Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 24.06.1999, Blaðsíða 15

Fréttir - Eyjafréttir - 24.06.1999, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 24. júní 1999 Fréttir 15 Ætla ekkí að kæra vegna ólöglegs leikmanns Eins og greint var frá í Morgun- blaðinu í síðustu viku notuðu Valsmenn leikmann í kvennaleik Vals og ÍBV sem ekki var á leikskýrslu. Var um mannleg mis- tök að ræða við útfyllingu á leikskýrslu hjá Val. Meintur ólöglegur leikmaður var sendur inn á í seinni hálfleik en Valur sigraði ÍBV 2-1. Leik- maðurinn hafði ekki afgerandi áhrif á gang leiksins. Mistök Vals lágu í því að fjórir varamenn voru skráðir á leikskýrslu en gleymst hafði að skrá fimmta varamanninn, þann sem fór inn á. Stjóm knattspymudeildar í samráði við þjálfara kvennaliðs ÍBV hefur ákveðið að kæra EKKI atvikið, þrátt fyrir að Valur hafi án efa notað „ólöglegan'1 leikmann í leiknum. ÍBV vill benda á „gat“ í lögum KSÍ hvað varðar útfyllingu á leik- skýrslum. í lögurn KSI er nefnilega hvergi kveðið á um viðurlög við mistökum á borð við þessi. ÍBV óskar Valsstúlkum sem og öðrum leikmönnum í Kvenna- Landssímadeildinni gleðilegs knatt- spymusumars. Með íþróttakveðju Knattspyrnudeild ÍBV. Tap og sigur Fimmti flokkur karla stóð í ströngu í síðustu viku. Lék liðið hér heima gegn HK, og urðu úrslit þannig: A-lið: ÍBV - HK 1-2, mark ÍBV Birkir. B-lið: ÍBV - HK 1-4, mark ÍBV Egill. C-lið: ÍBV - HK 3-3, mörk ÍBV Svanur 2 og Rúnar 1. Síðastliðinn þriðjudag fékk ÍBV síðan Selfoss í heimsókn og vom Eyjapeyjar heldur betur á skotskónum í þeim leikjum. Ekki tókst að hafa upp á markaskorurum í leikjunum en úrslit urðu sem hér segir: A-lið: ÍBV - Selfoss 4-1 B-lið: ÍBV - Selfoss I - 3 C-lið: ÍBV - Selfoss 8-0 Mikilvaegur sigur Þriðji flokkur karla lék hér heima gegn Val síðastliðinn þriðjudag og var leikurinn bráðskemmtilegur á að horfa. Lið Vals er talið eitt það sterkasta á landinu í dag, en Eyjapeyjar sýndu góða takta í leiknum og sigmðu að lokum, 4-3. Bjami Einarsson átti stórleik í liði IBV og skoraði öll fjögur mörk ÍBV í leiknum. Skellur hjá fjórða flokki Fjórði flokkur karla fékk Breiðablik í heimsókn um síðustu helgi og fengu strákarnir stóran skell. A- liðið mátti sætta sig við sjö marka tap. 4-11 og b-liðið tapaði, 2-4. Upprúllun Fjórði flokkur kvenna lék tvo leiki í síðustu viku. A-liðið lék gegn Fram og sigraði, 21-2 og síðan léku stelpurnar gegn Grindavík og vann a-liðið, 9-2 og b-liðið vann, 6-1. Golf: Opna Cantat 3 mótið Fræknir feðgar Opna Cantat 3 mótið í golfi var á dagskrá hjá GV á laugardag. Alls tóku 42 þátt í mótinu sem var styrkt af Landssíma íslands. Keppt var bæði með og án forgjafar og með forgjöf vom þeir feðgar Jón Pétursson, sálfræðingur, og Viktor Pétur, sonur hans, í sérflokki, léku báðir á 61 höggi nettó eða níu höggum undir pari vallarins. Forgjöfin þeirra ætti því að lækka verulega í kjölfar þessarar góðu spilamennsku. Þá ættu þeir feðgar framvegis að geta styrkt fjölskylduböndin enn frekar og verið í enn nánara sambandi því að þeir fengu báðir að verðlaunum forláta GSM síma. En efstu menn urðu þessir, með forgjöf: 1. Viktor P Jónsson 61 h 2. Jón Pétursson 61 h 3. Gísli St. Jónsson 64 h An forgjafar urðu þessir efstir: 1. Aðalsteinn Ingvars GV 71 h 2. Jón Haukur Guðl. GKJ 72 h 3. Gunnar G Gústafs. GV 73 h Verðlaun vom einnig veitt fyrir 10. sæti með og án forgjafar og hlutu þau Hlynur