftur
tveimur vikum fyrir komu Keikó
til Islands og hefur verið hér síðan.
Andy fer svo í frí 1. nóvember, en
kemur aftur í desember. Þegar þú
lítur til baka Andy, hvernig er
þetta ævintýri í minningunni?
„Þetta verkefni hefur að sjálfsögðu
verið ótrúlegt og reynslan ekki síðri.
Bara að ferðast til ókunnugs lands og
kynnast nýjum siðum og menningu
hefur verið mik.il reynsla. Eg hef ekki
ferðast mikið sjálfur um heiminn, en
ég hef þó komið til Ítalíu, Hawaii og
Mexico, en einungis í fríum. En að
koma hingað til Eyja og vinna að
þessu verkefni á sér enga hliðstæðu í
lífi mínu. En fram að þessu hefur
þetta verið stórkostlegt."
Andy segir að hann hafi eignast
marga vini í Eyjum þó að flestir þeirra
tengist störfum hans. „Það eru
kannski ekki mikil kynni af hinum
almenna Eyjamanni, en þó hef ég
eignast nokkra vini þar líka. Hins
vegar hefur það verið erfitt á stundum
að vera tjarri vinum og ættingjum í
Bandaríkjunum."
Eiginkona Andys er einn af þjálf-
urum Keikós, en hún er í Banda-
ríkjunum þegar þetta spjall fer fram.
Andy segir að í upphafi hafi verið
ákveðið að þau myndu vinna saman,
en ákveðin upplausn hafi verið komin
í hjónabandið, og reyndar áður en þau
komu til íslands svo að þau ákváðu að
vera á sitt hvorum tímanum hér á
landi. „En við erum að vinna í okkar
málum eins og þar stendur. Ég vil
samt ekki segja að Keikóverkefnið
hafi valdið skilnaði okkar, vegna þess
að þetta hafði legið í loftinu áður.. En
ég veit ekki hvort við eigum að ræða
þetta frekar, en þetta er hluti af
mannlífinu og það sem maður er að
kljást við hér í Eyjum. En varðandi
vinnu rnína þá er hún í góðu lagi, en
ákveðin leiðindi fylgja ávallt skilnaði
eins og gengur.“
Fjölbreynur starfsferill
Hvemig atvikaðist það að þú fórst að
vinna hjá Free Willie Keiko sjóðnum?
„Konan mín var að vinna sem
þjálfari Keikós og í framhaldi af því
var mér boðin vinna hjá sjóðnum. Ég
var í öllu sem til féll í safninu í
Newport, allt frá byggingavinnnu til
köfunar. Sjálfur er ég menntaður í
atbrotafræðum, en hef unnið sent
slökkviliðsmaður fasteignasali, fram-
kvæmdastjóri, sölumaður og síðast-
liðin tvö ár hef ég unnið í kringunt
Keikó og er farinn að þekkja hann all
sæmilega. Þó að ég hati ekki verið í
þjálfarahópnum, þá er ég lærður
kafari og kenndi köfun í Banda-
ríkjunum í þrjú ár.“
Gætir þú borið saman það samfélag
sem þú átt rætur í og það samfélag
sem þú hefur kynnst í Vestmanna-
eyjum?
„Vestmannaeyjar eru mjög opið og
vingjamlegt samfélag. Ég er fæddur í
Seattle, sem er stórborg, flutti svo til
Hawaii, þar sem búa unt 80 þúsund
manns en margfalt fleiri ferðamenn
koma þangað á hverju ári en nemur
íbúatölunni þar. Þaðan flutti ég til
Newport, þar sem aðeins búa 10 þús-
und manns og telst því smábær á
bandarískan mælikvarða. Það var
mjög auðvelt að kynnast fólki þar en
það var hins vegar mikill ferða-
mannaiðnaður í kringum Keikó og þá
áég við bandaríska ferðamenn. Efég
gekk yfir bílastæðið við sædýrasafnið
þar sem Keikó var vakti það mér alltaf
jafn mikla furða að sjá hversu
fjölbreytt skrásemingamúmer bílanna
voru þar. Þeir voru alls staðar að úr
Bandaríkjunum. Þó var einn og einn
Japani eða Evrópubúi í hópnum.
Hérna er ég á lítilli eyju og lítið um
ókunnuga. Maður gengur eftir götun-
um og sér alltaf sama fólkið, en alit
þetta fólk er mjög svo vinalegt svo
manni tinnst einhvem veginn að
maður sé eins og heima hjá sér.
Þannig að gegnum lífið hef ég alltaf
lent á minni og minni stöðum og kann
alltaf betur og betur við það. Þess
vegna hugsa ég stundum að ég muni
líklega aldrei fiytja aftur til Seattle,
kannski í einhvem stuttan tíma á ári,
en ekki til þess að setjast þar að.
Ferðamönnum mun fjölga
Sérðu fyrir þér að Vestmannaeyjar
eigi eftir að verða þessi þúsunda
manna ferðamannaeyja?
