Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 13.04.2000, Qupperneq 2

Fréttir - Eyjafréttir - 13.04.2000, Qupperneq 2
2 Fréttir Fimmtudagur 13. apríl 2000 Undirbúningur nýs íþróttahúss á lokastigi: Endanleg ákvörðun tekin næstu daga HLUTI Finnlandsfaranna, f.v. Ólafur, Ársæll, Björgvin, Sigurjón, Þór og Jón. ÞETTA fjölnota íþróttahús er stálbygging sem Rannila hefur byggt. frettir Tónleíkahald afbakkað Á síðasta fundi menningarmála- nel'ndar lá fyrir bréf frá Pétri Jón- assyni, gítarleikara með ósk um tónleikahald í Vestmannaeyjum. Vestmannaeyjabær hefur styrkt tónleikahald félaga í FIT og á áætlun vegna þess eru tvennir tónleikar á ári. Á þessu ári hefur píanóleikarinn Peter Maté leikið hér á vegum FÍT en ákveðið var að afþakka þessa tónleika Péturs Jónassonar að þessu sinni. Farandsýniny kvenna Menningarmálanefnd fékk til um- sagnar á síðasta fundi bréf frá hópi kvenna sem hyggst fara um landið með myndlistarsýningu. Óskaþær eftir að sýna hér í tengslum við kristnitökuafmæli í sumar. Menn- ingarmálafulltrúa var l'alið að ræða við sóknamefnd um erindi þeina. írismeðgeisladisk Ákveðið hefur verið að söngkonan góðkunna, Iris Guðmundsdóttir, verði einn fulltrúa Vestmannaeyja á kristnihátíð á Þingvöllunr í sumar. Menningarmálanefnd hefur fengið bréf frá Irisi þar sem hún leitar eftir styrk vegna útgáfu á geisladiski með gospeltónlist. Tekið var já- kvætt í erindi söngkonunnar og menningarmálafulltrúa falið að ræða við hana um erindið. lakobisynjaðum styrk Á lúndi menningarmálanefndar ver tekið fyrir bréf frá Jakobi S. Er- lingssyni. Þar er óskað eftir styrk vegna fyrirhugaðrar myndlistarsýn- ingar. Ekki var hægt að verða við erindinu. Skialasafnog minjagripir Á þessu ári er minnst 20 ára afmælis Héraðsskjalasafns Vest- mannaeyja. Á síðasta fundi menningarmálanefndar var nokkuð rætt um starf héraðsskjalavarðar, svo og um væntanlegar reglur vegna útlána á listaverkum í eigu bæjarins. Þá var einnig rætt um hugmyndir að minjagripum fyrir Vestmannaeyjabæ og að lokum um 17. júní og fyrirkomulag hátíða- halda þess dags. Skjótari afgreiðsla Gengið hefur verið frá tillögu að samþykkl um að byggingafulltrúi geti afgreitt tiltekin verkefni án þess að leita þurfi staðfestingar bygg- inganefndar. Með þessu á að stuðla að skjótari afgreiðslu smærri mála sem ekki er talin þörf á að bygginganefnd samþykki. Bæjar- ráð hefur vísað tillögunni til fyrri umræðu í bæajrstjóm. leiðrétting í myndatexta í 13. tbl. Frétta er ranglega farið með nal'n homleikara í Lúðrasveit Vestmannaeyja. Rétt nafn hennar er Hlíf Helga Kára- dóttir. Er hlutaðeigandi beðinn vel- virðingar á mistökunum. Húsasmiðjan og Húsey Vestmanna- eyjum voru með hagstæðasta tilboðið í nýtt íþróttahús, það yrði framleitt af finnsku verksmiðjunni Rannila en reist af Islendingum. Fyrir helgi buðu Húsey, Húsa- smiðjan og Rannila fulltrúum Vest- mannaeyjabæjar, byggingameistara og tæknimönnum að kynna sér verksmiðjurnar í Finnlandi. I ferðinni voru Þór Valtýsson frá Húsey, Ólafur Ólafsson bæjartæknifræðingur, Ársæll Sveinsson frá Steina og Olla, Siguijón Pálsson og Björgvin Björgvinsson frá Teiknistofu Páls Zóphónfassonar og Jón Snorrason forstjóri og Guðlaugur Long frá Húsasmiðjunni auk fjögurra íslenskra arkitekta sem em að vinna að húsum sem Húsasmiðjan er að selja. „Við flugum til Helsinki á fimmtu- daginn þar sem fulltrúar Rannila, sem er fjölþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í stálbyggingum, tóku á móti okkur,“ segir Ölafur bæjartækni- fræðingur. „Það var strax haldinn fundur með hönnuðum, bæði íslensk- um og finnskum og sérfræðingum verksmiðjanna og þar var farið í gegnum væntanlegt íþróttahús fyrir Vestmannaeyjar. Það yrði stál- grindarhús, klætt að utan með áli en að innan með stáli. Þar voru ýmis smáatriði sem tengjast aðstæðum í Vestmannaeyjum rædd og fulltrúum frá íslandi kynnt efni og útfærslur á hinum ýmsu möguleikum sem verk- smiðjan býður upp á. Farið var í skoðunarferð í Helsinki þar sem m.a. var skoðuð stór fjölnota íþróttahöll sem tók allt að 13 þusund manns í sæti. Einnig var skoðuð 20 hæða blokk sem byggð var úr stáli frá verksmiðjunni. Síðan var okkur sýnd opinber bygging sem verið er að byggja úr efni frá Rannila." Næsta dag fór hópurinn í heimsókn til verksmiðjunnar og var framleiðsla hennar skoðuð. Sérðu hús af þessari gerð henta aðstæðum f Vestmannaeyjum? ,Já, ég myndi segja að þetta sé mjög vönduð framleiðsla, sérstaklega þegar um er að ræða álklæðningar sem ekki ryðga. Þetta byggingakerfi er mjög vel þróað og vel hugsað fyrir öllu. Til dæmis verður allur hljóðburður í húsinu í lok síðustu viku var gengið frá sölu á Valdimar Sveinssyni VE. Magnús Kristinsson, útgerðarmaður hjá Berg-Hugin, sem keypti Valdimar fyrir skömmu, segir að þessi kaup hafi gengið fljótt fyrir sig. „Ég auglýsti bátinn, fékk fljótlega tilboð í hann og sendi gagntilboð til baka sem gengið var að.