Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 24.06.1999, Blaðsíða 2

Fréttir - Eyjafréttir - 24.06.1999, Blaðsíða 2
2 Fréttir Fimmtudagur 24. júní 1999 Yfirmeðallagi Frá þViðjudegi í síðustu viku fram til þriðjudags í þessari voru færslur í dagbók lögreglu 173. Er það heldur meira en venjulega og skýringin sú að Jónsmessugleði var haldin um helgina í Herjólfsdal og var nokkur erill kringum hana. Sé helgin tekin ein og sér þá voru 52 færslur í dagbókina, vel yfir meðal- tali vegna Jónsmessunnar. Óhappalausar hátfðir Þó svo að erill hafi verið hjá lög- regiu vegna Jónsmessugleði í Herj- ólfsdal fór hún vel fram og þurfti lögregla iítil afskipti að hafa af hátíðargestum. Einn fékk þó að gista fangageymslur lögreglu eftir að hafa verið til óþurftar í dalnum. Hátíðahöldin 17. júní fóru einnig fram í Heijólfsdal að veiulegu leyti. fóru þau vel fram og engin óhöpp samfara þeim. Ellefu stútar á árínu Átta ökumenn voru kærðir vegna brota á umferðarlögum í vikunni. Tveir þeirra voru grunaðir um ölvun við akstur og eru stútarnir þá orðnir ellefú á árinu. Á sama tíma í íyrra voru þeir tíu. Ekiðábarn Á mánudag varð umferðarslys á gatnamótum Kirkjuvegar og 111- ugagötu. Þar var ekið á bam á gangbraut. Barnið var fiutt til Reykjavíkur til læknisrannsóknar en ekki vitað hve meiðsli þess eru alvarleg. Lögregla vill beina því til ökumanna að fara varlega þar sem böm gætu verið og þá sérstaklega í kringum gangbrautir. Lögreglu- menn og fieiri benda bömum á að fara yfir götur á gangbrautum og því verða þau að geta treyst því að ökumenn sýni varúð við gang- brautir. Tværárásir í vikunni voru tvær líkamsárásir kærðar tií lögreglu. Átti önnur sér stað á öldurhúsi. Þar höfðu menn orðið ósáttir og endaði það með því að einn var slegjnn í höfuðið með bjórdós. Áverkar hans munu þó ekki alvariegir. Hin árásin áti’i 'sér stað að kvöldi piánudags. Þá réðíst hópur drengja a pilt sem var að koma út úr verslun. Þar varheldur ekki um alvarlega áverká að ræða. Skemmdirbílarofl. í tveimur tilvikum var kært til lögreglu í vikunni vegna skemmda á bifreiðum. Önnur þeiira stóð við Foldahraun 41 og hafði verið ri'spúð irieð oddhvössum hliit. Hin ;,Stóð Við Fáxastíg og höfðu börn gert sér það að leik að klilra upp á hana. Þá var og tilkynnt um skemmdir á úlþu sem brennt hafði verið gat á með sígarettu. VarúðáShellmáti Nú er Shellmótið framundan í knattspyrnu, fjölmennasta íþrótta- mót sem haldið er í Eyjum. Lögregla vill minna ökumenn á að fara varlega kringum knattspymu- velli bæjarins og halda hraðanum niðri þegar ekið er framhjá Týsvelli, Þórsvelli og Hásteinsvelli. Þá er fólk beðið að leggja ekki bfium sínum þannig að óþægindi eða hælta skapist í umferðinni. Ökumenn mega eiga von á að verða sektaðir fyiir slíkt háttalag. Dagskrá þjóðhátíðar að fá á sig endanlega mynd: Stuðmenn, SSSól og land og synir á stóra pallinum ÞJÓÐHÁTÍÐARNEFND gerði nýlega samstarfssamning við Islandsbanka og var myndin tekin þegar Birgir Guðjónsson og Sigurður Friðriksson þjónustustjóri Islandsbanka skrifuðu undir samninginn. Nú er komið á hreint hvaða hljóm- sveitir munu stíga á stokk á stóra sviðinu í Herjólfsdal á þjóðhá- tíðinni. Islensku hljómsveitimar SSSól, Stuðmenn og Land og synir munu spila fyrir okkur en einnig kemur í heimsókn færeyska hljómsveitin Víkingbandið. I fylgd Stuðmanna verður Græni herinn en hann á vonandi eftir að taka til hendinni hér í Vestmannaeyjum eins og annars staðar sem hann fer um. Þjóðhátfðarlagið í ár var valið úr hópi 11 innsendra laga. Lag Helga Jónssonar, Rjóðir vangar, varð fyrir valinu. Flutningur lagsins er í höndum Hreims Heimissonar, söngvara í Landi og sonum, og Lundakvart- ettsins. Fróðlegt verður svo að sjá hvort þjóðhátíðamefndin útsetji ekki lagið fyrir lúðrasveit eins og gert hefur verið undanfarin ár. Ekki er alveg komin endanleg mynd á bamaefnið en þó hefur verið ákveðið að Laddi (Þórhallur Sig- urðsson) komi fram ásamt því sem Lilli api og félagar sýna leikrit í brúðubflnum. Eyjahljómsveitin Dans á rósum mun sjá um spilamennsku á þremur bamaböllum og einnig munu þeir félagar hafa umsjón með söngvakeppni bama. Fimleikafélagið Rán sér um fimleikasýningu og UMFÓ sér um íþróttir á þjóðhátíð. Bjartmar Guðlaugsson kemur til með að troða upp. en hann er einmitt áð gefa út ný lög um þessar mundir. Ámi Johnsen stjómar svo brekkusöng eins og undanfarin ár. Á þjóðhátíðinni í ár verður nýtt og stærra svið, í stað þriggja 40 feta gáma verða þeir nú fjórir. í