Fréttir - Eyjafréttir - 06.01.2000, Page 1
27. árgangur • Vestmannaeyjum 6. janúar 2000 • l.tölublað • Verðkr. 140,- • Sími:481 3310 • Fax:481 1293
ÞAÐ er mál kunnugra að aldrei hafi öðru eins magni verið skotið upp af flugeldum í Vestmannaeyjum eins og
um nýliðin áramót. Skothríðin hófst um 23.30 og stóð stanslaust í rúman klukkutíma.
Alvarlegt
flugeldaslys
Eitt alvarlegt flugeldaslys átti sér
stað í Vestmannaeyjum um ára-
mótin. Raketta fór ekki af stað,
heldur sprakk á jörðu niðri og
skaddaðist sá sem í henni kveikti í
andliti. Við skoðun á sjúkrahúsinu
hér kom í ljós að hann hafði fengið
áverka á auga og var því sendur
með sjúkraflugi á Landsspítalann í
Reykjavík þar sem gerð var á
honum aðgerð.
Aðgerðin heppnaðist vel og út-
skrifaðist maðurinn í gær af Lands-
spítalanum. Hann missti hlutaafsjón
á öðru auga tímabundið en sam-
kvæmt upplýsingum Frétta munu nær
fullar líkur á því að hann fái fulla sjón
eftir nokkrar vikur.
Fullfermi af
síld á jólum
Antares VE kom til Eyja í gær með
700 tonn af síld sem fékkst í
tveimur köstum úti af Breiðafirði í
fyrradag.
Þetta er nánast endurtekning á því
sem gerðist í fyrra en þá kom Antares
einnig með 700 tonn af jólasíld þann
5. janúar.
Hörður Óskarsson hjá Isfélaginu
sagði að þetta væri þokkalegasta síld
sem yrði flokkuð og unnin í frystingu
en byrjað var í gærkvöldi að vinna í
síldinni.
íjJJui/ yri’Liiiy Dj D Uj'jjjjíJJjjjj
Flötum 20 - Sími 481 1535
VJOtjy/ÚJ/ yj jjjju/jí-júí
Græðisbraut 1 - Sími 481 3235
s’ ©1
Vetraráætlun
\AA/ Frá Eyjum Frá Þorlákshöfn
Alla daga n/sun. Kl. 08.15 Kl. 12.00
Sunnudaga Kl. 14.00 Kl. 18.00
Aukaferð föstud. Kl. 15.30 Kl. 19.00*
Fellur niður frá 18. des.1999 - 16. mars 2000
Sími 481 2800
Fax 481 2991
w ^Ueriól^ur h$.
Umferðarljósi
Síðastliðinn þriðjudag voru
umferðarljósin á horni Strand-
vegar og Heiðarvegar formlega
tekin í notkun að viðstöddum full-
trúum bæjarins og tæknideildar,
lögreglustjóra og fulltrúum Slysa-
varnardeildarinnar Eykyndils sem
gaf eina og hálfa milljón til
verksins. Síðastliðna fínim daga
lýstu ljósin gulu til þess að venja
bæjarbúa við þau.
Udirbúningur hönnunar ljósanna
hófst í júní í fyrra, en að tillögu Vega-
gerðarinnar var Vinnustofan Þverá,
sem hefur sérhæft sig á þessu sviði,
fengin til þess að hanna ljósin. Ljósin
eru alumferðarstýrð. Ef engin umferð
er standa ljósin á rauðu í allar áttir, en
um leið og bifreið nálgast skiptir á
grænt í þá átt. Stjómkassi umferðar-
ljósanna er með elektrónískum raf-
liðum ásamt fjómm skynjarakortum
sem taka við boðum frá átta
skynjurunt undir malbiki á akreinum.
Við ljósin er einnig búnaður til þess
að taka við boðum frá jafnmörgum
hnöppum fyrir fótgangandi.
Það var ungur Eyjapeyi, Sindri Freyr
Guðjónsson, sem kveikti á ljósunum
eftir að Guðjón Hjörleifsson hafði
veitt gjafabréfi Eykyndilskvenna
viðtöku. Þakkaði Guðjón rausnar-
skap Eykyndilskvenna og óskaði
Vestmannaeyingum til hamingju með
þetta framfaraspor í umferðar-
menningu Eyjamanna. Að lokinni
athöfninni bauð bæjarstjórn upp á
kaffi og meðlæti í húsi TM trygginga.
Eftir er að ganga frá kantsteinum,
hellulögn og að yfirborðsmerkja
gatnamótin upp á nýtt en það verður
gert strax og veður gefur til þess. Á-
ætlaður heildarkostnaður er fjórar
milljónir króna en þar af gáfu
Eykyndilskonur ljósin sjálf upp á um
l ,5 milljón króna.
GENGIÐ mót grænu Ijósi með bros á vör.