Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 03.02.2000, Blaðsíða 15

Fréttir - Eyjafréttir - 03.02.2000, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 3. febrúar 2000 Fréttir 15 Handbolti kvenna: ÍBV 28 - Fram 25 Mikilvass IBV mætti Fram hér í Eyjum síðasta laugardag, en leiknum hafði verið frestað frá því um föstu- dagskvöldið. Stelpurnar höfðu aðeins tapað einum heimaleik í íslandsmótinu og voru staðráðnar í að hafa þá ekki fleiri. Leikurinn byrjaði vel fyrir þær, fyrsta markið var þeirra en svo svöruðu Framarar fyrir sig og komust í 3 - 4. Mest var forysta gestanna tvö mörk, 8 -10 en með mikilli baráttu, góðum varnarleik og frábærri markvörslu Vigdísar náði IBV að snúa leiknum sér í hag og ná tveggja marka forystu í hálfleik 14- 12. Stelpumar héldu uppteknum hætti í seinni hálfleik og höfðu leikinn í hendi sér framan af. Andrea Atla- dóttir átti fínan leik, skoraði fimm mörk, þar af fjögur þegar þurfti í seinni hálfleik. En þá kom slæmur kafli í leik stelpnanna, gestimir gengu á lagið og minnkuðu muninn í eitt mark 23-22. Stelpumar náðu hins vegar aftur tökum á leik sínum, Hind Hannesdóttir skoraði tvö mikilvæg mörk og sigurinn varð nokkuð sann- færandi 28-25. Þess má geta að Lúsí varði tvö vítaköst á síðustu mínútunni við mikinn fögnuð áhorfenda. Eftir leikinn sagði Sigurbjöm þjálfari að mnnið hefðu á sig tvær grímur þegar Framarar áttu möguleika á að jafna „Leikurinn hefði getað farið öðmvísi, en í þetta sinn var lukkan okkar megin, þökk sé mikilli baráttu og sigurvilja stelpnanna. Við höfum verið í lægð að undanfömu, en ég vona að þessi úrslit séu aðeins undanfari betri tíma. Nú þurfum við bara að einbeita okkur að næsta leik gegn Víkingum á útivelli og þann leik ætlum við að vinna. Þær stálu af okkur stigi héma í haust og em efstar í deildinni, en við sjáum hvað setur.“ Mörk ÍBV: Anita Andreassen 7, Amela Hegic 6/4, Andrea Atladóttir 5, Hind Hannesdóttir 4, Ingibjörg Jónsdóttir 3, Guðbjörg Guðmanns- dótúr 2, Mette Einarsen 1. Varin skot: Vigdís Sigurðadóttir 11, Luckrecia Bokan 6/2. TOYOTA ^ jp , J u SIGRI fagnað eftir. Stelpurnar lönduðu sínum sjötta heimasigri í leiknum á laugardaginn. Körfuboltinn: IV 71 Þór Þorlákshöfn 79 Góður sprettur í lokin dusði ekki til Knattspyrna: Sigur ■ fyrsta leík ársins 2000 Um helgina keppti IBV við lið Fylkis í knattspyrnuhöllinni í Keflavík. Eins og flestir vita þjálfar Bjarni Jóhannesson fyrrv. þjálfari ÍBV lið Fylkis, og fyrrv. aðstoðarmaður hans Kristinn R. Jónsson þjálfar lið ÍBV. Það fór svo í þetta sinn að eggið kenndi hænunni og leikmenn IBV sigmðu ömgglega 3-1. Staðan í hálfleik var 2-1 fyrir ÍBV. Mörk ÍBV skomðu þeir Ingi, Steingrímur og Gunnar Heiðar. Hlynur Stefánsson fyrirliði sagði að leikur liðsins hefði verið nokkuð góður þrátt fyrir árstímann. „Við mættum vel stemmdir til leiks og nutum þess bara að spila við frábærar aðstæður. Við vomm með nokkra unga peyja sem komu mjög sterkir inn og reyndar vom allir að standa sig mjög vel.“ En hvað fannst Hlyn um aðstæður Keflavíkurliðsins? „Þessar aðstæður em í hæsta gæðaflokki. Þama er maður að spila inni í 10-15 gráðu hita alveg óháð veðri og vindum. Völlurinn er lagður sandgervigrasi sem er það besta í dag, reyndar er hægt að brenna sig á því eins og öðm gervigrasi en það gerir lítið úl.