Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 03.02.2000, Blaðsíða 13

Fréttir - Eyjafréttir - 03.02.2000, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 3. febrúar 2000 Fréttir 13 Jói og Svana í Skýlinu: Stemmningin endurspeglar hjartslátt bæjarlífsins -og segir alveg til um hvernig sálarlíf bæjarbúa er hverju sinni Eins og komið hefur fram í Fréttum hafa nýir aðilar tekið við rekstri skýlisins í Friðarhöfn. Hinir nýju rekstraraðilar skýlisins eru Svana Guðlaugsdóttir, fyrrum verslunar- stjóri Tangans, og Jóhannes Ólafs- son, fyrrum formaður knatt- spyrnudeildar IBV og lögreglu- varðstjóri. Þau tóku við rekstrinum þann 10. janúar síðastliðinn og segjast líta björtum augum til framtíðarinnar í Skýlinu. „Það hefur verið góð stemmning héma hjá okkur, en janúar er rólegur tími við höfnina. Hingað koma áhafnir bátanna, starfsfólk stöðvanna og að sjálfsögðu fjöldi annarra viðskiptavina og oft mikið spjallað. Fasti hópurinn sem kemur hingað hefur verslað hér í fjölda mörg ár og við munum halda áfram að sinna honum af kostgæfni eins og fyrir- rennarar okkar. En eins og ég segi, stemmningin hér endurspeglar hjart- slátt bæjarlífsins og segir alveg til um hvemig sálarlíf bæjarbúa er hverju sinni. Héma fá menn oft fyrstu fréttir af aflabrögðum og hvað er að gerast í útgerðarmálum. Kannski má líka gera ráð fyrir að fótboltaspjallið aukist hér, þó að það hafi nú alltaf verið til staðar líka.“ Jói segir að jafnvel séu pólitísk mál og málefiii útgerðarlegs eðlis oft leyst hjá föstum kaffispjallsmönnum. „Já, hér eiga menn ráð undir rifi hverju og oft skaði að lausnimar sem hér em fram bomar skuli ekki ná eyrum þeirra sem fara með völdin og stjóma þjóð- félaginu." Þau segja að ýmislegt sé í athugun hjá þeim varðandi reksturinn og SVANA og Jói innan við skenkinn í Skýlinu en framan við það stendur Ólafur Sigmundsson, einn af fjölda trillukarla sem mæta í spjallið. húsnæðið. „Varðandi reksturinn mun- um við auka úrvalið í sérvömnni og olíuvörum frá Esso, sem á húsnæðið og við leigjum reksturinn af. Það em alltaf mánaðarleg tilboð í gangi hjá Esso, bæði á sælgæti, sérvöm og olívömm og þau verðum við með. Meðal tilboða febrúarmánaðar í Friðarhafnarskýlinu má nefna að Egils kristall með sítrónubragði er á 99 kr„ rommý á 29 kr., risatópas á 79 kr„ skíðahanskar sem áður vom á 795 em nú á 495 og arinkubbar 5 kg. vom á 829, en em nú á 595 á tilboði. Einnig ætlum við að auka úrvalið í kaffi- brauðinu, en að sjálfsögðu verðum við áfram með samlokur, hamborgara og bestu pylsur sem hægt er að fá í Eyjum. Varðandi fyrirhugaðar breyt- inga á húsnæðinu verður tekin upp sjálfsafgreiðsla á olíuvörunum til að bytja með og síðan munum við athuga með breytingar á teríunni. Húsnæðið eins og það er býður upp á mikla möguleika, bæði hvað varðar stækkun og breytingar. Staðurinn er líka ein- stakur, með útsýni yfir höfnina og iðandi mannlífið.“ Jói og Svana segja að þau muni reka skýlið eins og fjölskylduíyrirtæki. „Eg verð að vísu áfram í löggunni, að minnsta kosti fyrst um sinn en við emm saman í þessu,“ segir Jói. „En Svana verður í þessu af fullum krafti og sér um daglegan rekstur. Svo má búast við að krakkamir verði eitthvað í vinnu, en þetta fer trúlega eftir þörf hverju sinni, hvort við ráðum annað starfsfólk." Svana segir að hún sjái ekkert eftir því að hætta á Tanganum, þó alltaf sé að sjálfsögðu eftirsjá í góðu sam- starfsfólki og viðskiptavinum, sem hún vonar að sjálfsögðu að muni koma í Skýlið. „Maður er að vissu leyti frjálsari héma og sér út um glugga. Á Tanganum vissi maður stundum ekki hvemig veðrið var, svo að því leyti er jjetta miklu betra. En að öðm leyti er þetta svipað starf, nema að nú er ég við afgreiðsluna líka.