Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 24.06.1999, Blaðsíða 12

Fréttir - Eyjafréttir - 24.06.1999, Blaðsíða 12
12 Fréttir Fimmtudagur 24. júní 1999 Skjávarp í Vestmannaeyjum -Almennt upplýsinga- og auglýsingasjónvarp með skjámyndum Lengri út- sendingar- tími á UV I fréttatilkynningu frá útvarpsstöðinni UV á FM 104, en það er útvarpsstöð sem Bjarni Jónasson á og rekur, segir að breytingar séu fyrirhugaðar. Þar sem öll tækni til vinnslu efnis fyrir útvarp hafi breyst sjái ÚV sér fært að auka mjög ilutning á lifandi og nýju efni. Þessi breyting kom til framkvæmda í síðustu viku. Útvarp hefst kl. 17 á fimmtudögum, eða klukkutíma fyrr en verið hefur. A fostudögum hefst útvarp einnig kl. 17 en annað verður óbreytt. BJARNI Jónasson útvarpsstjóri. Á mánudaginn voru menn á ferð í Eyjum frá Skjávarpi hf. en það er fyrirtæki sem hyggst vinna sér sess á sjónvarpsmarkaði með sölu aug- iýsinga og hvers kyns staðbund- innar upplýsingamiðlunar. Björg- unarfélag Vestmannaeyja ásamt starfsmönnum Landssímans og Skjávarpisns sáu um að fara með útsendingarbúnaðinn upp á Klifið þar sem honum var komið fyrir Stefnt er að því að fyrir haustið muni verða komnar tuttugu og fimm stöðvar í loftið víðs vegar um landið. Nú þegar er starfrækt slíkt sjónvarp á Hornafirði. Fyrsti staðurinn sem hið nýja fyrirtæki hefur hafið starf- semi á er Seyðisfjörður og Vest- mannaeyjar því annar staðurinn sem slíkur búnaður er settur upp á í nafni Skjávarpsins. Ágúst Olafsson, fyrr- um fréttamaður Stöðvar tvö á Aust- urlandi, er framkvæmdastjóri fyrir- tækisins. Hann segir að skjávarp sé staðbundið upplýsinga- og auglýs- ingasjónvarp á formi skjámynda og texta, en jafnframt sé möguleiki á því að senda út lifandi efni. „Þetta er staðbundið efni sem við munum verða með og sniðið að hverju bæjarfélagi fyrir sig. Skjávarpið hér mun því í raun vera upplýsingasjónvarp fyrir Vestmannaeyjar þar sem einstakiingar og fyrirtæki geta keypt til dæmis augýsingar um verslun og viðskipti, fundahöld, íþróttir, hátíðir og svo mætti lengi telja.“ Ágúst segir að jafnframt því að geta sjónvarpað skjámyndum sé ekkert því til fyrirstöðu að senda út lifandi efni. „í því sambandi höfum við leitað fyrir okkur hjá sveitastjómum um samstarf til þess að senda út bæjarstjórnarfundi. Það hefur verið rekið skjávarp síðast liðin fjögur á á Homafirði og bæjar- stjórnin þar hefur notað þann mögu- leika mjög mikið. Sveitarstjómar- menn þar telja sig ná miklu betur til fólksins en ella, auk þess að koma á framfæri öðrum upplýsingum til bæjarbúa." Það er hlutafélag fyrirtækja og einstaklinga á Austurlandi sem á Skjávarp hf. „Fyrirtækið hefur gert samstaifssamning við íslandspóst sem verða mun umboðsaðili skjávarpsins á hverjum stað. „Móðurstöðin er stað- sett á Homafirði, þaðan sem starf- seminni er stýrt en við búum að mjög öflugri sjónvarps- og tölvutækni. Við leigjum hins vegar aðstöðu af Landssímanum, Ríkissjónvarpinu og Islenska útvarpsfélaginu víðs vegar um landið þar sem aðstaðan er fyrir ÁGÚST Ólafsson, annar frá vinstri, ásamt mönnum sem unnu að uppsetningu búnaðarins. hendi. Landssíminn mun hins vegar þjónusta okkur varðandi uppsetningu og viðhald." Nú er starfandi staðbundið sjónvarp í Eyjum sem er Fjölsýn. Aðgangur að því er seldur í áskrift, en Fjölsýn er hins vegar eingöngu endurvarp er- lendra stöðva og þar eru ekki seldar auglýsingar. Ágúst segir að auðvitað muni tilkoma skjávarpsins auka