Fréttir - Eyjafréttir - 06.01.2000, Side 13
Fimmtudagur 6. janúar 2000
Fréttir
13
íris Sæmundsdóttir - Framlag til íþróttamála:
Ovenju glæsilegur ferill
„Kvennaknattspyrna hefur átt
vaxandi gengi að fagna í Vest-
mannaeyjum eins og reyndar víðast
annars staðar í heiminum. ÍBV-
íþróttafélag hefur átt því láni að
fagna að innan félagsins hefur verið
fólk sem sá þessa þróun fyrir og var
tilbúið að fylgja henni eftir með
þeirri ómældu vinnu sem slíkt
krefst,“ sagði Ómar um íþrótta-
pýramídann.
„Það var því engin tilviljun að
ritstjóm Frétta horfði einkum til
kvennaknattspymunnar þegar kom að
því að veita Fréttabikarinn fyrir fram-
lag til íþróttamála í Vestmannaeyjum
árið 1999. Við nánari athugun var
sífellt staldrað oftar við nafn Irisar
Sæmundsdóttur fyrirliða meistara-
flokks ÍBV sem á að baki glæsilegan
feril bæði sem leikmaður og þjálfari
yngri flokkanna. Það var því
sameiginleg niðurstaða okkar að Iris
hlyti Fréttapýramídann fyrir framlag
til íþróttamála íyrir árið 1999.
Iris er enn ung að ámm, er fædd 11.
október 1974 og er því 25 ára í dag.
Hún byrjaði frekar seint að stunda
íþróttir, eða 12 ára gömul. Hún hellti
sér út í handbolta og fótbolta og
stundaði báðar greinar til ársins 1995.
Einnig var Iris í frjálsum íþróttum um
tíma og komst þar oft á verðlaunapall
og setti m.a. Vestmannaeyjamet í 800
m hlaupi.
Ferill Irisar er glæsilegur sem
leikmanns, bæði í handknattleik og
knattspymu. Ef litið er á handknatt-
leikinn fyrst, en þar lék hún sem
vinstri homamaður, er árangurinn
þessi.
1990 var íris valin efnilegust í 3.
flokki ÍBV.
1991 fékk hún Fréttabikarinn, varð
hún Islandsmeistari með 3. flokki IBV
og lék með stúlknalandsliðinu.
1992 valin besti leikmaður 2. flokks
ÍBV.
1993 Islandsmeistari með Víkingi, var
í silfurliði Víkings í 2. flokki og var
valin efnilegasti leikmaður 2. flokks
Víkings.
1994 var hún í silfurliði ÍBV í bikar-
keppni HSÍ.
Ekki er ferillinn síðri í knattspym-
unni.
1990 besti leikmaður 2. flokks ÍBV,
besti leikmaður mfl. IBV, þá aðeins
15 ára.
1991 besti leikmaður 2. flokks ÍBV,
lék alla leikina fimm sem stúlkna-
landsliðið lék það árið og ís-
landsmeistari með 2. flokki ÍBV.
1992 besti leikmaður 2. og mfl. ÍBV.
1993 meistari 2. deildar með Hetti á
Egilsstöðum.
Iris hefur fengið að æfa með
íslenska landsliðinu síðustu árin og
var valin í úrvalslið 1997. Það var svo
sl. sumar að íris var valin í A-
landsliðið og kom inn á sem vara-
maður í sínum íyrsta leik. Er íris fyrsta
konan í IBV sem nær þessum áfanga.
íris hefur leikið 68 leiki með mfl.
ÍB V og skorað í þeim 31 mark. Hún
leikur allar stöður á vellinum og hefur
allan sinn feril í meistaraflokki verið
markahæst þangað til í sumar.
Þá er komið að þjálfuninni sem er
ekki síður glæsileg. íris þjálfaði 5.
flokk kvenna í handknattleik og náði
silfrinu í 5. flokki.
Hún byrjaði ung sem aðstoðar-
þjálfari í fótboltanum og síðustu tvö ár
hefur hún þjálfað 4. flokk kvenna. Á
þessum tveimur árum hefur 4. flokkur
IB V unnið Ijögur gull á Pæjumóti og
tvö brons, þrjá íslandsmeistaratitla og
eitt brons í íslandsmótinu. Þessi fjöldi
helgast af því að um er að ræða fleiri
en eitt lið í hveijum flokki.
Þetta er að sönnu glæsilegur
árangur af ekki eldri konu og er okkur
því bæði heiður og ánægja að veita
henni Fréttapýramídann 1999,“ sagði
Ómar.
GISLI afhendir Guðna Davíð bikar frá Fréttum.
Guðni Davíð - Gullverðlaunahafi á
Olympíuleikum þroskaheftra:
Að vera með
Guðmundur Ingi - Framlag til atvinnumála:
Verðugur fulltrúi út-
gerðarmanna í Eyjum
„Einkaútgerð hefur alla tíð staðið
traustum fótum í Vestmannaeyjum
og sjaldan eða aldrei verið öflugri
en nú þrátt fyrir að minni
útgerðarfélög vítt og breitt um
landið hafi átt undir högg að sækja.
Hafa þessir útgerðarmenn staðið
undir velferð í Vestmannaeyjum og
munu gera það um ókomna
framtíð. Því þó einhverjir séu að
hætta bætast alltaf nýir menn í
skörðin.“
Þannig fylgdi Ómar Fréttapýra-
mídanum fyrir framlag til atvinnumála
úr hlaði og hélt svo áfram: „Verðugur
fulltrúi einkaútgerða í Vestmanna-
eyjum er Guðmundur Ingi Guð-
mundsson útgerðarmaður á Hugin VE
sem hann er oftast kenndur við.
