Fréttir - Eyjafréttir - 10.02.2000, Síða 1
E
27. árgangur • Vestmannaeyjum 10. febrúar 2000 • 6. tölublað • Verðkr. 140,- • Sími:481 3310 • Fax:481 1293
STRAKARNIR í Barnaskólanum létu slabbið ekki hindra sig í að spila fótbolta í
frímínútunum. Þeir gáfu sér þó tíma til að stilla sér upp fyrir Ijósmyndarann.
ESB sagði nei við vindmyllustyrk:
Gefast ekki upp þó móti blási
Eins og kunnugt er hefur verið
unnið að undirbúningi við að koma
upp vindmyllum í Vestmannaeyj-
um til raforkuframleiðslu. Bæjar-
veitur Vestmannaeyja fóru meðal
annars í samstarf við Selfossveitur
vegna undirbúnings málsins og
sóttu sameiginlega um styrk til
Evrópusambandsins að upphæð
240 milljónir til að rannsaka
samspil vindorku og vatnsorku en
heildarkostnaður við framkvæmd-
ina var áætlaður um 500 milljónir.
Umsókninni var hins vegar synjað
á þeim forsendum að nýnæmi í
verkefninu væru ekki næg. Friðrik
Friðriksson sagði að áfram yrði samt
haldið að vinna að málinu og fengnir
yrðu áhættufjárfestar til þess að
fjármagna framkvæmdina. „Fram-
kvæmdin verður bara minni í sniðum
fyrir vikið. Við höfum látið gera
frumumhvefísmat hjá Náttúrustofu
Suðurlands og samkvæmt því mati
var ekkert sem ætti að geta hindrað
þetta. En að mínum dómi kemur þetta
til með að standa og falla með því,
hvort Vestmannaeyingar vilji fá slík
mannvirki eða ekki. Að vísu er að
þessu viss sjónmengun, en þar eð
miðað er við að staðsetja myllumar
þar sem lítið ber á þeim ætti það ekki
að verða til vansa.“
Jarðskjálfti við Surtsey sl. sunnudag
A sunnudagsmorgun um hálfsjöleytið mældist allsnarpur jarðskjálfti við
Surtsey, eða 3,1 á Richterkvarða.
Kristín Jónsdóttir, jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofu íslands, segir að
skjálftinn hafi komið fram á mælum Veðurstofunnar. Engir skjálftar haft hins
vegar mælst í kjölfarið og því sé lítið hægt að lesa út úr þessum eina skjálfta.
Kristín sagði að þarna virtist vera um séreinangrað tyrirbæri að ræða. hvorki
hefðu mælst þama skjálftar á undan né eftir. Því gærn Vestmannaeyingar sofið
rólegir, ekkert gæfi til kynna að neinar umbrotahiinur væm í uppsiglingu.
Bókanir á víxl í bæjarráði vegna vantrauststillögu minnihlutans á bæjarstjóra:
w
W
8
Stjórn bæjarins í uppnámi
W
I
i
\
Á fundi bæjarráðs á mánudag voru
sex mál á dagskrá. Hvað fyrir-
ferðarmest var mál nr. 1, um
fjárhagsstöðu bæjarins. Fundurinn
var óvenjulangur, miðað við fyrri
fundi bæjarráðs, stóð í ríflega
hálfan annan tíma, aðallega vegna
umræðna um 1. mál. I umræðum
um það mál vék Guðjón Hjörleifs-
son, bæjarstjóri, af fundi.
Fulltrúar sjálfstæðismanna, þær Elsa
Valgeirsdóttir og Sigrún Inga Sigur-
geirsdóttir létu bóka að þær hörmuðu
þá persónulegu óvild sem kæmi ffam
hjá minnihlutanum á hendur Guðjóni
Hjörleifssyni, bæjarstjóra. Vest-
mannaeyjalistinn hefði lagt fram van-
trauststillögu á hann á fundi bæjar-
stjómar og oddviti V-listans, Þor-
gerður Jóhannsdóttir, hefði haldið því
fram opinberlega að enginn treysti sér
til að halda uppi vömum fyrir hann
nema hann sjálfur. Þetta væri ekki rétt
þar sem viðkomandi tillaga hafi verið
afgreidd án umræðu. Þá var í bók-
uninni gagnrýndur málflutningur
Þorgerðar og rangfærslur um skulda-
stöðu bæjarsjóðs og skuldaaukningu
upp á 234 milljónir sem með réttu sé
105 milljónir samkvæmt fjárhags-
áætlun fyrir árið 2000. í lok bókun-
arinnar segir að Guðjón hafi í þau ár
sem hann hefur starfað sem
bæjarstjóri, sýnt það og sannað að
hann vinni bæjarfélaginu allt það gagn
sem hann megi, með fullri einurð og
samviskusemi.
