Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 06.01.2000, Qupperneq 9

Fréttir - Eyjafréttir - 06.01.2000, Qupperneq 9
Fimmtudagur 6. janúar 2000 Fréttir 9 með hærri laun en konur, en af hverju ættu þeir að fá hærri laun fyrir sömu vinnu? Mér finnst það mjög ósann- gjamt.“ Benedikt: Svör ykkar strákanna núna, eru þau ekki lýsandi fyrir það að þið séuð að verða undir og valtað verði yfír karlmenn á nœstu tuttueu árum? (Hlátur) Gðmundur Ámi: „Það getur vel verið, en mér finnst sjálfsagt að það sé jafnrétti, það er óþarfi að níðast á fólki og að karlar fái hærri laun fyrir sömu störf. Mér finnst það ósanngjamt, eða finnst þér það?“ Benedikt: Það þýðir ekkert að spyrja mig að neinu héma? Guðmundur Ami: „Ef ég væri kona þætti mér þetta ekki sanngjamt." Benedikt: Eiga karlmenn auðveldara með að setja sig í spor kvenna núna, en áður var. Eg spyr af því að þú komst með þessa likingu - efég vœri kona -? Guðmundur Ámi: ,,Já ætli það ekki.“ Þórarinn: Eg veit náttúrulega ekkert hvemig konur hugsa, þannig að ég get ekki sett mig í spor þeirra, en þær þola örugglega margt sem við þurfum ekki að þola. En kannski þori ég ekki að segja neitt mikið um þetta.“ Pólitísk meðvitund eða meðvitunarleysi Benedikt: En í sambandi við pólitík, emð þið mjög meðvituð um pólitík og pæliði í henni? Guðmundur Ámi: „Nei ekki neitt og hef ekki nýtt mér kosningaréttinn." Guðlaug: „Eg hef kosið og tel mig hafa sterka pólitíska sannfæringu." Þórarinn: „Ég nýtti mér kosn- ingaréttinn í fyrsta skiptið nú í vor og ég vissi alveg hvað ég átti að kjósa. Hins vegar held ég að ungt fólk og pólitík eigi mjög lítið saman í dag. Ungt fólk fylgist ekkert með í pólitík og getur ekki myndað sér skoðanir. Ég held að hér í Vestmannaeyjum séu til dæmis Eyveijar að vinna gott starf, en ég held að margir séu þar ekki vegna pólitískra skoðana heldur bara til þess að gera eitthvað.“ Guðmundur Ámi: „Svo er mjög sterkt þetta með, - af því að mamma og pabbi gera það Guðbjörg: „Ég get ekki sagt það og hef í raun engan tíma til að fylgjast með pólitík og hef ekki mikinn áhuga heldur. Ég fékk að kjósa í fyrsta skipti í vor og nýtti mér það, en eins og Gummi sagði held ég að foreldrar hafi oft áhrif þegar ungt fólk er að kjósa í fyrsta skipti. En mér fannst ég kjósa rétt.“ Benedikt: Haldið þið að pólitískt meðvitundarleysi, eða ómeðvitund sé vont fyrir ungtfólk? Guðbjörg: „Nei nei, það hafa allir sínar skoðanir eða áhuga á pólitík, annað hvort kynnir fólk sér það eða sleppir því. Þetta er bara hluti af áhugamálum hvers og eins. Fólk getur verið hægri sinnað í dag og vinstri sinnað á morgun, það fer bara eftir því hvað hver flokkur býður.“ Guðmundur Ámi: „Mér finnst samt að fólk eigi að mynda sér einhveijar skoðanir á hlutunum.“ Guðbjörg: Eins og með öll þessi lof- orð stjómmálamanna, þau mgla mann og maður spyr sig hvort maður hafi kosið rétt. Eiginlega fær maður ekki að hugsa i friði. Pólitísk loforð enda yfirleitt á því að verða svikin.“ Þórarinn: , Já, já. Ég vil að ungt fólk pæli meira í pólitík, einhver verður að stjóma í framtíðinni, þannig að von- andi hefur einhver áhuga á pólitík." Benedikt: Hyggurþú sjálfurá pólitík? Þórarinn: „Það var nú sagt við mig um daginn að ég ætti að verða þingmaður. Ég gaf nú reyndar ekki mikið út á það.“ Guðbjörg: „Ég held að hann ætti að fara á þing. Hann er ekta týpan í þetta. Hann er góður talsmaður og kemur vel fram, og líka mjög skynsamur." Benedikt: Þú átt ekki við að hann sé efnilegur lygari? Guðbjörg: „Nei ég er ekki að ýja að því.