Guðmundur Ingi er fæddur í
Reykjavík 22. október 1932. Hann hóf
sjómennsku sína sem hjálparkokkur á
Gylli 13 ára að aldri. Þaðan lá leið
hans á ýmis skip og báta uns hann fór
í Stýrimannaskólann í Reykjavík og
lauk þaðan fiskimannaprófi árið 1954.
Árið 1955 kom Guðmundur Ingi til
Eyja og hóf að róa á Jötni með Oddi í
Dal. Fyrst sem háseti en síðar sem
stýrimaður og skipstjóri. Hann var
síðan með Hafbjörgina fyrir Ingólf
Theodórsson og Erling IV fyrir Sig-
hvat Bjamason uns hann, í október
1959, stofnaði, ásamt Óskari Sigurðs-
syni á Hvassafelli, hlutafélagið Hugin
og keyptu þeir vélbátinn Hugin VE,
59 tonna trébát. Þann bát gerðu þeir út
til ársins 1964 er þeir létu smíða nýtt
184 tonna stálskip í Noregi sem hlaut
nafnið Huginn II. Árið 1968 keyptu
Guðmundur Ingi og Kristín Pálsdóttir
kona hans hlut Óskars í Hugin hf. og
hefur Huginn hf. síðan verið í eigu
þeirra og bama þeirra.
Þann 18. desember 1973 undirritaði
Guðmundur Ingi samning um smíði á
nýju skipi sem var byggt í Noregi og
afhent útgerðinni árið 1974. Það var
Huginn, 347 tonna stálskip sem ári
síðar var yfirbyggt í Noregi og brú
skipsins hækkuð nokkrum ámm síðar.
Árið 1987 var farið í verulegar endur-
bætur á Hugin, skipt um aðalvél í
skipinu og skut þess slegið út og
honum breytt og árið 1995 var Huginn
lengdur í Póllandi og byggður á hann
bakki.
Guðmundur Ingi var skipstjóri á
Hugin þar til hann lét af sjómennsku
fyrir nokkmm ámm og útgerðarsaga
hans spannar 40 ár. Nú hefur Guð-
mundur Huginn sonur hans tekið við
stjóminni um borð í Hugin.
Guðmundur Ingi er ekki af baki
dottinn því þann 18. desember 1998
undirritaði hann samning við Asmar
skipasmíðastöðina í Chile um smíði á
nýju skipi fyrir útgerðina. Um er að
ræða stálskip sem verður 68,3 metrar
á lengd og 14 metrar á breidd og
verður það búið öllum nýjasta og
fullkomnasta búnaði sem völ er á.
Ráðgert er að skipið verði búið
vinnslu- og frystibúnaði sem afkastað
getur um 100 tonnum af afurðum á
sólarhring. Frystilest skipsins mun
rúma 500 til 600 tonn af afurðum en
auk þess getur skipið borið 1200 tonn
í kældum tönkum. Skip þetta verður
því trúlega flaggskip Eyjaflotans.
Smíði Hugins átti að vera lokið í lok
apríl árið 2000 en einhverjar tafir hafa
orðið á smíðinni og er líklegt að skipð
verði afhent í júlí og komi til heima-
hafnar í Eyjum síðsumars.
Það er okkur heiður að veita Guð-
mundi Inga Fréttapýramídann fyrir
framlag hans til atvinnumála í
Vestmannaeyjum, ekki bara á síðasta
ári heldur síðustu 40 árin.
„Sum afrek fara hljóðar en önnur
og þegar cinstaklingar sem ekki eru
búnir fullri getu til að takast á við
lífíð og tilveruna eru annars vegar
er það eitt að vera þátttakandi
afrek út af fyrir sig.
Við höfum átt íjölda afreksmanna í
hópi fatlaðra og þroskahefta sem má
þakka öflugu starfi íþróttafélagsins
Ægis. Einn þeirra er Guðni Davíð
Stefánsson, 17 ára Eyjapeyi sem gerði
sér lítið fyrir og vann gull á Ólympíu-
leikum þroskaheftra sem fram fóru í
Raleigh í N-Karólínu í Bandaríkj-
unum dagana 26. júní til 4. júlí
síðastliðið sumar.
Guðni Davíð keppti í 50 m og 100
m bringusundi og vann hann 50 m
með glæsibrag. Hann náði einnig
góðum árangri í 100 m og hefði náð
bronsinu ef hann hefði ekki gert ógilt
á lokasprettinum.
Olympíuleikar þroskaheftra eru
stórvirki því þar voru þátttakendur um
7000 frá 150 löndum. Þama var okkar
maður, Guðni Davíð, fremstur meðal
jafningja í sínum riðli. Það tók Guðna
mörg ár að læra að synda og það var
ekki fyrr en í september 1998 að hann
fer að æfa sund. Hann á enn eftir að
læra að stinga sér og að því leyti höfðu
keppinautar hans forskot en hvattur af
sínu fólki seig Guðni Davíð framúr og
sigraði. Er þetta ógleymanleg stund að
því er móðir hans segir.
Okkur á Fréttum langar til að
minnast þessa afreks með því að færa
Guðna Davíð örlítinn virðingavott,“
sagði Ómar um þetta afrek Guðna
Davíðs.
BRASSKVINTETT Vestmannaeyja lék nokkur lög við góðar undirtektar gesta. Hér sjást fjórir úr
kvintettinum, Vilborg Sigurðardóttir, Páll Pálsson, Eggert Björgvinsson og Ólafur Snorrason. Á
myndina vantar Ósvald Guðjónsson.