Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 03.02.2000, Blaðsíða 4

Fréttir - Eyjafréttir - 03.02.2000, Blaðsíða 4
4 Fréttir Fimmtudagur 3. febrúar 2000 BókvitiðT 11. askana Síðasti Ég þakka Braga Ólafssyni fyrir tilnefninguna til bókaormstitils. Svo er best að byrja þennan pistil á því að segja frá einu af slagorðum í vorum virðulega klúbbi hrossakjötsdýrk- enda: „Við hötum nóló - því þá eru ásamir lægstir“. Mestallur lestur hjá mér undanfarið hefur verið í bútum og pörtum, fræðirit og uppsláttarbækur, ásamt alls kyns litlum kiljum sem ég hef keypt dálítið af á undanförnum árum, aðallega ljóð. Og grúsk í gömlum Eyjaritum t.d. Sjómannadagsblöðum, Þjóðhátíðarblöðum og jólablöðum bæjarblaðanna. Undantekningin frá partalestri mínum er bókin „SJÓRÁN OG SIGLINGAR“ eftir Helga Þorláksson sagnfræðing og prófessor við Háskóla Islands sem kom út fyrir s.l. jól. Bókin segir frá ensk - íslenskum samskiptum 1580 - 1630. Helgi segir í formála að kveikjan hafi verið áhugi hans að rannsaka nánar atburði í Vestmannaeyjum árið 1615 þegar enskir sjóræningar undir stjórn manns, sem kallaður var Jón Gentle- man, rændu og rupluðu á Heimaey. Rúmlega fjögur hundruð blaðsíðna bók sem ég gat varla lagt frá mér fyrr en ég var búin lesa hana alla til enda. Bókin er einstaklega lipurlega skril'- uð, áhugaverð, fróðleg og jafnvel spennandi á köflum. Margt sem kemur manni á óvart, ýmsir atburðir sem gerðust hér í og við Eyjar að birtast fyrsta sinn á bók. Fyrir þá sem hafa áhuga á að fræðast nánar og eiga í viðbót um sögu Vestmannaeyja er þetta kjörgripur. Aðrar bækur á náttborðinu mínu eru t.d. bók Harðar Ágústssonar, „ÍSLENSK BYGG- INGARARFLEIÐ 1“ undirtitill: ágrip af húsagerðarsögu 1750-1940, gefin út af Húsfriðunarnefnd ríkisins 1998. Þessi bók er frábærlega vel gerð í alla staði, sem ég get endalaust verið að glugga í, skoða og lesa. Eg nefni bækumar „ÍSLENSKIR MYNDLISTARMENN" í samantekt Gunnars Dal og Sigurðar K. Árna- skjöktbáturinn Jói listó er bókaunnandi vikunnar sonar og „EINFARAR í ÍSLENSKRl MYNDLIST“ eftir Aðalstein Ingólfs- son útg. 1990. Ekki má ég gleyma „SÖGU LISTARINNAR“ eftir E.H. Gomb- rich í þýðingu Halldórs Bjöms Runólfssonar útg. 1997, ljóslifandi og fræðandi lýsing á skiljanlegu manna- máli - nærri fjögur hundmð litmyndir af málverkum, höggmyndum og merkum byggingum. Mér finnst að þessi bók ætti að vera til á flestum heimilum, - skyldulesning? Eina skáldsögu vil ég nefna það er „ÞETTA ER ALLT AÐ KOMA“ eftir Hallgrím Helgason útg. 1994 - sjúklega geggjaður húmor frá upphaft til enda. Nýjasta bókin á náttborðinu „ORÐ f TÍMA TÖLUГ íslensk tilvitnunar- bók eftir Tryggva Gíslason útg. 1999, uppmni og höfundar fleygra orða og hnyttiyrða. Frábær og kærkomin bók sem hefur vantað, full af fróðleik. Það getur stundum verið eitthvað í amstri dagsins sem veldur þungri færð á sálartetrinu Þá er tilvalið að grípa „EDDU“ Þórbergs úr bókahillunni - kostulegur kveðskapur og texti kemur manni alltaf í gott skap, enda er Þórbergur Þórðarson einn fyndnasti maður íslandssögunnar að mínum dómi. Nýlega rakst ég á grein í Sjómannadagsblaði Vestmannaeyja 1967 eftir Eyjólf Gíslason skipstjóra frá Búastöðum sem heitir „GÖMLU SKJÖKTBÁTARNIR'* og undir- fyrirsögn: síðasti skjöktbáturinn með , Jenslaginu". í greininni lýsir Eyjólf- ur vel hvað skjöktbátarnir vom mikilvægir og stór þáttur í útgerðar- sögu Vestmannaeyja þegar allur véíbátaflotinn var bundinn úti við ból og við löndun þegar bryggjur vom bæði fáar og litlar. Uppskipun,sanda- ferðir, heyflutningar og úteyjaferðir við fugla, eggjatöku og fjárflutninga. - En hvað? enginn skjöktbátur til minja. Eyjólfur segir frá því hvað litlu munaði að tækist að bjarga síðasta skjöktbátnum frá glötun. Rétt á meðan verið var að útvega húsnæði yfir bátinn, bmtu einhverjir afglapar bátinn í spón. Þetta segir okkur að það er bæði gömul saga og ný þetta skelfi- lega , mér liggur við að segja glæp- samlegt skeytingarleysi varðandi muni