“ Þórarinn: „Ég held að starf þing- mannsins sé hundleiðinlegt. Ég hef það á tilfinningunni." Benedikt: Þú œtlar þá ekki að verða Johnsen Vestmannaeyja framtíð- arinnar? Þórarinn: „Nei ég ætla ekki að verða það.“ Guðmundur Ámi: „Þá verður hann að fara að læra á gítar.“ (Mikill hlátur) Þórarinn: ,Éig hef ekki hugsað mér að verða þingmaður, þó veit maður aldrei nema maður verði plataður út í þetta.“ Sjá tölvutæknina í jákvæðu og neikvæðu fólki Benedikt: Annað sem er einkenniþess tíma sem ykkar kynslóð hefur gengið í gegnum er tölvuvœðingin og upplýs- ingatœknin, hvernig sjáið þið framtíðina íþví Ijósp. Þórarinn: „Þetta á örugglega eftir að aukast í framtíðinni og maður er alltaf að pæla í því hvort maður ætti ekki að skella ser í tölvunarfræðina í Háskól- anum. Ég held líka að þetta sé til góðs innan vissra marka. Þegar tölvur fara að taka störf fólks held ég að nei- kvæðar hliðar tölvunnar komi betur í ljós. Þetta er að einhveiju leyti farið að ske, en ég held að menn verði að passa sig á þessu.“ Guðlaug: „Auðvitað vildi maður frekar hafa manneskju til þess að tala við í stað þess að tala við einhvem tölvukassa hjá stofnunum eða íyrir- tækjum, en svo fær fólk trúlega vinnu við að stjóma tölvunum.“ Guðmundur Ámi: „Það em margir jákvæðir þættir í þessu, eins og með tengsl sem fólk getur byggt upp í gegnum Intemetið. Mér finnst hins vegar að menn þyrftu að athuga hve margir fara í töivunám á kostnað til dæmis iðnnáms. Ég held til dæmis að það séu ekki nema tveir til þrír sem útskrifast á hverju ári sem múrarar í Reykjavík. Kannski er ég síðasti mó- híkaninn í þessari iðngrein, það er að minnsta kosti nokkuð ljóst að tölvur koma ekki til með að vinna múrverkið í framtíðinni, að minnsta kosti er það mjög hæpið.“ Guðbjörg: „Ég er sammála þeim. Samfélagið hefur breyst gífurlega síðan þessi tölvuþróun hófst og hún á eftir að halda áfram. Þetta hefur góðar og slæmar hliðar. Ég myndi til dæmis vilja gefa mér meiri tíma til þess að kunna eithvað á þetta.“ Benedikt: Hver eru áhugamál ykkar og hvað gerið þið í frístundunum ef þœr gefast? Guðlaug: „Áhugamál mín? Það er mikið flökkueðli í mér og ég tolli illa heima hjá mér. Ég hef hins vegar ekki ferðast nóg, en það er stefnan að gera það. Hins vegar er ekki mikill frítími, maður er alltaf að vinna og í skóla, en jú maður fer og hittir vini sína og annað fólk.“ Þórarinn: „Ég hef mjög mikinn áhuga á íþróttum, þó að ég stundi þær ekki sjálfur eins og er, þá fylgist ég mikið með íþróttum í sjónvarpi og fer á fótboltaleiki. Einnig vinn ég stundum í sambandi við íþróttir, svo að mínar frístundir fara að mestu í að fylgjast með íþróttum og vera með vinum mínum. Einu sinni hafði ég áhuga á bflum, en ekki lengur.“ Guðbjörg: Ég errosalegur íþróttafíkill og hef mikla þörf fyrir að hreyfa mig, svo það gefst lítill tími fyrir áhugamál. Ég spila með meistaraflokki og öðmm flokki kvenna í handbolta og ef ég er ekki á æfingum hér heima þá er ég á æfingum í Reykjavík. Þess á milli er þá gaman að hitta vini sína, hitta fólk og gera eitthvað skemmtilegt. Ég hef að minnsta kosti engan tíma til þess að hangsa, þá fer ég heldur í vinnu.“ Guðmundur Ámi: „Ég er bara hraða- fíkill. Ég tek alltaf þátt í kvartmflunni, bæði á mótorhjólum og bflum. Á vetuma er ég að dútla við að taka hjólið í sundur, breyta og setja saman aftur.