Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 13.04.2000, Síða 4

Fréttir - Eyjafréttir - 13.04.2000, Síða 4
4 Fréttir Fimmtudagur 13. apríl 2000 BókvitiðT akkana Nýfæddir________ * vestmannaeyingar Ýtarlegar mannlýsingar Gunnar á Hlíðarenda, Hallgerður langbrók, Njáll og Bergþóra á Bergþórshvoli eru aðalsöguhetjur í bókinni sem ég var í miðju kafi að lesa þegar Svava Boga, mín gamla vinkona, skoraði á mig í síðustu viku. Reyndar er Brennunjálssaga hluti af námseíni mínu í íslensku á þessari önn í FIV. Sterk einkenni sögunnar eru mjög ýtarlegar mannlýsingar og meitlað tungutak. Orðtök og máls- hættir í sögunni eru mörg alþekkt: „Góðar em gjafar þínar en meira þykir mér verð vinátta þín og sona þinn,“ sagði Gunnar við besta vin sinn, Njál. Það hefur verið býsna skemmtilegt að kynnast þessum fomu hetjum þó finnst mér kvenpersónum ekki hampað nóg af höfundi, þær em margar hinar mestu gribbur og hafa það hlutverk helst að eggja karlana til hefnda. Ókunnur höfundur Njálu hefur samt sem áður með ritsnilld sinni, gert söguna að því meistara- verki sem hún er. Ég mæli með Brennunjálssögu. Þat var ok. Ég var að hugsa um að skrifa um uppáhaldsbækur mínar gegnum tíðina en sé að það er of langur listi svo ég ætla að segja frá einni af bókunum sem ég fékk í jólagjöf. Hún heitir Ný framtíð í nýju landi og er í samtalsformi; skráð af Valgeiri Sigurðssyni. I bókinni talar hann við fimm þýskar konur sem settust að hér á íslandi eftir lok síðari heims- styrjaldar, samkvæmt beiðni ís- lendinga sjálffa, því á þeim tíma var mikill skortur á fólki til landbúnaðar- starfa hér á landi. Þetta voru miklar dugnaðarkonur sem náðu, þrátt fyrir ofl erfiða lífsreynslu, að skapa sér gott líf í nýju landi. Ein þeirra, Ursúla Guðmundsson, giftist hingað til Eyja og bjó hér með manni sínum, Jónasi Guðmundssyni og bömum þeirra fram að gosi. Að lokum langar mig að segja frá bók sem ég er nýbyrjuð að lesa og mér líst ákaflega vel á. Hún heitir Villtir svanir og er eftir kínverska konu, Jung Chang. Þýðandi bókar- innar er Hjörleifur Sveinbjömsson, eiginmaður Ingibjargar Sólrúnar borgarstjóra. Ég fékk þessa bók senda frá góðri konu þegar hún vissi að ég færi til Kína. Bókin er í senn kvenna- saga, fjölskyldusaga og mannkyns- saga. Höfúndur segir sögu fjölskyldu sinnar ffá sjónarhóli þriggja kynslóða kvenna: sjálffar sín, móður sinnar og ömmu. Bók þessi hefur farið sigurför um öll Vesturlönd ffá því hún kom út 1991 og hefúr trónað á metsölulistum víða um lönd. Ég þakka ritstjóra Frétta fyrir bókapistilinn í blaðinu sem ég les alltaf og skora því næst á skólasystur mína og sessunaut í nrörg ár, Sigrúnu Ingu Sigurgeirsdóttur, að taka við pennanum. Ég man að ég öfúndaði hana dálítið af flotta pennaveskinu sem hún fékk í lestrarverðlaun í stubbadeild Aðvent- istaskólans vorið 1961. Ragnheiður Einarsdóttir. Ekki sest í helgan stein , Oft er talað um að kvennahandboltinn I ^ | Vestmannaeyjum hafi á síðustu 15 árum “ hvilt á herðum þriggja fjöskyldna í bænum. Hvað sem til er í því þá er það víst að þær fjölskyldur hafa verið öllu nátengdari kvennahandboltanum en aðrir. Fjölskyldurnar eða hjónin, sem þarna er um rætt, eru Olöf Heiða Elíasdóttir og Björgvin Eyjólfsson, Guðrún Ragnarsdóttir og Þorvarður Þorvaldsson og svo Eygló Kristinsdóttir og Grímur Guðnason. Afþeim sex varð SEygló fyrir valinu sem Eyjamaður vikunnar. Fulltnafn? Eygló