„Nei það held ég ekki, en næsta
sumar held ég að ferðamönnum eigi
eftir að tjölga mikið. Það fer hins
vegar eftir því hvemig Evrópubúar
munu bregðast við vem Keikós héma
en einhver aukning hefur verið það
sem af er þessu ári. Einnig er þetta
spurning um það hvemig fjölmiðlar í
Evrópu munu fylgja þessu eftir. Ég er
ekki viss um að Evrópubúar muni
koma til íslands bara vegna Keikós, en
ef þeir koma til íslands á annað borð
yrðu þeir vísir til að gera sér sérstaka
ferð til Vestmannaeyja í stað þess að
fara eitthvað annað um landið. Alla
vega mun Keikó auka ferðamanna-
strauminn, en hversu mikið verður
framtíðin að leiða í ljós.“
Andy segist ekki hafa vitað neitt um
ísland hvað þá Vestmannaeyjar áður
en hann kom og hann hafi rennt blint í
sjóinn þegar ákveðið var að hann
kæmi til Islands. „Bandaríkjamenn
em miklu sjálfhverfari en Evrópubúar
og fólk í Evrópu er miklu meðvitaðra
um heiminn. Island er ekki heldur það
mikið í fréttum í Bandaríkjunum, svo
ég vissi ekki mikið um hvað væri að
ske á Islandi nema það sem Jeff hafði
sagt mér, en hann hafði komið hingað
fyrir tíu ámm, en það hefur mikið vam
runnið til sjávar síðan. En það var
hins vegar ánægjuleg undrun sem
fylgdi því að koma til íslands. Þegar
ég kom til Reykjavíkur á föstudegi var
dagur alla nóttina og fólk var að
skemmta sér í miðbænum fram á nótt
og það var góð tilfinning. Svo kom ég
til Eyja og móttökurnar voru
stórkostlegar."
Hvemig líður svona venjulegur
dagur hjá þér í Vestmannaeyjum ?
„Ég á einn frídag í viku. svo að fyrri
hluti frídagsins fer yfirleitt í að sofa.
Ég er ekki á næturvöktum, en fer
venjulega til vinnu klukkan hálf sex á
morgnana og er í vinnu til sex eða sjö
á kvöldin, svo maður er nokkuð
þreyttureftirdaginn. Utan vinnutíma
er ég mikið á netinu og sendi tölvupóst
til vina og vandamanna, þvæ þvottinn
minn og geri það sem snýr að
húshaldi. En þegar ég á frí hittumst
við á einhverjum veitingastað og
eigunt góðar stundir saman. Einnig
hefur mér verið boðið að koma á
körfuboltaæfingar, en það er Banda-
ríkjamaður sem þjálfar körfuboltalið
ÍBV. Hins vegar hef ég ekki getað
það fram að þessu vegna þess að ég
hef alltaf verið að vinna á þeim tíma.
Að minnsta kosti er nóg við að vera ef
áhugi er fyrir hendi. Eg hef talað við
þá hjá Björgunrfélaginu um að gerast
félagi í því og æfa með |>eim og einnig
að komast í slökkviliðið og það hefur
verið tekið vel í það og allir mjög
vingjarnlegir. Hins vegar hef ég
kynnst flestum í gegnum vinnu mína
hér og mönnum sem hafa komið að
Keikóævintýrinu. En það er ekki
mikill tími til þess að skemmta sér."
Hefur veðrið í Vestmannaeyjum
komið þér á óvart?
„Ég hef reyndar aldrei lent í jafn
miklu óveðri og varð hér um daginn
þegar lyftan á kvínni fór til fjandans.
Það er alveg sama hversu mikið
maður les eða horfir á sjónvarp, maður
verður að vera á staðnum til þess að
finna hvernig þetta er. En ég elska
móður náttúru þegar hún verður
illskeytt og naut þess að vera á kvfnni
þessa óveðursnótt.“
Hvers konar ást er þetta? Ertu að
tala um einhvers konar ögrun við
náttúruöflin?
„Nei, þetta er ekki spuming um að
vera í einhvers konar stríði við
náttúruna. Það sent ég á við er
kannski að maðurinn telur sig hafa öll
völd og að hann geti ráðið við allt.
Maðurinn getur byggt skýjakljúfa,
kjamorkusprengjur og farið til
tunglsins, og fjarlægra stjama en samt
er hann ósköp lítill í þessu móverki
öllu. Náttúran kippir fólki niður á
jörðina þegar hún er í sínum versta
hant og vekur það til umhugsunar um
að það er bara lítið sandkom í al-
heiminum."
Er Keikó hamingjusamurP
En hvemig finnst þér Keikó hafa það í
kvínni. Finnst þér hann hamingju-
samur?
„Það eru margir sem spyrja þessarar
spumingar og yfirleitt svara ég henni
ekki. Ég er nú ekki á því að gefa
hvölum ntannlega eiginleika. Það er
jafnvel stundunt erfitt að heimfæra
mannlega eiginleika upp á manninn
sjálfan. Hvað er hamingja nema eitt
orð í orðaforða manna. Samt tel ég að
honum líði betur hér heldur en í
Newport. Það er hins vegar einn
meginmunur á og hann er sá að Keikó
er miklu kvikari hér og hagar sér eins
og hann sé nær sjálfum sér og
eðlilegri. Ef það er hantingja þá er
hann hugsanlega hamingjusamari."
AÐALFUNDUR
EYVERJA
Aðalfundur Eyverja, félags ungra sjálfstæðismanna í
Vestmannaeyjum, verður haldinn í Asgarði við Heimagötu,
föstudaginn 30. október nk. kl. 18.00. Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf
Önnur mál
Félagar og velunnarar eru hvattir til að mæta.
Stjórn Eyverja.
Leiðrétting á upplýsingariti Eyverja 1998:
Atli Aðalsteinsson, Túngötu 7, Farsími.896 3473