sam- keppni á auglýsingamarkaði. „Þetta eykur hins vegar upplýsingastreymið. Á sumum stöðum úti á landi er staðbundið sjónvarp. Eg þekki ekki Fjölsýn né starfsemi hennar, en við höfum ekki skipt okkur af því staðbundna sjónvarpi sem fyrir er á einstökum stöðum. Skjávarpið á hins vegar eftir að þróast, en það er ljóst að möguleikamir eru miklir." Nýnskíp íflotann Nýtt skip hefur bæst í flota Vest- mannaeyinga. Mattþías Ingi- bergsson hefur keypt Ólaf Magn- ússon SH 46,52 brúttótonna eikar- bát frá Stykkishólmi. Báturinn var smíðaður í Njarðvík 1956. Matthías fyrirhugar að gera bátinn út á togveiðar, er raunar búinn að prófa einn stuttan túr. Þá kom í ljós að gera þurfti við spilið en því er nú lokið og er því allt í besta lagi um borð. Matthías segist ætla að halda nafninu, það hafi verið á skipinu allt frá upphafi og þetta hafi alla tíð verið happaskip. En nýtt númer er komið á skipið, VE 16. Aðalvandamálið þessa dagana tengist kvóta, eins og raunar hjá fleiri útgerðum. Matthías segist hafa verið búinn að semja við SÍF um kvóta en ÓLAFUR Magnússon VE 16 er kominn til ára sinna en lítur þrátt fyrir það mjög vel út. nú hafi komið bakslag í það og hann annaðhvort með leigu á kvóta eða sé þessa stundina að líta í kringum sig, samninga við aðra aðila. Mér finnst rigningin góð -Blaut hátíðahöld 17. júní ÞEIR allra hörðustu gáfu veðurguðunum langt nef og hlýddu á dagskrá þjóðhátíðardags Islendinga sem Vestmannaeyingar héldu að þessu sinni í Herjólfsdal. Á fimmtudaginn fóru fram há- tíðahöld vegna þjóðhátíðardags Islendinga, 17. júní. Þetta árið var það menningarmálanefnd sem skipulagði hátíðarhöldin en þau fóru að þessu sinni fram inni í Herjólfsdal. Dagurinn hófst með því að fánar voru dregnir að húni á opinberum stofnunum. Hásteinshlaupið fór svo fram kl. 9.30 en sigurvegari var Franz Friðriksson. Hlaupið var frá Hásteinsvelli að Stakkagerðistúni. Um klukkan eitt hófst svo skrúðganga frá Iþróttamiðstöðinni með Lúðrasveit Vestmannaeyja í fararbroddi. Eins og áður sagði var mikil rigning þennan dag og því ekki margt fólk sem mætti upp í Iþróttamiðstöð, en þeir allra hörð- ustu létu þó sjá sig. Eftir heljarinnar þramm inn í Herjólfsdal spilaði lúðrasveitin nokkur lög. Eftir það var komið að Sigrúnu Ingu Sigurgeirsdóttur, for- seta bæjarstjómar, að halda ávarp. Að því loknu spilaði Lúðrasveitin nokkur vel valin ættjarðarlög og svo var komið að fjallkonunni að stíga í pontu og fara með ættjarðarljóð. Fjallkonan að þessu sinni var Þómnn Pálsdóttir, nýútskrifuð frá FÍV, og stóð hún sig vel að flestra mati. Mikil rigning setti mark sitt á hátíðahöldin inni í Dal én veit- ingatjaldið, sem komið hefur verið upp, var opið og gat fólk því leitað skjóls þar inni. Kvenfélagskonur í Líkn sáu svo um að grilla pylsur í mannskapinn og vom þær seldar á góðu verði. Einnig sáu þær um bakstur á vöfflum í okkar frábæra veitingatjaldi sem hlífði okkur fyrir rigningunni. Um kvöldið var svo komið að Harmonikkufélaginu að láta ljós sitt skína en það spilaði fyrir dansi í Alþýðuhúsinu. Á tröppum Safna- hússins tróð hljómsveitin Dans á rósum svo upp og spilaði íyrir heldur daufum Vestmannaeyingum sem sátu heima hjá sér í rigningunni. — 1 iaLi > ’N yn>. 'V i rsa SI S3 N M LÍKNARKONUR sáu um að gefa hröktum og blautum hátíðargestum eitthvað heitt í kroppinn í veitingatjaldinu í Dalnum sem nýttist vel við þessar aðstæður.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.