“ Trúin á guð er til staðar Benedikt: Eruð þið trúuð? Guðbjörg: „Ég trúi alveg á guð, en ég er ekkert þvflíkur trúmaður og fer ekki alltaf í kirkju á sunnudögum, þó ég vildi gjaman gera meira af því. Það gefst bara lítill tími fyrir það. Mér finnst hins vegar mjög gott að fara í kirkju á jólunum. Það fylgir því vel- líðan og maður veit að þá er maður í návist guðs, en að sumu leyti fer þetta ekki saman, það að vera trúaður og vera kirkjurækinn." Þórarinn: „Ég er ekki mjög trúaður, en trúi þó á tilvist guðs. Ég fer hins vegar ekki mikið í kirkju.“ Guðlaug: „Ég trúi á guð, en fer mjög sjaldan í kirkju og gef mér engan tíma fyrir trúna núna. Ég veit ekki af hverju, þetta er bara svona. Ég held hins vegar að trú ungs fólks á guð hafi ekkert minnkað. Ég hef hins vegar ekki alist upp við að sækja mikið kirkju og maður heldur í það.“ Þórarinn: „Þegar ég hef farið í kirkju þá er meirihlutinn eldra fólk, maður sér ekki mikið af ungu fólki þar og ég held að kirkjusókn eigi ekki eftir að aukast í framtíðinni. Þetta hlýtur að minnka, ég trúi bara ekki öðru.“ Guðmundur Ámi. „Ég fer nú bara aldrei í kirkju, nema kannski á jólum. Ég bara teysti á sjálfan mig, læt það duga. Maður náttúrlega trúir á guð, það er einhver ímyndun þama.“ Benedikt: ímyndun? Guðmundur Ámi: ,Já.“ Benedikt: Er einhver ógn í tilverunni sem þið hafið áhyggjur af í fram- tíðinni? Guðmundur Ámi: „Það er kannski mengunin og þynning ósonlagsins. Einnig kjamorkusprengjumar sem til em. Þó maður hugsi ekki daglega um það, þó hefur maður áhyggjur af vax- andi mengun.“ Guðlaug: „Ég hef nú ekki áhyggjur af neinu sérstöku og óttast voða lítið." Þórarinn: „Ottast maður ekki bara heimsendi. Nei ég veit ekki, var ekki Nostradamus að spá honum fljótlega. Ég lenti í umræðum um þetta í gær.“ Benedikt: Það hafa verið miklar umrœður hjá þér í gœr? Þórarinn:, já, en jú maður óttast nátt- úrulega mengun, svo óttaðist ég 2000 vandann. Til dæmis varðandi kjam- orkuverin í Rússlandi. Ég hugsa samt ekkert um þetta daglega. Osonlagið eyðist náttúmlega, en þegar það er búið er ég náttúmlega löngu dauður. Maður óttast líka stríð, sem ömgglega eiga eftir að verða í framtíðinni, ég er viss um það. Ég er ekkert kvíðinn fyrir þessu.“ Guðbjörg: „Ég er sammála því sem Þórarinn var að segja. Reyndar er ein vinkona mín sem alltaf er að hræða mig með heimsendi, þannig að maður fer að hugsa um þetta. Ég skil hins vegar ekki alveg hvemig heimsendir eigi að geta orðið. Hins vegar er orðin gífurleg mengun í heiminum. Ég fann það til dæmis þegar ég fór til Kína í sumar, loftslagið þar er gjörólíkt, það var erfitt að anda þar vegna mengunar. Tíminn leiðir þetta bara í ljós.“ Unga fólkið og eiturlyfin Benedikt: Eg átti kannski von á því að þið mynduð nefna eiturlyf, veldur sú þróun engum ugg hjá ykkur? Guðbjörg: „Ég var að hugsa um að nefna það. Það er rosalega margt fólk í kringum mann sem er í þessu og maður heyrir að þetta er að aukast og á eftir að hafa slæm áhrif.“ Þórarinn: „Ég óttast þetta ekkert þannig. Er ekki löggan alltaf með hert eftirlit. Ungt fólk á eftir að verða í dópi og maður hefur séð það fara illa á því, en ég hef ekki miklar áhyggjur af því í framtíðinni. Fólk á hins vegar eftir að átta sig á því að það er ekkert sniðugt að vera í þessu.“ Guðbjörg: „Það verður ekkert aftur snúið þegar fólk er byrjað í þessu ef fólk finnur það ekki hjá sjálfu sér að hætta." Guðmundur Ámi: „Það em samt ótrúlega margir byrjaðir í þessu. Þegar ég var síðast í Eyjum fyrir tveimur og hálfu ári, heyrði maður varla um þetta. Nú er þetta ekkert bundið við yngra fólkið, heldur líka fólk sem komið er á miðjan aldur.