Stefánsson GV og Geir Jónsson GR. Atli Aðalsteinsson GV átti lengsta teighöggið á 1. teig, 273 m og hlaut verðlaun fyrir. Næstur holu á 2. braut var Guðmundur Ólafsson GV og næstur holu á 17. braut Víkingur Smárason GV. Sá besti á landinu I hópi aðkomukylfinga, sem þátt tóku í Cantat 3 mótinu á laugardag, var Gunnlaugur Grettisson frá Golf- klúbbnum Oddi. Gunnlaugur er raunar nokkuð tengdur Eyjum því að eiginkona hans er Dröfn Ólöf Más- dóttir (Más Jónssonar og Jónu Ólafsdóttur). Gunnlaugur hefur einu sinni áður spilað á vellinum í Eyjum, um hvítasunnuna í fyrra en hefur talsvert spilað uppi á landi í sumar, á suðvesturhominu. „Þetta er besti völl- urinn sem ég hef spilað á í ár, alveg frábær," sagði Gunnlaugur. „Hann er líka vel hirtur, sérstaklega var ég hrifinn af því hvað teigamir líta vel út, sums staðar uppi á landi em hrein vandræði með teigana." Gunn- laugi þótti völlurinn erfiður en mjög skemmtilegur. Og ekki skemmdi íýrir að hann var að leika vel, eða þremur undir forgjöfmni sinni sem þýðir lækkun á forgjöf, nokkuð sem allir kylfingar stefna að. „Ég á ömgglega eftir að láta sjá mig oftar í sumar, þetta er ömgglega besti völlurinn á landinu," sagði Gunnlaugur að lokum. Þeir Óskar, Gunnlaugur, Sigurjón og Hörður Orri voru allir með í Cantat 3 mótinu og skemmtu sér hið besta í blíðuveðri. Jónsmessumótió á laugardag Nk. laugardag verður Jónsmessumótið haldið hjá GV. Þetta er mót með léttu yfirbragði þar sem keppendur hugsa meira um að skemmta sér og öðmm frekar en að keppa að efstu sætum. Jónsmessumótið er ævinlega spilað sem snærisleikur en hver keppandi fær snærisspotta samkvæmt forgjöf sinni. Sá sem hefur 2 í forgjöf fær 1 m spotta og sá sem hefur 20 í forgjöf fær 10 m spotta. Síðan er heimilt að klippa af spottanum og færa boltann til á vellinum um þá vegalengd sem klippt er af. Þess eru dæmi að menn hafa skrifað eitt högg á skorkortið sitt, þ.e.a.s. farið holu í höggi með aðstoð spottans, endað nokkra sentimetra frá holu í upphafshöggi og notað spottann til að spara sér annað högg. Ekki fá þeir þó afrekið viðurkennt sem slíkt. Keppnin hefst kl. 15 á laugardag og verða spilaðar 18 holur. Málsverður er að lokinni keppni og þurfa væntanlegir keppendur að hafa skráð sig fyrir kl. 20 í kvöld, fimmtudag. Klúbbakeppnin á sunnudag Undanfarin ár hafa klúbbamir Akóges, Kiwanis og Oddfellow í Vestmannaeyjum keppt í golfi sín á milli. Síðustu tvö ár hefur Akóges- félagið í Reykjavík einnig tekið þátt í þessu móti. Þetta mót er á sunnudag og er félagsmönnum áðurgreindra klúbba og mökum þeirra heimil þátttaka. Kiwanismenn unnu þetta mót í fyrra en í ár verða nokkur forföll í liði þeirra og ætti það að auka sigurlíkur hinna tveggja nokkuð. Akógesfélögin í Eyjum og Reykjavík keppa einnig innbyrðis um verð- launagrip. I fyrra unnu Reykvíkingar, með Sverri tannlækni í fararbroddi, en í ár hafa Akógesar í Eyjum stillt Jóhanni Péturssyni upp sem leiðtoga sínum í keppninni og hefur hann svarið þess dýran eið að endurheimta gripinn. GUNNLAUGUR Grettisson frá Golfklúbbnum Oddi er ánægð- ur með golfvöllinn í Eyjum. Handboltinn: Boris ráðinn þjálfari meistaraflokks IBV karla Spennandi verkefni Handknattleiksráð ÍBV samdi í síðustu viku við hinn þekkta þjálf- ara, Boris Bjarna Akbashev. Samningurinn er til eins árs í senn og er þetta mikill fengur fyrir hand- boltann hér í Eyjum. Hvemig líst Boris á ÍBV-liðið? ,Ég get