Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 03.02.2000, Blaðsíða 11

Fréttir - Eyjafréttir - 03.02.2000, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 3. febrúar 2000 Fréttir 11 V p ar. éi*w- mtjVlr.jnl ( &•* •5' ÞÁTTTAKENDUR í námskeiðinu voru tæplega 50, flestir tengjast rekstri með einhverjum hætti en einnig mátti sjá fólk sem vinnur á öðrum vettvangi. Samkeppnin, Nýsköpun 2000: Leið til að auka grósku í atvinnulífinu -Sparisjóðurinn veitir sérstök verðlaun fyrir bestu viðskiptahugmyndina sem kemurfrá Eyjum í tengslum við námskeiðið og samkeppnina Nýsköpun 2000, sem Nýsköpunarsjóður, Háskólinn í Reykjavík, KPMG-Endurskoðun og Morgunblaðið stóðu fyrir í Vestmannaeyjum 25. janúar síðast- liðinn, hefur Sparisjóðurinn ákveð- ið að verðlauna bestu tillöguna sem héðan berst með 100.000 króna framlagi. AIls sóttu námskeiðið milli 40 og 50 manns sem er mun meira en gert var ráð fyrir. Með Nýsköpun 2000 vilja aðstand- endur stuðla að aukinni grósku í íslensku atvinnulífi. Fyrst er haldið námskeið og í framhaldi af því býðst fólki kostur á að taka þátt í samkeppni í gerð viðskiptaáætlana. Vegleg verð- laun eru í boði, fyrstu verðlaun eru ein milljón króna, önnur verðlaun hálf milljón og síðan fá þeir sem hljóta þriðju til sjöundu verðlaun 100 þúsund krónur hver. Fólki með viðskiptahugmyndir gefst þama, sér að kostnaðarlausu, að vinna að gerð viðskiptaáætlana og ef marka má aðsóknina virðast margir hér í bæ ganga með hugmyndir um einhveija nýsköpun í atvinnu. Þróunarfélag Vestmannaeyja sá um framkvæmdina hér og segir Margrét Hjálmarsdóttir, starfsmaður félagsins, að tveir menn hafi komið í tengslum við verkefnið, Aðalsteinn Magnússon hjá KPMG-Endurskoðun, leiðbein- andi og G. Agúst Pétursson verkefnis- stjóri. „Þátttakendur í námskeiðinu voru 47 sem er mjög góð þátttaka," segir Margrét. „Námskeiðið stóð eitt kvöld og var kennsla í gerð við- skiptaáætlana sem tengist samkeppn- inni Nýsköpun 2000. Allir fengu diskling og gögn sem hægt er að hafa til hliðsjónar við gerð viðskipta- áætlana. Það er ekkert því til fyrirstöðu að þeir sem ætla sér í keppnina leiti sér frekari aðstoðar. Meðal annars hefur Bjarki Brynjars- son hjá Kaupþingi Suðurlands boðið fram aðstoð sína.“ Ekki segist Margrét vita um fólk sem ætlar að slá til og skella sér í keppnina en hún segir að nokkrir hafi sýnt því áhuga. „Mér fannst á nokkrum að áhuginn væri fyrir hendi. Það kom bæði fram hjá Ágústi og Aðalsteini að það er ekki endilega verið að leita að hugmyndum að stór- fyrirtækjum heldur fólki með athyglis- verðar hugmyndir. Allir eiga mögu- leika, sama hvort hugmyndin er að stóru eða litlu fyrirtæki. Það sem skiptir máli er að hugmyndin sé góð og vel útfærð,“ segir Margrét. I dómnefnd verða fulltrúar Ný- sköpunarsjóðs, Morgunblaðsins, Há- skólans í Reykjavík og KPMG- Endurskoðunar. Skilafrestur er til 10. apríl og tekur nefndin sér einn til tvo mánuði til að meta verkefnin. Olafur Elísson, sparisjóðsstjóri, segir að þama sé á ferðinni mjög athyglisvert framtak sem Sparisjóð- urinn hafi fylgst með. „Okkar þáttur til þessa er að við lánuðum húsnæði undir fundinn en um leið sjáum við að þama er mjög merkilegt framtak á ferðinni sem getur nýst