tilefni af ár- þúsundaskiptunum lofar þjóðhátíðar- nefitdin því að flugeldasýningin verði sem aldrei fyrr og verður í engu til sparað. Áætlun undirbúin í sumar btust ÍBV bréf frá Knatt- spyrnusambandi íslands vegna reglna um knattspymuvelli. Þar var óskað eftir framkvæmdaáætlun fyrir Hásteinsvöll sem taki mið af reglunum. Völlurinn, í núverandi ástandi, fullnægir ekki þessum reglum. ÍBV hefur verið á undan- þágu með að leika heimaleiki sína á vellinum og gildir hún fram til 15. júlí nk. Fyrir þann tíma þarf áðumefnd áætlun að liggja fyrir ella kann svo að fara að IBV verði skyldað lil að leika sína heimaleiki annars staðar. Þann 14. júní sl. hélt íþrótta- og æskulýðsráð fund þar sem þetta mál var m.a. tekið fyrir. Þar var samþykkt að fela tækni- deild bæjarins, í samráði við íþróttafulltrúa, að vinna og leggja fram tillögur og kostnaðaráætlun sem taki mið af umræddum kröfum og leggja fyrir ráðið. Þá var íþróttafulltrúa falið að gera KSÍ giæin fyrir stöðu málsins. Vatnsbrunnar sambykktir Fyrir nokkru var greint frá erindi Heilsueflingar þar sem hvatt er til þess að vatnsbrunnum verði komið upp í skólum og á öðrum stöðum sem fólk sækir. Á fundi íþrótta- og æskulýðsráðs upplýsti Vignir Guðnasop um staðsetningu slflcra biunna í íþróttanúðstöðinni. Vignir lagði einnig til að slíkir brunnar yrðu settir upp í líkamsræktarsal og í afgreiðslu sundlaugar. Þessi tillaga var samþykkt af ráðinu, svo og að komið verði upp vatnsbrunni í Týsheimili í tengslum við íþróttasal. Skólamálaráð hefur einnig fengið þetta erindi inn á sitt borð, vegna skólanna, og má vænta þess að ályktun frá því ráði komi fljótlega. ÁTVR gríllar í lfiðey Hin árlega grillhátíð ÁTVR - Átthagafélags Vestmannaeyinga á Reykjavíkursvæðinu verður í Við- ey laugardaginn 26. júní nk. og hefst kl. 15.00. Þið sjáið ykkur fyrir mat og drykk en félagið sér um annað sem til þarf svo sem kol, diska, hnífapör o.fl. Ferjan gengur reglulega og kostar farið kr. 400 fyrir fullorðna en kr. 200 fyrir böm. Félagar og aðrir Vestmannaeyingar eiu hvattir til að rnæta og skemmta sér eins og þeim einunt er lagið. Rétt er að geta þess að Vest- mannaeyingurinn Ragnar Sigur- jónsson er umsjónarmaður í Viðey og mun hafa hönd í bagga með allri framkvæmd gleðinnar. Jónsmessanerítíag I dag er Jónsmessa á sumri, kennd við sjálfan Jóhannes skírara. Ýmis trú hel'ur verið tengd þessum degi, til að mynda hefur það verið talið nær allra meina bót að velta sér nakinn upp úr dögginni á Jóns- messunótt. Nú er sú nótt raunar liðin (var í nótt) en þeir lesendur Frétta, sem fá blaðið sitt snemma í hendur, ættu þó að geta biugðið sér út í náttúruna áður en döggin hverfur alveg. Humarinn: Kvódnn langt kominn Eins og áður hefur komið fram hafa humarveiðar gengið mjög vel í sumar. Mjög góð veiði var í maí og framan af júní en síðan hefur heldur tregast og hefur sú reyndar verið raunin á humarveiðum að dregur úr afla þegar á líður sumarið. Átta bátar hófu humarveiðar á vegum Virinslustöðvarinnar en nú eru. séx þeirra eftir við yeiðar. 'Stefán Friðrikssön, útgerðarstjóri, sagði í gær að 17.tonn værU eftir af 54 tonna kvóta þeirra. Stefán áttj vþn á að haldið yrði áfram þar til sá kvóti væri 'býinn. / Einar Bjamason, verkstjóri hjá ísfélaginu, segir að eini báturinn sem er á humarveiðum hjá ísfélaginu, Álsey VE, sé búin að landa um 11 tonnum af humri. Álsey mun landa í dag og fara síðan einn túr til viðbótar, þar með er kvótinn búinn. Milli 40 og 50 ungmenni hafa unnið við humarinn hjá Isfélaginu í sumar og einnig við aðra fiskvinnslu. Einar segir að þau eldri muni áfram fá vinnu þótt humarinn klárist og einhver hinna yngri líka. UNGLINGAR h humaryinnsiunni. húíharvinnslu í lsfélaginu. m notið góðs sjást tvær stúlkur FRETTIR Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir Jónsson. íþróttir: Rútur Snorrason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson. Prentvinnæ Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnan Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-1293. Netfang/rafpóstur frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir. FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum Friðarhöfn. Tvistinum, Amigo, Kránni, Vöruval, Herjólfi, Flugvallarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. I Reykjavík: hjá Esso Stóragerði og í Flugteríunni á Reykjavíkurflugvelli. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum. FRETTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.