ekki sagt annað en að þetta sé mjög spennandi verkefni. Mig langaði að prófa eitthvað nýtt, þar sem ég hef verið síðustu 10 ár hjá Val, og þegar Eyjamenn höfðu samband við mig, þá ákvað ég að slá til,“ sagði Boris. Magnús Bragason, hjá handknatt- leiksráði ÍBV, var að vonum mjög ánægður með samninginn. „Við emm alveg í skýjunum að þetta skuli vera komið í höfn. Það kostaði mikla vinnu handboltanum í Eyjum veglegan sess í framtíðinni. Það er allavega alveg á hreinu að Boris mun kenna þeim einstaklingum, sem vilja læra,“ sagði Magnús að lokum. fyrir okkur að fá góðan og hæfi- leikaríkan þjálfara til starfa hjá okkur og það tókst að lokum. Ég tel að þetta komi til með að verða mikil lyftistöng fyrir handboltann í Eyjum og vonandi verður koma Boris til þess að skipa Eyjamenn mæta Kefl- ^ víkinsum í bikarnum Eyjamenn sigruðu lið Leiknis í Coca-Cola hikarnum í síðustu viku og komust þar af leiðandi í 16-liða úrslit. Síðastliðinn föstudag var dregið bæði í karla- og kvennaflokki og fengu Eyjastúlkur lið Fjölnis á útivelli og fer leikurinn fram á morgun. Eyjamenn eiga erfiðan leik fyrir böndum og þurfa að fara til Keflavíkur í næstu viku og mæta heimamönnum. Danskt og sviss- neskt lið , heimsaekir IBV -Leika æfingaleiki í yngri flokkunum a mánudaginn. Knattspyrnudeild ÍBV fær góða heimsókn á mánudaginn. Þá koma tvö lið í heimsókn til Vestmanna- eyja ef veður leyfir, annað frá Danmörku en hitt frá Sviss. Mun vera um algjöra tilviljun að ræða að þessi lið koma á sama degi. Að sögn Þorsteins Gunnarssonar, franikvæmdastjóra kattspymudeild- ar ÍBV, koma Danimir með 3. og 4. flokk drengja. Danirnir spila við ÍBV á mánudaginn kl. 17 og 18. Að sögn mun þetta danska lið vera feikna sterkt. Svisslendingar koma með 5. flokk drengja og fer leikurinn við ÍBV fram á mánudaginn kl. 15. Það mun fara eftir tíðarfari á hvaða völlum leikirnir fara. Það er ekki á hverjum degi sem við fáum svona erlendar fótboltaheimsóknir. Knatt- spymuáhugafólk er hvatt til þess að fara á völlinn á mánudaginn þegar ÍBV tekur á móti gestum sínum. Þess má geta að bæði liðin báðu sérstaklega um það að fá að heim- sækja Vestmannaeyjar í íslandsferð IBV skoóar Júgóslava ÍBV hefur leigt júgóslavneskan leiktnann, Goran Aleksic að nafni, út þetta keppnistímabil. Goran kemur frá FK Cukaricki og er miðjumaður. Það var Zoran Miljkovic, varnarleikmaður IBV, sem benti ÍBV á Goran sem kemur til landsins á tniðvikudaginn en verður líklega ekki kominn með leikheimild fyrir leikinn gegn Vikingi. Lind og Davíð í landslið Hin stórefnilega knattspyrnustúlka, Lind Hrafnsdóttir, hefur verið valin í landslið íslands skipað stúlkum 17 ára og yngri, sem tekur þátt í Norð- urlandamótinu í Hollandi 27. júní - 4. júlí nk. Davíð Egilsson, hinn efnilegi vamarmaður ÍBV í 2. fiokki karla í knattspymu, var valinn í ungl- ingalandslið Islands, skipað leik- mönnum 18 ára og yngri, sem átti að keppa við Grænland í sfðustu viku. Leiknum var reyndar frestað en engu að síður góður áfangi hjá Davíð að komast í landsliðshópinn. Framundan Föstudagur 25. júní Kl. 19.00 á Helgafellsvelli: KFS - GG. Kl. 20.00 Coca-Cola bikar kvenna: Fjölnir - ÍBV Kl. 20.00 1. flokkur karla: IBV - Breiðablik á Hásteinsvelli Laugardagur 26. júní Kl. 14.00 2. flokkur karla: ÍBV - Þór Ak. Þriðjudagur 29. júní Kl. 20.00 Coca-Cola bikar karla: Kefiavík - ÍBV.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.