Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 03.02.2000, Blaðsíða 8

Fréttir - Eyjafréttir - 03.02.2000, Blaðsíða 8
8 Fréttir Fimmtudagur 3. febrúar 2000 r Hólmfríður Olafsdóttir hjúkrunarfræðingur segir frá uppvexti sínu Hólmfríður Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur flutti til Vestmannaeyja árið 1961, en áður hafði hún komið til Eyja til þess að vinna á Sjúkrahúsinu, sem hluta af námi sínu. Hún erfædd og uppalin í Reykjavík árið 1936 í Hellusundi 6 og tilheyrir Þingholtunum. Hún átti um margt óvenjulega æsku, vegna þess að foreldrar hennar skildu og hafði hún því lítið af föður sínum, Ólafi Þórðarsyni mjólkurfræðingi að segja fyrr en hún var orðin 16 ára. Það var ólíkt hlut- skipti að vera skilnaðar- barn á þessum árum heldur en nú er og um margt erfiðara. Foreldrar Hólmfríðar skildu þegar hún var sex ára, þannig að hún elst upp hjá móður sinni Aðalheiði Knudsen og fjölskyldu hennar. Hólmfríður segir að fjölskyldan hafi verið stór og samheldin, sem kom sér vel þar sem móðir hennar hafi alla tíð unnið úti. Hólmfríður var einnig í sveit í Alviðru í Ölfusi á sumrin þegar hún var barn. Skilnaðarbam Hólmfríður segir að hún eigi mjög góðar minningar úr sveitinni. „Það var símstöð hjá Áma bónda í Alviðru og þess vegna oft meiri umferð þar. Þá var maður stundum sendur langar leiðir til þess að ná í fólk í síma og fékk stundum krónu fyrir Ég var komin í sveitina snemma á vorin og tíl Reykjavfkur rétt áður en skólinn byijaði á haustin, einnig var ég yfirleitt alla páska í sveitinni. Það voru örfáir sumarbústaðir þama þá. Ragnar í Smára átti bústað sinn við Álftavatn og ég man eftir honum koma í Alviðru til þess að hringja, Ámi Tryggvason, seinna sendiherra, var þama líka með bústað og svo átti móðurfólkið mitt bústað þama við Sogið sem kallaður var Laxabakki." Hvemig var að vera skilnaðarbam á þessum tíma, fannst þér þetta erfitt hlutskipti? „Ég hef nú oft hugsað um það seinna þegar alltaf er verið að tala um forræði. Pabbi minn flutti í Borgar- nes, þar sem hann starfaði sem mjólkurfræðingur. Hann kvæntist þar og eignaðist tíu böm, en ég sá hann eiginlega ekki aftur fyrr en rétt áður en ég var fermd. Trúlega hafa einhver sárindi verið í gangi, en samt var ég aldei látin finna fyrir því og mamma talaði aldrei illa um hann. En það hefur nú haft mikið að segja, fjar- lægðin upp í Borgames, að samskiptin urðu ekki meiri og pabbi önnum kafinn með fullt hús af bömum og einhveijar skepnur var hann með líka. Þó hef ég aldrei spurt almennilega út í þetta. En ég fékk hins vegar ekki að fara upp í Borgames fyrr en ég var orðin sextán ára. En það varð svo seinna meir mjög gott á milli okkar og Tvö herbergi og hálft eldhús hann giftist afskaplega góðri konu og við urðum miklar vinkonur. Mamma mín giftist hins vegar ekki aftur. Hún lærði garðyrkju þegar hún var ung og lærði seinna blómaskreytingar í Danmörku. Fyrst vann hún í blóma- búðinni Flóm, sem var stærsta blómabúðin í Reykjavík í þá daga. En 1957 stofnaði hún ásamt tveimur öðrum sem líka höfðu unnið í Flóm, nýja blómabúð, Blómið, sem þær ráku í um tuttugu ár.