Þessu var svarað með bókun frá
fulltrúa minnihlutans, Ragnari Oskars-
syni. Þar vísar hann á bug tilraun
meirihlutans til að gera málflutning
Þorgerðar tortryggilegan. Gert sé ráð
fyrir í fjárhagsáætlun fyrir árið 2000
að bæjarsjóður og hafnarsjóður taki
lán upp á rúmar 230 milljónir til að
láta enda ná saman og bætist við aðra
skuldasöfnun sjálfstæðismanna á
liðnum árum. Ragnar ítrekaði að á
áðumefndum bæjarstjómarfundi hafi
enginn bæjarfulltrúi sjálfstæðismanna
séð ástæðu til að halda uppi vömum
fyrir bæjarstjóra nema hann sjálfur.
Ragnar telur rökrétt að framkvæmda-
stjóri bæjarins verði leystur frá
störfum og fjármálin stokkuð upp að
nýju vegna fjárhagsstöðunnar. Ragn-
ar vildi taka skýrt fram að
málflutningur minnihlutans væri ekki
byggður á persónulegri óvild í garð
bæjarstjóra, heldur í beinu og rökréttu
framhaldi af alvarlegri viðvömn um
fjárhagsstöðuna og vanhæfni sjálf-
stæðismanna til að ráða bót þar á.
Þessu svömðu þær Elsa og Sigrún
Inga með annarri bókun. Þar tóku þær
fram að við samanburð á fjárhags-
stöðu sveitarfélaga þurfi að taka tillit
til fjárfestingar og uppbyggingar
þeirrar þjónustu sem veitt er í sveitar-
félögum en þjónustustig sé mjög hátt í
Vestmannaeyjum. Þá þurfi að taka
tillit til niðurgreiðslu lána við um-
ræður um skuldir en niðurgreiðslur
lána bæjar- og hafnarsjóðs séu 129
milljónir. Þá var í bókuninni ítrekað
að þær telja að málflutningur minni-
hlutans byggist á persónulegri óvild
gegn bæjarstjóra.
Ragnar vísaði til fyrri bókunar sinnar
þar sem staðreyndir málsins kæmu
fram og taldi alvarlegt að bæjar-
ráðsmenn meirhlutans skyldu reyna
að slá ryki í augu bæjarbúa í stað þess
að viðurkenna staðreyndir um bágan
fjárhag og bregðast við með viðeig-
andi hætti. Ragnar sagði að erfitt gæti
orðið að koma fjármálunum í rétt horf
meðan sjálfstæðismenn viðurkenndu
ekki vandann. Bæjarbúar ættu hins
vegar heimtingu á því að það væri
gert.
Þessu svöruðu Elsa og Sigrún Inga
með vísun í fyrri bókanir sínar á
fundinum.
Þama kemur fram trúnaðarbrestur
sem orðið hefur í bæjarstjóm í kjölfar
vantrausts V-listans á bæjarstjóra. Er
erfitt að sjá hvemig bæjarstjóm á eftir
að ná að vinna saman eftir þann
gjöming.
I viðtali við Fréttir í blaðinu í dag
segir bæjarstjóri að trúlega séu skuldir
bæjarsjóðs komnar í einn milljarð.
Árið 1999 kemur illa út vegna minni
tekna en áætlað var þannig að Vest-
mannaeyjakaupstaður verður áfram
undir smásjá eftirlitsnefndar um
fjármál sveitarfélaga. Bæjarstjóri segir
að gripið verði til ráðstafana í
fjármálum bæjarins og þær lagðar
fyrir eftirlitsnefndina.
Oddviti V-listans segist vilja ráða
fjármálastjóra til bæjarins og að bæði
meiri- og minnihluti sameinist um að
vinna að lausn fjárhagsvandans með
eftirlitsnefndinni.
Zí/.v. 2, 8, 9, 13, 15 og baksíðu.
-mm
Utsynningur
ÖflVGGI
á oiiani sviditm1
TM-ÖRYGGI
FYRIR
FJÖLSKYLDUNA
Sameinar öll tryggmgamálin
á einfaldan og
Éhmmrnmmm
Flötum 20 - Sími 481 1535
Viúgy/Oj/ -JJ Jjjni/Jiúúi
Græðisbraut 1 - Sími 481
Vetraráætlun
s/V Frá Eyjum Frá Þorlákshöfn
Alla daga n/sun. Kl. 08.15 Kl. 12.00
Sunnudaga Kl. 14.00 Kl. 18.00
Aukaferð föstud. Kl. 15.30 Kl. 19.00*
* Fellur niður frá 18. des.1999 - 16. mars 2000
Ueriólfur hi Sími 481 2800
Fax 481 2991