Kristinsdóttir. Fæðingardagur og ár? 9.júlí 1959. Fæóingarstaður? Vestmannaeyjar. Fjölskylduhagir? Gift Grimi Guðnasyni. fcO Við eigum tvö börn, Guðna 18 ára og ^ \ Kristínu 14 ára. Ilj Menntun og starf? R™" Lauk skyldunámi. Heimahangandi húsmóðir og passa eina litla stelpu á morgnana. Laun? Misjöfn. Bifreið? M.C.Pajeore. Helsti galli? Enginn, segir Grímur. Helsti kostur? Léttlynd, segir tengdó. Uppáhaldsmatur? Allur matur sem er vel matreiddur. Versti matur? Það veit ég ekki. Uppáhaldsdrykkur? Vatn. Uppáhaldstónlist? Þjóð- hátíðarlögin. Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Að vera I góðum vina hópi. Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir? Veit ekki um neitt leiðinlegt. Hvað myndirðu gera ef þú ynnir milljón i happdrætti? Njóta þess að vera til. Uppáhaldsstjórnmálamaður? Ég á enga slíka. Uppáhaldsíþróttamaður? Kristin Grímsdóttir, íslandsmeistari í 5. flokki kvenna ÍBV í handbolta. Ertu meðlimurí einhverjum félagsskap? ÍBV og saumaklúbbnum „Sjö þræddum nálum.“ Uppáhaldssjónvarpsefni? iþróttirog Ráðgátur. Uppáhaldsbók? Líklega bankabókin, einstöku sinnum. Hvað metur þú mest í fari annarra? Traust og dugnað. Hvað fer mest i taugarnar á þér í fari annarra ? Leti og frekja. Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Ung- verjaland. Hvað ert þú lengi búin að vera að stússast í kvennahandboltanum? Ég hætti að spila handbolta 23 ára og þjálfaði þá yngri stelpur og sá um rekstur eldri flokkanna. Ég dró mig talsvert I hlé fyrir tveimur til þremur árum en er nú til staðar I sérverkefnum og ávallt tilbúin að starfa fyrir stelpurnar. Var þetta það sem stefnt var að? Já, að sjálfsögðu stefndum við alltafhátt, ofthöfum við verið mjög nálægt titli en rétt misst af honum. Svo þetta er meiri háttar uppskera fyrir íþróttafólk og þá sem standa við bakið á þeim. Á nú að setjast í helgan stein? Nei. Ég kann það ekki. Hvernig er framtiðin í kvenna- handboltanum iEyjum? Björt, og þessi frábæri árangur hjá þessu brosmilda og létta liði hjálpar til við að auka áhuga hjá öllum. Eitthvað að lokum? Tveir íslandsmeistaratitlar á fimm dögum. Er haegt að biðja um meira? Áfram ÍBV. Þann 22. september 1999 eignuðust Dagný Baldursdóttir og Benjamín Steinarsson tvíbura. Þeir hafa verið skírðir Tanja Dóra og Tinna Dröfn og eru hér á mynd ásamt foreldrum sínum. Þeir fæddust á fæðingardeild Landspítalans. Fjölskyldan býr í Kópavogi. Þann 19. mars eignuðust Helga Svandís Geirsdóttir og Þórður Amundason son. Hann vó 12 merkur og var 51 cm að lengd og er hér á mynd ásamt foreldrum sínum. Hann fæddist á fæðingardeild Landsspítalans. Á döfinni 4* 13. apríl Opið erindi í Rannsóknasetrinu um jarðskorpuhreyfingar og fyrirboða eldgosa. kl.20.00 14. apríl Deildarfundur KA í sal Sveinafélags Jómiðnaðarmanna kl. 20.00 14. apríl Fjórir Bjórar ó Fjörunni 15. apríl Papamir ó Fjörunni 15. apríl Myndlistarvor Islandsbanka í Eyjum 2000. Vignir Jóhannsson opnar sýningu í Gallerí Ahaldahúsinu kl.17.00. Aðgangur ókeypis. Allir velkomnir 17.apríl Kynningarfundur Fjórfestingafélags Suðurl. og Nýsköpunarsjóðs í Sparisjóðs Vestmannaeyja kl. 17.30 Allir velkomnir 22. apríl Handboltaslútt í Týsheimilinu. Allir velkomnir og aðgangseyri stillt í hóf 24. apríl Tónleikar Guðmundar H. Guðjónssonar og Védísar Gúðmundsdóttur í Landakirkju kl. 17.00 19. -20. maí Vor í Eyjum 2000

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.