“ Loftskeytastöðin í Vest- mannaeyjum fær aukið vægi Oddur hættur aðrýna í sortann „Ætli ég sé ekki búinn að vera í þessu síðan í aprfl 1994,“ segir Oddur Júlíusson sem nú er að láta af störfum á ÚV. „Þama hef ég lesið upp úr bæjarblöðunum með eigin hugleiðingum í bland. Frá upphafi hefur útsendingin verið síðdegis á fimmtudögum, einu sinni frá sex til sjö, svo hálf sjö til sjö og nú síðast frá korter yfir fimm.“ Oddur segir að þetta hafi verið góður tími og eftirminnilegur en mál til komið að hvfla sjálfan sig og þá sem hafa nennt að hlusta. Bæjaryfirvöld hafa ekki átt tryggari pennavin en Odd, ætlar hann sér að setja enn frekari kraft í bréfaskriftimar? „Nú er komið að þeim punkti að það verður að fara aðrar leiðir í samskiptum við bæinn og það er dómstólaleiðina. Auglýsi ég hér með eftir lögfræðingi sem vill taka að sér málið fyrir mig. Svo er kannski umhugsunarefni að Vestmannaeyingar skuli vilja sitja uppi með bæjaryfirvöld sem gera lítið úr fólki. Það em til gögn sem sýna þá lítilsvirðingu,“ sagði Oddur Við gefumst ekki upp Frá og með 1. febrúar verður Loftskeytastöðinni á Sigluflrði/TFX fjarstýrt frá Loftskeytastöðinni í Vestmannaeyjum/TFV og Loft- skeytastöðinni í Reykjavík/TFA. Loftskeytastöðin á Siglufirði var opnuð í júlímánuði árið 1934 og hefur því verið mönnuð loft- skeytastöð þar í tæplega 66 ár. Á undanfömum ámm hefur tækn- inni í fjarskiptum fleygt fram með áður óþekktum hraða. Eftirleiðis mun tækjum hennar verða fjarstýrt frá stöðvunum sem eftir em. Sam- drátturinn í strandarstöðvaþjónust- unni er afleiðing af nýju fyrirkomulagi í neyðarfjarskiptunum og aukinni sjálfvirkni í fjarskiptum við skip. Nú em tveir til þrír menn á vakt í Gufunesi og einn í Vestmannaeyjum. Aðalhlutverk þeirra er að vaka yfir öryggi sjófarenda með því að hlusta á neyðartíðnum og bregðast við hjálparköllum. Ef skip em utan þess svæðis sem farsíminn nær til em strandarstöðvamar enn meginfjar- skiptaleið þeirra í land. Kjartan Bergsteinsson loftskeyta- maður við Loftskeytastöðina í Vest- mannaeyjum segir að þróunin sé svo ör og menn sáu hag í því að nota stöðvamar í Vestmannaeyjum og Reykjavík áfram. „Vegna þess að sæstrengurinn Cantat 3 kemur á land hér í Eyjum var talin ástæða til að halda rekstrinum hér gangandi áfram, en þróunin og sjálfvirka tilkynninga- skyldan gerir þetta kleift. En í raun skiptir ekki máli hvaða strandastöð hélt áfram. Að öðm leyti em menn svo með skiptar skoðanir um að loka strandastöðvunum.“ Kjartan segir að þetta hafi leitt til fjölþættra breytinga í fjarskipta- umhverfinu. Nýjar lausnir og mögu- leikar hafa komið fram, þar með talið til fjarstýringa og ýmiss konar net- tenginga fjarskiptabúnaðar. „Þessi þróun hefur m.a. orðið til þess, að víðast hvar í heiminum hefur mönnuðum strandarstöðvum fækkað og þær sameinaðar með því að fjar- stýra þeim, jafnvel yfir töluverðar vegalengdir. Fjarskiptabúnaður verður sífellt fullkomnari og um borð í flest skip em komin nýtísku öryggistæki með aukinni sjálfvirkni, og samsvar- andi búnaður í landi hefur víða verið settur upp.