“ Hólmfríður segist oft hugsa tíl þessa tíma þegar mamma hennar kom hlaupandi heim í hádeginu til þess að vera með heitan mat handa henni. „Maður var nú ekki alltaf tilbúinn til þess að borða fiskinn og fúlsaði stund- um við honum. Hins vegar var kannski það erfiðasta við að vera skilnaðarbam, þegar ég kom í bama- skólann. Þá vora oft einhverjar skýrslugerðir sem kennarar og hjúkmnarkonan urðu að gera og þá var alltaf talað yfir allan bekkinn hversu margir vom í heimili og fjöldi herbergja og svo framvegis, og ég svaraði því til að við hefðum tvö herbergi og hálft eldhús. Þá bjuggu mamma, systir hennar og mágur á sömu hæðinni. Ég tók þetta voðalega nærri mér og seinna, þegar ég varð sjálf skólahjúkmnarkona, passaði ég mig alltaf á að spyrja bömin ekki um svona mál yfir allan bekkinn. Eins var að eiga ekki mömmu sem alltaf var heima, eins og mæður vinkvenna minna. En ég sé það alltaf betur og betur síðan hversu dugleg hún var. Við vomm líka mjög samrýmdar, fómm mikið saman í leikhús, mamma var líka í Tónlistarfélaginu og við fómm því mikið á tónleika. Örlögin biðu hennar í Eyjum Þú sagðir að langt hafi verið upp í Borgarfjörð til þess að finna pabba þinn, en var ekki langt til Vest- mannaeya líka? ,dig fór í Verslunarskólann og þegar ég var búinn með hann fór ég að vinna eitt ár á skrifstofu og fór svo í Hjúkmnarskólann, en strax á öðm ári varð maður að fara út á land. Það var um þrjá staði að velja; Akureyri, ísaljörð og Vestmannaeyjar. Ég ætlaði nú að fara til Akureyrar, en varð ekki af því. Ein vinkona mín hafði verið með stelpum héðan í hús- mæðraskóla, svo við fómm þrjár, sem vomm mest saman af hópnum, til Vestmannaeyja. Það vom bara örlög, en ég hljóp hingað 1. apríl 1957, eins og ég segi stundum, en það var ekkert plat, því ég er enn hér, enda kynntist ég mannsefni mínu, Guðjóni í Gísl- holti, þetta ár og þetta þróaðist svona. Ég fór reyndar aftur suður, kláraði námið og útskrifaðist 1958 og vann eftir það á Landsspítalanum. Við Gaui trúlofuðumst svo 1959, en ég kom nú ekki hingað strax. Ég var meira að segja svo rosaleg að ég fór til Svíþjóðar. Mig var búið að dreyma að fara til Svíþjóðar til þess að vinna við hjúkmn og fór þangað og dvaldi í hálft ár. Það þótti kannski ekki gott hér í Eyjum að trúlofast og hendast svona til útlanda. Ég sagði hins vegar alltaf að ef ég færi ekki myndi ég alltaf naga mig í handarbökin, svo ég fór og var reyndar afskaplega fegin að koma aftur. Gaui varð kannski ekkert voðalega glaður að ég skyldi fara til Svíþjóðar, en þetta var eitthvað sem ég varð að klára. Það var líka mjög móðins að fara til Svíþjóðar og vinna sem hjúkranarkona eftir námið hér. En ég held að við höfum verið afskaplega góðar og stilltar stúlkur, óttalega saklausar og kunnum kannski ekki mikið á lífið.“ Plúsamir hans Gauja Er einhver uppreisn í þér á þessum ámm? „Nei maður átti sér bara drauma og eins og ég segi er ég rosalega fegin að ég skyldi láta þetta eftir mér. Þá vissi ég að minnsta kosti að þetta var ekki eins eftirsóknarvert og maður hélt. En svo kom ég bara heim og vann á Landsspítalanum eftir það og 1961 giftum við okkur og hef ekki séð eftir því. Annars hafði maður ekki verið í neinu strákastandi. Hér var auðvitað VINKONURNAR, Auður Eir, Ásta Jónsdóttir og Hólmfríður á Peysufatadegi Verslunarskólans 1954. Herramaðurinn til vinstri er Grétar Áss, faðir Helga Áss skákmanns.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.