okkur Eyjamönnum,“ segir Ólafur. Hann segir að strax hafi komið fram vilji innan Sparisjóðsins að leggja þeim lið sem hyggjast nýta sér námskeiðið og ekki síst þeim sem ætla að taka þátt í samkeppninni. „Við höfum yfir að ráða þekkingu til ráðgjafar í viðskiptum, sama hver þau em og standa þau öllum til boða. Þeir sem ætla að taka þátt í samkeppninni geta nýtt sér þessa þjónustu. Auk þess hefur Sparisjóðurinn ákveðið að verðlauna bestu viðskiptaáætlunina sem kemur frá Vestmannaeyjum með 100 þúsund krónum. Verður það hlut- verk dómnefndar samkeppninar að dæma um hver hlýtur verðlaunin. Við komum þar hvergi nærri.“ Ólafur segir að gera megi ráð fyrir fjórum til sex áætlunum frá Vest- mannaeyjum í samkeppnina. „Þær gætu síðan orðið að fyrirtækjum sem kannski verða ekki stór í upphafi. En mjór er mikils vísir og fyrirtæki sem byrja með einn starfsmann eða tvo geta á nokkrum áium vaxið í að skapa fleirum atvinnu. Eg er sannfærður um að meðal þeirra sem mættu á nám- skeiðið er fólk með hugmyndir sem gætu getið af sér fyrirtæki af þessari stærð. Það er einmitt það sem okkur vantar hér í bæ til að auka tjölbreytni í atvinnulífinu. Það er von mín að við eigum eftir að sjá einhvem vaxtar- brodd hér í atvinnulífi í kjölfar samkeppninnar,“ sagði Ólafur. Askorunin gengur vonum framar „Þetta er frábær hópur og mikil stemmning ríkjandi meðal þátttakenda," segir Jóhanna Jóhannsdóttir í Hressó um Áskomn Hressó þar sem fólki stendur til boða að taka sér tak með því að auka hreyfingu, fækka kílóunum og bæta mataræðið. Alls em þátttakendur 34. „Það em allir svo ákveðnir og jákvæðir og hver einasti þátttakandi að ná árangri. Hópurinn missti 34 kíló fyrstu vikuna og 28 þá næstu. Það stefnir því í að að þetta verði langbesta námskeiðið sem haldið hefur verið á Hressó til þessa.“ Tveir þátttakendur, Lilla og Jói, foreldrar Önnu Dóm og Jóhönnu sem eiga og reka Hressó, em meðal þátttakenda og ákváðu þau að gera það fyrir opnum tjöldum. Opinbem þátttakendumir eins og þau em kölluð, em að ná mjög góðum árangri. Jói hefur þurft að dvelja í Reykjavík en þær systur sendu hann bara til þjálfara í Erobiksport í Reykjavík auk þess sem hann fékk með sér nóg af fæðubótarefnum og góðar leiðbeiningar um mataræði. „Pabbi missti 4,7 kg. á fyrstu tveimur vikunum en Lilla hefur æft með hópnum og er á góðri leið með ná sínum markmiðum. Hún hefur misst 1,5 kg. En þau bættu um betur og hættu bæði að reykja um leið. Hafa þau haldið reykingabindindið til þessa. Fjármál á f immtudegi Eftir Bjarka Brynjarsson Vilnanir (e. options) Vilnanir em samningar milli tveggja aðila, þar sem annar aðilinn á réttinn á því að kaupa ákveðna upphæð af gjaldeyri á ákveðnu gengi á um- sömdum tíma í framtíðinni af öðmm aðila. Fyrrgreindi aðilinn er kaupandi að vilnun, hinn síðamefndi er seljandi hennar. Lengd vilnana er yfirleitt heldur minni en í framvirkum samningum. Vegna þess að kaupandi vilnunarinnar þarf einungis að láta viðskiptin ganga eftir, ef það hentar honum, verður hann að greiða seljandanum þóknun. Dæmi: Félag kaupir vilnun af verð- bréfafyrirtæki um að eftir þrjá mánuði megi félagið kaupa $1.000.000 fyrir kr. 74.000.000. Fyrir þennan valrétt greiðir félagið þóknun 2,05% af