“ reiknaður út sem tryggir að hávaði verði innan marka.“ Hvenær verður tekin ákvörðun um smíði íþróttahúss í Eyjum og hvenær verður það tilbúið ef af verður? „Samkvæmt minni bestu vitund eru samningar mjög langt komnir um fjármögnum hússins og ef allt gengur samkvæmt áætlun verður húsið tilbúið Kaupandinn er Ósbúð hf. en þar munu vera bæði Homfirðingar og Suðumesjamenn. Báturinn verður gerður út frá Hornafirði og er farinn frá Eyjum. Hann hefur fengið nýtt nafn, heitir nú Beggi á Tóftum VE 28 en ætla má að skrásetningamúmerið komi til með að breytast í SF. Bát- urinn var seldur án veiðiheimilda og næsta vor,“ sagði Ólafur. Um er að ræða tvöfaldan sal með fimleikaaðstöðu sem rísa á vestan við núverandi húsnæði Iþróttamiðstöðv- arinnar. Auk þess verða byggðir fjórir búningsklefar ásamt salemum og fundarherbergjum sem tengjast nú- verandi andyri Iþróttamiðstöðv- arinnar. hafa veiðiheimildir hans verið færðar yfir á Emmu VE. Þar með er Emma komin með heils árs veiðiheimildir en áður var aðeins hægt að halda skipinu úti til veiða hluta ársins. „Við buðum mannskapnum á Valdimar vinnu á öðmm skipum okkar og tveir þeirra leituðu eftir því. Nú veit ég að annar þeirra fór með fréttir Mðmeirierill 174 færslur vom í dagbók lögreglu í sl. viku og er það nokkm meira en í vikunni á undan. Aftur á móti var sjálf helgin í meðallagi, 32 bókanir frá föstudegi til sunnudags. Húsbrot Aðfaranótt þriðjudags var húsbrot kært til lögreglu. Hurð var sparkað upp í íbúð í tvíbýlishúsi í bænum en gleðskapur hafði verið í hinni íbúð hússins. Peningakassastolið í sl. viku var tilkynnt um þjófnað á litlum bláum peningakassa úr Athafnaverinu en kassinn var geymdur á ski'ifstofu forstöðu- manns. Var talið að í kassanum hefðu verið urn 4000 kr. í smá- mynt. Em allir þeir sem geta gefið upplýsingar um málið beðnir að hafa samband við lögreglu. Tueir stútar Alls komu upp níu mál í vikunni sem tengdust brotum á um- ferðarlögum. Tveir vom teknir, gmnaðir um ölvun við akstur, fjórir fyrir að leggja ólöglega, einn fyrir að aka án réttinda, einn fyrir að aka númerslausu ökutæki og einn fyrir að aka fram úr á gangbraut. Þá var eitt umferðaróhapp tilkynnt lög- reglu. Árekstur varð milli tveggja bíla á bflalstæði við Áshamar en engin meiðsl á fólki. Nagladekkinundan Þann 15. aprfl. sem er nk. laug- ardag. eiga nagladekkin að vera farin undan og em bifreiðaeigendur hvattir til að skipta yfir á sumar- dekkin. Hins vegar verður ekki beitt sektum fyrst um sinn en búast má við að lögregla fari að sekta bifreiðaeigendur upp úr miðjum maí, verði nagladekk þá enn undir bifreiðum. FrétUr á miðirikudag í næstu viku koma Fréttir út á miðvikudaginn, daginn fyrir skír- dag. Auglýsendur og greinahöf- undar em beðnir um að hafa þetta í huga. skipinu austur og hyggst verða áfram um borð og jaffivel einn eða tveir aðrir sem hyggjast verða áfram á skipinu. Aftur á móti þýðir þessi tilflutningur á veiðiheimildum að úthaldið lengist á Emmu VE um allt að sex mánuði og það þýðir þá aukningu á störfum þar um borð,“ sagði Magnús. FRETTIR Útgefandi; Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir Jónsson. íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson. Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481- 1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir. FRÉTTIR koma út aila fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum Friðarhöfn, Tvistinum, Toppnum, Kránni, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum. FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið. Valdimar Sveinsson VE seldur til Hornafjarðar: Heitir nú Beggi á Tóftum VE 28

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.