“ Kjartan segir að fyrsta strandstöðin hér á landi sem fjarstýrt var frá annarri strandarstöð hafi verið Loftskeyta- stöðin í Neskaupstað/TFM, en á árinu 1989 var henni alfarið fjarstýrt frá Loftskeytastöðinni í Reykjavík/TFA. „Árið 1996 var Loftskeytastöðinni á Höfn/TFT fjarstýrt frá Reykjavík/TFA og Loftskeytastöðinni á Ísafirði/TFZ alfarið fjarstýrt árið 1998 frá Siglufirði/TFZ. Á síðasta ári vom stöðvamar í Vestmannaeyjum/TFV og Reykjavík/TFA hliðtengdar á þann hátt að þær geta unnið með flest tæki hvorrar annarrar, og hvor fyrir sig einnig fjarstýrt hinum stöðvunum. Það má til sanns vegar færa að ábyrgðin sé meiri á þeim fáu sem sinna þessari þjónustu, en engu að síður er þetta gerlegt með þeirri tækni sem er til staðar í dag. Fjarskiptin em að færast upp í gervitunglin og það stoppar enginn þá þróun.“ í síðustu viku komu tveir ungir skeitarar (hjólabretta- og línu- skautatöfTarar) inn á ritstjórn Frétta og sögðu farir sínar ekki sléttar af viðskiptum sínum við bæjarstjóra. Sögðu þeir félagar, Ingvar Öm Bergsson og Guðjón Öm Sigtryggs- son að þeir hafi lengi reynt að fá inniaðstöðu til þess að iðka íþrótt sína og þótt við hæfi að leita til bæjar- stjórans. „Við höfum nú náð tali af bæjarstjóranum og hann segist alltaf vera að athuga málið, en okkur er nú farin að leiðast biðin og viljum fara að sjá eitthvað gert í málinu. Er ekki hægt að gera ráð fyrir aðstöðu fyrir skeitara í nýrri íþróttamiðstöð," spyija þeir og bæta svo armæðulega við. „Ef hún verður þá nokkum tíma byggð.“ Þeir segjast hafa verið að þrýsta á þessa aðstöðu síðan í haust og hafi reyndar fengið aðstöðu hjá Sigga Einars í ísfélaginu um tíma. „Það vom svo einhveijir kallar sem vom að vinna þar sem sögðu að við væmm alltaf fyrir og ráku okkur þaðan. Þeir hentu svo ýmsum útbúnaði sem við höfðum komið upp þar og við rétt náðum að bjarga slidejáminu áður en þeir hentu því líka.“ Þegar þeir vom spurðir um til hvaða ráða þeir myndu grípa ef ekki yrði gripið til skjótra úrbóta sögðu þeir: „Við flytjum ömgglega til Reykja- víkur eða útlanda. Við vitum mörg dæmi þess að skeitarar hafi góða aðstöðu víða um land og í útlöndum og hvers vegna þá ekki hér. Það er að minnsta kosti ljóst að við kjósum hann ekki ef málið reddast ekki fljótlega,“ sögðu þeir. Og Ingvar Öm bætti við að jafnvel þó að bæjarstjórinn væri frændi sinn myndi hann ekki kjósa hann. Þessu er hér með komið til skila. Slysavarnadeildin Eykyndill lætur ekki deigan síga í baráttu sinni til stuðnings hvers kyns framfara- málum í Eyjum. Er skemmst að minnast hlut- deildar Eykyndilskvenna í að koma upp umferðarljósum á homi Heiðar- vegar og Strandvegar. Síðastliðinn fimmtudag vom Eykyndilskonur aftur á ferð en þá gáfu þær lög- reglunni í Vestmannaeyjum tvær talstöðvar, auk þess sem þær gáfu Herjólfi hf. einnig tvær talstöðvar til notkunar um borð í Heijólfi. Það fer lfldega enginn í grafgötur með hvflík öryggistæki talstöðvar em jafnt hjá lögreglu sem og um borð í Herjólfi og em þessar gjafir því kærkomin viðbót við tækjakost lögreglu og Herjólfs. Samanlagt andvirði þessara tveggja gjafa er um 180 þúsund krónur. Það var Karl Gauti Hjaltason sýslumaður sem veitti talstöðvunum viðtöku fyrir hönd lögreglunnar og Láms Gunnólfsson skipstjóri Heijólfs fyrir hönd Herjólfs hf.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.