samningsupphæðinni eða kr. 1.517.000. Eins og framvirkir gjald- eyrissamningar geta vilnanir verið á milli nánast hvaða mynta sem er og til hvaða tíma sem er, þó innan árs, en oftast er um heila mánuði að ræða. Kaupandi vilnunar getur aldrei tapað meim en sem nemur þeirri þóknun sem hann greiðir seljanda vilnunarinnar, því ef gengisbreytingar em honum óhagkvæmar þarf hann ekki að láta viðskiptin ganga eftir og gerir það ekki. Fyrir seljanda vilnunarinnar getur tapið hins vegar fræðilega verið ótakmarkað. Verðlagning vilnana, þ.e. hvaða þóknun kaupandi á að greiða fyrir valrétt sinn, er töluvert flókin. Þeir þættir sem skipta máli varðandi verðið em: vaxtamunur á milli mynta, tímalengd samnings, sveiflur gjald- miðla, mismunur á daggengi og um- sömdu viðskiptagengi. Vilnanir em í flestum tilvikum notaðar á sama hátt og framvirkir samningar, þó að útkoman sé nokkuð frábmgðin. Margir nota vilnanir meira sem tryggingu sem takmarkar tap þeirra af einhverjum gengisbreyt- ingum heldur en til að festa ákveðið gengi, eins og gert er með framvirkum samningum. Dæmi um notkun vilnana gæti verið sjávarútvegs- íyrirtæki sem selur loðnu til Japan og fær greitt í jenum eftir þrjá mánuði. Mikil óvissa er um það í huga fjármálastjórans hvort jenið muni hækka eða lækka. Hann vill tryggja sig fyrir stóráföllum ef jenið lækkar, en jafnframt eiga möguleika á því að hagnast ef jenið styrkist. Því kaupir hann vilnun frekar en að gera framvirkan samning, sem veitir honum rétt til að selja jenin á ákveðnu gengi eftir þrjá mánuði og borgar fyrir það þóknun til seljandans. Annað dæmi gæti verið verktaki sem býður í verk. Fái verktakinn verkið fær hann greidda 1.000.000 franka eftir 6 mánuði. Verktakinn vill tryggja sig fyrir lækkun frankans og sér í hendi sér að mun hentugra er fyrir hann að kaupa vilnun heldur en að gera framvirkan samning. Geri hann fram- virkan samning og fær síðan ekki útboðið situr hann uppi með 1.000.000 franka á umsömdu gengi. Með vilnun sleppur hann með að greiða þóknunina. Heimild: Ármann Þorvaldsson Bjarki A. Brynjarsson Forstöðumaður Kaupþings hf. á Suðurlandi Fréttapistill frá Gallerí Heimalist Með hækkandi sól og bjartari dögum færist líf og Qör í alla menn. Menn taka að ganga um götur með bros í augum og eldmóð og orku í æðum. Hjá okkar fólki í Gallerí Heimalist er kominn fjörkippur hinn mesti. Galleríið verður á þessu ári tíu ára og er eitt elsta gallerí á landinu, a.m.k. utan Reykjavíkur og starfar allt árið. I upphafi lánaði Sigurður Einarsson okkur neðri hæðina í Vöruhúsinu, sem nú er Café María, og á hann þakkir skildar fyrir. Þetta var glæsilegur salur og glæsileg byijun. Þó við séum núna í minna húsnæði er Galleríið enn glæsilegt. Fjöl- breytnin mikil í alls kyns listaverkum og handverki. Þar hefur lundaþemað okkar slegið í gegn. Hafa lundapeys- umar verið vinsælar og selst jafnvel ókláraðar. Einnig eru hefðbundnu lopavörumar vinsælar og þá ung- bamafatnaðurinn. Síðast en ekki síst em gjafavörumar, s.s. málverk, skálar ýmiss konar, gler, leir og fleira mjög vinsælt. Sjón er sögu ríkari. Með kveðjufrá Gallerí Heimalist, Hilmir Högnason og Guðný Hilmisdóttir.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.