og minjar fyrri tíma, - undir- stöðu nútíðar og framtíðar. Eins og ég sagði hef ég talsvert verið að grúska í jólaútgáfum bæjar- blaðanna, gömlum og nýrri. Margt er þar forvitnilegt að finna, prýðilega unnið og vel fram sett, gamlar ljós- myndir algengar. Annars em þessi blöð oft á tíðum óttalega metnaðar- laus, sérstaklega ber lítið á nýsköpun, t.d. fmmort ljóð, frumsamdar sögur. Þá er komið að því að skora á nýjan bókaorm. Ég sé enga sérstaka ástæðu til að sækja út fyrir hrossa- kjötið, því skora ég á Sigurð Guð- mundsson ( Sigga Gúmm) grafara- viðgerðamann og forstjóra Fjölverks til að lesa okkur pistilinn. Ég er viss um að Siggi lumar á ýmsu góðu. Eitt að lokum, hafið þið smakkað saltaðan lestrarhest? nei, og ekki heldur r....?... nú er nóg komið - takk fyrir það. Burt með vímuefnin Tveir ungir Vestmannaeyingar sitja nú sem þingmenn á alþingi barna eins og getið var um í Fréttum fyrir skömmu. Annarþeirra er Eyjamaður vikunnar af því tilefni. Fullt nafn? Daníel Steingrímsson. Fæðingardagur og ár? 13.janúar 1986. Fæðingarstaður? Vestmannaeyjar. Fjölskylduhagir? Bý í foreldrahúsum. Menntun og starf? Er í 8. bekk í Barnaskóla Vestmannaeyja. Ber út Moggann. Laun? Ekkertalltof mikil. Bifreið? Engineins og er en Mercedes Bens er ofarlega á óskalistanum. Helsti galli? Á erfitt meða að vakna á morgnana. Helsti kostur? Þokkalega duglegur að læra. Uppáhaldsmatur? Pitsa og bragðsterkur matur. Versti matur? Þorramatur, hákarl og svoleiðis. Uppáhaldsdrykkur? Kók. Uppáhaldstónlist? Venjuleg unglingatónlist. Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Að sofa. Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir? Að vakna Daníel Steingrímsson er Eyjamaður vikunnar snemma a morgnana. Hvað myndirðu gera ef þú ynnir milljón í happ- drætti? Kaupa mér bíógræjur. Uppáhaldsstjórnmálamaður? Enginn. Uppáhaldsíþróttamaður? Shaquil O Neal, körfu- boltamaður. Ertu meðlimur íeinhverjum félagsskap? Nei. Uppáhaldssjónvarpsefni? Friends og Simpson. Uppáhaldsbók? Engin sérstök. Hvað metur þú mest í fari annarra? Gottskap. Að fólk sé ígóðu stuði. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Fýla. Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Þeir eru margir fallegir. Vestmannaeyjar og Þórsmörk. í hverju er starfþitt sem þing- manns fólgið? Ég var kosinn formaður í minni nefnd sem fjallar um ofbeldi og vímuefna- varnir. Ég sé t.d. um að koma tillögum okkará framfæri. Ert þú sjálfur áhugamaður um þessi málefni? Já, mér finnst að hvort tveggja mætti minnka í þjóðfélaginu, ofbeldi og neysla vímuefna. Heldurðu að þú verðir „alvöruþingmaður“ í framtíð- inni? Eg veit það ekki. Tíminn sker úr um það. Eitthvað að lokum? Ég vona að Vestmannaeyjar geti orðið lausar við fíkniefni í framtíðinni. Nýfæddir________ * vestmannaeyingar Þann 19. nóvember eignuðust Hlíf Ragnarsdóttir og Stefán Guðmundsson dóttur. Hún vó 11 merkur og var 46 cm að lengd. Hún hefur hlotið nafnið Elín Perla. Á myndinni er hún með stóru systur Önnu Mjöll. Fjölskyldan býr í Þorlákshöfn. Þann 13. desember eignuðust Þóra Guðný Sigurðardóttir og Gunnar Marel Eggertsson son. Hann vó 13 1/2 mörk og var 53 cm að lengd. Hann er hér í fangi stóru systur sinnar Elísu. Hann fæddist á sjúkrahúsinu í Keflavík. Ljósmóðir var Guðrún Guðbjartsdóttir. Fjölskyldan býr í Reykjavík. Þann 13. desember eignuðust Aðalbjörg Skarphéðinsdótt- ir og Magnús Ingi Eggertsson dóttur. Hún vó lómerkur og var 51 cm að lengd. Hún hefur fengið heitið Hafdís. Hún fæddist á fæðingardeild Landsspítalans. Ljósmóðir var Hjördís Karlsdóttir. Fjölskyldan býr í Kópavogi. Á döfinni 4* 3. feb. Kaffifvndur ÍBV-íþróttafélags í Þórsheimilinu Id. 09.00 3. feb Bingó IBV að venju 3. feb Almennur fundur bæjarstjómar í Listaskólanum kl. 18 3. feb Fyridestur í Rannsóknasetrinu um nýju nóttúruvemdadögin kl. 20.30 6. feb. Aðalfundur Verkstjórafélagsins. 10. feb Aðalfundur Rónar 12. feb Þorrablót Sjóve

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.