“ ÍV mætti efsta liði 1. deildarinnar, Þór úr Þorlákshöfn, í Iþróttahöll- inni á laugardaginn var. Frekar var búist við erfiðum leik heima- manna þar sem David Grissom þjálfari og jafnframt einn af burðarásum liðsins var meiddur og spiiaði ekki. En þegar á hólminn var komið kom í ljós að gestirnir gátu ekki heidur stillt upp sínu sterkasta liði þannig að það jafnaðist út. En leikurinn var allt annað en jafn framan af. Þórsarar hreinlega yfir- spiluðu Eyjamenn í fyrri hálfleik og náðu yfir tuttugu stiga forystu um tíma. Staðan í hálfleik var 29 - 49 og útlitið allt annað en gott. Seinni hálfleikur var á dálítið Breytingar hafa orðið á stjórn knattspyrnudeildar IBV. Sem kunnugt er hættu Jóhannes Olafs- son formaður og Tryggvi Kr. Ólafsson í stjórn knattspyrnu- deildar í haust eftir 11 ára farsælt starf. Stjóm knattspymudeildar hefur borist góður liðsauki í þeim Stefáni Erlends- syni og Valgeiri Kolbeinssyni. Auk þess em áfram þeir Eggert Garð- arsson, Guðni Hjörleifsson, Siguijón Birgisson og Sigursteinn Leifsson. Framkvæmdastjóri knattspymu- deildar verður sem íyrr Þorsteinn Gunnarsson. Að sögn hans er stefnt að því að bæta einum manni við í stjóm knattspymudeildar, yrði það vænt- anlega formaður og er verið að vinna í þeim málum þessa dagana. „Undirbúningur fyrir næsta tímabil öðmm nótum, Eyjamenn vom stað- ráðnir í að láta martröðina úr fyrri leik liðanna ekki endurtaka sig. Baráttan sem vantaði í liðið í fyrri hálfleik var komin og smátt og smátt minnkaði forskot gestanna. Þegar um 5 mínútur vom eftir var forskotið komið niður í 14 stig og enn von. Undir lokin náðu Eyjapeyjar að veita þeim áhorfendum sem ekki vom famir ágætis skemmtun því að munurinn var aðeins sex súg og mínúta eftir. IV fékk svo kjörið tækifæri á að minnka muninn í þrjú stig, en heppnin var ekki á bandi heimamanna og gestimir lönduðu kærkomnum sigri 71-79, þ.e.a.s. fyrir þá. „Þetta var ekki nógu góður leikur hjá okkur. Við byijuðum illa, það var í fótboltanum hófst strax á haust- dögum og fór allt á fullt í lok október. Þá hófust æfingar í öllum flokkum, karla og kvenna. Leikmannamál í meistaraflokki karla og kvenna liggja nokkuð ljós fyrir og sem fyrr er mikil rækt lögð við yngri flokkana þar sem framtíð okkar liggur. Það sem við í knattspymuforystunni höfum mestar áhyggur af þessa dagana er hvort við fáum ekki örugglega að spila heima- leiki karlaliðs IBV á Hásteinsvelli í sumar en KSÍ hefur sett ákveðnar reglur um skipulögð áhorfendasvæði. Iþróttafulltrúa og bæjartæknifræðingi bæjarins var falið að koma með tillögur um skipulögð áhorfendasvæði við völlinn og nú er beðið eftir af- greiðslu bæjarstjómar á mjög svo góðum tillögum þeirra," sagði Þor- steinn. eins og það vantaði þessa svokölluðu Eyjabaráttu og rnenn vom frekar and- lausir í byrjun. I lok síðari hálfleiks kom upp Eyjabaráttan og náðum við að saxa á forskotið niður í sex stig en það dugði ekki til og urðum við að bara að sætta okkur við það. Það setti líka strik í reikninginn að hinn gríðar- sterki David Grissom, sem stjómar vöm og sókn af mikilli kænsku, var meiddur. En þessi leikur er að baki og það þýðir ekkert að pirra sig á honum, við vinnum bara Val um næstu helgi og endurheimtum þriðja sætið okkar.