Fréttir - Eyjafréttir - 03.02.2000, Síða 12
12
Fréttir
Fimmtudagur 3. febrúar 2000
SrT " »1 1
A K ■ 2Í1
FJÖLSKYLDA Sævalds Pálssonar og Svövu Friðgeirsdóttur saman komin í borðsalnum á Berg.
MARGIR samglöddust Sævald og fjölskyldu þegar Bergur kom.
Birkir Agnarsson framkvæmdastjóri Netagerðar Ingólfs færir
Sævaldi blóm.
NÝ aðalvél er af gerðinni Caterpillar, 5500 hestöfl. Hekla er með
umboð fyrir Caterpillar hér á landi og hér er Sævald ásamt Sigfúsi
Sigfússyni, framkvæmdastjóra Heklu í vélarrúmi Bergs.
Bergur VE kom til Eyja síðdegis sl.
fimmtudag. Skipið hefur verið í
Póllandi síðan í ágúst á síðasta ári
þar sem lokahönd var lögð á stór-
felldar endurbætur á því. Raunar
eru endurbæturnar svo stórfelldar
að miklu nær er að tala um nýtt
skip í því sambandi þar sem nánast
ekkert er eftir af neinu sem var í
gamla Berg.
Ný aðalvél var sett í skipið, ásamt gír
og skrúfubúnaði, ný hliðarskrúfa og
nýtt spilkerfi. Allar mannaíbúðir voru
endumýjaðar. Þá var afturlestin lengd
um þrjá metra og eykur það
burðargetuna um 100 tonn þannig að
reiknað er með að Bergur geti borið
um 1300 tonn af loðnu eftir þessar
breytingar. Helsta útlitsbreytingin er
sú að ný brú var sett á skipið. Gamla
brúin var í litlu samræmi við hinn nýja
og stóra skrokk en með nýju brúnni er
Bergur orðinn einkar glæsilegur útlits.
Elías Geir Sævaldsson, sem sigldi
skipinu heim, sagði að þeir hefðu
fengið gott veður að Færeyjum en
síðasta spölinn hefðu þeir fengið
brælu beint í nefið, allt upp í 30 m
vind. Það hefði seinkað komunni til
Eyja því að slá hefði þurft af ferðinni
vegna brælunnar. Annars hefði heim-
ferðin gengið að óskum og allt virkað
eins og til er ætlast. „Það var út af
íyrir sig allt í lagi að fá smábrælu til að
sjá hvemig hann er við slíkar að-
stæður. Og ég var mjög ánægður með
hreyfingamar á honum, hann er góður
í sjó og hefur, að ég held, í engu misst
af þeirri sjóhæfni sem hann hafði,"
sagði Elías Geir.
Sfðustu daga hefur verið unnið við
ýmislegt smávegis um borð, hefð-
bundin skoðun hefur farið fram en
skipið er klárt til að halda til loðnu-
veiða um leið og einhveijar aflafréttir
berast af miðunum.
Fátt sem minnir
á Magnús NK
Það er ekkert sem minnir á að hér sé á
ferðinni skip sem upphaflega var
smíðað á 7. áratugnum. Þegar Bergur
fór í breytingar í Póllandi fyrir þremur
árum hafði skipið gengið í gegnum
ýmsar breytingar. Upphaflega hét
hann Magnús NK og hafði verið
lengdur og byggt yfir hann eins og
algengt var um skip frá þessum tíma.
Þegar útgerð Bergs ákveður að stækka
er farin sú leið að byggja nýtt skip
utan um það gamla til að komast hjá
ákvæðum um tonn á móti tonni.
Þessi leið útgerðarinnar hefur
heppnast frábærlega, því Bergur er
nýtt skip og ekkert sem minnir á
Magnús NK.
Pólverjum hefur farið mikið fram í
allri smíði innanstokks. Sést það vel í
brú skipsins og íbúðum áhafnar.
Skráning á Alfa-námskeiðið stendur yfir
Alfa-námskeið í Landakirkju leitar svara við grund-
vallarspumingum lífsins. Alfa er ódýrt, skemmtilegt og
lífbreytandi 10 vikna námskeið um grundvallaratriði
kristinnar trúar. Námskeiðið hefst mánudaginn 7. febrúar,
stendur írá kl. 19-21, og verður vikulega. Hver stund hefst
með léttum málsverði, síðan fræðsla og fyrirspumir, endað
er með góðri stund uppi í kirkju. Kennarar verða prestar
Landakirkju. Þessi námskeið hafa hlotið lof víða um landið
og opnað fólki nýja sýn. Skráning stendur yfir, í
safnaðarheimili Landakirkju í s: 481 2916. Takmarkaður
íjöldi þátttakenda. Fyrstir koma, íyrstir fá.
Með blcssunaróskum,
Sr. Bára Friðriksdóttir.
Heilbrigt líf á árs-
hátíð Hamarsskóla
NEMENDUR fjölmenntu á árshátíðina.
Síðastliðinn fimmtudag var
haldin árshátíð nemenda
Hamarsskóla. Arshátíðin var
undanfari þemadaga, hvar lagt
var upp með einkunnarorðin:
Heilbrigt líf. Voru þá fengnir
fyrirlesarar til að kynna
nemendum hina ýmsu fleti
heilbrigðs lífs. Má þar nefna
lækni, hjúkrunarfræðing og
prest. Einnig fengu nemendur
einn útivistardag, þar sem
náttúrunnar var notið.
Árshátíðin er að venju
hápunktur slíkra þemadaga og
var engin undantekning að þessu
sinni og höfðu nemendur lagt
mikið í skreytingar skólans, þar
sem ýmislegt tengt sjötta
áratugnum og hippatímanum bar
hæst, en þann áratug að öðrum
áratugum ólöstuðum var ungt
fólk mjög í uppreisn gagnvart
viðteknum venjum samfélagsins.
Er stundum sagt að einkunnarorð
þessarar kynslóðar hafi verið ást,
kynlíf og eiturlyf.
Árshátíðin hefur fengið á sig
hefðbundinn blæ í gegnum árin,
þar sem nemendur snæða
íjúffenga máltíð og njóta ýmissa
skemmtiatriða sem nemendur
útbúa. Flutt voru minni kennara
og nemenda, leikþáttur var
fluttur um dæmigerðan dag á
kennarastofunni, myndbönd, sem
nemendur höfðu gert, voru
frumsýnd og að sjálfsögðu var svo
sett upp tískusýning. Lauk svo
árshátíðinni með diskóteki, hvar
DJ Tryggvi „Moonshine“ Sæm
bímaði diska og nemendur
dönsuðu fram eftir kvöldi. Hér á
síðunni má sjá nokkrar
svipmyndir frá árshátíðinni og
þeirri miklu gleði.
ÞESSAR ungu dömur léku í myndbandi sem sýnt var á
árshátíðinni.
KRAKKARNIR settu upp leikþátt sem fjallaði um dæmigerðan
dag á kennarastofunni.