“ Guðlaug: „Auðvitað óttast maður þetta. Það er kannski ekki nema einn VIÐ hringborðið sátu ásamt blaðamanni, Guðbjörg, Þórarinn, Guðmundur Árni og Guðlaug þriðji sem kemst upp. Kannski erþetta bara meira áberandi núna vegna þess að það er meira talað um þetta. Kannski hefur þetta verið svona í mörg ár án þess að maður hafi vitað af því.“ Guðmundur Árni. „Samt held ég að eins og við vomm að tala um áðan að í svona lillu bæjarfélagi, ef þetta hefði verið svona mikið þá hefði maður vitað um það. Maður kemst ekki upp með eitthvað svona í einhverja mánuði, án þess að það vitnist." Benedikt: Finnst ykkur heimurinn sem þið búið í góður heimur og barn- vœnn? Þórarinn: „Já, já, það mætti samt breyta samfélaginu. Mér finnst til dæmis of mikill munur á milli ríkra og fátækra. Það er ekkert góðæri hjá öll- um eins og talað er um. Samt er samfélagið á Islandi ágætt og á ekki eftir að breytast, nema það komi ein- hver kreppa. Heimurinn er ekkert vondur.“ Guðbjörg: Mér finnst íslenskt sam- félag tiltölulega gott og myndi ekkert sleppa bameignum þess vegna. Það eiga alltaf eftir að verða breytingar og ekki hægt að sjá fram á það hvort heimurinn verður góður eða slæmur.“ Guðlaug: „Ég er alveg sammála Guðbjörgu og Island er held ég ágætur staður til þess að ala upp böm. Én ég er að tala um ísland, og ég er ekki eins viss um heiminn. Ég myndi ekki vilja eignast börn hvar sem er.“ Guðmundur Ámi: „Ég er alveg sam- mála, en mér finnst svörtu hliðamar vera fíkniefnin og auðvitað vildi maður ekki að bömin sín lentu í slíku. En ef maður hugsar alltaf neikvætt gerir maður aldrei neitt.“ Benedikt: Þið eruð þá bjartsýnt ungt fólk og hafið trú á framtíðinni? Þórarinn:, Já, já, maður verður að vera það, ef maður ætlar að ná langt í lífinu verður maður að vera bjartsýnn. Mínir vinirem bjartsýnir. Ég held hins vegar að ungt fólk sé ekkert mikið að hugsa um framtíðna. Ungt fólk vill bara skemmta sér, hugsa sem minnst og lifa á foreldrunum, en ef það hugsar um framtíðina held ég að það sé oftast bjartsýnt. Ég vona bara að ungt fólk eigi glæsta framtíð og njóti lífsins." Guðbjörg: „Verður maður ekki að vera bjartsýnn og hress, og lifa lífinu. Mér finnst fólk alltaf skemmtilegra ef það er bjartsýnt og hefur gaman af lífinu, og vona að flestir séu það.“ Guðmundur Árni: „Ef maður horfir alltaf á það neikvæða, væri maður einhvers staðar lokaður í pappakassa. Hins vegar er allur gangur á því hjá ungu fólki hvort það er bjartsýnt eða ekki.“ Guðlaug: „Ég þekki að minnsta kosti mjög fáa sem em svartsýnir og sjá ekki björtu hliðarnar." Benedikt: Þegar þið hafið heyrt í hvort öðru héma íþessu spjalli, finnst ykkur þá að þið eigið meira sam- eiginlegt, en það sem sundrar ykkur? Guðbjörg: „Já mér finnst við eiga mjög margt sameiginlegt og gaman að hitta fólk sem maður talar ekki að staðaldri við.“ Þórarinn: „Já ég er sammála Guð- björgu. Guðlaug: ,Já mér heyrist það að við séurn nokkuð sammála." Guðmundur Ámi: „Já ég held að við eigum meira sameiginlegt, þó að trúlega geti það átt eftir að breytast." Benedikt: Vœruð þið til í svona spjall eftir 50 ár? Guðmundur Ámi: ,Já maður er alltaf opinn fyrir öllu og tilbúinn að skoða eittvhað nýtt.“ Þórarinn: „Ef maður verður á Iífi og heimurinn enn þá til.“ Guðlaug: ,Já,já.“ Guðbjörg: „Ég hugsa að það yrði ógeðslega fyndið, en ég væri sko til í það, alveg hiklaust.“ Þar með lauk spjallinu og við ákváðum að hittast á Café Maríu eftir fimmtíu ár, með þeim fyrirvara að allir héldu heilsu og lífi og Café María héldi að sjálfsögðu velli líka.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.