“ Handbolti:Yngri fl. Ljósir punktar Strákarnir í 5. flokki karla héldu upp á fastalandið og léku í 3. umf. íslandsmótsins í handknattleik. Mótið var haldið í Hafnarfirði þar sem Haukar og FH sáu saman um mótið í sínum íþróttahúsum. Eins og áður sendi IBV tvö lið í keppnina, ÍBVl og ÍBV2 Strákamir í IBV 1 náðu sínum besta árangri í vetur með því að vinna tvo leiki og tapa tveimur. Strákana vantaði aðeins eitt stig til að komast í úrslit en einn leikur tapaðist með aðeins einu marki, jafntefli hefði tryggt þeim sæti í úrslitum. Þrátt fyrir að ÍBV hafi ekki náð sæti í úrslitum þá sýndu þeir miklar fram- farir og margir ljósir punktar sáust í leik liðsins. Nú þurfa strákarnir að bæta aðeins við sig, æfa af krafti og alvöru svo hægt verði að komast skrefinu lengra í næstu keppni. ÍBV2 var skipað leikmönnum sem allir eru á fyrsta ári í 5. fl. Þeir stóðu sig með prýði, gerðu eitt jafntefli og töpuðu tveimur. Knattspyrna: Skipti í stjórn knattspd. ÍBV Stefán 03 Valseir inn Óheppnar Eyjastúlkur Þrátt fyrir að stúlkurnar í 2. flokki ÍBV hafi ekki náð að sýna sitt rétta andlit í vetur þá komu þær vel stemmdar til leiks gegn toppliðinu Val sL sunnudag. Eyjastúlkur byij- uðu leikinn betur og náðu strax þriggja marka forustu. Valsstúlkur hleyptu Eyjastúlkumþó aldrei langt frá sér þrátt fýrir að IBV hafi verið með forustuna nánast allt til loka leiksins. Þegar aðeins fjórar mín- útur vom eftir af leiknum var einum leikmanni ÍBV vísað af leikvelli og það áttu gesúmir eftir að nýta sér í vil. Einum leikmanni færri náðu Eyjastúlkur ekki að halda dampi, Valsstúlkur náðu að síga fram úr og sigmðu með aðeins einu marki, 23-22. Heppnin var hliðhollari gestunum í þessum leik en stúlkumar frá Hlíðarenda þurftu svo sannarlega að hafa fyrir því að leggja sprækar Eyjastúlkur af velli. Aðall Eyjaliðsins í þessum leik var vamarleikur og hraðaupphlaup sem oft nýttust vel. Heppnin var sem fyrr segir það sem skar úr um hvom megin sigurinn lenti. Valsstúlkur em nú í efsta sæti með 10 stig en ÍBV er í 5. sæti með tvö stig. Gaui bætir sig í sjöþrautinni Guðjón Kristinn Ólafsson keppti um helgina á Meistaramóti íslands og tók hann þátt í sjöþraut. Óhætt er að segja að árangur Guðjóns sé nokkuð góður, 5 ný Vestmannaeyjamet litu dagsins ljós og endaði hann í 6. sæti af þeim 14 keppendum sem hófu leik. Vest- mannaeyjametin setti Guðjón í kúluvarpi, langstökki, 60 metra grindahlaupi og 1000 metra hlaupi, hann fékk 3381 stig sem er einnig Vestmannaeyjamet. Þegar Fréttir höfðu samband við pilt var hann staddur í Reykjavík, nánar tiltekið í Kringlunni að kaupa sér geisladisk. Aðspurður um ár- angurinn sagðist hann vera nokkuð sáttur við hann. „ Ég ætlaði reyndar bara að keppa í stangarstökkinu, en þegar á hólminn var komið ákvað ég að taka allan pakkann. Það gerði það hins vegar að verkum að árangurinn í stangarstökkinu var ekki eins góður og ég ætlaði mér. En fimm Vestmannaeyjamet eru hins vegar alveg ásættanlegt.“ sagði Gaui að lokum. Framundan Fimmtudagur 3. febrúar Kl. 20.30 Bingó unglingaráðs í Þórsheimili. Laugardagur 5. febrúar Kl. 14.00 Keflavík - ÍBV, mfl. karla í Reykjanesshöllinni Kl. 14.45 Fylkir-ÍBV 2.fl. kvenna Sunnudagur 6. febrúar Kl. 14.00 Grótta/KR-ÍBV 2. fl. kvenna. Kl. 20.00 Víkingur-ÍBV karlar Kl. 20.00 Valur-ÍV karfan Mánudagur 7. febrúar Kl. 20.00 Fram-ÍBV 2.11. karlar Æfingatafla á heimasíðu ÍBV Iðkendur í yngri flokkum ÍBV í knattspyrnu, athugið að æfingatöflu knattspyrnudeildar er nú að finna á heimasíðu ÍBV. Slóðin er www.ibv.is/fotbolti. Knattspyrnudeild ÍBV.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.